Litrófsmynd stjórnmálanna

Litróf stjórnmálanna er sama heildin og áður, en hópamyndun er önnur þannig að flokkar riðlast. Skoðið myndina og sjáið hvar þið standið. Kjósendur Sjálfstæðisflokksins eru nú aðallega í tveimur ósamræmanlegum fylkingum, þeirri dökkbláu (Geir) sem trúir enn á frjálst hagkerfi með krónu (íslenska eða norska) og þeirri ljósbláu (Þorgerður Katrín) sem vill ESB með Evru en þó takmörkuð ríkisafskipti. Litrof flokkanna m nofnum

Samfylkingin (ESB) hefur misst marga sem eru vinstra megin við miðju yfir til VG, sem bólgnar út hratt eins og rauður risi og gleypir nokkrar reikistjörnur í leiðinni. En á móti hefur Samfylkingin teygt sig vel til hægri eins og síðast þegar Jón Baldvin beitti sér og heggur djúpt inn í ljósbláa Sjálfstæðið og í yngri miðjudeild Framsóknar. En eldri þjóðræknari Framsóknarhlutinn (Guðni) endurómar vel við dökkbláa hluta Sjálfstæðisflokksins. Erfitt er að staðsetja aðra.

Bergmál sögunnar frá árinu 1978 berst hingað núna og verður æ greinilegra.

Horfið nú í smátíma á litrófið, annað hvort með texta eða án hans. Ákveðið litanúmer ykkar og veltið síðan fyrir ykkur hvaða hringir verða dregnir utan um hvaða hópa. Þeir stjórnmálaflokkar eru ekki endilega eins og þeir eru í dag. Hvar er þig að finna?

(Smellið tvisvar á mynd til þess að ná henni réttri)


mbl.is Samfylking með langmest fylgi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ívar Pálsson

Mér líst vel á 000-066 !

Ívar Pálsson, 2.11.2008 kl. 01:34

2 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Ætli ég sé ekki þarna í copyright merkinu.

Jón Steinar Ragnarsson, 2.11.2008 kl. 02:18

3 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Ég á erfitt með að staðsetja mig í þessu litrófi enda finnst mér allir litirnir fallegir.

Væntanlega áttu við að Bergmál sögunnar frá 1978 sé það að þá náðu A flokkarnir góðum kosningaúrslitum án þess að getað nýtt sér það á nokkurn hátt það bergmál gæti ómað til nútímans verði farið í kosningar.

En það sem mér sýnist líklegast er að VG og Sjálfstæðisflokkur nái saman um að flest sameiginlegt eins og staðan er núna.

Því held ég að varla sé von á öðru en að við búum við sama lýðræðislega fasismann áfram þar sem meirihluti þjóðarinnar situr uppi með ríkisstjórn sem hann kaus en vill ekki.

Magnús Sigurðsson, 2.11.2008 kl. 10:16

4 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Langaði að deila þessu með þér. Þessi hagfræðingur er ekki að vefja þetta fyrir sér. Kannski er stórbrotnari umbrotatímar í uppsiglingu en menn þora að hugsa til enda.

Jón Steinar Ragnarsson, 4.11.2008 kl. 03:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ívar Pálsson
Ívar Pálsson

Viðskiptafræðingur með útflutningsfyrirtæki, en grúskar í flestu.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband