Takið Úllen-dúllen-doff- prófið

GraentRauttBlatt

Óákveðnir kjósendur ættu að taka Úllen-dúllen-doff- prófið: það virkar! En fyrst er útilokunaraðferðin, þar sem ESB-flokkar detta út og þeir sem eyða atkvæðinu vegna 3% reglunnar. Þá eru eftir Sjálfstæðisflokkur, Framsóknarflokkur, Vinstri græn og Píratar. Úllen dúllen doff, kikke lane koff, koffe lane bikki bane, úllen dúllen doff. Svarið er komið. 

En kannski fengu Vinstri græn of langan séns (og sóttu hvort eð er um inngöngu í ESB) og detta því út. Tökum þá prófið á þeim þremur sem eftir eru: Sjálfstæðisflokkur, Framsóknarflokkur og Píratar. Svarið er þarna.

Sumir vilja kannski ekki rússnesku rúlletuna í Pírötum, þar sem skot er í öllum hólfum. Þá eru eftir Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur. Takið úllen-dúllen-doff á það og svarið er ljóst.

Drífðu þig svo að kjósa! 


mbl.is Landsmenn ganga að kjörborðinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: S i g u r ð u r   S i g u r ð a r s o n

Þegar búið er að útiloka flokka sem hlynntir eru ESB þá eru þrír flokkar eftir. Vinstri grænir eru óáreiðanlegir og koma því ekki til greina. Þú veist ekkert hvar þú hefur Pírata, þetta er nýtt fólk í nýjum flokki og á það til að hlaupa útundan sér. Sjálfstæðisflokkurinn er því eini kosturinn að mínu mati fyrir þá sem eru á móti fullveldisafsali til ESB.

S i g u r ð u r S i g u r ð a r s o n, 27.4.2013 kl. 09:36

2 Smámynd: Ívar Pálsson

Sigurður, enda endar dúllenið á Sjálfstæðisflokki.

Ívar Pálsson, 27.4.2013 kl. 10:23

3 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Ekki doffið?

Jón Steinar Ragnarsson, 27.4.2013 kl. 18:39

4 Smámynd: Ívar Pálsson

Jú, ég meina serían endar alltaf á Sjálfstæðisflokki (ef byrjað er á honum), þar til aðilar eru orðnir fimm.

Ívar Pálsson, 28.4.2013 kl. 09:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ívar Pálsson
Ívar Pálsson

Viðskiptafræðingur með útflutningsfyrirtæki, en grúskar í flestu.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband