Völlinn burt vill póstnúmer 102

Dreka latte 101Byggðin í Skerjafirði báðum megin flugvallarbrautar er hluti af Vesturbæ Reykjavíkur, við teljum okkur gjarnan Vesturbæinga. Því væri eðlilegast að teljast með póstnúmeri Vesturbæjar, sem er 107, en við höfum verið ranglega spyrt við Miðbæ 101 frá upphafi kerfisins. Orðið „póstnúmer“ er villandi, því að fjölmargir kerfisþættir hlutast niður eftir þessari skiptingu, auk huglægra þátta.

Flugvöllurinn fjarlægður

Nú vill Dagur & Co halda áfram með áætlun sína á fullu, að fjarlægja Reykjavíkurflugvöll, sama hvað. Ein leið að því markmiði er að líta á kortið eins og völlurinn sé ekki þarna og setja allt svæðið undir nýtt póstnúmer, 102. Drauma- hverfaskipulag meirihlutans í borginni miðar allt við þetta, að flugvöllurinn sé ekki lengur til. Þetta er verulega ósanngjarnt gagnvart þeim hartnær 1000 íbúum sem búa á svæðinu og sækja flest sitt í Vesturbæ 107, skóla, vini, verslun og hvaðeina.

Skerjafjörð í Vesturbæ

Höfnum tillögunni um póstnúmer 102, sem ætlað er að stimpla inn Valsbyggð, Vatnsmýri og Skerjafjörð sem eitt heildarsvæði. Hér er verið að lauma inn nýja afarskipulagi Dags & Co. Tengjum Skerjafirðina báða við Vesturbæ 107 og segjum skilið við 101 latte.


mbl.is Vilja 102 Reykjavík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Aztec

Álit Skerfirðinga í flugvallarmálum hlýtur að hafa talsvert vægi, fyrst þeir búa alveg upp að flugbrautunum.

Aztec, 11.12.2015 kl. 20:13

2 Smámynd: Ívar Pálsson

Takk, en enginn einn fer með álit heildarinnar, eins og sést á Facebook síðunni Skerjaförður um þetta frá mér. Margir Skerfirðingar alast upp í nánum tengslum við Vesturbæinn. Amk. hefur Öskjuhlíð lítið með okkur að gera sem hóp.

Ívar Pálsson, 12.12.2015 kl. 00:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ívar Pálsson
Ívar Pálsson

Viðskiptafræðingur með útflutningsfyrirtæki, en grúskar í flestu.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband