19.12.2008 | 02:57
Neyðarlögin framkalla ójafnræði
Framvirkir gjaldeyrisskiptasamningar mjólkuðu vexti úr krónunni og skiluðu spákaupmönnum vel í sterkri krónu. Nú þegar dæmið snerist loks við eigum við að greiða í annað skipti, fyrst í vaxtamun krónunnar sem safnaðist sem skuld upp á hana og nú með eftirgjöf skulda þegar veðmálið snerist gegn þeim. Aðalástæða eftirgjafar 30 milljarða skulda virðist vera sú að um sjávarútvegsfyrirtæki sé að ræða. Jafnræðisregla er þá þverbrotin. Trúlega keyptu þau krónur framvirkt gegn Japönsku Jeni, sem virkaði vel og lengi þar sem vextir íslensku krónunnar voru svimandi háir með gamblaranum, en sáralitlir Jenavextir á móti. Lífeyrissjóðir stunduðu þetta líka og vilja fá eftirgjöf skulda þegar Jenið styrktist svo að um munaði og vaxtamunarverslunin (e. Carry trade) lagðist nær af. Sjóðunum bar að stunda örugg viðskipti en fóru sumir í hreint fjárhættuspil með gjaldmiðla.
Hyglum þeim sem skulda mest
Neyðarlögin sýna nú sitt rétta andlit: ójafnræðið uppmálað. Hvaða réttlæti er í því að Séra Jón (sum sjávarútvegsfyrirtæki, helst þau áhættusæknu) fái eftirgjöf ofurkrafna en ekki Jón eða Gunna? Af því að svo vill til að önnur deild í fyrirtækinu veiðir fisk og selur fyrir gjaldeyri? Mest af þessum skiptasamningum eru ekki varnir, heldur einmitt áhættutaka, sem sést t.d. af því að flest fyrirtækin taka lán sín eða gera svona samninga í Jenum en selja minnst útflutninginn þangað, heldur í Evrum, Sterlingspundum og í Dollurum. Jenið er núna metsterkt gagnvart dollar, svo að kröfurnar eru háar. Ef þetta er aðgerð til bjargar gjaldeyrisskapandi útflutningsfyrirtækjum, af hverju á þá að hygla þeim mest sem skulda mest, en ekki hinum ráðdeildarsamari eða bara jafnt yfir alla? Svona tilfærslur auðs bjóða spillingunni heim, fyrir utan það að aðrir kröfuhafar eru verulegum órétti beittir.
Innheimt af almenningi. Samningar í plús fara í þrotabúin
Frágangur framvirkra gjaldeyrisskiptasamninga eftir bankahrunið er með afbrigðum óréttlátur. Samningar sem hefðu skilað samningsaðilanum arði (rétt veðjað gegn krónu) eru ekki greiddir út, heldur fara inn í komandi þrotabú. Þá má heldur ekki nota til skuldajöfnunar (og heldur ekki skv. gjaldþrotalögum) ef samningshafi átti einnig samninga sem skuld var á, heldur var sú krafa sett í innheimtu strax. En hún er þá ekki innheimt ef þú ert með sjávarútvegsfyrirtæki!
Bjarga kvóta frá erlendu kröfuhöfunum?
Getur verið að ein meginástæða þessarar makalausu eftirgjafar sé sú, að kvóti þessarra fyrirtækja lendi ella hjá nýju eigendum bankanna, hinum erlendu kröfuhöfum, sem til stendur að samþykkja kröfur frá og afhenda síðan bankana með öllu sínu, kvóta og fasteignum til útlendinganna með tíu þúsund milljarða króna kröfurnar sínar? Af hverju er eftirgjöfin þá ekki frekar kaup ríkisins á kvóta þessarra rammskuldugu fyrirtækja? Þá er hugsanlega hægt að ráðstafa honum á réttmætari hátt.
Voru umrædd sjávarútvegsfyritæki beitt valdi?
Á það hefur verið bent (Fannar frá Rifi) að gömlu bankarnir hafi þvingað sjávarútvegsfyrirtækin til þess að gera samninga sem festu gengið og takmörkuðu gengishagnað fyrirtækjanna. Það er þó verðugt rannsóknarefni hve stór hluti 30 milljarðanna slíkt er og líka það hver ákveður samningsgengið í raun. Amk. trúðu margir á það að vaxtamunarmyllan væri eilífðarvél.
Hin mestu ólög
Eftirgjöf skulda sjávarútvegsfyrirtækja vegna gjaldeyrissamninga virðist vera enn eitt ósanngjarnt afkvæmi neyðarlaganna sem hleður álögum á þegnana. Þau ólög ásamt gjaldeyrishaftalögunum fara í sögubækurnar á topp tíu lista vanhugsuðustu laga Íslandssögunnar.
Kröfur verði felldar niður að hluta | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Viðskipti og fjármál | Aukaflokkar: Stjórnmál og samfélag, Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 03:09 | Facebook
Nýjustu færslur
- Brynjar náði í hægrimenn en ekki í sig!
- ESB- flokkar æða upp!
- Erfiðið út í buskann
- Landsvirkjun fyrir pólitíkusa
- Eitt Ísland á ári
- Síðasti séns Svandísar búinn
- Evrópusósíalisminn tekur flugið
- Þarfleysuþrennan
- Lærið um aðhald hjá Þjóðverjum
- RÚV og hryðjuverkin
- Borgarstjóri Krísuvíkur á fullu
- Gervigreind með CO2 á hreinu
- Eini möguleikinn til breytinga
- XD= 80% gegn Borgarlínu
- Göturnar leiða til bílastæða
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Tenglar
Reykjavík
- Aðalskipulag Reykjavíkurborgar Aðalskipulag Rvk. Tenglar
- Skipulag í heild og Hlíðarnar Skipulag í heild og Hlíðarnar
- Vesturbær: Myndir úr hverfaskipulags-tillögum Vesturbær: Myndir úr hverfaskipulags-tillögum
- Skerjafjörður: Myndir úr hverfaskipulags-tillögum Skerjafjörður: Myndir úr hverfaskipulags-tillögum
- Umferðarflæði Reykjavík Umferðarflæði Reykjavík
- Hverfaskipulag í Reykjavík: tillögur birtar Hverfaskipulag í Reykjavík: tillögur birtar
- Könnun á húsnæðis- og búsetuóskum borgarbúa 2013 Könnun á húsnæðis- og búsetuóskum borgarbúa 2013
- Dagur & Co. stefndu í óefni með hverfaskipulag Dagur & Co. stefndu í óefni með hverfaskipulag
- Vatnssöfnun í skipulagi borgarinnar Vatnssöfnun í skipulagi borgarinnar
- Veitum Degi aðhald Veitum Degi aðhald
- Jóhönnu- heilkennið í Reykjavík Jóhönnu- heilkennið í Reykjavík
- Aðalskipulag miðar við flugvöllinn burt Aðalskipulag miðar við flugvöllinn burt
- Myndir úr nýju skipulagstillögunum Myndir úr nýju skipulagstillögunum
- Stefnir í glórulaust eignarnám Stefnir í glórulaust eignarnám
- Vinstri græn gegn einkabílnum Vinstri græn gegn einkabílnum
- Þvingun Þvingun
- Félagslegar íbúðir á dýrustu stöðum? Félagslegar íbúðir á dýrustu stöðum?
- Nýi Skerjafjörður á forsendum íbúanna Nýi Skerjafjörður á forsendum íbúanna
- Metnaðarfull stefna gegn borgurunum Metnaðarfull stefna gegn borgurunum
- Vísvitandi bílastæðaskortur Vísvitandi bílastæðaskortur
- Spjaldtölvur í grunnskólana Spjaldtölvur í grunnskólana
- Flugið verði fyrir almenning aftur Flugið verði fyrir almenning aftur
- Þögli meirihlutinn útskúfast Þögli meirihlutinn útskúfast
Tenglar
Áhugaverðir tenglar
- Sævörur ehf Útflutningur á rækju
- Fjallaferðir ÍP Myndasyrpur
- Bloomberg viðskipti Viðskiptavefur Bloombergs
- Glitnir: gengi gjaldmiðla Glitnir banki: Gengi gjaldmiðla 15 mín töf
- Boston University Boston University USA
- MR Menntaskólinn í Reykjavík
- Vald.org Jóh. Björn Raunveruleikinn í USA og víðar
- Financial Times ft.com viðskiptafréttir
- BBC News BBC fréttavefur
- AFP fréttir AFP fréttaþjónustan
- Reuters fréttir Reuters fréttaþjónustan
- Sky News Sky fréttaþjónustan
- Ritlist Önnu Heiðu Anna Heiða Pálsdóttir systir ÍP
- Sissú myndlist Sissú systir, myndlistarmaður og arkítekt
Banka/krónu blogg
Blogg mín um krónu og bankamál
- Fall Íslands, upphafsgrein Varnaðarorð um hagkerfið
- Hver borgar vextina? Hvaða aðilar eru að borga háu vextina?
- 30.000 krónur á mínútu allt árið Valréttarsamningar bankastjóra
- 2006 gaf þeim 3 milljarða Valréttarsamningar bankastjóra Kaupþings
- Háa vexti og framkvæmdaleysi Seðlabankinn lækkar ekki stýrivexti
- Augljóst hvert Moodys stefnir Mat Moody's á íslenskum bönkum
- Enn of örlátt, segja Bretar Íslenskir bankar of áhættuglaðir
- 628 milljarðar. Bilun. Íslenska krónan og vaxtamunarviðskiptin
- Vextir lækka ekki Seðlabankinn heldur stýrivöxtum háum
- Stöðugt ástand? Íslenskir bankar vanmeta ástandið
- Nóg komið af Jenum? Kaupþing ofl taka stór Jenalán
- Allir bankar ánægðir Háir stýrivextir og vaxtamunaverslun kæta
- Bankadómínókubbar Keðjuverkun hafin, fall í kerfinu
- Áhættuflótti heimsmarkaðar hefst fyrir alvöru Vaxtamunarverslun fellur og Jenið rís
- 6% fall krónu er góð byrjun Fall krónunnar hefst
- 10% gengisfall veldur verðbólgu Gengisfellingin nær 10%
- Eru veð bankanna traust? Veð ýmissa bréfa til umhugsunar
- Staðfest hvað stýrir krónunni Gjaldeyrisspekúlantar ráða gengi krónu
- Efnahagsmál af viti Umræður um efnahagsmál á malefnin.com
- Upphaf afleiðinga Afleiðingar hávaxtastefnu hefjast
- Greinasafn um banka og krónu Samantekt greina um banka og krónu
- Meira af Matadorpeningum! Seðlabankar dæla inn lausafé
- Áhættuflóttinn heldur áfram, en þó! Áættuflótti fyrst, en snerist við
- Federal Reserve sneri öllu við BNA seðlabanki lækkar vexti
- Davíð bregst bogalistin Seðlabanki með háa vexti, á móti Evru
- Jenið sækir aðeins á USD fellur, Jen rís, hlutabréf lækka
- Jenið og Ísland eru nátengd Tengsl Jens og Íslands skýrð
- Kaupþings- Klemman Vítahringur Vaxtamunarferlisins
- Japan 0, Ísland 1 Japan heldur stýrivöxtum
- Krónur, skuldir og verðlaus bréf Stýrivextir hækka, USA fer niður
- Sígandi markaður? Markaðurinn niður (en hikstandi)
- Veð íslenskra banka? Hve traust er staða bankanna?
- Bankar í afneitun Bankar telja sig stikkfrí
- Allt að 40% af fyrra markaðsvirði Exista og Kaupþing falla mikið
- Ekki batnar það Verðfall bréfa heldur áfram
- Billjón á 3 mánuðum? Frá 15 10 2007 fall um 1 billjón
- 200 milljónir á mínútu Fyrstu 5 daga 2008 fall 200M á mín
- Jen styrkist, íslenskir bankar veikjast Vaxtamunarverslun minnkar
- Fallið er ekki kauptækifæri Fall markaðar Íslands og heimsins
- Kaupþing 55%, Exista 32,8%, SPRON 32,5% Verðfall hlutabréfa frá tindi 2007
- Skítt með alla skynsemi ÍP keypti hlutabréf í Straumi
- Svindl og hrun haldast í hendur Svindl í SocGen og fall markaða
- Kaup-Thing lagið Lagið Wild Thing stílfært við Kaupþing
- Þreyjum Þorrann og Góuna! Fall markaða framlengist um nokkurn tíma
- Stóriðjan kemur til bjargar Útflutningsiðnaður skiptir máli
- Hvílíkir markaðir! Fall markaða er aðeins byrjunin
- Laun þín 2008: mínus 15-17% Gengisfelling IKR er nær samsvarandi launalækkun
- Mínus 500 milljarðar á einni klst.? Gengisfellingin 17/03/2008 byrjaði með 9% falli Jensins
- Allt löngu fyrirséð Fyrirsjáanlegar afleiðingar stefnu Seðlabanka
- Krónubréfum skilað Krónubréfum skilað
- Milljarðatuga munur Milljarðatuga munur
- Hraðbraut til heljar Hraðbraut til heljar
- Framlengt vegna fjölda áskorana Framlengt hjá Seðlabanka
- Bankar úr landi? Ríkið má ekki ábyrgjast skuldir bankanna
- Ársreikningar: veldu aðferð og þeir segja það sem þú vilt Aðferðir í ársreikningum skipta tugmilljarða máli
- Um hvað ætti ég að blogga ef allt þetta gerðist?: Draumar um banka og umhverfismál
- Bankar í verulegum vandræðum? Grein Ragnars Önundarsonar um bankana
- Fallin spýtan Yfirlit yfir þróun efnahagslífsins
- Skuldir Íslendinga snarhækka Jen hækkar skuldir landans
- Þúsundir milljarða í nettóskuldir? Þúsundir milljarða í nettóskuldir?
- Íslenskir bankar? Íslenskir bankar?
- Krónan veikust 25-26. dag síðasta ársfjórðungsmánaðar Krónan veikust 25-26. dag síðasta ársfjórðungsmánaðar
- Glitnir nú, en fasteignir ofl. síðar Glitnir nú, en fasteignir ofl. síðar
- Stýrivextir stefna í lækkun Stýrivextir stefna í lækkun
- Örþrifaráð og Matadorkrónur Örþrifaráð og Matadorkrónur
- Vaxtamunarverslunin drapst Vaxtamunarverslunin drapst
- Gjaldeyrisskortur og handstýrt gengi? Gjaldeyrisskortur og handstýrt gengi?
- Fljótt, fljótt, gjaldeyrir á 20% afslætti! Fljótt, fljótt, gjaldeyrir á 20% afslætti!
- Ástæður Rússalánsins Ástæður Rússalánsins
- Við neitum að borga Við neitum að borga
- Nokkrar jákvæðar hliðar mótlætisins Nokkrar jákvæðar hliðar mótlætisins
- Er gagnsæi Samfylkingar yfirleitt til? Er gagnsæi Samfylkingar yfirleitt til?
- Samúræjabréf falla. IMF leiðin er ófær Samúræjabréf falla. IMF leiðin er ófær
- Vegurinn til Vítis Vegurinn til Vítis
- Ríkið fer beint í snöruna Ríkið fer beint í snöruna
- Noregur og Ísland, hvort fyrir annað Noregur og Ísland, hvort fyrir annað
- Skuldir Íslands snarhækka Skuldir Íslands snarhækka
- Skyldulesning: Börgólfur Guðmundsson Skyldulesning: Börgólfur Guðmundsson
- 29,2% verðbólguhraði 29,2% verðbólguhraði
- Lánin borg hringavitleysuna Lánin borg hringavitleysuna
- Einn banki á dag gerður upp Einn banki á dag gerður upp
- Lánin yfir í fallandi krónur Lánin yfir í fallandi krónur
- Þjóðverjar spöruðu, Íslendingar eyddu Þjóðverjar spöruðu, Íslendingar eyddu
- Reglur IMF: réttur hinna sterku Reglur IMF: réttur hinna sterku
- Heildarlántaka 1000 milljarðar króna? Heildarlántaka 1000 milljarðar króna?
- Allt er bannað nema það sé leyft sérstaklega Allt er bannað nema það sé leyft sérstaklega
- Evran upp um 50% á 3 mánuðum Evran upp um 50% á 3 mánuðum
- Öryggi fjárins finnst ekki hér á landi Öryggi fjárins finnst ekki hér á landi
- Fasteignir, kvóti ofl. afhent? Klúður 101 Fasteignir, kvóti ofl. afhent? Klúður 101
- Neyðarlögin framkalla ójafnræði Neyðarlögin framkalla ójafnræði
- Vonlítið að reka fyrirtækin í þessu Vonlítið að reka fyrirtækin í þessu
- WSJ myndband um fall Íslands WSJ myndband um fall Íslands
- Yfirtaka bankanna dregur Ísland niður í svaðið Yfirtaka bankanna dregur Ísland niður í svaðið
- ESB aðild og IMF lán, samt kreppa og óeirðir! ESB aðild og IMF lán, samt kreppa og óeirðir!
- Veikustu hagkerfin verða útundan hjá ESB Veikustu hagkerfin verða útundan hjá ESB
- Falsað gengi til framtíðar? Falsað gengi til framtíðar?
- Björgvin skóp Bretavandræðin Björgvin skóp Bretavandræðin
- Lífeyrissjóðir í hreinu fjárhættuspili Lífeyrissjóðir í hreinu fjárhættuspili
- Enginn þorir að neita Icesave og IMF Enginn þorir að neita Icesave og IMF
- Írland er í ESB með Evru, samt mótmæla 100.000 Írland er í ESB með Evru, samt mótmæla 100.000
- Engin viðskipti, enginn með bein í nefinu Engin viðskipti, enginn með bein í nefinu
- Kreppan kosin burt? Kreppan kosin burt?
- Þjóð í dái Þjóð í dái
- Vondu karlarnir: sjómenn eða ríkið? Vondu karlarnir: sjómenn eða ríkið?
- Sverfur að skattaskjólum? Sverfur að skattaskjólum?
- EKKI skila 2006 styrkjum! EKKI skila 2006 styrkjum!
- Leiðin til þess að lifa þetta af Leiðin til þess að lifa þetta af
- Fjórðungshækkun punds gegn krónu á 38 dögum Fjórðungshækkun punds gegn krónu á 38 dögum
- Sjálfstæðismanneskja Sjálfstæðismanneskja
- ESB- sigur? Tæpast ESB- sigur? Tæpast
- Stýrivextir aukast í 13- földun ECB Stýrivextir aukast í 13- földun ECB
- Vinstri stjórn er eins varanleg og ... Vinstri stjórn er eins varanleg og ...
- Lífeyrissjóðir eru gjarnan rán um hábjartan dag Lífeyrissjóðir eru gjarnan rán um hábjartan dag
- Ríkið ákveði framboð og eftirspurn! Ríkið ákveði framboð og eftirspurn!
- Þjóðaratkvæðagreiðslu um afarsamningana! Þjóðaratkvæðagreiðslu um afarsamningana!
- Hverjir þingmanna gerast landráðamenn í dag? Hverjir þingmanna gerast landráðamenn í dag?
- Örlaganornirnar þrjár: tími Skuldar er kominn! Örlaganornirnar þrjár: tími Skuldar er kominn!
- 35 milljarða hækkun á 2 bankadögum! 35 milljarða hækkun á 2 bankadögum!
- Samfylkingarþingmenn sýni loks ábyrgð Samfylkingarþingmenn sýni loks ábyrgð
- Bara ef þeir hefðu nú farið! Bara ef þeir hefðu nú farið!
- Klýfur varaformaður flokkinn með Icesave og ESB? Klýfur varaformaður flokkinn með Icesave og ESB?
- Með byssuna í hnakkann og bundið fyrir augun Með byssuna í hnakkann og bundið fyrir augun
- Milliríkjadeilan varð að bresku einkaréttarmáli Milliríkjadeilan varð að bresku einkaréttarmáli
- Þýðing Magnúsar Thoroddsen hrl. Þýðing Magnúsar Thoroddsen hrl.
- Ólæs forsætisráðherra Samfylkingar? Ólæs forsætisráðherra Samfylkingar?
- Gjaldeyrishöft: svindlarar í hverju horni? Gjaldeyrishöft: svindlarar í hverju horni?
- Hæstaréttardómari staðfestir afsal Hæstaréttardómari staðfestir afsal
- Staðreyndir um Icesave standa Staðreyndir um Icesave standa
- Frumvarp um Weimar- Ísland Frumvarp um Weimar- Ísland
- Allt sem þú þarft að lesa er komið fram Allt sem þú þarft að lesa er komið fram
- Davíð um ESB- Svía Davíð um ESB- Svía
- Lýðræði í stað sendinefndar með opið tékkahefti Lýðræði í stað sendinefndar með opið tékkahefti
- Ágæti Vinstri- græn kjósandi! Ágæti Vinstri- græn kjósandi!
- Skræfurnar sitja hjá Skræfurnar sitja hjá
- Slepptu biti þínu, Steingrímur J. ! Slepptu biti þínu, Steingrímur J. !
- Ykkur tókst þetta, ESB- konunum! Ykkur tókst þetta, ESB- konunum!
- Lausn vandræðanna er fundin! Lausn vandræðanna er fundin!
- Bakland stjórnarinnar farið og tálsýnin er úti Bakland stjórnarinnar farið og tálsýnin er úti
- Bretar örvæntu 6. okt. 2008 Bretar örvæntu 6. okt. 2008
- Áfram heldur idealisminn ótrauður Áfram heldur idealisminn ótrauður
- Hvenær biðst Jóhanna Sig. afsökunar á þessu? Hvenær biðst Jóhanna Sig. afsökunar á þessu?
- Dýrustu feðgin Íslandssögunnar Dýrustu feðgin Íslandssögunnar Svavar og Svandís
Heimurinn / umhverfið
Umhverfið, mannfjöldi, hernaður ofl.
- Orka Íslands Mikilvægi orkuauðlinda Íslands
- Svifryki spúlað burt Spúla þarf svifryki af götunum
- Hrikalegt á að horfa Darfúr í Súdan frá Google Earth
- Koltvísýringslosun er ekki kosningamál CO2 magn er ekki kosningamál núna
- Hernaður kostar sitt Kostnaður hernaðar, aðallega BNA
- Svona er heimurinn (like it or not) Mannfjöldaaukning ræður orkuframleiðslu
- Þversögn vaxtarins Mannfjölgun og vöxtur þróunarríkja
- CO2 kvótamarkaður er martröð í mótun Upphaf CO2 kvótamarkaðar heims
- Grænland er of heitt! ESB á að kæla Grænland!
- Kókaínfundir og Ingibjörg Sólrún Afríkuríkin heilla ISG
- Heilaþvotturinn mikli, al-gor Heill dagur af heilaþvætti Al Gores
- Heimsvelgjan nær ekki suður úr Kólnun suðurfrá, ekki hitnun
- Út úr afríku! Vandamál Afríku eru hennar eigin smíði
- Grikkland brennur Eldar flæða um Grikkland
- CO2 kvótinn er verri en hinn kvótinn Ásjóna kolefniskvótans kemur í ljós
- Hálf- fréttir eru slappar Listi yfir 10 menguðustu borgir jarðar
- Tíu Ís-lönd hurfu sl. ár Norðurpóllin er að hverfa
- Varanlegt Mynd ÍP af pýramída, hugleiðingar
- Stærstu kvótaþegar jarðar Skipting CO2 kvóta á Íslandi og víðar
- Skömmtunarárin og haftapólitíkin endurvakin Íslensk CO2 úthlutun lítl. Ráðherraskömmtun.
- Minni kjarnorka þýðir meira af kolum og olíu Kjarnorkuveri í N- Nóreu lokað
- Vaclav Klaus: Hvort er í hættu, frelsið eða loftslagið? Vaclav Klaus, forseti Tékklands
- Sannfærð(ur)? Taktu prófið Tíu spurningar um loftslagsmál
- Löngu- Skerjafjörður Löngusker í Skerjafirði, mynd og hugleiðing
- Þróunaraðstoð fer til stríðsrekstrar Þróunaraðstoð til Afríku verður ekki skilvirk
- Al Gore og Dalai Lama? Listi yfir ýmsa friðarverðlaunahafa Nóbels
- Besta auglýsing í heimi Al Gore tekst vel upp með kvótabraskið
- 100 til 150 ár, segir SÞ- nefndin IPCC segir CO2 jafnast eftir 100-150 ár
- Klórblöndum ekki tæra vatnið okkar Ekki Evrópureglur um neysluvatn
- Þórunn mun klúðra samningsstöðu Íslands Umhverfisráðherra vill lítinn CO2 kvóta
- Góði Geir Vísa til Geirs um loftslagsmálin
- Rangt hjá Ingibjörgu Sólrúnu ISG segir enga samninga í gangi
- Hagavatnssvæðið í myndum Hagavatn virkjað? Myndir.
- Þróunarlaus aðstoð Þróunaraðstoð til óþurftar
- Bláfjöllin vakna Snjórinn kemur í Bláfjöllin
- BNA Íslandi til bjargar BNA neitar að samþykkja á Balí
- Látum okkur ekki blæða út á Balí Semjum ekki af okkur á Balí- ráðstefnunni
- Annars hugar á Balí Anna og Hugi frá Íslandi á Balí
- Ánægjulegt árangursleysi á Balí Óræð niðurstaða á Balí
- Lokasetning á Balí Lofstlagsráðstefnu á Balí lokið
- Á nöglum í rokinu Naglar borga sig í roki á svelli
- Áramótabrennum frestað? Líklegt að fresta þurfi áramótabrennum
- Átök orðin að stríði Sri Lanka eftirlitssveitir burt
- Nótum þess Vatnið á Íslandi, heitt og kalt er frábært
- Hungraður heimur, óvart Framleiðsla lífefnaeldsneytis veldur hungri
- Fórnarkostnaður stjórnarinnar Þórunn umhverfisráðherra er Wildcard
- ESB viðurkennir mistök í umhverfisstefnu ESB breytir um stefnu vegna etanóls
- Grænland kólnar! Kaldur vetur á Grænlandi
- Bláfjöll: Ráðningar gleymdust! Rekstur Bláfjalla í molum
- Ófriðareftirlit og spillingarstyrkir ISG og friðareftirlit
- Bláfjöll: Nú kastar tólfunum! Ástandið í Bláfjöllum versnar
- Bláfjallaklúðrið nær hámarki 10.000 manns í Bláfjöllum en lélegt
- Líf í frostinu Líf í frostinu
- Stóriðjan kemur til bjargar Stóriðjan kemur til bjargar
- Endurnýting hvala Endurnýting hvala
- Veturinn er bestur Veturinn er bestur
- Skattlagning í nafni kvenna Skattlagning í nafni kvenna
- Þórunn á bremsunni Þórunn á bremsunni. Umhverfisráðherra heftir för
- Gorhugsun um Hinn máttuga mann Gorhugsun um Hinn máttuga mann. Lýsingar Gores
- Veitum framúrskarandi forystu Íslendingar veita framúrskarandi forystu skv. Gore
- Gore er ræðusnillingur Gore er ræðusnillingur en fer með rangan málstað
- Lögregla gegn umhverfissinnum Lögreglan í Brussel tekur á umhverfissinnum
- Dýr er hver Bitru- túristinn Dýr er hver Bitru- túristinn fyrst að hætt er við Bitruvirkjun
- Hver tekur af skarið? Hver tekur af skarið í borginni? Erfitt í flokknum
- Virkjum og eflum alla dáð Virkjum og eflum alla dáð. Bitruvirkjun ofl til bjargar
- Skjálftakort og töflur Skjálftakort og töflur v Suðurlandsskjálftans maí 2008
- Vopnum safnað Vopnum safnað. ISG og Rice ræða málin
- Frægasti Íslendingurinn níðir Ísland Frægasti Íslendingurinn níðir Ísland. Björk ófrægir landann
- Buddan talar Þórunn umhverfisráðherra semur af sér
- Hekla er flott Ferðalýsing á Heklu með myndum
- Afleitar afleiddar afleiðingar afglapa Afleiðingar aðgerða í loftslagsmálum
- 5000 kr. á mann, bara fyrir Laugaveg 4 og 6 Borgin greiddi ofurverð fyrir skúrarusl
- Vedurpár- vídeó Veðurþáttaspá vedur.is útskýrð
- Engir samningar um loftslagsmál Fylkingar G8 og G5 eiga sér misjöfn takmörk
- ISG í herráð heimsins Utanríkisráðherra vill komast í Öryggisráð SÞ
- Yfir Skeiðarárjökul Ferðalýsing frá Grænalóni yfir Skeiðarárjökul
- Hækkum orkuverð Selja orkuna dýrt og gæta skattanna
- Þróunaraðstoð á tilvistarkreppufundi Þróunaraðstoð heimsins er í krísu
- Sóunarsamvinnu að ljúka? Sóunarsamvinnu að ljúka?
- Loftslags- réttlæti strax! Loftslags- réttlæti strax!
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.12.): 3
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 28
- Frá upphafi: 871286
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 26
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
2024
2023
2022
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
Bloggvinir
- prakkarinn
- stefanbjarnason
- hannesgi
- businessreport
- askja
- martagudjonsdottir
- agbjarn
- geiragustsson
- gustaf
- vey
- frjalshyggjufelagid
- tilveran-i-esb
- gammon
- sigsig
- omarragnarsson
- raksig
- halldorjonsson
- vinaminni
- samstada-thjodar
- draumur
- magnusjonasson
- frisk
- jonaa
- apalsson
- skodunmin
- arnim
- gullvagninn
- altice
- fannarh
- gun
- oliatlason
- bjarnihardar
- nilli
- davido
- svanurmd
- steinisv
- johanneliasson
- hagbardur
- arh
- zumann
- doggpals
- jonvalurjensson
- dofri
- katrinsnaeholm
- seinars
- kari-hardarson
- fredrik
- valli57
- tibsen
- kisabella
- tbs
- astroblog
- maeglika
- himmalingur
- skulablogg
- arnih
- ingagm
- ahi
- mullis
- krissi46
- vefritid
- gauisig
- bryndisisfold
- brandarar
- nerdumdigitalis
- svartagall
- siggith
- klarak
- jennystefania
- lax
- unnurgkr
- vilhjalmurarnason
- gattin
- kruttina
- rynir
- heidistrand
- thorhallurheimisson
- duddi9
- kristjan9
- haddi9001
- bofs
- thjodarheidur
- theodorn
- lucas
- benediktae
- iceland
- fun
- diva73
- zeriaph
- tharfagreinir
- bjarnimax
- fullvalda
- sigurjons
- sissupals
- davpal
- friggi
- ketilas08
- valdimarjohannesson
- gerdurpalma112
- andres08
- krist
- fjarki
- tik
- palmig
- rustikus
- vestskafttenor
- gummibraga
- svansson
- geirfz
- fhg
- stjornlagathing
- loftslag
- jonmagnusson
Athugasemdir
Algerlega sammál þér Ívar. þetta gengur of langt og mismunar jafnt fyrirtækjum sem einstaklingum.
þetta er rugl enda getur vart annað komið til greina en að ríkisstjórnin íhlutist í málið. Væri nær að endurúthluta kvótanum jafnvel til lífeyrissjóða sem settu hann á markað.
Eggert Kjartansson, 19.12.2008 kl. 08:33
Sammála þér Ívar. Þetta er spilling og óréttlæti.
Rauði Oktober, 19.12.2008 kl. 08:57
Kvóti getur ekki lent hjá neinum nema þjóðinni.
1. grein laga um fiskveiðar segir svo fyrir um.
Allt tal um að gera útlendum kröfuhöfum kleyft, að eignast banka he´r og eignast þar með VINI er ekkert annað enóráðshjal skíthræddra peningapúka.
Þú eignast ekki VINI með því að leggjast flatur fyrir gamblerum og víxlurum. Þeir verða HÚSBÆNDUR þínir en ekki VINIR.
Miðbæjaríhaldið
Bjarni Kjartansson, 19.12.2008 kl. 09:30
Sæll Ívar,
ég tek undir með þér. Það er mikið óréttlæti og spilling í gangi núna.
Ég er ekki jafn bjartsýnn og miðbæjaríhaldið. Ef kvóti er veðsettur og eigandi hans stendur ekki í skilum mun sá sem á veðið í kvótann eiga kvótann. Þá skiptir engu máli hver átti kvótann þegar hann var veðsettur. Það sem skiptir máli er að standa í skilum svo veðhafinn leysi ekki til sín kvótann, það er það sem skiptir öllu máli. Er ég að misskilja eitthvað??
Gunnar Skúli Ármannsson, 19.12.2008 kl. 23:55
Sæll Ívar.
Kvótinn er eign þjóðarinnar samkvæmt stjórnarskránni og því ekki veðhæfur samkvæmt lögum, nema þá eingöngu í þágu eiganda síns , þjóðarinnar.
Ríkið á að þjóðnýta kvótann nú þegar. Útgerðin skuldar 5- 600 milljarða umfram eignir og er því í raun gjaldþrota. Það er engin ástæða til að láta gömlu bankana hirða kvótann við nefið á okkur og viðurkenna þar með að útlendingar eigi hann.
Síðan er hægt að lána þeim útgerðum sem hafa stundað fiskveiðar kvóta endurgjaldslaust til að byrja með, en kvóti sem menn hafa ekki veitt, en bara leigt út, færi þá í útleigu hjá ríkinu og skilaði strax tekjum í ríkissjóð.
Ríkið hefur að undanförnu hirt land af bændum, án þess að þeir hafi fengið rönd við reist. Jafnvel land sem var keypt af ríkinu á sínum tíma og allir pappírar þinglýstir.
Sama hlítur að gilda um kvótann. Það hlítur að vera einfalt mál að gera kvótann að ríkiseign með einfaldri lagasetningu.
Kári S. Lárusson (IP-tala skráð) 20.12.2008 kl. 00:36
"Kvótinn er eign þjóðarinnar samkvæmt stjórnarskránni og því ekki veðhæfur samkvæmt lögum, nema þá eingöngu í þágu eiganda síns , þjóðarinnar."
nei. með lögum sett 1988 (5 árum eftir að lögum kvótakerfið voru fyrst sett) fjalla um þjóðareign. þetta eru því eftir á lög sett í þeim eina tilgangi á sínum tíma til að veiða atkvæði. það er ekkert í stjórnarskránni sem segir að auðlindur séu þjóðareign. ef eitthvað er þá verndar eignarréttarákvæði stjórnarskráarinnar kvótann og eign á honum.
"Ríkið á að þjóðnýta kvótann nú þegar. Útgerðin skuldar 5- 600 milljarða umfram eignir og er því í raun gjaldþrota. Það er engin ástæða til að láta gömlu bankana hirða kvótann við nefið á okkur og viðurkenna þar með að útlendingar eigi hann."
bentu á einhvern á Íslandi sem er ekki tæknilega gjaldþrota.
"Ríkið hefur að undanförnu hirt land af bændum, án þess að þeir hafi fengið rönd við reist. Jafnvel land sem var keypt af ríkinu á sínum tíma og allir pappírar þinglýstir."
þú réttlætir ekki eitt böl með því að benda á annað. þetta er mikið óhæfu verk og vonandi dæmi mannréttindardómstóll evrópu með landeigendum gegn ríkinu. ég er ekki lögfróður en deilan stendur um það hvort að afréttir séu eign.
"Sama hlítur að gilda um kvótann. Það hlítur að vera einfalt mál að gera kvótann að ríkiseign með einfaldri lagasetningu."
nei. ríkið yrði að taka yfir allar skuldir sjávarútvegs með eignarnámi. auk þess myndi þjóðfélagið hrynja innan frá. Zimbabwe búa bjuggu við svipað og við. menn töldu með réttu eða röngu að hvítir hefðu óréttmætlega eignast jarðnæði í Zimbabwe. þjóðareign og önnur slík hugtök hafa verið notuð. en málið er að um leið og að ríkið tekur eignarnámi verðmæti sem ganga kaupum og sölum, verðmæti sem menn veðsetja og slá lán til að kaupa, þá hrynur samfélagið. því ef eignarréttur er ekki virtur þá er ekkert traust í samfélaginu.
ég er ekki viss hvernig staðan er með þjóðlendur en þær eru ekki komnar inn sem eignarnám heldur mögulegt eignarnám þar sem ekki er búið að útlista öllum kröfum ríkisins á landinu öllu.
Fannar frá Rifi, 20.12.2008 kl. 02:18
Fannar:
En eru ekki flestir sammála um að kvótinn sé einmitt eign þjóðarinnar?
Nú hafa flestir kvótagreifarnir veðjað kvótanum og tapað - ef um annað veð væri að ræða myndi bankinn bara setja það á nauðungaruppboð. Fyrst fengu þeir kvótann gefins - af hverju að gefa þeim (aftur) milljarða?
Nokkrar spurningar, því ég veit ekki neitt:
Geturðu útskýrt það af hverju ríkið yrði að taka yfir allar skuldir sjávarútvegs með eignarnámi? Eru þær ekki flestar við ríkisbankana hvort eð er?
Eru ekki einhver lög sem banna eignaraðild útlendinga í kvóta?
Má ekki ganga að veðunum og leyfa svo ríkinu að kaupa þær af bönkunum á einhverju verði? Ríkið yrði fyrst um sinn bara einn af kvótaeigendunum, og gæti leigt eða lánað kvóta eins og aðrir. Leigutekjurnar gæru farið í sjóð til að kaupa upp restina af kvótanum, þar til allt er komið í eigu réttra aðila...
Svo held ég að þú sért að misskilja vandamálið með Zimbabwe. Mugabe tók land af plantekrueigendum sem höfðu her manns í vinnu (þokkaleg laun, útflutningstekjur af tóbaki & fl., skattar o.s.frv.), og breytti þeim í smáspildur þar sem menn gátu sundað sjálfsþurftarbúskap (varla ræktað nóg fyrir mat, nær engar tekjur eða skattar, enginn útflutningur). Þetta stopp á peningaflæði (og peningaprentunin sem fylgdi í kjölfarið) olli hruni Zimbabwe - ekki eignaupptakan sjálf. Ríkið þyrfti að selja öll fiskiskipin fyrir tugþúsundir árabáta til að við séum að tala um sömu stöðu.
Einar Jón, 20.12.2008 kl. 09:55
ef þeir borga af lánum þá eru þeir ekki farnir á hausinn. ef fyrirtæki eru neydd í þrott vegna þess að þau skulda meira en þau eiga, þá verður að beita jafnræðisreglunni og neyða alla í þrot sem skulda meira en þeir eiga. og það eru allir landsmenn og öll fyrirtæki landsins.
ef þau fara sjálf í þrot. nú þá tapar bankinn útlánunum og tekur eignir upp í. þá á ríkisbankinn kvóta.
erlendir aðilar meiga ekki eiga kvóta á íslandi. þannig að ef þeir eignast hann í gegnum gjaldþrot þá verða þeir að selja hann.
"breytti þeim í smáspildur þar sem menn gátu sundað sjálfsþurftarbúskap" nei hann útdeildi þeim til vina og stuðningsmanna sinna sem aldrei höfðu komið nálægt ræktun og rekstri í landbúnaði.
fjöldinn allur af fólki vinnur hjá útgerðum. ef þú gerir kvótann upptækann þá fara þau öll í þrot og segja upp öllu starfsfólkinu. það tekur síðan tíma að koma hjólunum til að snúast upp á nýtt. er ríkið best til þess fallið? hafa stjórnmálamenn sýnt að þeir séu svo góðir?
menn hafa veðsett húsin sín. eigum við að gera öll heimili upptæk sem eru veðsett? eða eru sérreglur um sjávarútveg í þínum huga? að sjávarútvegur sé öðru vísi. en hann er það ekki. þetta er takmörkuð auðlind eins og með allt annað.
afskipti ríkisins hafa bara verið af hinu verra. sjáðu bara Hafró og veiðistýringuna. mældu þorskinn í fyrra vitlaust um 70%.
Einar Jón. Flestir voru sammála um að drengurinn í Lúkasarmálinu væri sekur.
Fannar frá Rifi, 20.12.2008 kl. 11:57
Þar sem um er að ræða gjaldeyrisskiptasamninga og erlendar skuldir, er þá ekki rétt að leyfa útgerðinni og lífeyrissjóðunum að dingla í sínum vef og spinna áfram eftir því sem tækifæri gefast?
Miðað við greiningu Glitnis þarf umhverfið ekki að vera svo óvinsamlegt; ""Með öðrum orðum er skammtímaávöxtun fjármagns í krónum meiri í mánuði hverjum heldur en búast má við að fáist næsta árið í sumum helstu myntum. Þarf því mikla svartsýni á þróun krónu til þess að kjósa að halda fjármunum sínum í öðrum myntum þessa dagana," að því er segir í Morgunkorni Glitnis." 17.12. 2008
Það er alveg með ólíkindum hvað útgerðarfyrirtæki hafa átt erfitt með að fara í gjaldþrot á Íslandi. Við sitjum uppi gjaldþrota sem þjóð m.a. vegna allra þeirra sálfræði flækja sem orsakað afa það að þessi atvinnugrein er látin lúta allt öðrum viðskiptalögmálum en aðrar.
Magnús Sigurðsson, 20.12.2008 kl. 12:05
Ég var einmitt að meina að sömu reglur eigi að gilda um sjávarútveg og aðrar skuldir. Bloggið sjálft var um eftirgjöf ofurkrafna - sérreglur fyrir einn hóp manna.
Auðvitað vil ég ekki að gengið verði að veðunum nema fyrirtækin fari í þrot, en ef/þegar það gerist ætti ríkið bara að leysa til sín þann kvóta sem bankarnir eignast, og leigja hann út. Ef allir fara í þrot þarf auðvitað "bailout", en það er önnur saga. Ríkisrekstur á útgerðinni sjálfri er svo líka allt annað mál - og myndi sennilega bara enda með ósköpum.
Að öðru leyti held ég að menn ættu að drífa í að afskrifa kvótann yfir nokkurra ára tímabil, eins og svo margir hafa lagt til.
Þetta með Zimbabwe er víst svona: Prior to land redistribution, land-owning farmers, mostly white, had large tracts of land and utilized economies of scale [...] The reforms broke this land into smaller tracts (thereby destroying the economies of scale) and gave it to former black farmworkers and peasants, who had little knowledge of how to run the farms efficiently or raise productivity. Ég hef ekki séð neinar heimildir um að einkavinir hafi fengið þessi landsvæði í uppstokkuninni miklu um 2000, en ætli það sé ekki sannleikskorn í báðum útgáfunum okkar?
Ég var sem betur fer erlendis á meðan Lúkasarmálið gekk yfir - svo að ég missti af þeirri vitleysu.
Einar Jón, 20.12.2008 kl. 13:36
ég tel að þessir gjaldeyrisskipta samningar séu ekki skuldir. þeir eru viðskipti. tökum dæmi.
þú gerir samning við bónus um að kaupa af þeim gulrætur fyrir 1000 krónur á hverjum mánuði. þetta er um 1 kg. síðan lækkar verðið á gulrótum gríðarlega og kostar út úr búð aðeins 500 krónur á kg. þú vegna samningar þarft ennþá að greiða 1000 krónur. síðan fer bónus í þrot. þú gerðir árs samning og 3 mánuðir eru eftir af honum. sá sem keypti þrotabúið vill að þú haldir áfram að greiða 1000 krónur á kílóið þó að þú hafir ekki gert samning við þann aðila og samningurinn sé riftur vegna þrots hjá bónus.
þið semjið um að þú greiðir aðeins 750 krónur fyrir kg. við þetta tapar nýi eigandi 250 krónur á hverju kílói miðað við fyrri samning sem þú hafðir gert.
Fannar frá Rifi, 20.12.2008 kl. 13:52
það er að segja. hann græðir ekki ekstra 250 krónur á þér.
Fannar frá Rifi, 20.12.2008 kl. 13:53
Hvað er erlendu lánin þá eru þau skuldir viðskiptum óviðkomandi? eftir þrot bankanna.
Flestir hafa væntanlega stofnað til þeirra á viðskiptalegum forsemdum. Það verður tæplega bæði sleppt og haldið.
Magnús Sigurðsson, 20.12.2008 kl. 14:58
erlend gjaldeyrislán á Íslandi hjá íslenskum bönkum er núna í nýju bönkunum. lánin sem voru tekinn erlendisfrá til að fjármagna lán innanlands eru í gömlu bönkunum. eða það niðurstaðan ef rýnt er í orð skilanefnda bankanna. þannig að eina sem kemur til með að falla á íslenska skattgreiðendur vegna skulda gömlu bankanna eru innistæður. allt annað verður greitt af þeim sem tryggðu lán gömlu bankanna (skuldatryggingarálagið fræga). lánveitendur gömlu bankanna tapa semsagt mjög miklu.
Fannar frá Rifi, 20.12.2008 kl. 15:14
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.