1.12.2007 | 02:28
Þróunarlaus aðstoð
Utanríkis-, her- og varnarmálaráðherra, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, sem sækist eftir sæti í Öryggisráðinu, segir ábyrgð okkar Íslendinga vera aðallega gagnvart þeim löndum Afríku, þar sem þróun mannlegs lífs er komin skemmst á veg skv. lista Sameinuðu þjóðanna. Við eigum að horfa á þau í dag, segir Ingibjörg í viðtali á mbl.is. Þessi ríki eru Síerra Leone, Búrkina Fasó, Gínea- Bissá, Níger, Malí, Mósambík, Mið- Afríku Lýðveldið, Tsjad, Eþíópía og Lýðræðis- lýðveldið Kongó! Stríð og spilling er viðvarandi ástand í þessum löndum, ættbálkaveldi, galdratrú, þurrkar og nægileg eymd til þess að halda þeim neðst á listanum. Ingibjörg vill auka þróunaraðstoð í einhverja milljarða til þess að við öxlum ábyrgð á stöðu þessara landa. Hvers vegna þessir milljarðar okkar nýtast betur í stríðsherra og ættbálkahöfðingja þar en hér heima t.d. til þess að sjúkrahúsin geti loks borgað birgjum sínum er flestum hulin ráðgáta.
En hversu vel nýtast milljarðarnir til þarfra verka í þessum löndum? Hjónin Sigríður Snæbjörnsdóttir, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja og Sigurður Guðmundsson landlæknir eru nýkomin heim eftir eins árs dvöl í Malaví í Afríku (16. neðst á listanum) og ættu að þykja dómbær á slíkt. Við eigum að hætta að gefa fátækum peninga, segja þau meðal annars í viðtali við Fréttablaðið þann 4. nóv. sl. (bls. 12, pdf hér). Þau segja einnig:
Þarna er til dæmis spillingin í öllu sínu veldi og það er dyggð að hygla sínum nánustu. Um 70 prósent rekstrartekna ríkisins kemur í formi gjafa erlendis frá og í Malaví er mikið ættbálka- og höfðingjaveldi. Standi fólk frammi fyrir tveimur kostum, að fara að lögum eða fara eftir aldagamalli hefð, þá velur það hefðina og stelur peningunum til að gefa ættingjum. Og það virðist engu máli skipta hvort það eru hvítingjar eða heimafólk; það er alltaf gaman að dreifa peningum og láta aðra sitja og standa eftir skipun.
Eftirlitið með þessu fé er greinilega ekki nógu skilvirkt, segja þau. Til dæmis fari 30 til 40 prósent gefinna lyfja beint til sjálftökufólks í öllum stigum samfélagsins. Hvað þá peningarnir. Einn höfðinginn þarna sagði hættið að gefa okkur peninga og gefið okkur menntun í staðinn umfram allt hætta að dreifa ölmusu!
Þarna er dulið kynferðislegt ofbeldi frá hendi alls konar karla sem fer fram í skjóli galdurs og siðvenja sem eru ekki eftir hafandi, segir Sigurður alvarlegur í bragði og þagnar.
Er það þetta sem Íslendingurinn vill styðja til þess að minnka krónískan móral sinn í afstæðum vellystingum sínum? Af hverju ekki Mæðrastyrksnefnd eða helst nágrannann sem vitað er um að á í megnustu vandræðum með fé og heilsu? Eða bara að gera sér grein fyrir því að stöðugar fégjafir frá þjóðum til annarra þjóða snúast nánast alltaf upp í andhverfu sína.
Stuðningur við mannfjölgun í örbirgð
Svo er eitt sem má aldrei minnast á, án þess að fá reiði himnanna yfir sig: Ef við bætum hag fólks í þessum löndum, þá fjölgar það sér nægilega til þess að hagur þess verði jafn ömurlegur og hann var. Skiljanlega sendum við ljósmæður á þessa staði til þess að minnka barnadauða, enda ætti hann ekki að líðast. Samt fjölgar fólk sér þar nær óháð slíku. Ofangreind hjón minntust á mannfjölgun:
Landið hafði verið laust við hungursneyð síðustu tvö árin, en það ber einfaldlega ekki þegnana vegna mikillar fólksfjölgunar. Það er karlmennskumerki að eignast mörg börn þarna og meðalkonan eignast sex afkvæmi á lífsleiðinni, segir læknirinn. Einnig: Þegar búið er að kenna þjóðinni að rétta bara út hendurnar er sjálfsbjargarviðleitnin lítil. Fólk virðist oft bara sitja og bíða eftir að lífið renni hjá.
Aðstoð til nokkurra útvaldra
Þróunaraðstoðin í Malaví er ekkert einsdæmi. Þessi málaflokkur fær verulegar úthlutanir frá öllum Vesturlöndum, en flest þeirra eiga í vandræðum með að ná því að finna verðug verkefni til úthlutunar, amk. þau lönd sem stunda úttektir á virkni slíkar aðstoðar. Niðurstaðan er gjarnan sú að örfáar réttmætar hræður nýta milljarðana þegar grannt er skoðað og þá hlýtur t.d. vatnssopinn að kosta þúsundir króna eða grunnskólaárið í menntun á við Harvard- menntun. Batteríið sjálft tekur oft svo mikið til sín, að helmingur fjárins í slíkt þykir ekki tiltökumál.
Upplýsing og gegnsæi stöðvar vitleysuna
Kynnið ykkur þessi mál vel áður en þið samþykkið aukna þróunaraðstoð Ingibjargar Sólrúnar úr vösum okkar. Krefjist upplýsinga um það hvernig milljarðarnir nýtast. Yfirlæknir á spítala hér þarf að gera grein fyrir hverri krónu og skera niður eins og landlæknir þekkir, en þegar peningum er hent til ættbálkahöfðingja á miðbaug þá er eitthvað minna um skýrslur, gegnsæi og skilvirkni.
Látið í ykkur heyra um þetta! Eilífðarþögnin um þessi mál er óþolandi. Fæstir segja múkk um málið. Finnst þér þetta bara allt í fína?
Þörf grein meistarapenna um þetta efni mál er hér: (alger skyldulesning með góðum tenglum):
Gagnslaus aðstoð http://hannesgi.blog.is/blog/hannesgi/
Athugið: Ýtið þrisvar á myndir og töflur til þess að ná þeim skýrum.
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkur: Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 02:37 | Facebook
Nýjustu færslur
- Brynjar náði í hægrimenn en ekki í sig!
- ESB- flokkar æða upp!
- Erfiðið út í buskann
- Landsvirkjun fyrir pólitíkusa
- Eitt Ísland á ári
- Síðasti séns Svandísar búinn
- Evrópusósíalisminn tekur flugið
- Þarfleysuþrennan
- Lærið um aðhald hjá Þjóðverjum
- RÚV og hryðjuverkin
- Borgarstjóri Krísuvíkur á fullu
- Gervigreind með CO2 á hreinu
- Eini möguleikinn til breytinga
- XD= 80% gegn Borgarlínu
- Göturnar leiða til bílastæða
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Tenglar
Reykjavík
- Aðalskipulag Reykjavíkurborgar Aðalskipulag Rvk. Tenglar
- Skipulag í heild og Hlíðarnar Skipulag í heild og Hlíðarnar
- Vesturbær: Myndir úr hverfaskipulags-tillögum Vesturbær: Myndir úr hverfaskipulags-tillögum
- Skerjafjörður: Myndir úr hverfaskipulags-tillögum Skerjafjörður: Myndir úr hverfaskipulags-tillögum
- Umferðarflæði Reykjavík Umferðarflæði Reykjavík
- Hverfaskipulag í Reykjavík: tillögur birtar Hverfaskipulag í Reykjavík: tillögur birtar
- Könnun á húsnæðis- og búsetuóskum borgarbúa 2013 Könnun á húsnæðis- og búsetuóskum borgarbúa 2013
- Dagur & Co. stefndu í óefni með hverfaskipulag Dagur & Co. stefndu í óefni með hverfaskipulag
- Vatnssöfnun í skipulagi borgarinnar Vatnssöfnun í skipulagi borgarinnar
- Veitum Degi aðhald Veitum Degi aðhald
- Jóhönnu- heilkennið í Reykjavík Jóhönnu- heilkennið í Reykjavík
- Aðalskipulag miðar við flugvöllinn burt Aðalskipulag miðar við flugvöllinn burt
- Myndir úr nýju skipulagstillögunum Myndir úr nýju skipulagstillögunum
- Stefnir í glórulaust eignarnám Stefnir í glórulaust eignarnám
- Vinstri græn gegn einkabílnum Vinstri græn gegn einkabílnum
- Þvingun Þvingun
- Félagslegar íbúðir á dýrustu stöðum? Félagslegar íbúðir á dýrustu stöðum?
- Nýi Skerjafjörður á forsendum íbúanna Nýi Skerjafjörður á forsendum íbúanna
- Metnaðarfull stefna gegn borgurunum Metnaðarfull stefna gegn borgurunum
- Vísvitandi bílastæðaskortur Vísvitandi bílastæðaskortur
- Spjaldtölvur í grunnskólana Spjaldtölvur í grunnskólana
- Flugið verði fyrir almenning aftur Flugið verði fyrir almenning aftur
- Þögli meirihlutinn útskúfast Þögli meirihlutinn útskúfast
Tenglar
Áhugaverðir tenglar
- Sævörur ehf Útflutningur á rækju
- Fjallaferðir ÍP Myndasyrpur
- Bloomberg viðskipti Viðskiptavefur Bloombergs
- Glitnir: gengi gjaldmiðla Glitnir banki: Gengi gjaldmiðla 15 mín töf
- Boston University Boston University USA
- MR Menntaskólinn í Reykjavík
- Vald.org Jóh. Björn Raunveruleikinn í USA og víðar
- Financial Times ft.com viðskiptafréttir
- BBC News BBC fréttavefur
- AFP fréttir AFP fréttaþjónustan
- Reuters fréttir Reuters fréttaþjónustan
- Sky News Sky fréttaþjónustan
- Ritlist Önnu Heiðu Anna Heiða Pálsdóttir systir ÍP
- Sissú myndlist Sissú systir, myndlistarmaður og arkítekt
Banka/krónu blogg
Blogg mín um krónu og bankamál
- Fall Íslands, upphafsgrein Varnaðarorð um hagkerfið
- Hver borgar vextina? Hvaða aðilar eru að borga háu vextina?
- 30.000 krónur á mínútu allt árið Valréttarsamningar bankastjóra
- 2006 gaf þeim 3 milljarða Valréttarsamningar bankastjóra Kaupþings
- Háa vexti og framkvæmdaleysi Seðlabankinn lækkar ekki stýrivexti
- Augljóst hvert Moodys stefnir Mat Moody's á íslenskum bönkum
- Enn of örlátt, segja Bretar Íslenskir bankar of áhættuglaðir
- 628 milljarðar. Bilun. Íslenska krónan og vaxtamunarviðskiptin
- Vextir lækka ekki Seðlabankinn heldur stýrivöxtum háum
- Stöðugt ástand? Íslenskir bankar vanmeta ástandið
- Nóg komið af Jenum? Kaupþing ofl taka stór Jenalán
- Allir bankar ánægðir Háir stýrivextir og vaxtamunaverslun kæta
- Bankadómínókubbar Keðjuverkun hafin, fall í kerfinu
- Áhættuflótti heimsmarkaðar hefst fyrir alvöru Vaxtamunarverslun fellur og Jenið rís
- 6% fall krónu er góð byrjun Fall krónunnar hefst
- 10% gengisfall veldur verðbólgu Gengisfellingin nær 10%
- Eru veð bankanna traust? Veð ýmissa bréfa til umhugsunar
- Staðfest hvað stýrir krónunni Gjaldeyrisspekúlantar ráða gengi krónu
- Efnahagsmál af viti Umræður um efnahagsmál á malefnin.com
- Upphaf afleiðinga Afleiðingar hávaxtastefnu hefjast
- Greinasafn um banka og krónu Samantekt greina um banka og krónu
- Meira af Matadorpeningum! Seðlabankar dæla inn lausafé
- Áhættuflóttinn heldur áfram, en þó! Áættuflótti fyrst, en snerist við
- Federal Reserve sneri öllu við BNA seðlabanki lækkar vexti
- Davíð bregst bogalistin Seðlabanki með háa vexti, á móti Evru
- Jenið sækir aðeins á USD fellur, Jen rís, hlutabréf lækka
- Jenið og Ísland eru nátengd Tengsl Jens og Íslands skýrð
- Kaupþings- Klemman Vítahringur Vaxtamunarferlisins
- Japan 0, Ísland 1 Japan heldur stýrivöxtum
- Krónur, skuldir og verðlaus bréf Stýrivextir hækka, USA fer niður
- Sígandi markaður? Markaðurinn niður (en hikstandi)
- Veð íslenskra banka? Hve traust er staða bankanna?
- Bankar í afneitun Bankar telja sig stikkfrí
- Allt að 40% af fyrra markaðsvirði Exista og Kaupþing falla mikið
- Ekki batnar það Verðfall bréfa heldur áfram
- Billjón á 3 mánuðum? Frá 15 10 2007 fall um 1 billjón
- 200 milljónir á mínútu Fyrstu 5 daga 2008 fall 200M á mín
- Jen styrkist, íslenskir bankar veikjast Vaxtamunarverslun minnkar
- Fallið er ekki kauptækifæri Fall markaðar Íslands og heimsins
- Kaupþing 55%, Exista 32,8%, SPRON 32,5% Verðfall hlutabréfa frá tindi 2007
- Skítt með alla skynsemi ÍP keypti hlutabréf í Straumi
- Svindl og hrun haldast í hendur Svindl í SocGen og fall markaða
- Kaup-Thing lagið Lagið Wild Thing stílfært við Kaupþing
- Þreyjum Þorrann og Góuna! Fall markaða framlengist um nokkurn tíma
- Stóriðjan kemur til bjargar Útflutningsiðnaður skiptir máli
- Hvílíkir markaðir! Fall markaða er aðeins byrjunin
- Laun þín 2008: mínus 15-17% Gengisfelling IKR er nær samsvarandi launalækkun
- Mínus 500 milljarðar á einni klst.? Gengisfellingin 17/03/2008 byrjaði með 9% falli Jensins
- Allt löngu fyrirséð Fyrirsjáanlegar afleiðingar stefnu Seðlabanka
- Krónubréfum skilað Krónubréfum skilað
- Milljarðatuga munur Milljarðatuga munur
- Hraðbraut til heljar Hraðbraut til heljar
- Framlengt vegna fjölda áskorana Framlengt hjá Seðlabanka
- Bankar úr landi? Ríkið má ekki ábyrgjast skuldir bankanna
- Ársreikningar: veldu aðferð og þeir segja það sem þú vilt Aðferðir í ársreikningum skipta tugmilljarða máli
- Um hvað ætti ég að blogga ef allt þetta gerðist?: Draumar um banka og umhverfismál
- Bankar í verulegum vandræðum? Grein Ragnars Önundarsonar um bankana
- Fallin spýtan Yfirlit yfir þróun efnahagslífsins
- Skuldir Íslendinga snarhækka Jen hækkar skuldir landans
- Þúsundir milljarða í nettóskuldir? Þúsundir milljarða í nettóskuldir?
- Íslenskir bankar? Íslenskir bankar?
- Krónan veikust 25-26. dag síðasta ársfjórðungsmánaðar Krónan veikust 25-26. dag síðasta ársfjórðungsmánaðar
- Glitnir nú, en fasteignir ofl. síðar Glitnir nú, en fasteignir ofl. síðar
- Stýrivextir stefna í lækkun Stýrivextir stefna í lækkun
- Örþrifaráð og Matadorkrónur Örþrifaráð og Matadorkrónur
- Vaxtamunarverslunin drapst Vaxtamunarverslunin drapst
- Gjaldeyrisskortur og handstýrt gengi? Gjaldeyrisskortur og handstýrt gengi?
- Fljótt, fljótt, gjaldeyrir á 20% afslætti! Fljótt, fljótt, gjaldeyrir á 20% afslætti!
- Ástæður Rússalánsins Ástæður Rússalánsins
- Við neitum að borga Við neitum að borga
- Nokkrar jákvæðar hliðar mótlætisins Nokkrar jákvæðar hliðar mótlætisins
- Er gagnsæi Samfylkingar yfirleitt til? Er gagnsæi Samfylkingar yfirleitt til?
- Samúræjabréf falla. IMF leiðin er ófær Samúræjabréf falla. IMF leiðin er ófær
- Vegurinn til Vítis Vegurinn til Vítis
- Ríkið fer beint í snöruna Ríkið fer beint í snöruna
- Noregur og Ísland, hvort fyrir annað Noregur og Ísland, hvort fyrir annað
- Skuldir Íslands snarhækka Skuldir Íslands snarhækka
- Skyldulesning: Börgólfur Guðmundsson Skyldulesning: Börgólfur Guðmundsson
- 29,2% verðbólguhraði 29,2% verðbólguhraði
- Lánin borg hringavitleysuna Lánin borg hringavitleysuna
- Einn banki á dag gerður upp Einn banki á dag gerður upp
- Lánin yfir í fallandi krónur Lánin yfir í fallandi krónur
- Þjóðverjar spöruðu, Íslendingar eyddu Þjóðverjar spöruðu, Íslendingar eyddu
- Reglur IMF: réttur hinna sterku Reglur IMF: réttur hinna sterku
- Heildarlántaka 1000 milljarðar króna? Heildarlántaka 1000 milljarðar króna?
- Allt er bannað nema það sé leyft sérstaklega Allt er bannað nema það sé leyft sérstaklega
- Evran upp um 50% á 3 mánuðum Evran upp um 50% á 3 mánuðum
- Öryggi fjárins finnst ekki hér á landi Öryggi fjárins finnst ekki hér á landi
- Fasteignir, kvóti ofl. afhent? Klúður 101 Fasteignir, kvóti ofl. afhent? Klúður 101
- Neyðarlögin framkalla ójafnræði Neyðarlögin framkalla ójafnræði
- Vonlítið að reka fyrirtækin í þessu Vonlítið að reka fyrirtækin í þessu
- WSJ myndband um fall Íslands WSJ myndband um fall Íslands
- Yfirtaka bankanna dregur Ísland niður í svaðið Yfirtaka bankanna dregur Ísland niður í svaðið
- ESB aðild og IMF lán, samt kreppa og óeirðir! ESB aðild og IMF lán, samt kreppa og óeirðir!
- Veikustu hagkerfin verða útundan hjá ESB Veikustu hagkerfin verða útundan hjá ESB
- Falsað gengi til framtíðar? Falsað gengi til framtíðar?
- Björgvin skóp Bretavandræðin Björgvin skóp Bretavandræðin
- Lífeyrissjóðir í hreinu fjárhættuspili Lífeyrissjóðir í hreinu fjárhættuspili
- Enginn þorir að neita Icesave og IMF Enginn þorir að neita Icesave og IMF
- Írland er í ESB með Evru, samt mótmæla 100.000 Írland er í ESB með Evru, samt mótmæla 100.000
- Engin viðskipti, enginn með bein í nefinu Engin viðskipti, enginn með bein í nefinu
- Kreppan kosin burt? Kreppan kosin burt?
- Þjóð í dái Þjóð í dái
- Vondu karlarnir: sjómenn eða ríkið? Vondu karlarnir: sjómenn eða ríkið?
- Sverfur að skattaskjólum? Sverfur að skattaskjólum?
- EKKI skila 2006 styrkjum! EKKI skila 2006 styrkjum!
- Leiðin til þess að lifa þetta af Leiðin til þess að lifa þetta af
- Fjórðungshækkun punds gegn krónu á 38 dögum Fjórðungshækkun punds gegn krónu á 38 dögum
- Sjálfstæðismanneskja Sjálfstæðismanneskja
- ESB- sigur? Tæpast ESB- sigur? Tæpast
- Stýrivextir aukast í 13- földun ECB Stýrivextir aukast í 13- földun ECB
- Vinstri stjórn er eins varanleg og ... Vinstri stjórn er eins varanleg og ...
- Lífeyrissjóðir eru gjarnan rán um hábjartan dag Lífeyrissjóðir eru gjarnan rán um hábjartan dag
- Ríkið ákveði framboð og eftirspurn! Ríkið ákveði framboð og eftirspurn!
- Þjóðaratkvæðagreiðslu um afarsamningana! Þjóðaratkvæðagreiðslu um afarsamningana!
- Hverjir þingmanna gerast landráðamenn í dag? Hverjir þingmanna gerast landráðamenn í dag?
- Örlaganornirnar þrjár: tími Skuldar er kominn! Örlaganornirnar þrjár: tími Skuldar er kominn!
- 35 milljarða hækkun á 2 bankadögum! 35 milljarða hækkun á 2 bankadögum!
- Samfylkingarþingmenn sýni loks ábyrgð Samfylkingarþingmenn sýni loks ábyrgð
- Bara ef þeir hefðu nú farið! Bara ef þeir hefðu nú farið!
- Klýfur varaformaður flokkinn með Icesave og ESB? Klýfur varaformaður flokkinn með Icesave og ESB?
- Með byssuna í hnakkann og bundið fyrir augun Með byssuna í hnakkann og bundið fyrir augun
- Milliríkjadeilan varð að bresku einkaréttarmáli Milliríkjadeilan varð að bresku einkaréttarmáli
- Þýðing Magnúsar Thoroddsen hrl. Þýðing Magnúsar Thoroddsen hrl.
- Ólæs forsætisráðherra Samfylkingar? Ólæs forsætisráðherra Samfylkingar?
- Gjaldeyrishöft: svindlarar í hverju horni? Gjaldeyrishöft: svindlarar í hverju horni?
- Hæstaréttardómari staðfestir afsal Hæstaréttardómari staðfestir afsal
- Staðreyndir um Icesave standa Staðreyndir um Icesave standa
- Frumvarp um Weimar- Ísland Frumvarp um Weimar- Ísland
- Allt sem þú þarft að lesa er komið fram Allt sem þú þarft að lesa er komið fram
- Davíð um ESB- Svía Davíð um ESB- Svía
- Lýðræði í stað sendinefndar með opið tékkahefti Lýðræði í stað sendinefndar með opið tékkahefti
- Ágæti Vinstri- græn kjósandi! Ágæti Vinstri- græn kjósandi!
- Skræfurnar sitja hjá Skræfurnar sitja hjá
- Slepptu biti þínu, Steingrímur J. ! Slepptu biti þínu, Steingrímur J. !
- Ykkur tókst þetta, ESB- konunum! Ykkur tókst þetta, ESB- konunum!
- Lausn vandræðanna er fundin! Lausn vandræðanna er fundin!
- Bakland stjórnarinnar farið og tálsýnin er úti Bakland stjórnarinnar farið og tálsýnin er úti
- Bretar örvæntu 6. okt. 2008 Bretar örvæntu 6. okt. 2008
- Áfram heldur idealisminn ótrauður Áfram heldur idealisminn ótrauður
- Hvenær biðst Jóhanna Sig. afsökunar á þessu? Hvenær biðst Jóhanna Sig. afsökunar á þessu?
- Dýrustu feðgin Íslandssögunnar Dýrustu feðgin Íslandssögunnar Svavar og Svandís
Heimurinn / umhverfið
Umhverfið, mannfjöldi, hernaður ofl.
- Orka Íslands Mikilvægi orkuauðlinda Íslands
- Svifryki spúlað burt Spúla þarf svifryki af götunum
- Hrikalegt á að horfa Darfúr í Súdan frá Google Earth
- Koltvísýringslosun er ekki kosningamál CO2 magn er ekki kosningamál núna
- Hernaður kostar sitt Kostnaður hernaðar, aðallega BNA
- Svona er heimurinn (like it or not) Mannfjöldaaukning ræður orkuframleiðslu
- Þversögn vaxtarins Mannfjölgun og vöxtur þróunarríkja
- CO2 kvótamarkaður er martröð í mótun Upphaf CO2 kvótamarkaðar heims
- Grænland er of heitt! ESB á að kæla Grænland!
- Kókaínfundir og Ingibjörg Sólrún Afríkuríkin heilla ISG
- Heilaþvotturinn mikli, al-gor Heill dagur af heilaþvætti Al Gores
- Heimsvelgjan nær ekki suður úr Kólnun suðurfrá, ekki hitnun
- Út úr afríku! Vandamál Afríku eru hennar eigin smíði
- Grikkland brennur Eldar flæða um Grikkland
- CO2 kvótinn er verri en hinn kvótinn Ásjóna kolefniskvótans kemur í ljós
- Hálf- fréttir eru slappar Listi yfir 10 menguðustu borgir jarðar
- Tíu Ís-lönd hurfu sl. ár Norðurpóllin er að hverfa
- Varanlegt Mynd ÍP af pýramída, hugleiðingar
- Stærstu kvótaþegar jarðar Skipting CO2 kvóta á Íslandi og víðar
- Skömmtunarárin og haftapólitíkin endurvakin Íslensk CO2 úthlutun lítl. Ráðherraskömmtun.
- Minni kjarnorka þýðir meira af kolum og olíu Kjarnorkuveri í N- Nóreu lokað
- Vaclav Klaus: Hvort er í hættu, frelsið eða loftslagið? Vaclav Klaus, forseti Tékklands
- Sannfærð(ur)? Taktu prófið Tíu spurningar um loftslagsmál
- Löngu- Skerjafjörður Löngusker í Skerjafirði, mynd og hugleiðing
- Þróunaraðstoð fer til stríðsrekstrar Þróunaraðstoð til Afríku verður ekki skilvirk
- Al Gore og Dalai Lama? Listi yfir ýmsa friðarverðlaunahafa Nóbels
- Besta auglýsing í heimi Al Gore tekst vel upp með kvótabraskið
- 100 til 150 ár, segir SÞ- nefndin IPCC segir CO2 jafnast eftir 100-150 ár
- Klórblöndum ekki tæra vatnið okkar Ekki Evrópureglur um neysluvatn
- Þórunn mun klúðra samningsstöðu Íslands Umhverfisráðherra vill lítinn CO2 kvóta
- Góði Geir Vísa til Geirs um loftslagsmálin
- Rangt hjá Ingibjörgu Sólrúnu ISG segir enga samninga í gangi
- Hagavatnssvæðið í myndum Hagavatn virkjað? Myndir.
- Þróunarlaus aðstoð Þróunaraðstoð til óþurftar
- Bláfjöllin vakna Snjórinn kemur í Bláfjöllin
- BNA Íslandi til bjargar BNA neitar að samþykkja á Balí
- Látum okkur ekki blæða út á Balí Semjum ekki af okkur á Balí- ráðstefnunni
- Annars hugar á Balí Anna og Hugi frá Íslandi á Balí
- Ánægjulegt árangursleysi á Balí Óræð niðurstaða á Balí
- Lokasetning á Balí Lofstlagsráðstefnu á Balí lokið
- Á nöglum í rokinu Naglar borga sig í roki á svelli
- Áramótabrennum frestað? Líklegt að fresta þurfi áramótabrennum
- Átök orðin að stríði Sri Lanka eftirlitssveitir burt
- Nótum þess Vatnið á Íslandi, heitt og kalt er frábært
- Hungraður heimur, óvart Framleiðsla lífefnaeldsneytis veldur hungri
- Fórnarkostnaður stjórnarinnar Þórunn umhverfisráðherra er Wildcard
- ESB viðurkennir mistök í umhverfisstefnu ESB breytir um stefnu vegna etanóls
- Grænland kólnar! Kaldur vetur á Grænlandi
- Bláfjöll: Ráðningar gleymdust! Rekstur Bláfjalla í molum
- Ófriðareftirlit og spillingarstyrkir ISG og friðareftirlit
- Bláfjöll: Nú kastar tólfunum! Ástandið í Bláfjöllum versnar
- Bláfjallaklúðrið nær hámarki 10.000 manns í Bláfjöllum en lélegt
- Líf í frostinu Líf í frostinu
- Stóriðjan kemur til bjargar Stóriðjan kemur til bjargar
- Endurnýting hvala Endurnýting hvala
- Veturinn er bestur Veturinn er bestur
- Skattlagning í nafni kvenna Skattlagning í nafni kvenna
- Þórunn á bremsunni Þórunn á bremsunni. Umhverfisráðherra heftir för
- Gorhugsun um Hinn máttuga mann Gorhugsun um Hinn máttuga mann. Lýsingar Gores
- Veitum framúrskarandi forystu Íslendingar veita framúrskarandi forystu skv. Gore
- Gore er ræðusnillingur Gore er ræðusnillingur en fer með rangan málstað
- Lögregla gegn umhverfissinnum Lögreglan í Brussel tekur á umhverfissinnum
- Dýr er hver Bitru- túristinn Dýr er hver Bitru- túristinn fyrst að hætt er við Bitruvirkjun
- Hver tekur af skarið? Hver tekur af skarið í borginni? Erfitt í flokknum
- Virkjum og eflum alla dáð Virkjum og eflum alla dáð. Bitruvirkjun ofl til bjargar
- Skjálftakort og töflur Skjálftakort og töflur v Suðurlandsskjálftans maí 2008
- Vopnum safnað Vopnum safnað. ISG og Rice ræða málin
- Frægasti Íslendingurinn níðir Ísland Frægasti Íslendingurinn níðir Ísland. Björk ófrægir landann
- Buddan talar Þórunn umhverfisráðherra semur af sér
- Hekla er flott Ferðalýsing á Heklu með myndum
- Afleitar afleiddar afleiðingar afglapa Afleiðingar aðgerða í loftslagsmálum
- 5000 kr. á mann, bara fyrir Laugaveg 4 og 6 Borgin greiddi ofurverð fyrir skúrarusl
- Vedurpár- vídeó Veðurþáttaspá vedur.is útskýrð
- Engir samningar um loftslagsmál Fylkingar G8 og G5 eiga sér misjöfn takmörk
- ISG í herráð heimsins Utanríkisráðherra vill komast í Öryggisráð SÞ
- Yfir Skeiðarárjökul Ferðalýsing frá Grænalóni yfir Skeiðarárjökul
- Hækkum orkuverð Selja orkuna dýrt og gæta skattanna
- Þróunaraðstoð á tilvistarkreppufundi Þróunaraðstoð heimsins er í krísu
- Sóunarsamvinnu að ljúka? Sóunarsamvinnu að ljúka?
- Loftslags- réttlæti strax! Loftslags- réttlæti strax!
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.12.): 3
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 28
- Frá upphafi: 871286
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 26
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
2024
2023
2022
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
Bloggvinir
- prakkarinn
- stefanbjarnason
- hannesgi
- businessreport
- askja
- martagudjonsdottir
- agbjarn
- geiragustsson
- gustaf
- vey
- frjalshyggjufelagid
- tilveran-i-esb
- gammon
- sigsig
- omarragnarsson
- raksig
- halldorjonsson
- vinaminni
- samstada-thjodar
- draumur
- magnusjonasson
- frisk
- jonaa
- apalsson
- skodunmin
- arnim
- gullvagninn
- altice
- fannarh
- gun
- oliatlason
- bjarnihardar
- nilli
- davido
- svanurmd
- steinisv
- johanneliasson
- hagbardur
- arh
- zumann
- doggpals
- jonvalurjensson
- dofri
- katrinsnaeholm
- seinars
- kari-hardarson
- fredrik
- valli57
- tibsen
- kisabella
- tbs
- astroblog
- maeglika
- himmalingur
- skulablogg
- arnih
- ingagm
- ahi
- mullis
- krissi46
- vefritid
- gauisig
- bryndisisfold
- brandarar
- nerdumdigitalis
- svartagall
- siggith
- klarak
- jennystefania
- lax
- unnurgkr
- vilhjalmurarnason
- gattin
- kruttina
- rynir
- heidistrand
- thorhallurheimisson
- duddi9
- kristjan9
- haddi9001
- bofs
- thjodarheidur
- theodorn
- lucas
- benediktae
- iceland
- fun
- diva73
- zeriaph
- tharfagreinir
- bjarnimax
- fullvalda
- sigurjons
- sissupals
- davpal
- friggi
- ketilas08
- valdimarjohannesson
- gerdurpalma112
- andres08
- krist
- fjarki
- tik
- palmig
- rustikus
- vestskafttenor
- gummibraga
- svansson
- geirfz
- fhg
- stjornlagathing
- loftslag
- jonmagnusson
Athugasemdir
Okkur er nóg að setja pening í söfnunarbaukinn og helst svo að sem flestir sjái til. Það læknar samviskubitið og bætir ímyndina. Okkur varðar ekkert hvað um peninginn verður. Tilgangnum er náð með hræsninni einni.
Við erum Farísear nútímans. Þessi sjálmiðaða viðleitni okkar er líklegast að valda meiri hörmungum en ella. Sýndarmennska þessi kaupir okkur geislabauga en börnum vanþróaðra ríkja þyrnikórónu.
Hvað er til ráða? Ég veit það ekki. Menn verða allavega að hætta að ljúga að sjálfum sér í þessum efnum og láta hug fylgja verki.
Frábær grein hjá þér og merkilegt nokk, líka hjá Hannesi. Vonandi nær þetta inn í þingsali og jafnvel inn í kollinn á I.S.
Jón Steinar Ragnarsson, 1.12.2007 kl. 07:04
Annars er þetta orðinn iðnaður, sem einkaaðilar og stofnanir maka krókinn á. Það sama gildir um þetta framtak og margt annað skylt að ef árangri er náð, þá hverfur bissnessinn. Þess vegna er kyrrstaða eða afturför. Það er allt með vilja gert. Kæmi mér ekkert á óvart að með vaxandi fjármagni, aukist hlutdeild miðlaranna og hlutfall marktækrar aðstoðar minnkar. Auðvitað er þetta ekkert annað en svikamilla og féþúfa óvndaðra manna.
Jón Steinar Ragnarsson, 1.12.2007 kl. 07:09
Þú snertir á stóru máli hér, sem hefur verið eitt heitasta umræðuefnið í þróunarfræðum síðusta áratuginn eða lengur. Það er ekki nóg að bara gefa, það þarf að hugsa aðstoðina vel, kynna sér aðstæður á hverjum stað og vanda vel til verka. Það þýðir samt ekki að lausnin sé að hætta að taka þátt í þróunarsamvinnu, enda að sjálfsögðu líka hægt að finna fjölmörg dæmi um vel heppnuð verkefni (eins og þau sem tókust illa). Enda - ef þú lest orðrétt það sem haft er eftir Sigurði, þá er ekki verið að tala um að hætta aðstoð heldur beina henni í annan farveg (menntun í þessu tilviki)
Eitt sem þú nefnir í pistlinum þínum varðandi mannfjölgun - sem stenst illa nánari skoðun - er að halda því fram að með því að hjálpa fólki til betra lífs þá verði mannfjölgun enn meiri og hraðari. Yfirgnæfandi meirihluti rannsóknaniðurstaðna sem skoðar samhengi milli efnahagsástands og mannfjölgunar bendir til þess að besta leiðin til að draga úr mannfjölgun sé að bæta aðgang að menntun, heilsugæslu og fjármagni. Þetta á sérstaklega við ef hagur kvenna vænkast að þessu leyti - og virðist ástæðan vera sú að um leið og þær fá fleiri tækifæri upp í hendurnar til að gera eitthvað annað en eignast börn, þá velja þær frekar að eignast færri börn.
Þarna er margt sem spilar inn í, sem of langt mál er að telja upp í þessari athugasemd. Að mínu mati er hinsvegar ljóst að heimurinn er allt of samtengdur til að hægt sé að spila súkkat í þessum efnum og einbeita sér eingöngu að sínum eigin nafla. En það þarf að vanda til verka.
Auður H Ingólfsdóttir (IP-tala skráð) 1.12.2007 kl. 07:15
Takk fyrir þessi innlegg. Umræðan um þessi mál kemst vonandi á skrið, en skiljanlega er erfitt fyrir þá sem þekkja þetta best að tjá sig vegna þagnarskyldu og hagsmunatengsla.
Auður, það er ekkert lögmál að þróunarsamvinna eigi rétt á sér, ef hún er ekki skilvirk. En ef svo vill til að þeir staðir finnast þar sem hún hefur reynst skilvirk og árangursrík fyrir sjálfsbjargarviðleitni fjölda fólks til frambúðar, þá kemur til greina að gera meira af slíku. En þá erum við kannski komin í hring, því að áframhaldandi aðstoð skapar áhangendur. Einnig má vel velta fyrir sér hvort t.d. olíu- eða demantapeningar sumra ríkjanna ættu ekki að greiða menntunina, frekar en að íslenskt söfnunarfé geri það.
En varðandi mannfjölgunina, þá er þetta hárrétt hjá þér, Auður. Mitt sjónarhorn er kannski frekar það að 2. stig mannfjöldaþróunar, há fæðingartíðni og lág dánartíðni við aukna hagsæld, teygist stundum verulega áfram (í áratugi) vegna 1. stigs hugsunar og þá er erfitt að brauðfæða allt gengið. Getnaðarvarnir og menntun kvenna laga þetta, en karlarnir virðast samt vilja fjölga sér meir!
Ívar Pálsson, 1.12.2007 kl. 14:12
Þetta endalausa tal um ábyrgð vesturlanda búa til að koma afríku til hjálpar og rökin á bak við þau eru farinn að minna æði mikið á rök sem notuð voru fyrir um 120 árum síðan. Byrgði Hvíta mannsins.
Ríki í afríku og afríkubúar eru ekki jafningjar margra. Þá á við þá sem eru að aumingjavæða afríku. "það er allt svo slæmt það or þeir geta ekki bjargað sér sjálfir". Meðan það er litið á afríku sem vesalíng sem ekki getur bjargað sér sjálfur og er þar af leiðandi ekki jafn oki okkar, þá mun afríka aldrei geta risið til jafns við okkur.
Gaman samt að sjá þegar þeir sem vilja hjálpa afríku með peningja gjöfum vilja meina afríku búum að iðnvæðast. eintóm hræsni.
Fannar frá Rifi, 1.12.2007 kl. 15:20
Mjög gott innlegg og Jón Steinar hittir líka naglann á hausinn.
Þetta er mjög arðbært skím sem vandamálafræðingaiðnaðurinn hefur mjólkað óspart. Besta leiðin til að viðhalda vandamálinu verður áfram að moka peningum í gjörspillta einræðisherra sem eru þarna vegna þess að það hentar hagsmunum valda- og fjármálaelítu vesturlanda. Þeir hlýða og eru því góðir pappírar.
Baldur Fjölnisson, 1.12.2007 kl. 16:22
Mjög góð og áhugaverð grein hjá þér. Ég hef velt þessu fyrir mér í mörg ár og hefur alltaf fundist nálgunin á þessu vera bland af vanþekkingu og hræsni. Matargjafir hafa jafnframt kippt fótunum undan framleiðslunni innanlands og virðiskeðjan sem til staðar var í landinu kannski eyðilögð. Þar að auki höfum við venjulega enga eða sáralitla þekkingu á aðstæðum í þessum löndum. Komum venjulega með okkar gildi inn í þessi samfélög og skiljum ekki hugsunarháttinn.
Það er líka fróðlegt að velta því fyrir sér hvort að aðstoðin sem við veitum geti ekki í raun kannski verið skaðleg. Styrkir og ölmusur dragi í sjálfskaparviðleitni. Kannski, allavega voru þær þjóðir sem mestar stríðsskaðabætur greiddu og mestar álögur lagðar voru á eftir síðustu heimstyrjöld, þær þjóðir sem staðið hafa sig best og lífskjör eru hvað best, Finnland, Japan og Þýskaland.
Ég held að það væri frekar athugandi hjá okkur að stofna banka (eins og þessi Indverji sem fékk friðarverðlaunin) gerði og vinna þetta innan frá með því að lána fólki til kaupa á bústofni, til ræktunar, úrvinnslu og fleiri þátta sem byggja undir framleiðslu og að fólk geti skapað sér auðlegð.
Frekar vildi ég sjá slíkt gert, en að vera með starfsmenn í að leita uppi mannætur á Kyrrahafi til að skrifa undir yfirlýsingar um þátttöku okkar hjá Öryggisráðinu. Þangað eigum við ekkert erindi. Par exelance bruðl.
Hagbarður, 1.12.2007 kl. 18:06
Marshall aðstoðin er oft notuð sem dæmi um góða þróunaraðstoð. Marshall aðstoðinn var ekki þróunaraðstoð. Þetta voru fjárfestingar peningar til þess að byggja upp iðnviði samfélags sem var til staðar. Iðnviðir afríku eru ekki til staðar. Þannig að það er ekki verið að endurreisa þar eins og gert var í þýskalandi. Það er ekkert mál að endurreisa Róm en að byggja hana upp á nýtt er mun erfiðara (ef svo mæti taka til orða).
Það er bara ekki hægt að bera saman þýskaland eftir stríð þar sem landið er í rúsi og afríku. Það er hægt að bera saman iðnviðina í fasteignalega en þýskaland hafði tækniþekkingu og iðnaðarþekkingu í landinu, eitthvað sem afríka hefur af skornum skammti.
Háskólamenntaðir afríkubúar vinna sem ökumenn fyrir ríka vesturlanda búa sem halda þeir séu að bjarga heiminum með peningagjöfum.
Fannar frá Rifi, 1.12.2007 kl. 19:31
Hún var afar góð fyrir Wall Street, svo mikið er víst. Td. var amk. 20% hennar fólgið í olíusölu bandar. fyrirtækja til rústanna af Evrópu svo ég nefni ekki annað. Í dag sjáum við svipaðar millifærslur á Wall Street hér á landi þegar bandar. leppar semja við "vini" sína í Bechtel og Alcoa og Impregilo um svipaðar millifærslur og afslátt á orku í bullandi seljendamarkaði á orku.
Baldur Fjölnisson, 1.12.2007 kl. 22:12
Frábær grein og góðar athugasemdir... áhugavert.
Gunnar Helgi Eysteinsson, 1.12.2007 kl. 23:52
Sammála Ívar. Mjög gott innlegg!
Guðmundur Jónas Kristjánsson, 2.12.2007 kl. 00:51
Raunar er það umdeilt hversu miklu Marshall-aðstoðin skilaði enda var hagkerfi Vestur-Evrópu byrjað að taka flugið áður en ein króna barst frá Bandaríkjunum.
Geir Ágústsson, 2.12.2007 kl. 23:15
Athyglisverðir þankar og tenglar, takk. Hvernig ætli aukna gagnsæið sem Ingibjörg Sólrún boðar myndi virka? Sjáum fyrir okkur skýrslu á netinu: „2009= 300 milljónir kr. til grunnskólans í Pepel, Síerra Leone, til tungumálakennslu og aukinna menningartengsla. Njótendur aðstoðar= 90 nemar. Kostnaður: stjórnun 150m, laun utan landsins 70m, laun þar 40m, bygging 10m, annað 30 milljónir. Ólíklegt?
Ívar Pálsson, 3.12.2007 kl. 00:36
Vitnað er í læknahjónin:
“Landið hafði verið laust við hungursneyð síðustu tvö árin, en það ber einfaldlega ekki þegnana vegna mikillar fólksfjölgunar. Það er karlmennskumerki að eignast mörg börn þarna og meðalkonan eignast sex afkvæmi á lífsleiðinni,“ segir læknirinn. Einnig: „Þegar búið er að kenna þjóðinni að rétta bara út hendurnar er sjálfsbjargarviðleitnin lítil. Fólk virðist oft bara sitja og bíða eftir að lífið renni hjá.“
Ekki er laust við að þessi tónn minni mann á Kipling í yfirlætislegum rasískum nýlenduhroka. Dómur hins menntaða, en greinilega illa-upplýsta, vesturlandabúa er þannig að fólkið í þessum löndum séu framtakslausir aumingjar.
Fólk á að reiðast svona málflutningi en ekki fagna honum eins og lærskellandi molbúar.
Rummy, 3.12.2007 kl. 21:21
Rummy, hliðstæð ummæli mætti hæglega segja um Svía án þess að hætta á að kallast fordómafullur rasískur menntahroka-snobb-hippi:
Svíar eignast börn á tveggja ára fresti að jafnaði til að hámarka barnabætur sínar, og láta þannig kerfið stjórna hegðun sinni en ekki eigin þarfir og væntingar.
Íslendingar eru engar heilagar kýr heldur:
Mörg íslensk pör skrá sig á sitthvort lögheimilið og halda sig frá skráðri sambúð til að lágmarka leikskólagjöldin.
Ölmusakerfi eyðileggja fólk, og það á jafnt við um Svía, Íslendinga og malíska þorpsbúa.
Geir Ágústsson, 3.12.2007 kl. 21:42
Þessar athugasemdir þínar eru í ágætis takt við það sem ég benti á. Þær eru illa upplýstir sleggjudómar og alhæfingar sem eru ekki lýsandi fyrir þorra fólks. Þú ert eflaust betur gefinn en svo að nota slíkar rökleysur.
Rummy, 3.12.2007 kl. 21:51
Rummy, ummæli hjónanna ber helst að taka í heild sinni, sbr. pdf tengilinn hér ofar, en þó sé ég ekki (í mínum nýlenduhroka kannski, sbr. orð þín) hvar þau hafa rangt fyrir sér eða fara rangt með í textanum hér að ofan. Þetta er ekki endilega dómur, allt eins vitnisburður um staðreyndir á heilu ári á staðnum. Þá er þetta allavega upplýstur dómur þeirra sem til þekkja, frekar en okkar sófameistaranna sem vorum ekki þar. Hörundslitur fólksins skiptir ekki máli í þessu og ekki er um rasisma að ræða. Staðreyndirnar sem nefndar eru koma við kauninn á þér og því drepur þú málinu á dreif. Fólkið á staðnum verður ekkert athafnasamara, bjargar sér betur eða eignast færri börn af því að þér finnst að það ætti að vera það. Þetta er raunin og ljóst er að aðstoðin virkar ekki sem skyldi.
Ívar Pálsson, 3.12.2007 kl. 22:50
Hörður Þ. Karlsson, ert þú ekki í erfiðum málum núna? Fréttin var að berast á BBC (hér) um harða bardaga norður af borginni þinni. Fjöldi skæruliðahersveita og hver veit hvað. Evrópusambandið er víst að hugsa um að senda inn herdeild í byrjun næsta árs, en ekki líst mér á þetta, því að skæruliðarnir segjast munu líta á Evruliðið eins og um hersetulið sé að ræða og eigi því að verða fyrir árásum. Ekki er betra handan landamæranna í Darfur (Súdan) þar sem SÞ hefur ekki umboð til að beita hervaldi að fyrra bragði frekar en vanalega og horfir á þúsundirnar drepnar án mótaðgerða.
Ég vona að þú fáist fluttur burt úr þessu og komist hingað á klakann í rokið og rigninguna.
Ívar Pálsson, 5.12.2007 kl. 00:05
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.