Hver samþykktur hælisleitandi kostar okkur amk. 10 m.kr.

Flottamenn inn i SpanNú þegar hver einasti íslenskur pólitíkus keppist við að vera "betri" en sá næsti í málefnum hælisleitenda, rýkur beini kostnaðurinn vegna þeirra upp og fjöldinn þar með, eins og hjá Merkel 2015 á sterum. Þrír milljarðar króna á ári hrökkva skammt og nú bætast þá tveir við (40% aukning) af því að fleiri t.d. afgönskum eða íröskum karlmönnum dettur í hug að bæta sinn hag með því að komast hingað, sem leið inn í draumalandið ESB. 

Takmarka streymið

Skýrasta leiðin til þess að spara þjóðinni leiðindi og milljarða króna er að segja okkur úr Schengen og gefa það skýrt út á hvaða forsendum hælisumsóknir verði samþykktar, áður en fólk leggur í flug til landsins. Á skal að ósi stemma, enda er flæðið í dag ekki á okkar forsendum, heldur einhverra af 7,5 milljarða íbúa jarðar. 

En það má víst ekki minnast á þetta viðkvæmasta allra mála. Fólk telur sig vera að samþykkja sýrlenskar fjölskyldur og grátandi börn, þegar raunveruleikinn er allur annar.


mbl.is Hælisleitendum fjölgar verulega
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 23. mars 2019

Höfundur

Ívar Pálsson
Ívar Pálsson

Viðskiptafræðingur með útflutningsfyrirtæki, en grúskar í flestu.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband