Fólkinu er ekki sama

Seifur-Zeus

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri,sem var áheyrandi á þessum fjölmenna fundi um Reykjavíkurflugvöll og sérstaklega neyðarbrautina, getur ekki leitt hjá sér hvílík samstaða er hjá mörgum Reykvíkingum gegn því að leggja niður brautina, sem óbeint stendur til hjá Umhverfis- og skipulagsráði á morgun, miðvikudaginn 22. október 2014. Eftir þennan góða fund er ég sannfærður um að meirihluti ráðsins getur ekki verið svo pólitískt skyni skroppinn að staðfesta framkvæmdaleyfi fyrir Valsmenn á Hlíðarenda, en sú byggð krefst þess að neyðarflugbrautin fari. 

Slær hann til? 

En ef meirihluti ráðsins og síðan Borgarstjórn láta samt skripla á skötu með þetta og samþykkja, þá getur hann bókað það að eiga ekki jafn náðuga daga og í aðdraganda síðustu borgarstjórnarkosninga, þegar fólk í flestum flokkum mátti vart vatni halda yfir snilli orðræðunnar. Flugvallarmálið (ásamt neyðarflugbrautinni) í heild sinni er slíkt yfirgnæfandi hagsmunamál Reykvíkinga og landsmanna allra, að þegar sýnt er fram á það lið fyrir lið eins og á þessum fundi, þá hlýtur það að hafa áhrif allt inn í dýpstu afkima 101, þar sem latte- froðan flæðir mest.  

Skipulag í höndum fólksins 

Ljóst er að skipulag borgarinnar kemur ekki heilagt og fullskapað úr höfði Seifs eða einhverju Samfylkingar- höfðinu, heldur ætti það að vera tekið þannig fyrir að íbúarnir hafi eitthvað um það að segja, ekki bara 18% þeirra eins og í gervikosningunni um flugvöllinn forðum, sem mörg okkar hundsuðu. Látum í okkur heyra. Helst vildi ég sjá rafrænar kosningar þar sem hver einasti kjósandi á landinu fengi kóda sendan til sín og kysi í símanum sínum.

En sjáum núna til hvort Hjálmar og Dagur blási til orrustu þessa vikuna! 


mbl.is Alvarlegar athugasemdir hunsaðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Þórhallsson

Þessi skoðanakönnun og undirskriftir flugvallarvina segja allt sem segja þarf:

http://thjodarskutan.blog.is/blog/thjodarskutan/entry/1380464/

Jón Þórhallsson, 22.10.2014 kl. 08:41

2 Smámynd: Jón Þórhallsson

Hugsa reykvíkingar þá ekki rökrétt

ef að meirihluti þeirra kýs XS í borgarstjórnar-kosningum

og röskun á flugvallarsvæði??

Jón Þórhallsson, 22.10.2014 kl. 09:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ívar Pálsson
Ívar Pálsson

Viðskiptafræðingur með útflutningsfyrirtæki, en grúskar í flestu.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband