Þjóðaratkvæðagreiðslu um afarsamningana!

Ef þörf hafi nokkurn tíma verið á þjóðaratkvæðagreiðslu, þá er það nú. Þreföld skal hún vera: HarakiriStaðfesting Icesave- afarsamnings um alla tíð, umboð til ESB- aðildarviðræðna og krafa um sjálfstæði seðlabankans  gagnvart IMF eða öðrum raunverulegum erlendum handhöfum valdsins.

Þörfin á því að hver kjósandi nýti rétt sinn í hverju þessara mála er svo brýn, því að þjóðþrifamálin ganga þvert í gegn um alla stjórnmálaflokkana, sem eru sjálfir til trafala við úrlausn málanna. Þótt flestir stjórnmálamenn hafi sagt sl. sjö mánuði að Icesave verði ekki greitt, ætla þeir hinir sömu að enda á þeim landráðum núna.  Þótt drjúgur meirihluti tveggja stærstu stjórnmálaflokkanna séu ákveðið á móti ESB- aðild, þá er haldið til viðræðna.  Þótt ljóst sé að IMF ráði yfir Seðlabankanum, þá lætur stjórnin eins og hún ráði í raun.

Ef hver kjósandi fær að nýta rétt sinn beint á þessum örlagatímum kemur í ljós hvernig taka skuli á málum óháð flokkslínum. Þá fyrst eru lausnir í nánd. Annars blasir við hægfara andlát kröftugrar þjóðar.


mbl.is Bretar fagna Icesave-samningi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

AGS gengur erinda breta og hollendinga eins og búast mátti við, þvert ofan í allan prótokoll og neitar að afgreiða annan hluta síns láns fyrr en við göngum í snöruna. Jóhanna fær ekki að koma í Evrópupartýið, ef hún kemur ekki í Icesave dressi.

Er nokkuð löglegt við þessa samninga?  Varðar ekki við alþjóðalög að gera samninga undir hótunum og þvingunum? Þarf að skjóta þetta lið til að stoppa það? Það duga engin rök!

Jón Steinar Ragnarsson, 6.6.2009 kl. 16:04

2 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Ég er sammála, núna er tími kominn á þjóðaratkvæðagreiðslu.

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 6.6.2009 kl. 16:05

3 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Deilum þessari upphæð niður á 7 ár. Eru það ekki 150 milljónir á dag? 70 milljónir á dag, þessi 15 ár. Fyrir utan vexti. Menn hafa reiknað þetta í rúma 1200 milljarða all in all án tillits til neinna annarra faktora.

Í 15 ár rúmar 200 milljónir á dag? Er mér ekki að missjást? 200 milljónir á dag! byrja að telja núna.

Jón Steinar Ragnarsson, 6.6.2009 kl. 16:17

4 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Stjórnmálamenn leysa engan vanda,  það voru þeir sem bjuggu hann til.  Þeir glíma því stöðugt við afleiðingar misstaka sinna en vilja ekki viðurkenna orsakir þeirra.

Þeir sem ekki vilja borga uppdiktaðar skuldir sem búnar eru til með tilstuðlan huglausra stjórnmálamanna, eiga nú aðeins þann kost að losa sig frá íslensku samfélagi. 

Magnús Sigurðsson, 6.6.2009 kl. 19:58

5 Smámynd: Jón Valur Jensson

Alþingi ber ábyrgð á því að standa vörð um stjórnarskrána. Allt, sem stefnir að því að komast undir klafa Evrópubandalagsins (EB), er af hinu illa. En EF alþingismenn bregðast í fyrrgreindu efni, láta skeika að sköpuðu og velja umsókn um "aðild" að (= innlimun í) EB, þá verður þjóðin vitaskuld að fá að hafa sitt að segja um það í þjóðaratkvæðagreiðslu, og ég er sammála Ívari, að ekki beri að staðfesta þessa nýju smánarsamninga án þess að þjóðin fái að segja sitt um það.

Jón Valur Jensson, 6.6.2009 kl. 22:57

6 Smámynd: Haraldur Baldursson

630 milljarðar í 7 ár á 5,55% vöxtum gera 919 milljarðar.
Hækkunin er 113 milljónir á dag, líka á sunnudögum.

Haraldur Baldursson, 6.6.2009 kl. 23:01

7 Smámynd: Ívar Pálsson

Breska ólánið minnir á amerísku "teaser"- húsnæðislánin sem mest voru gagnrýnd í BNA fallinu, þar sem engin afborgun er framan af láninu en vextir og vaxtavextir margfaldast. Þar var um misneytingu á sakleysingjunum að ræða. Þau lásu ekki einu sinni skilmálana. Hér er öllu eins farið.

Upphæðirnar eru slíkar að fólk yppir bara öxlum. Það eyðir sínum tíma í að spara í kerfinu með milljarð niðurskurð hér og þar, á meðan samþykkt er að greiða 3 milljarða á mánuði í vexti og allar upphæðirnar hér að ofan, allt án átaka, enda kættust Bretar. Friðsamlegir samningar!

Sagt er að eignir bankans gangi á móti en af hverju á móti Icesave? Af hverju ekki öllum réttmætari kröfunum á þrotabúið, sem enda hvort eð er fyrir dómstólum?

Enginn hefur rétt á því að skuldbinda annað fólk um slíkar upphæðir langt fram í tímann, hvað þá af vegna tveggja sendibréfa úr viðskiptaráðuneytinu. 

Ívar Pálsson, 7.6.2009 kl. 01:32

8 Smámynd: Ívar Pálsson

Ein prósents fall í gengi krónunnar hækkar Icesave skuldina um 6400 milljónir króna. Því mun ríkið verja krónuna út í eitt, en vissan um það lætur spekúlantana græða á niðurgreiddum gjaldeyri þar til gjaldeyrisvarasjóðurinn klárast.

Ívar Pálsson, 7.6.2009 kl. 01:39

9 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

OG, mínir vitru samlandar,hvernig knýjum við fram þjóðaratkvæðagreiðslu?    þá einu greiðsla sem ég er tilbúin að inna af hendi. 
    Svona í reifara stíl: Ótrúlegt að horfa upp á U-beygju Steingríms,Það opinberast að gasprið var ,hræsni.          Það mátti ekki virkja,vatnsins ofurkrafta, það er í lagi að kyrkja, og kremja okkar hjarta.

Helga Kristjánsdóttir, 7.6.2009 kl. 03:44

10 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Mér er spurn; dugir þjóðaratkvæðagreiðsla til?  Hvernig yrði snúið út úr henni?

Kosningum er ný lokið þar sem þorri kjósenda hélt að hann væri að kjósa yfir sig stjórnvöld sem stæðu vörð um íslenska hagsmuni, s.s. SF skjaldborgina margrómuðu um heimilin, VG vegna andstöðu við ESB. 

En nú Ísland situr uppi með ríkisstjórn sem gætir erlendra hagsmuna sem aldrei fyrr.  Huglausa landráðamenn.

Magnús Sigurðsson, 7.6.2009 kl. 09:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ívar Pálsson
Ívar Pálsson

Viðskiptafræðingur með útflutningsfyrirtæki, en grúskar í flestu.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband