Nauðung, ekki valkostur

Trodast i bilinnVeruleg vonbrigði urðu við lestur greinar Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur dómsmálaráðherra, „Fröken Reykjavík“ í Morgunblaðinu í dag, þegar kom að samgöngumálum í borginni. Annað í greininni var úr þeirri ágætu frelsisátt sem vonast var eftir, en forðast var að minnast á Borgarlínu eins og hún væri Valdemort í Harry Potter.

Bjóða beri upp á valfrelsi, óháð því hvort íbúar velji að ferðast með bíl, strætó eða á hjóli. „Það gerist ekki með þvinguðum samgöngumáta, heldur vönduðu skipulagi þar sem ýtt er undir valfrelsi borgarbúa“. Fólk komist á milli staða á þann máta sem hentar þeim best. „Það felur vissulega í sér uppbyggingu á innviðum, svo sem almenningssamgöngum, hjólreiðastígum og vegum. Þá er ekki hægt að undanskilja einn samgöngumáta á kostnað annars.“

Rými er takmörkuð gæði

Þarna liggur hundurinn grafinn. Þorri borgarbúa (75%) kýs að ferðast með bílum, 4% með ofurniðurgreiddum Strætó, en reiðhjóli eftir árstíðum. Metsala er í nýorkubílum, sem eykur hlutfall þeirra. Samt verða þeir ferðalangar þvingaðir í æ þrengri rásir veganna, því að stefnan er að þröngva Strætó upp á fólk með illu, með ofboðslegum kostnaði og umferðarstíflum. Valkostur fjöldans er hunsaður, en hugmyndafræði 4% elítunnar dásömuð.

Ekkert val

Hvernig fær fólk með frelsisást sig til þess að samþykkja þessa afarsamninga Borgarlínunnar? Ekkert gengur upp, kostnaður, reynslan, markmið, hvaðeina. Valkostur nýorkubílanna gleymist algerlega. Vetnisvæðing Íslands verður sannarlega ekki að veruleika á þennan hátt.

Herkostnaðurinn við það að stjórna með sósíalistum er alltof hár, fyrst þetta er niðurstaðan úr „samstarfinu“. Áslaug Arna, komdu okkur út úr Borgarlínufárinu með góðu eða illu. Annars verður Fröken Reykjavík gjaldþrota og fer á sósíalinn.


mbl.is Uppbygging á grænni borg fyrir 300 milljarða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

2 Smámynd: Ívar Pálsson

Takk, raunveruleikinn í febrúar 2020: 75,6% á einkabíl og 4,4% á hjóli. Fólk vill gjarnan búa í stærri íbúð, vera skuldlaust, hjóla út í sólarlagið í blíðunni osfrv. Síðan fór milljarður á ári í 10 ár til þess að reyna að þvinga því í strætó en nákvæmlega ekkert gekk. Fjöldinn ferðast um á bíl.

Ívar Pálsson, 13.2.2021 kl. 15:27

3 Smámynd: Júlíus Valsson

Góð grein og timabær Ívar. Það er með ólíkindum hve Sjálfstæðisflokkurinn er orðinn meðvirkur Voldemort og sósialistum hans í borginni. Liklega er þetta liður í að færa flokkinn nær "frjálslyndi", þ.e. því gervifrjálslyndi sem ríkir hjá ESB-flokkunum Samfó og Viðreisn?

Júlíus Valsson, 14.2.2021 kl. 09:10

4 Smámynd: Emil Þór Emilsson

ég held að það þurfi að meta þetta með opnum huga.

https://www.bcg.com/publications/2020/how-autonomous-vehicles-can-benefit-urban-mobility

Borgarlínan er mjög dýr það þarf að meta nýja nútímalegri kosti

Emil Þór Emilsson, 14.2.2021 kl. 10:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ívar Pálsson
Ívar Pálsson

Viðskiptafræðingur með útflutningsfyrirtæki, en grúskar í flestu.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband