Skipulagið skiptir máli

Skerjafjordur Rvk plan

Skipulagsmál Reykjavíkurborgar reyndust efstu kvenframbjóðendum erfið. Morgunblaðið (18/11) ræddi við frambjóðendur í prófkjörinu eftir úrslitin, m.a.  Áslaugu Friðriksdóttur (5. sæti):  „Bendir hún á að efstu þrjár konurnar hafi verið með aðeins aðrar áherslur í skipulagsmálum en karlarnir og viljað skoða hvort hægt væri að finna aðra lausn fyrir flugvöllinn en að hafa hann í Vatnsmýri.“  Áslaug staðfestir þarna álit mitt, að  kjósendum fannst nóg um fylgispekt þeirra þriggja við skipulagstillögur Besta Flokksins og Samfylkingar og völdu karlana þrjá sem fylgja þorra Sjálfstæðismanna í þessu efni, þar með ýttust þær þrjár neðar. En Marta Guðjónsdóttir, sem stendur sig vel gegn þessum skipulagstillögum, ýttist því miður niður fyrir þrennuna.

Skerjafjordur plan blokkir

Hver gætir hagsmuna okkar? 

En einu er erfiðast að kyngja, að hvergi finnst núna stjórnmálamaður ofarlega á lista sem fylgir varaflugbrautinni  (SA/NV) á afgerandi hátt til frambúðar. En ef brautin fer, þá verður önnur slík að vera komin upp á Keflavíkurflugvelli.  Þar með endar 2.500 manna hverfi með að vera reist í Skerjafirði við hlið þess gamla, nema skynsemiseldingum skjótist niður víða. Ekkert er búið að hugsa um hvernig slíkt á að gerast, skólar, leikskólar, vegtengingar, verslunarkjarni eða hvaðeina. En almennilegt samráð við íbúana verður að eiga sér stað, ekki allt-í-plati samráðið sem hefur verið viðhaft hingað til.


mbl.is Hyggst taka annað sætið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: S i g u r ð u r   S i g u r ð a r s o n

Alveg ótrúlegt að það þurfi að troða sem mestu byggingamagni á hvern þann reit sem á að skipuleggja. Miðað við það sjónarmið væri eflaust skynsamlegt að rífa húsin í Skerjafirði og byggja blokkir í staðinn. Engum dettur í hug að byggja lágreista bygg í stíl við það sem fyrir er. Ef á annað borð er ætlunin að byggja þarna.

S i g u r ð u r S i g u r ð a r s o n, 18.11.2013 kl. 10:13

2 Smámynd: Ívar Pálsson

Já, þær eru hagkvæmar þessar Stalinísku blokkir sem verðlaunatillagan treður niður um allt. En hvort þær séu samfélagsvænar er allt önnur Ella.

Á íbúafundinum í Skerjafirði lýsti Páll Hjaltason þó öðruvísi blokkum, kannski 3-5 hæða mest. En með skólum og öðru nauðsynlegu á þessu svæði þá hlýtur mannleg byggð að vera um 1000- 1200 manns en ekki þessi 2500 manna kommastappa. Þá eru mýrarlóðirnar og þar með íbúðirnar orðnar ansi dýrar fyrir unga fólkið sem oft er látið eins og verði aðalkúnnarnir. Hluti hlýtur líka að fara í eldra- fólks blokkir til að taka við gömlum Skerfirðingum!

Ívar Pálsson, 18.11.2013 kl. 15:42

3 Smámynd: S i g u r ð u r   S i g u r ð a r s o n

„Stalínískar blokkir ...“ lýsir vel svo ljótri hönnun ...

S i g u r ð u r S i g u r ð a r s o n, 18.11.2013 kl. 16:06

4 Smámynd: Erla Magna Alexandersdóttir

Erum við svo plásslaus á Íslandi að þurfa að rífa niður FLUGVÖLL til að byggja þar ???  Svo koma venjulegar öngþveitisteppur kvölds og morgna vegna þess að gatnakerfið er ekki  TALIÐ MEР !!!

Erla Magna Alexandersdóttir, 18.11.2013 kl. 19:46

5 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Það verður ekkert af þessu,þetta er bara friður til bráðbirgða.

Helga Kristjánsdóttir, 19.11.2013 kl. 04:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ívar Pálsson
Ívar Pálsson

Viðskiptafræðingur með útflutningsfyrirtæki, en grúskar í flestu.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband