Aðgerðir strax, neyðin kallar

KoronaveiraÍsland má ekki við því lengur á þessari ögurstundu að vera taglhnýtingur Evrópusambandsins í samningum um bóluefni vegna kófsins. Svandísi Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra hefur verið leyft að láta okkur dingla í ESB með smánarkvóta bóluefnis seint og illa í mesta klúðri þeirra allra tíma, með þeim afleiðingum að samningar við Pfizer um ókeypis bóluefni fyrir meginþorra okkar á 2-3 vikum renni okkur úr höndum. Hafi einhvern tíma verið ástæða til þess að virkja neyðarrétt í samningum Íslendinga, þá er það núna gagnvart ESB, þegar líf eða heilsa sannarlega hundraða manna eru lögð að veði.

Andstæðir hagsmunir

Hagsmunir ríkja ESB og Íslands fara engan veginn saman í þessum samningum. Stórkostleg neyð sumra þeirra, eins og Portúgal núna, kallar á allt það bóluefni sem fáanlegt er í gegn um ríkjasambandið. Neyðarréttur þeirra væri að benda á smitleysi Íslendinga til þess að fresta enn frekar afhendingum hingað. Alveg öruggt er að við komumst ekki framarlega í þeirri eilífðarröð sem ESB skóp með skipulegu vanhæfi sínu. Sambandið samþykkir ekki bóluefni frá framleiðanda mánuðum saman og segir það ekki almennilega rannsakað fyrir eldra fólk, á meðan ESB heimtar að framleiðandinn standi við afhendingar í samræmi við samninginn sem var gerður í upphafi!

Stígum niður fæti

Sannað þykir að jafnvel dómur Hæstaréttar fær ekki Svandísi Svavarsdóttur til þess að framkvæma rétt sem ráðherra, þegar hún neitaði að staðfesta þær samþykktu virkjanir sem hefðu fært Suðurnesjum orku til athafna forðum. Nú verða samstarfsflokkar VG, Sjálfstæðis- og Framsóknarflokkur að sýna þann dug að heimta gerð Kárasamningsins við Pfizer, þótt það þýði að ömurlegu bóluefnasamningarnir við ESB fari upp í loft fyrir vikið. Nýjar og verri útgáfur kórónuveirunnar mega ekki ná fótfestu hér. Ekkert sleifarlag, lífið liggur við.


mbl.is Ekkert hæft í þrálátum orðrómi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigfús Ómar Höskuldsson

Merkilegt þegar lærðir menn koma fram með barnslegar nálganir á málin.

Flestir að vita að hér á landi búa að jafnaði 360.000 manns. Ca 50.000 Íslendingar sem búa erlendis en eru með annan fótinn hér á landi vegna C-19.

Segjum 400.000 þús. manns. 

Gott og vel.

Ekki telur viðskiptafræðimenntaður höfundur að líkurnar á því að stór lyfjafyrirtæki sem standa í því að auka framleiðslu, bæta ferla og taka inn billjónir, hafi áhuga að gera samning við ígiidi lítillar borgar upp á whiteboardið sitt ?

Látum nú ekki hatur okkar á ESB blinda okkar sýn á raunveruleikann.

Sigfús Ómar Höskuldsson, 3.2.2021 kl. 08:34

2 Smámynd: Ívar Pálsson

Sigfús Ómar, ég fór nú bara eftir því sem ég las: Frelsi íslenskra yfirvalda er takmarkað vegna afarsamningana við ESB. Áhugi Pfizer er ekki vegna stærðar markaðarins hér, heldur einmitt smæðar, upplýsinganna sem nást eldsnöggt út úr vel þekktu þýði í nokkuð skilvirku heilbrigðiskerfi, ólíkt hrærigrautnum í ESB, þar sem ekki tekst einu sinni að sprauta fólk á fljótan máta, sbr. í Frakklandi. Því fyrr sem tekst að ná hjarðónæmi, þá tekst betur að eiga við nýju og skæru veiruafbrigðin.

Heilbrigðisráðherra lætur augsýnilega andúð sína á stórfyrirtækjum og ímynduðum hagnaði þeirra í ljós með því að standa í vegi fyrir samningum sem myndu snarbæta hag Íslendinga. VG telur sig vera að nota ESB sem andsvar við fyrirtækjunum, þegar einmitt hið gagnstæða gerist.

Ívar Pálsson, 3.2.2021 kl. 11:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ívar Pálsson
Ívar Pálsson

Viðskiptafræðingur með útflutningsfyrirtæki, en grúskar í flestu.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband