Skerum á hnútinn: seljum RÚV

HeyskapurMenntaHIis

Skuldasöfnun Ríkisútvarpsins keyrir um þverbak þrátt fyrir austur skattgreiðenda til stofnunarinnar, þ.á.m. minn og fjölskyldu minnar með marga tugi þúsunda á ári þangað, einnig vegna fyrirtækis míns. Þessari sjálftöku á hálfum milljarði króna á mánuði verður að linna, sérstaklega núna þegar vaxtagjöldin sliga ofhlaðna stofnunina.

17 milljónir hvern dag 

Óli Björn Kárason varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins lýsir uppsöfnuðum vanda RÚV í góðri grein í Morgunblaðinu í dag og krefst aðgerða, enda nýtist þetta fé mun betur í annað eða hjá skattgreiðendum sjálfum. Sjálfum finnst mér réttast að hætta strax austrinum í gjaldþrota ríkisbatteríið strax og selja það í heild sinni. Við söluna mætti skoða hvort framlag okkar færi beint til einkahlutafjár, þar sem t.d. þriðjungi eignar væri haldið eftir við söluna til þeirra þarfa.

RakadStrandirIs

Þinn tími er liðinn, RÚV 

Hvernig sem fer verður að hætta að mata þessa kvörn sem RÚV er. Þetta kerfi er barn síns afdalatíma, þegar orfið, ljárinn, hrífan og Ríkisútvarpið var það helsta sem þörf var á. Núna er þetta bákn lýsandi fyrir útþenslu sósíalismans, sem engu eirir þegar kemur að upptöku ríkisins á aflafé þegnanna. Að auki hamrar báknið á fjöldanum kvölds, morgna og um miðjan dag með sína sósíal- demókratísku afbökun á raunveruleikanum sem kallast Fréttir RÚV, allt í nafni þjóðarinnar. Við skulum bara rétt vona að þjóðin sé ekki eins og RÚV, því að þá er okkur ekki viðbjargandi sem heild.

Drífið nú í þessu, Sigmundur Davíð og Bjarni og seljið Ríkisútvarpið! 

 


mbl.is Lánagreiðslur RÚV 593 millj. á ári
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Þórhallsson

Við þyrftum að fá að sjá sundurliðaðan kostnað:

Hvað kostar að reka fréttastofuna?

Hvað kostar innlend dagskrárgerð?

Hvað kosta erlent sjónvarpsefni?

HVað kostar að reka íþróttadeildina?

Jón Þórhallsson, 8.10.2014 kl. 10:30

2 Smámynd: Ívar Pálsson

Þótt við fengjum þetta sundurgreint, þá situr spurningin eftir, af hverju ekki að borga samkeppnisfyrirtækjum beint fyrir þessa þjónustu hverja fyrir sig, ef við erum svo viss um að þörf heildarinnar sé svona brýn? T.d. innlend dagskrárgerð, sem mætti eiga sér stað vítt og breitt um landið í höndum einstaklinga og fyrirtækja. En skattpeningar ættu ekki að greiða fyrir erlent sjónvarpsefni.

Frelsi í útvarps- og netmálum leysir líka margann vandann.

Ívar Pálsson, 8.10.2014 kl. 10:50

3 identicon

Svo er líka spurning hvort ekki ætti að fara yfir það vítt og breitt hvernig farið er að með skattpeningana í Ríkisrekstrinum yfirleitt.

Kristján B Kristinsson (IP-tala skráð) 8.10.2014 kl. 10:58

4 Smámynd: Jón Þórhallsson

Það sárvantar þátt á rúv sem myndi sérhæfa sig í fjármálum 1 sinni í viku;

svipað og klinkið á stöð 2.

Jón Þórhallsson, 8.10.2014 kl. 11:42

5 Smámynd: Baldinn

Eigum við ekki að byrja á kirkjunni.  Ykkur sem er svo annt um skattpeninginn okkar, þar getum við sparað mun stærri upphæð.

Baldinn, 8.10.2014 kl. 13:05

6 Smámynd: Gunnlaugur I.

Algerlega sammála. RÚV er ekki útvarp þjóðarinnar eins og þeir auglýsa sjálfir. Þetta apparat hefur algerlega brugðist þjóðinni, en útvarpar leynt og ljóst lymskulegum krata áróðri daginn út og inn !

Kostnaðurinn við þetta apparat er farin úr böndum og ekkert annað að gera en að leggja þetta apparat niður. Ríkið gæti samið við aðra fjölmiðla að gæta öryggissjónarmiða og einnig væri hægt að styrkja menningartengt efni. En kostnaður við þetta yrði samt aðeins brot af þeim milljörðum króna sem sólundað er af almanna fé í þetta ESB/RÚV áróðurs útvarp kratanna ! 

Gunnlaugur I., 8.10.2014 kl. 15:13

7 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Selja dótið sem fyrst það er ekki glóra í því að megnið af þjóðinni greiði áróðurinn sem Esb,sinnar kokka.

Helga Kristjánsdóttir, 8.10.2014 kl. 19:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ívar Pálsson
Ívar Pálsson

Viðskiptafræðingur með útflutningsfyrirtæki, en grúskar í flestu.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband