Valtarinn heldur áfram

Valsmenn grunnur HlidarendiÓheillastefnu Dags & Co er fram haldið. Þorrasel verður flutt. Hofsvallagatan og Grensásvegur fá hundruð milljóna króna áfram til skemmdar á þeim. Valsmenn grafa grunna að húsum við brautarenda flugvallarins. 120 milljóna miðasölusbygging í Fjölskyldugarðinum kemur í stað skúrsins. Bílastæðunum í miðbæ og við Borgartún snarfækkar en þörfin rýkur upp með nýjum hótelum. Meingallað nýtt Aðalskipulag Reykjavíkurborgar og ónothæft Hverfaskipulag krauma undir okkur eins og eldgos sem bíður færis.

Valtari DeviantArtHægt er að halda svona áfram, en ég vil að við notum frekar tímann til þess að njóta þess sem við höfum, áður en borgarstjórinn tekur það í burtu.


mbl.is Ekki hætt við flutning Þorrasels
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Valur Jensson

Þetta er snarbilað lið, Ívar, það hljóta flestir réttsýnir að vera farnir að sjá, þ.e.a.s. þeirra sem gefa þessu gaum á annað borð. En borgarbúar verða að fara að venja sig af óvirkninni!

Skuggalegust eru skaðræðisáformin í flugvallarmálinu.

En nú er þetta meirihlutalið í borgarstjórn að stinga af úr landi í för fjölmennra fylgisveita til að eyða peningum bogarbúa í heimsreisur (sjá frétt í DV) og hlustar eflaust ekki á okkur frekar en fyrri daginn.

PS. 120 milljónir til að byggja miðasölu í stað skúrsins góða!!! Dæmigert fyrir þetta lið sem hefur ekkert peningavit.

Jón Valur Jensson, 3.6.2015 kl. 15:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ívar Pálsson
Ívar Pálsson

Viðskiptafræðingur með útflutningsfyrirtæki, en grúskar í flestu.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband