Heyrði ekkert illt, eða hvað?

SeeNoEvilHearNoEvil Pigs

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, leiðtogi Samfylkingar við hrunið 2008, vildi ekkert illt sjá og heyra, hvað þá leyfa bankamálaráðherranum sínum að fylgjast með. Svo þegar Davíð seðlabankastjóri úthúðaði vinum hennar, bankamönnunum og sagði svo ekki varð um villst hver staðan væri í mesta hruni Íslands í nútíma, þá skellti hún skollaeyrum við því og vildi helst lána bönkunum yfir 1000 milljarða frá skattgreiðendum til þess að skellurinn lenti örugglega á okkur öllum. 

Sjálf hafði hún verið upptekin í Afríku að tvöfalda þróunaraðstoð við helstu skúrka álfunnar.

Ekki batnaði staðan þegar Jóhanna Sig tók við. Sú gerir sér ekki grein fyrir því að fjárfestar koma ekki nálægt landi þar sem forsætisráðherrann er með þá stefnu að rústa kvótakerfinu, stjórnarskránni, sjálfstæðinu, orkuöflun, gjaldeyrisviðskiptum... 

 


mbl.is „Tók hamskiptum á fundi“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sólbjörg

"Ekki batnaði staðan þegar Jóhanna Sig tók við." Það er rétt en hún gerir sér því miður fulla grein fyrir því sem þú Ívar nefnir og telur upp.

Þetta er meðvituð stefna sem er ákveðin af fólki sem á létt með leikaraskap og lygar. Niðurrifsstefna og stöðnun er talin líklegust til að koma okkur í ESB. Allt er útpælt og þrautskipulgt af bandalagi ESB sem er með áform um enn stærri rányrkja á Íslenskum auðlindum en einkavæðing íslensku bankanna kostaði þjóðina.

Sólbjörg, 12.3.2012 kl. 21:45

2 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Ívar og Sólbjörg,getum við gert meira til að sporna gegn því??. Þau gefa sér þolinmæði,það gerum við líka,,, gefumst aldrei upp.

Helga Kristjánsdóttir, 14.3.2012 kl. 04:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ívar Pálsson
Ívar Pálsson

Viðskiptafræðingur með útflutningsfyrirtæki, en grúskar í flestu.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband