Með Svarta Pétur í spilastokknum

PiratinnVG og Framsóknar- flokkurinn gætu hugsanlega náð saman, en að taka ESB- Samfylkinguna inn og bæta fjórum Pírata- ólíkindatólum við og treysta á það að enginn þessarra 32 þingmanna víki af stefnunni á fjórum árum er hámark bjartsýninnar. 

Óvissuspil

Fráfarandi stjórn hafði amk. eitt óvissuspil (wildcard) í sínum spilastokki, Björt Ólafsdóttur úr Bjartri framtíð, sem sýndi það strax að hún gæti verið Svarti Pétur í stokknum eða flokkur hennar. Nú láta Píratar vita að þeir muni ekki endilega verða leiðitamir. Á meðan þegir Samfylkingin þunnu hljóði um eina málið sem sérgreinir hana, ESB- SvartiPeturumsóknina. Það er gamla ESB- aðferðin, að ýta helstu ágreiningsmálum á undan sér en verða sammála um fjölda smærri þátta sem ekki skipta máli í stærra samhengi. Samfylkingin í heild gæti verið einn stór Svarti Pétur í þessari ríkisstjórn vegna helstu stefnumála sinna, sem eru í grunninn andstæð Framsóknarflokknum og Vinstri Grænum að hluta. 

BDMF yrði stöðugri

Framsóknarfólk og sjálfstæðismenn kusu langflest þrjá flokka í þessum kosningum: Sjálfstæðisflokkinn, Framsóknar-flokkinn og Miðflokkinn. Þau eiga öll eðlilega samleið, eins og Sigmundur Davíð staðfesti núna, að hann vildi vel vinna með Sigurði Inga úr Framsókn. Að viðbættum Flokki Fólksins (sem Samfylking gæti varla unnið með vegna afstöðu til hælisleitenda) þá er þessi BDMF- hópur málefnalega og persónulega margfalt stöðugri eining til þess að stjórna landinu og að setja vitræn landslög heldur en Katrínar- hópurinn sem Forseti Íslands fann sig knúinn til að styðja vegna uppruna síns. Viðreisn passar hvorugum megin inn vegna ESB- þráhyggju sinnar og einangrast smám saman vegna þess.

Fjölmiðlar ekki til bjargar

Nú er helsta vonin sú að fjölmiðlar forði þjóðinni frá því að upplifa þessa ídealistastjórn Katrínar VG, með því að vera aðgangsharðir í spurningum sínum hvað hver flokkur muni gera ef beygt er í vinkilbeygju af stefnu hans, eins og Samfylking með ESB og Píratar með stjórnarskrá eða kerfisbreytingar. En líkurnar á því að þetta aðhald verði fyrir hendi frá t.d. RÚV eru nær engar.

Þetta yrði því vinstri stjórnin sem RÚV kom á með milljörðum króna frá okkur. Þvílík örlög.

 


mbl.is Fyrsti formlegi fundurinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Bjarni Jónsson

Það er brandari, að þetta fólk, sem þarna settist niður í Syðra-Langholti og nú í Alþingishúsinu, skuli vera að ræða saman um að mynda landinu ríkisstjórn.  Vinnubrögðin eru þannig, að láta á ágreiningsmálin bíða, en tuða þeirra í stað um hin, sem minni ágreiningur er um.  Hvers konar vinnubrögð eru þetta eiginlega ?  Sigurður Ingi galopnar hægri væng Framsóknarflokksins fyrir flótta til Miðflokksins með þessu háttarlagi.  Verði Hrunadansinn barn í brók, gæti hann orðið lokadans Framsóknarmaddömunnar.

Auðvitað liggur beinast við að reyna DBMF.

Bjarni Jónsson, 4.11.2017 kl. 14:48

2 Smámynd: Ívar Pálsson

Sannarlega, Bjarni. Framsóknarfólk getur þakkað Sigmundi Davíð fyrir það að hafa tvöfaldað fylgi framsóknarflokka, sameiginlega B+M með yfir 20% atkvæða og þar með mun sterkari rödd en áður.

Ívar Pálsson, 4.11.2017 kl. 15:06

3 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Samfylkingin þegir ekkert þunu hljóði um ESB-málið. Logi Einarsson lýsti því yfir við upphaf viðræðnanna að ESB yrði ekki á dagskrá þessarar ríkisstjórnar, og Styrmir Gunnarsson taldi þetta tímamótayfirlýsingu. 

Samt hamast menn við að halda öðru fram. 

Ómar Ragnarsson, 4.11.2017 kl. 17:57

4 Smámynd: Ívar Pálsson

Jæja, Ómar, þá er víst lofað öllu fögru og ekki minnst á það sem yfir 80% af kjósendum Samfylkingar vilja, ganga í ESB. Fær stjórnarskráin okkar kannski að vera í friði líka?

Ívar Pálsson, 4.11.2017 kl. 19:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ívar Pálsson
Ívar Pálsson

Viðskiptafræðingur með útflutningsfyrirtæki, en grúskar í flestu.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband