50% fleiri andvígir ESB- aðild heldur en fylgjandi

ESB roadSannarlega er afturköllun ESB- umsóknar tímabær, þar sem könnun Capacent Gallups sýnir að 50% fleiri Íslendingar eru andvígir ESB- aðild heldur en fylgjandi. Innan Reykjavíkur eru andstæðingar í naumum meirihluta en utan höfuðborgar- svæðisins eru þeir þrefalt fleiri en fylgjendur.

Þetta stuðningsleysi við ESB- aðild er það afgerandi að jafnvel sí- hikandi alþingismenn (sem vita aldrei í hvorn fótinn þeir eiga að stíga af ótta við starfsmissi) hljóta að taka tillit til þess og afturkalla umsóknina um leið og tillagan um það verður borin upp. 

En miðbæjarkjarni menntamanna mun fabúlera eins og Göbbels á sterum og afvegaleiða umræðuna svo að fjöldinn fái ekki vilja sínum framgengt. „Einn maður- eitt atkvæði“ hentar þeim ekki frekar en ESB- bræðrum þeirra. Verum viðbúin því og styðjum veiklundaða þingmenn til afstöðu með þjóð sinni.

Afturköllum ESB- umsóknina strax!


mbl.is Helmingur andvígur aðild að ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

  Þeim sem ber að láta til skarar skríða er eitthvers vant.Hvar er karlmannslundin? 

Helga Kristjánsdóttir, 18.2.2015 kl. 02:21

2 Smámynd: Ívar Pálsson

Einmitt, Helga. Ráðherra ætti náttúrulega að hafa drifið í þessu einhvern tíma á sl. tæpum 2 árum og látið svo reyna á staðfestinguna á þingi. En allt kom fyrir ekki.

Ívar Pálsson, 18.2.2015 kl. 08:03

3 Smámynd: Rafn Guðmundsson

jájá - mikið að marka skoðunarkönnun sem heimsku svínin kalla eftir

Rafn Guðmundsson, 18.2.2015 kl. 23:14

4 Smámynd: Ívar Pálsson

Rafn, ef viðurkennt fyrirtæki (Capacent Gallup) sem fer eftir stöðlum er beðið um að spyrja einfaldra spurninga (ekki loðinna), þá ætti að vera hægt að treysa útkomunni. Dæmigerð 60% svöruðu og tilviljanakennt úrtak úr stórum svarendahópi. Ég líki því ekki saman við leiðandi spurningar eins og: „Ef þjóðaratkvæðagreiðsla í dag yrði haldin og spurt yrði hvort klára ætti ESB- viðræðurnar, hverju myndir þú svara?“. Það er tilgangslaust.

Ívar Pálsson, 19.2.2015 kl. 08:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ívar Pálsson
Ívar Pálsson

Viðskiptafræðingur með útflutningsfyrirtæki, en grúskar í flestu.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband