Fundurinn gegn lokun bar árangur

Hlidarendi og flugvollur deilisk

Fjölmennur fundur Hjartans í Vatnsmýri gegn áformum Dags & Co um að leggja niður neyðarbraut Reykjavíkurflugvallar bar strax árangur. Umhverfis- og skipulagsráð hélt sinn fund í fyrradag og frestaði ákvörðuninni sem til stóð að taka. Síðan hefur Hjálmar Sveinsson formaður ráðsins komið fram og talað um misskilning og gönuhlaup, en ekkert slíkt er í gangi. Skýrt stendur í skipulaginu að það sé meginforsenda Hlíðarendabyggðar að neyðarbrautin fari. Ef götur ofl. að þessum blokkum eru samþykktar, þá þýðir það að brautin heyrir sögunni til. Of seint er að andmæla þá.

Allan sannleikann fram 

Stöðva ber Dag B. Eggertsson og borgarstjórnarmeirihlutann í þessari vel þekktu aðferð þeirra að lauma samþykktum og staðfestingum að þangað til allt er orðið of seint fyrir andstæðingana. Það tókst að stöðva stórgallaða Hverfisskipulagið með rödd fjöldans og svo núna með neyðarbrautina. En skipulags- skriðdrekinn er samt kominn á fullt að rústa rétti íbúanna til eigna sinna, frelsis í umferð um borgina og sérstaklega öllu varðandi flugvöllinn. Fylgja þarf eftir þessum málum, að ná sannleikanum út í tíma þannig að laumuskipulagið verði ekki að veruleika.


mbl.is Engin áhrif á neyðarbrautina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir

Ég get nú samt sem áður ekki lesið annað úr þessari frétt en að ætlun þeirra mun takast...

Hjálmar segir sjálfur "að framkvæmdir fyrsta kastið á Hlíðarendasvæðinu muni ekki einu sinni hafa neitt að gera með neyðarbrautina"...

Framkvæmdir fyrsta kastið segir það sem segja þarf...

Svik og prettir í gangi í von um að allir séu svo heimskir í hausnum að enginn fatti...

Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir, 24.10.2014 kl. 10:25

2 Smámynd: Ívar Pálsson

Já, ég hjó einmitt eftir þessu orðalagi Hjálmars, „fyrsta kastið“! Hverju máli skiptir hver grefur hvaða skurð núna, ef það er bara „fyrsta kastið“ í að byggja heilt blokkarhverfi sem er búið að hanna og teikna gegn neyðarbrautinni?

Ívar Pálsson, 24.10.2014 kl. 11:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ívar Pálsson
Ívar Pálsson

Viðskiptafræðingur með útflutningsfyrirtæki, en grúskar í flestu.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband