Bloggfærslur mánaðarins, október 2010

Beiðni til ungra íslenskra kvenna

tyrkland_mail_jjones.pngÍsland er víst með mesta jafnrétti kynjanna í heimi, enn eitt árið. Ungar menntaðar konur í þéttbýli er sá hópur landsins sem líklegastur er til þess að kjósa inngöngu þjóðarinnar í Evrópusambandið. Þessi hópur þarf að íhuga nokkrar staðreyndir, óháð efnahagsþrengingum ESB eða atvinnuleysinu þar, róstri á vinnumarkaði, Evruþrengingum, yfirstjórn ofar þjóðþingum eða öðrum meginþáttum tilverunnar í ESB í dag. Þær þurfa að íhuga hvert stefnir í nánustu framtíð bandalagsins í jafnréttismálum kynjanna.

Tyrkland inn í ESB?

Um það leyti sem Ísland gengi í ESB, væri loks komið að Tyrklandi eftir áratuga bið. Þrýstingur á að það gerist eykst stöðugt, sérstaklega frá Miðjarðarhafslöndum eins og Spáni og Ítalíu. Nýlega bættist öflugur liðsmaður utanað við, Obama Bandaríkjaforseti, er hann sagði ríki sitt vera sterkan stuðningsaðila inngöngu Tyrklands í ESB. Þeir ESB- fyrirlesarar sem hingað hafa komið hafa einum rómi sagt Tyrkland vera velkomið í ESB.

jafnrettievropamidasia.pngSameiginleg gildi? Frelsi?

Tyrkland er statt hinum megin á listanum við Ísland í jafnréttismálum kynjanna, yfirleitt með 5-10 neðstu ríkjunum í hópi með Íran og Saudi- Arabíu. Um 99,8% þjóðarinnar eru múhammeðstrúar, sem þýðir að kristnir í Tyrklandi eru færri heldur en Reykvíkingar. Rúmlega sjötíu og sex milljónir Tyrkja játa Islamstrú og þeim gildum sem henni fylgja. Um 80% kvennanna eru læsar og því eru um 8 milljónir ólæsar eða um 24 Íslönd. Hvernig á að ná til þeirra? Ef Íslendingar halda að þeir gætu breytt einhverju, þá má benda á að staða Tyrklands á fyrrnefndum lista hefur aðeins hækkað um 0,4% síðan 2006.

Olli Rehn, fyrrum stækkunarmálastjóri ESB segist litla samúð hafa fyrir menningarlegri eða trúarlegri andstöðu við inngöngu Tyrklands í ESB, því að fyrir sér sé „...ESB ekki klúbbur kristinna heldur samfélag um gildi tengd frjálsræði og frelsi“.

Þá kemur að hlut Eiríks Bergmann í sjónvarpsfréttum RÚV sunnudagskvöldið 17. október 2010. Hann kemur til varnar fjölmenningarsamfélaginu, sem Angela Merkel kanslari Þýskalands sagði nýlega að hefði algerlega brugðist í Þýskalandi núverandi mynd og aðild Tyrkja að Evrópusambandinu, sem hún er andsnúin eins og meirihluti Þjóðverja.

Eiríkur sagði: „Angela Merkel lét ummælin falla við andstöðu við aðild Tyrklands að Evrópusambandinu“.

Engin furða, þar sem síðustu varnir gegn Tyrkjaflóðinu mikla falla hvert af öðru og meirihluti Þjóðverja gerir sér grein fyrir því hver útkoman verður ef Tyrkland er samþykkt inn í ESB. Fyrir utan hrikaleg áhrif á lífeyri, efnahag og daglegt líf hins almenna Þjóðverja eða ESB- búa yfirleitt, þá vita þeir hvernig ástandið er í Tyrklandi í uppáhaldsmálum ESB- Samfylkingar: arfaslakt jafnrétti sbr. að ofan, takmörkuð mannréttindi og tjáningarfrelsi, skortur á trúar- og menningarlegu umburðarlyndi, kúgun minnihlutahópa (Kúrda, Armena) og beiting hervalds (á N- Kýpur og víðar), enda herforingjastjórnir tíðar á síðustu áratugum. Angela Merkel segir aðild ekki vera einstefnugötu og að Tyrkland verði að uppfylla öll skilyrði aðildar.  Hún er því einn harðasti útvörður ESB fyrir þeim gildum sem Evrópusinnar hér segjast aðhyllast, en verður nú að sæta því að vera útmáluð í hóp lýðskrumara af ofur- Evrópusinnanum Eiríki Bergmann!

TekjurIslandTyrklandVitnum enn í Eirík á RÚV:  „Á níunda og tíunda áratugnum kom fyrsta bylgjan af þessari kynþáttahyggju. Nú er önnur bylgjan að skella á Evrópu eins og flóðbylgja“. Af hverju skyldi það vera, ef kynþáttahyggju skyldi kalla? Frekar ætti að kalla þetta raunsæi. Milljónir Tyrkja hafa þegar sest að í Þýskalandi án þess að aðlagast flestir fyllilega að samfélaginu. Þjóðverjum sem fyrir eru óar við því að taka á móti kannski tugmilljón í viðbót við inngöngu Tyrklands í ESB, enda hafa Tyrkir þá fullan rétt og yrði stærsta þjóðin í ESB, líklega um 80-85 milljónir innan 20 ára, en innfæddum Þjóðverjum fækkar stöðugt.

Eiríkur gat eftirfarandi:  “Hér er stjórnmálaástandið þannig að allt er galopið og mjög auðvelt fyrir lýðskrumara að koma fram og nýta sér slíkt ástand“. Einmitt! Hann vill kannski ESB- alræði en við kjósum það opið. Lýðskrumararnir eru þeir sem þykjast fylgja lýðræði, jafnrétti kynjanna, mannréttindum og Skandinavískum gildum en ætla að drekkja okkur í fólksflaumi afturhalds í þeim málum og hirða af okkur sjálfræði og fullveldi í leiðinni.

Áskorun

Ungar, íslenskar, menntaðar konur í þéttbýli: Ef þið viljið eiga einhverja von á því að halda áunnum réttindum ykkar á ykkar met- langa lífi hér á Íslandi, haldið ykkur fjarri frá hugmyndum um aðild að Evrópusambandinu og mjúkmæltum sölumönnum þess.

 

PS: Eftir skrif greinarinnar rakst ég á þessa ágætu bresku grein í the Daily Mail:

 http://www.dailymail.co.uk/debate/columnists/article-489557/Britain-scarcely-recognisable-50-years-immigration-deluge-continues.html

 

 


Svandís komin með ABS- bremsur

svandissvavarsdottir_mbl.pngSvandís Svavarsdóttir bremsuráðherra heldur heilu sveitarfélögunum áfram í heljargreip sinni, núna af því að það „...gæti verið gott að fá leiðsögn dómstóla“. Á meðan líða mánuðir og ár af þessum tilbúnu „Svandísartöfum“ sem kalla má, en það eru vísvitandi drættir á framgangi sjálfsagðra framfaramála í virkjunum til góðra verka, á meðan ríkið og fólkið í landinu er á barmi gjaldþrots.

Fádæma óbilgirni í garð þjóðar

Fádæma óbilgirni Svandísar í þessum málum á versta tíma er lýsandi fyrir þær villigötur sem hún og flest flokkssystkini hennar feta nú.  Hún ætti að ræða við fólkið á Austurvelli og í sveitum landsins og sjá villu síns vegar. Þá sæi hún kannski sóma sinn í því að leyfa virkjun á þeim milljónum tonna af bráðnuðum jöklum sem renna til sjávar á meðan hún misnotar ráðherravald sitt til þess að standa í málarekstri við sveitarfélag um það hvort að við eða einkaaðilar mættum borga rannsóknarreikninginn!

Allur eplakassinn

Í Danmörku var eitt sinn svona umhverfisráðherra. Hún var loks látin fara eftir ómælt tjón. Í kjölfarið var starfssvið ráðuneytisins þrengt verulega, því að einn svona mistækur umhverfisráðherra nær ella að skemma allan eplakassann.


mbl.is Svandís áfrýjar dómi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Makríll Íslands= 2,7 sinnum ESB

hafro_makrill_island_kort.pngÞað munar um heimsókn 1,1 milljón tonna af makríl inn í íslensku lögsöguna, sem er eins og engisprettuplága á akri: sannarlega ber að grisja í gestahópnum um nokkur hundruð þúsund tonn áður en þeir fara spikfeitir héðan inn í ESB. Íslendingar fóðra nú 22,9% heildar-lífmassa makrílsins en ESB 8,4% og höfum við því 2,7 falt meira en ESB. 

Engin furða að Skotar vilji miða við gamlar tölur, þegar heimshlýnunin færir okkur þennan fisk sem var kannski þar á hafísárunum. Þessi 130.000 tonna kvóti okkar er nú ekki nema 2,7% heildar- lífmassans og mætti léttilega tvöfalda. Það verður þá gert þegar ESB- umsóknin verður dregin til baka.makrill_island_tafla2010.png


mbl.is „Íslendingar eru ekki þorparar“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað viltu, vinstri græn?

Ef kosið yrði, viltu þá meira af þessu?:
  • Aðild Íslands að Evrópusambandinu.
  • Borga Icesave.
  • Fá Geir H. Haarde einan dæmdan vegna hruns alþjóðafjármála.
  • Vernda einokun Haga á markaði.
  • Bjarga þeim stærstu: Sjóvá, Húsasmiðjunni, Icelandic ofl.
  • Taka ábyrgð á einkabönkum og sparisjóðum.
  • Hækka flesta skatta.
  • Risalán frá AGS (IMF) m.a. til þess að borga meðlimum þess, stærstu bönkum í heimi.
  • Upplýsingaleynd þar til orðið er of seint að bregðast við (t.d. Icesave).

Allt þetta færðu og meira til, hjá Steingrími J. Sigfússyni fjármálaráðherra, nú með hjálp Ögmundar.

Mundu að atkvæði þitt skiptir öllu máli eins og síðast!

Gleymdist nokkuð á listann?


mbl.is „Skíthræddir“ við nýtt framboð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Höfundur

Ívar Pálsson
Ívar Pálsson

Viðskiptafræðingur með útflutningsfyrirtæki, en grúskar í flestu.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband