Ísland í biðflokk

Bedid i atvinnuleysinu

Svandís Svavarsdóttir tafamálaráðherra hefur sett Ísland í varanlegan biðflokk á meðan trilljónir tonna af orkumiðlandi jökulvatni renna ótrufluð til sjávar þar til allir jöklarnir eru bráðnaðir. Kostulegt er að heyra hana tala um sátt, þar sem hún hefur kvenna mest valdið ósátt síðan Hallgerður gekk.

Nú er ein helsta afsökun Svandísar fyrir því að ekki megi virkja neðri hluta Þjórsár sú, að laxinn þar raskist. Helstu hagsmunir þar eru hjá netaveiðibændum, sem þiggja myndu frekar góðar bætur en að vesenast við ádráttinn. Laxinn hressist hvort eð er ef gengið er almennilega frá þessu. Aukin hlýindi og tærleiki ánna stækka gjarnan stofninn eins og í Blöndu. Flestir sjá að þetta hálmstrá Svandísar heldur ekki.

Umhverfisráðherrann samþykkir ekki að virkjanirnar á einhverju vænlegasta og skilvirkasta vatnsfalli í heimi til virkjunar verði nýtt okkur öllum til góðs. Frekar ætti kannski að setja upp fugladrepandi viftur upp um hæðir og hóla eða að þvera firði fyrir sjávarfallavirkjanir?

Niðurstaðan hjá Svandísi er alltaf sú sama: að drepa framkvæmdina með töfum. En Jóhanna Sig. setur málið í nefnd á meðan Steingrímur J. Reykás segir eitt í dag og annað á morgun, alltaf samkvæmur sjálfum sér.

Vinstri óstjórn á Íslandi er núna, Gaukshreiðrið II.


mbl.is Stærð málsins ástæða tafa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Vilhjálmur Stefánsson

Hehe komma pakk eru svo sannarlega að fara með Land vort til helvítis.Ein setning,landráða fólk..

Vilhjálmur Stefánsson, 14.3.2012 kl. 15:06

2 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Pólitískar alhæafingar spillingar-embættiskerfisins eiga engan rétt á sér. "Vinstri" og "hægri" er ekki vitræn skilgreining á réttu og röngu.

Ef við setjum sjávarföll og fossa í samlíkinu, þá er engin spurning hvar mestu orkuna er að finna, fyrir minnstu skuldsetninguna.

Þetta eru engin séríslensk óþekkt geimvísindi.

Þegar þessar skoðanir mínar verða hraktar með raunverulegum og heilbrigðum, réttlætanlegum og siðferðislegum rökum, þá skal ég taka þessi orð mín til baka og biðjast afsökunar á skammsýni minni.

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 14.3.2012 kl. 15:59

3 Smámynd: Gústaf Níelsson

Skrítnast þótti mér svo að heyra Svandísi segja afstöðu sína í virkjanamálum vera bæði "faglega og fræðilega". Svona fólk gengur vart heilt til skógar Ívar.

Gústaf Níelsson, 18.3.2012 kl. 08:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ívar Pálsson
Ívar Pálsson

Viðskiptafræðingur með útflutningsfyrirtæki, en grúskar í flestu.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband