Spennan eykst: Slíta ESB, velja formann

Landsfundur Sjálfstæðisflokksins  er bara nokkuð góður núna. Það grillir í að talað verði hreint út um það hvort slíta beri ESB- aðildarferlinu strax eða hvort enn megi ekki minnast á beinagrindina í skápnum eins og á Landsfundinum árið 2006, þegar miðjumoðslausnir urðu til sigurs Samfylkingar og ESB- armsins sem leiddi þessa vegferð til sjálfskaparvítis , aðildarviðræður við Evrópska Skuldabandalagið.

Hvernig virkar lýðræðið?

En manni verður oft hugsað til þess hvernig lýðræði virkar yfirleitt. Með nýjum fundarsköpum flokksins, sem ákveðin voru af Miðstjórn, þá verða tillögur að berast skriflega fyrir lok fundar viðeigandi nefndar á föstudeginum.  Um 70 af 1600 (4,4%) fulltrúum voru á fundi Utanríkisnefndar, þar sem vel var mætt af ESB- klappliðinu. Varla þarf því nema 40 manns (2,5%) til þess að fella eða samþykkja breytingartillögur við drögin sem sköpuð voru áður í tiltölulega fámennum nefndum. Fundurinn í aðalsalnum í lokin tekur síðan á þessu, en þar getur virst að almennt fylgi sé fyrir viðhorfi sem einungis fáir studdu, en náðu að fylgja eftir í viðeigandi nefnd. Hafi einhver áhuga á tvennum eða fleirum óskyldum málum, þá nær hann ekki að fylgja þeim eftir, þar sem tillaga hans öðrum megin hlýtur óblíðari meðferð ef flutningsmanns nýtur ekki við. En tugþúsundir sjálfstæðisfólks, hinn risastóri þögli meirihluti, nær sjaldnast að láta heyrast í sér nema í kosningum.

hanna_birna_1122179.pngAfgerandi afstaða

Bæði formannsefnin, Bjarni Ben og Hanna Birna hafa staðfest að þau munu fylgja samþykktum flokksins. Ástæða þótti til þess að ítreka þennan þátt til þess að forðast aðstæður eins og „ískalda matið“ vegna Icesave- málsins. Hanna Birna, sem stóð gegn Icesave, gegnur skrefið til fulls og segir að slíta beri ESB- viðræðum án tafar. Meir að segja ESB- sinnar sem ég þekki eru það raunsæir að þeir vilja setja umsóknina á ís um sinn á meðan Róm og restin af Evrulandi brennur.

Hanna Birna líkleg

Afstaða Hönnu Birnu ein sér ætti að nægja henni til forystu, þar sem fylgi flokksins hefur jafnan styrkst þegar talað er afdráttarlaust gegn ESB. En einnig virðist hún líkleg til þess að sameina ólík öfl til þess að taka á erfiðum málum eins og hún gerði sem borgarstjóri og tók á skuldamálunum, virkjaði allt kerfið sem fyrir var og lét það ganga upp (þótt Samfylkingin og Gnarr-fylkingin hafi verið fljót að rústa því aftur).

Með þjóðinni

En formannskosningin er á sunnudaginn. Í dag, laugardag verður spennandi að sjá hvort fá megi skýrar afstöður til helstu þátta sem máli skipta, þannig að vinna fjöldans að betra þjóðfélagi skili sem mestum árangri í næstu kosningum.Þá ná sem flestir að fella þessa óheillastjórn sem nú ræður ríkjum með höftum sínum, hindrunum og sköttum.

Ég hvet alla áhugasama til að fylgjast með á netinu: T.d. fyrirspurn Yours Truly til forystunnar, nú á videóinu, (25. mínúta):

http://www.xd.is/landsfundur-2011/upptokur#vimeo.com/32318531

Svör Bjarna Ben og Ólafar Nordal á 33. og 40. mínútu.

 

 


mbl.is Tillögur tóku breytingum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

 Það tók mig tíma að samþykkja Halldó í pontu,fannst ólíkur sjálfum sér,en það gerir líklega ljósið sem skín upp í nefið á mönnum. Takk fyrir þetta Ívar.

Helga Kristjánsdóttir, 19.11.2011 kl. 05:39

2 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

Það væri sanngjarnast að koma með peningamálastefnu til framtíðar meðfram því að yfirlýsa andstöðu við ESB.

En málið er að NEI sinnar geta það ekki. Hafa bara ekki hugmynd um þetta.

Fint að vera bara í höftum.

Sleggjan og Hvellurinn, 19.11.2011 kl. 10:30

3 identicon

Hr. Sleggja: Hefur þú fylgst með fréttum undanfarið? Það eru u.þ.b allir ráðamenn evrusvæðisins sammála um að samstarfið gengur ekki í núverandi mynd og það ríkir ágreiningur um hvernig því verður breytt .

M.ö.o er ESB ekki með framtíðarstefnu í peningamálum eins og stendur.

Hans Haraldsson (IP-tala skráð) 19.11.2011 kl. 16:27

4 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

Það er ekki rétt. Evran mun standa sterkari fyrri vikið eftir olgusjóinn

Evran er ekki að fara neitt... þvert á móti eru ráðamenn að tala um að fleiri t.d Bretland muna taka upp Evruna bráðlega

Sleggjan og Hvellurinn, 19.11.2011 kl. 18:17

5 identicon

Hr. Sleggja: Þú og Wolfgang Schauble trúið því að forystumenn myntbandalagsins muni ná samkomulagi um nýja umgjörð bandalagsins og að evran muni lifa.

Schauble trúir því einnig að Bretar muni fljótlega taka upp evru.

Gott hjá ykkur! Það er gott að vera bjartsýnn og trúa á framtíðina.

Það er hinsvegar slæmt að rugla saman persónulegri trú og hlutlægum staðreyndum og eins og staðan er núna hefur ekki verið samið um þær ráðstafanir sem þyrfti til þess að evran geti haldið áfram og við höfum ekki vissu fyrir því að slíkar ráðstafanir verði yfirleitt gerðar og, verði þær gerðar vitum við ekki hvernig þær verða útfærðar. M.ö.o hefur myntbandalagið ekki peningastefnu til framtíðar sem stendur.

Tíminn mun leiða það í ljós hvort evran lifir, hverjum mun standa til boða að nota hana ef hún lifir og hvaða réttindi og skyldur myndu fylgja aðild að myntbandalaginu. Þegar og ef  það verður ljóst má segja að aðild að myntbandalaginu sé framtíðarstefna í peningamálum (en ekki þar með sagt að hún væri góð stefna). Í dag er sú stefna að taka upp evru í raun ekki annað en markmið um að taka þátt í einhverju sem þú veist ekki hvað er, á einhverjum óvissum tíma í framtíðinni sem allt eins gæti aldrei orðið.

Hans Haraldsson (IP-tala skráð) 19.11.2011 kl. 18:42

6 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Hahaha. Hvernig væri að sleggjan læsi athugasemdirnar við þessa grein. Spurning hvort er marktækara það sem bretar segja eða einhver bankastjóri sem ætlar að diktera innanríkismálum þar. Ef það þýðir að bretar yfirgefi ESB frekar en að taka upp Evru, þá gera þeir það. Þeir hafa fengið sinn skerf af German dominated europe.

Ef aumingja sleggjan, sér ekki hvað er í uppsiglingu, þá er varla hægt að hjálpa henni. Það eru enn gamlir kommar sem mæra gamla sovét, Lenín og Stalín, þótt allt þetta sé horfið. Það kallast vitfirring. Ergo: Firrtur öllu viti.

Jón Steinar Ragnarsson, 19.11.2011 kl. 19:01

7 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Bretar láta City of London aldrei í hendur Þýskra teknókrata.

Jón Steinar Ragnarsson, 19.11.2011 kl. 19:03

8 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

það er vitfyrring að mæra stalín ennþá... en þetta er að sjálfsögðu ekki sambærilegt með ESB.

Sleggjan og Hvellurinn, 19.11.2011 kl. 19:07

9 Smámynd: Eggert Guðmundsson

Spurningin er hvaða Evra lifir?Og hvort hún muni lifa einhvers staðar.?

Seðlabankar evruríkja hafa verið að slá (prenta) Evru með sínum sérmerkjum. Sérmerkin eru til þess að geta séð skuldbindingu sinna þegna.

Ég er ekki viss um að Þjóðverjar slái neina Evru til vibótar úr  því sem komið er. ( ég yrði ekki hissa á að skuldir Þýskalands væru miklu meiri en 80% af landsframleiðslu, þegar sessi Evruprentun, skuldbindinga, væri tekin saman,)  

Ég yrði ekki hissa á að krafa kæmi á öll 17 ríki Evrópu um að setja í gang prentsláttur sínar og pússa mótin sem voru notuð fyrir myntir sem endurspegluðu hagkerfi sitt.

Ég tel að það gæti gerst á næstu mánuðum.

Landsfundurinn fellur með Bjarna 60 á móti 40.

Eggert Guðmundsson, 19.11.2011 kl. 23:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ívar Pálsson
Ívar Pálsson

Viðskiptafræðingur með útflutningsfyrirtæki, en grúskar í flestu.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband