Leitin að Pakkmann hefst

Pakkmann

Nú er orðið tímabært að leitin hefjist að þeim Íslendingi sem ekki veit enn hvað er í ESB- pakkanum eftir öll þessi ár, köllum hann Pakkmann.

Eftir Alþingis- kosningar árið 2007 voru Pakkmenn fjölmargir, enda var Samfylkingin komin í stjórn ásamt Þorgerði Katrínu og fleiri ESB- sinnum, sem dásömuðu möguleikana á því hvað væri í pakkanum sem Íslendingar fengju við inngöngu í ESB. Til þess var ekkert sparað og umsókninni snarað inn án aðkomu Pakkmanna árið 2009. Árin liðu í „upplýsingu og gagnsæi“ Evrópukynningarinnar, skrifstofur stofnaðar og talað út í óendanleikann.

Fækkar með betri upplýsingum 

En ESB rak sig á það að Pakkmönnum fækkaði eftir því sem upplýsingarnar urðu betri. Hver opinberunin á fætur annarri um innihald pakkans og afstöðu ESB í veigamiklum málum þegar á reyndi (Icesave, makríll, sjávarútvegur, orka, landbúnaður) sýndi Pakkmönnum að pakkinn var bara Pandórubox

Pakkmann bangsi

Nú er svo komið, eftir sjö ára upplýsingastreymi, að hver íbúi í Trékyllisvík og víðar veit nákvæmlega hvað í pakkanum felst. En hver og einn telur að aðrir hafi ekki náð þessu, þó að þeir sjálfir séu upplýstir. Nú spyr ég því, hver og hvar er Pakkmann? Raunar veit ég um einn og hann heitir Össur Skarphéðinsson. Hann er líklega sá eini sem ekki veit hvað er í pakkanum. 

PS: Vísindavefurinn segir um Pandórubox:  Seifur sendi Pandóru til jarðarinnar með öskju fulla af plágum og böli. Af eðlislægri forvitni opnaði Pandóra öskjuna og hleypti öllum plágunum út. Það eina sem varð eftir í öskjunni var vonin.


mbl.is Undanþágur hreinir draumórar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Þetta er allt að finna á bls. 77-85 ca. Í skýrslu evropunefndar útanríkisráðuneytisins frá 2007 eða 9.

Heldur þunnur þrettandi og fúið hálmstrá að hanga í, nema að við viljum fá undanþágu svo við getum bannað sölu á sumarbústöðum til útlendinga eins og Danir fengu. Við leyfum slíka sölu að því er ég best veit, svo þar er fokið i þann kima.

http://www.forsaetisraduneyti.is/media/frettir/SkyrslaEvropunefndar-.pdf

Jón Steinar Ragnarsson, 5.3.2014 kl. 09:30

2 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Pakka þér fyrir þessa sannmæltu færslu!

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 5.3.2014 kl. 11:10

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Góður.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 5.3.2014 kl. 11:28

4 Smámynd: rhansen

Flottast sem eg hef lengi lesið !

rhansen, 5.3.2014 kl. 16:07

5 Smámynd: Ívar Pálsson

Takk fyrir öllsömul. Þessi sjö (mögru) ár hafa bent okkur á það að upplýsingar þurfa að vera nákvæmar, en það er einmitt það sem fæstir nenna að lesa. Þá sannast enn að „eins- nagla- kenningin“ sem maður lærði í auglýsingafræðum forðum er enn í fullu gildi: ekki gengur að berja heilt bretti af smánöglum í haus manneskju, það verður að vera einn stór nagli til þess að virka. Stjórnarandstæðingum (ESB-unnendum) tókst þetta nýverið að ósekju með orðið SVIK, sem aldrei náði að festast á Steingrími, kannski vegna Joðsins!

Niðurstaðan er sú, að þetta er einfalt: þjóðin vill ekki ganga í ESB og kaus þessa stjórn til þess að gera vitræna hluti.

Ívar Pálsson, 5.3.2014 kl. 16:47

6 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Flottur Ívar.

Helga Kristjánsdóttir, 7.3.2014 kl. 00:02

7 Smámynd: Gunnlaugur I.

Góður pistill Ívar.

Það var einmitt Ingibjörg Sólrún sem sagði í sjónvarpsviðtali fljótlega eftir að hún komst til valda sem formaður Samfylkingarinnar "að nú ætlaði hún að opna sitt Pandórubox" -

Gunnlaugur I., 24.3.2014 kl. 23:25

8 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Jamm þetta Pandórubox var opnað og upp úr því spratt ESB.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 25.3.2014 kl. 01:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ívar Pálsson
Ívar Pálsson

Viðskiptafræðingur með útflutningsfyrirtæki, en grúskar í flestu.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband