Ábati annarra

EuropePowerGrid

Sæstrengs- draugurinn er langt frá því horfinn út í móðuna miklu, því nú reikna útlendingar út verulegan ábata af því að taka rafmagnið til Bretlands í stað þess að nýta það hér, en sleppa því að geta þess hver fær ábatann! Fjárfestarnir sem tækju þetta að sér yrðu að fá sitt, en það gerist ekki nema góð nýting verði á rafstrengnum, sem þýðir að hann hefði forgang um rafmagn umfram framleiðslufyrirtækin hér á landi, annars yrði engin samningur gerður. Útilokað er að reka svona streng aðallega á umframorku, sem er enn ein mýtan að sé gnægð af hér. Fyrir utan það hefur olían hraðlækkað í verði.

Þjóðin síðust í röðinni 

Þjóðin er síðust til þess að njóta ábatans af rafstreng. Margfeldisáhrif eru engin, bara sinnum 1! Við verðum þá í hópi með Venezúela og Nígeríu, hráefnisútflytjendur sem eru leiksoppar örlaganna en við þar að auki undir hæl orkustýringar Evrópu. Megi það aldrei verða.


mbl.is 65 milljarða ábati af sæstreng
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Þórhallsson

Eigum við ekki bara fullt í fangi við að uppfylla loforð sem búið er að lofa tengt nýjum kýsilverksmiðjum?

Jón Þórhallsson, 16.10.2014 kl. 10:36

2 Smámynd: Ívar Pálsson

Jú, Jón, biðlisti til framkvæmda er langur til kaupa á öryggri orku.

Ívar Pálsson, 16.10.2014 kl. 10:59

3 Smámynd: Bjarni Jónsson

Það er rétt, Ívar, Landsvirkjun er ekki af baki dottin með óskabarn sitt, sæstreng til Skotlands, en það þarf betri rök en felast í þessari ENTSO-E skýrslu til að um verði að ræða nokkuð annað en steinbarn.  Ég reiknaði flutningskostnaðinn með hefðbundnum núvirðisreikningum og kostnaðartölum frá HHÍ 140 USD/MWh.  Virkjun hér þarf a.m.k. 25 USD/MWh, svo að fyrir orkuna komna til Skotlands þarf að lágmarki 165 USD/MWh, en LV býst við að fá 150 USD/MWh, sem þó engan veginn er í hendi.  Hér eru skýjaborgir á ferðinni. 

Bjarni Jónsson, 16.10.2014 kl. 18:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ívar Pálsson
Ívar Pálsson

Viðskiptafræðingur með útflutningsfyrirtæki, en grúskar í flestu.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband