28.12.2011 | 11:18
Reiðhjólaliðið þegir þunnu hljóði
Desember 2011 hefur sýnt okkur hve vitlaus reiðhjóladellan er, sem stjórnmálafólk treður upp á landann þessi dægrin. Hér á heimskautinu ráðast stjórnvöld gegn þeim fjölskyldum sem setja öryggið framar öllu, ferðast um með börnin í bílstólum í leikskólann og í skólann á jepplingi sem þau nota síðan hvort á sinn staðinn í Reykjavík í vinnuna. En það uppfyllir ekki staðalímynd borgar- og landsyfirvalda, sem er bíllaust par á reiðhjóli reiðandi krakkann, býr í fjögurra hæða Skandinavíublokk í Vatnsmýrinni og allt sem þau gera, skólar, vinna, námskeið, skemmtanir, vinaheimsóknir osfrv. er innan lítils hrings. Ekki skal farið eftir því hvernig Íslendingar eru eða hvernig lífið er á Íslandi, heldur hvernig það ætti að vera, samkvæmt stöðluðu skandinavísku sósíaldemókratísku lífsmynsturmódeli .
Raunveruleikinn er síðan allt annar: Sama hversu vel snjórinn væri skafinn, ef hann væri skafinn, þá gengur þetta reiðhjólaskrölt ekki upp í landi þar sem skiptast á skin og skúrir, frost og fannfergi. Varla kemur á óvart að alvarlegum slysum á reiðhjólum fjölgaði á árinu 2011. Ef þessu stjórmálafólki er alvara með það að við eigum að borga loftlagsskatta til þess að ekki hitni, þá verður það að fórna reiðhjóladraumnum sínum þegar því verður að ósk sinni og hafísárin koma aftur, í anda ársins 1968.
Um áramótin á víst að ganga almennilega frá því glæpafólki sem dirfist að sækjast eftir öryggi og betra lífi á jeppa, með því að skattleggja jeppa út úr korti. Stjórnvöld ríkis og borgar sækja að einstaklingnum og fjölskyldunni úr öllum áttum, en þegar öryggi borgaranna er ógnað, þá er komið að því að láta þetta yfirvald lönd og leið.
Það er illa rutt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkar: Lífstíll, Vinir og fjölskylda | Facebook
Nýjustu færslur
- Erfiðið út í buskann
- Landsvirkjun fyrir pólitíkusa
- Eitt Ísland á ári
- Síðasti séns Svandísar búinn
- Evrópusósíalisminn tekur flugið
- Þarfleysuþrennan
- Lærið um aðhald hjá Þjóðverjum
- RÚV og hryðjuverkin
- Borgarstjóri Krísuvíkur á fullu
- Gervigreind með CO2 á hreinu
- Eini möguleikinn til breytinga
- XD= 80% gegn Borgarlínu
- Göturnar leiða til bílastæða
- Framlengja misheppnað 10 ára tilraunaverkefni?
- Búa til nýja náttúru í Skerjafirði
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Tenglar
Reykjavík
- Aðalskipulag Reykjavíkurborgar Aðalskipulag Rvk. Tenglar
- Skipulag í heild og Hlíðarnar Skipulag í heild og Hlíðarnar
- Vesturbær: Myndir úr hverfaskipulags-tillögum Vesturbær: Myndir úr hverfaskipulags-tillögum
- Skerjafjörður: Myndir úr hverfaskipulags-tillögum Skerjafjörður: Myndir úr hverfaskipulags-tillögum
- Umferðarflæði Reykjavík Umferðarflæði Reykjavík
- Hverfaskipulag í Reykjavík: tillögur birtar Hverfaskipulag í Reykjavík: tillögur birtar
- Könnun á húsnæðis- og búsetuóskum borgarbúa 2013 Könnun á húsnæðis- og búsetuóskum borgarbúa 2013
- Dagur & Co. stefndu í óefni með hverfaskipulag Dagur & Co. stefndu í óefni með hverfaskipulag
- Vatnssöfnun í skipulagi borgarinnar Vatnssöfnun í skipulagi borgarinnar
- Veitum Degi aðhald Veitum Degi aðhald
- Jóhönnu- heilkennið í Reykjavík Jóhönnu- heilkennið í Reykjavík
- Aðalskipulag miðar við flugvöllinn burt Aðalskipulag miðar við flugvöllinn burt
- Myndir úr nýju skipulagstillögunum Myndir úr nýju skipulagstillögunum
- Stefnir í glórulaust eignarnám Stefnir í glórulaust eignarnám
- Vinstri græn gegn einkabílnum Vinstri græn gegn einkabílnum
- Þvingun Þvingun
- Félagslegar íbúðir á dýrustu stöðum? Félagslegar íbúðir á dýrustu stöðum?
- Nýi Skerjafjörður á forsendum íbúanna Nýi Skerjafjörður á forsendum íbúanna
- Metnaðarfull stefna gegn borgurunum Metnaðarfull stefna gegn borgurunum
- Vísvitandi bílastæðaskortur Vísvitandi bílastæðaskortur
- Spjaldtölvur í grunnskólana Spjaldtölvur í grunnskólana
- Flugið verði fyrir almenning aftur Flugið verði fyrir almenning aftur
- Þögli meirihlutinn útskúfast Þögli meirihlutinn útskúfast
Tenglar
Áhugaverðir tenglar
- Sævörur ehf Útflutningur á rækju
- Fjallaferðir ÍP Myndasyrpur
- Bloomberg viðskipti Viðskiptavefur Bloombergs
- Glitnir: gengi gjaldmiðla Glitnir banki: Gengi gjaldmiðla 15 mín töf
- Boston University Boston University USA
- MR Menntaskólinn í Reykjavík
- Vald.org Jóh. Björn Raunveruleikinn í USA og víðar
- Financial Times ft.com viðskiptafréttir
- BBC News BBC fréttavefur
- AFP fréttir AFP fréttaþjónustan
- Reuters fréttir Reuters fréttaþjónustan
- Sky News Sky fréttaþjónustan
- Ritlist Önnu Heiðu Anna Heiða Pálsdóttir systir ÍP
- Sissú myndlist Sissú systir, myndlistarmaður og arkítekt
Banka/krónu blogg
Blogg mín um krónu og bankamál
- Fall Íslands, upphafsgrein Varnaðarorð um hagkerfið
- Hver borgar vextina? Hvaða aðilar eru að borga háu vextina?
- 30.000 krónur á mínútu allt árið Valréttarsamningar bankastjóra
- 2006 gaf þeim 3 milljarða Valréttarsamningar bankastjóra Kaupþings
- Háa vexti og framkvæmdaleysi Seðlabankinn lækkar ekki stýrivexti
- Augljóst hvert Moodys stefnir Mat Moody's á íslenskum bönkum
- Enn of örlátt, segja Bretar Íslenskir bankar of áhættuglaðir
- 628 milljarðar. Bilun. Íslenska krónan og vaxtamunarviðskiptin
- Vextir lækka ekki Seðlabankinn heldur stýrivöxtum háum
- Stöðugt ástand? Íslenskir bankar vanmeta ástandið
- Nóg komið af Jenum? Kaupþing ofl taka stór Jenalán
- Allir bankar ánægðir Háir stýrivextir og vaxtamunaverslun kæta
- Bankadómínókubbar Keðjuverkun hafin, fall í kerfinu
- Áhættuflótti heimsmarkaðar hefst fyrir alvöru Vaxtamunarverslun fellur og Jenið rís
- 6% fall krónu er góð byrjun Fall krónunnar hefst
- 10% gengisfall veldur verðbólgu Gengisfellingin nær 10%
- Eru veð bankanna traust? Veð ýmissa bréfa til umhugsunar
- Staðfest hvað stýrir krónunni Gjaldeyrisspekúlantar ráða gengi krónu
- Efnahagsmál af viti Umræður um efnahagsmál á malefnin.com
- Upphaf afleiðinga Afleiðingar hávaxtastefnu hefjast
- Greinasafn um banka og krónu Samantekt greina um banka og krónu
- Meira af Matadorpeningum! Seðlabankar dæla inn lausafé
- Áhættuflóttinn heldur áfram, en þó! Áættuflótti fyrst, en snerist við
- Federal Reserve sneri öllu við BNA seðlabanki lækkar vexti
- Davíð bregst bogalistin Seðlabanki með háa vexti, á móti Evru
- Jenið sækir aðeins á USD fellur, Jen rís, hlutabréf lækka
- Jenið og Ísland eru nátengd Tengsl Jens og Íslands skýrð
- Kaupþings- Klemman Vítahringur Vaxtamunarferlisins
- Japan 0, Ísland 1 Japan heldur stýrivöxtum
- Krónur, skuldir og verðlaus bréf Stýrivextir hækka, USA fer niður
- Sígandi markaður? Markaðurinn niður (en hikstandi)
- Veð íslenskra banka? Hve traust er staða bankanna?
- Bankar í afneitun Bankar telja sig stikkfrí
- Allt að 40% af fyrra markaðsvirði Exista og Kaupþing falla mikið
- Ekki batnar það Verðfall bréfa heldur áfram
- Billjón á 3 mánuðum? Frá 15 10 2007 fall um 1 billjón
- 200 milljónir á mínútu Fyrstu 5 daga 2008 fall 200M á mín
- Jen styrkist, íslenskir bankar veikjast Vaxtamunarverslun minnkar
- Fallið er ekki kauptækifæri Fall markaðar Íslands og heimsins
- Kaupþing 55%, Exista 32,8%, SPRON 32,5% Verðfall hlutabréfa frá tindi 2007
- Skítt með alla skynsemi ÍP keypti hlutabréf í Straumi
- Svindl og hrun haldast í hendur Svindl í SocGen og fall markaða
- Kaup-Thing lagið Lagið Wild Thing stílfært við Kaupþing
- Þreyjum Þorrann og Góuna! Fall markaða framlengist um nokkurn tíma
- Stóriðjan kemur til bjargar Útflutningsiðnaður skiptir máli
- Hvílíkir markaðir! Fall markaða er aðeins byrjunin
- Laun þín 2008: mínus 15-17% Gengisfelling IKR er nær samsvarandi launalækkun
- Mínus 500 milljarðar á einni klst.? Gengisfellingin 17/03/2008 byrjaði með 9% falli Jensins
- Allt löngu fyrirséð Fyrirsjáanlegar afleiðingar stefnu Seðlabanka
- Krónubréfum skilað Krónubréfum skilað
- Milljarðatuga munur Milljarðatuga munur
- Hraðbraut til heljar Hraðbraut til heljar
- Framlengt vegna fjölda áskorana Framlengt hjá Seðlabanka
- Bankar úr landi? Ríkið má ekki ábyrgjast skuldir bankanna
- Ársreikningar: veldu aðferð og þeir segja það sem þú vilt Aðferðir í ársreikningum skipta tugmilljarða máli
- Um hvað ætti ég að blogga ef allt þetta gerðist?: Draumar um banka og umhverfismál
- Bankar í verulegum vandræðum? Grein Ragnars Önundarsonar um bankana
- Fallin spýtan Yfirlit yfir þróun efnahagslífsins
- Skuldir Íslendinga snarhækka Jen hækkar skuldir landans
- Þúsundir milljarða í nettóskuldir? Þúsundir milljarða í nettóskuldir?
- Íslenskir bankar? Íslenskir bankar?
- Krónan veikust 25-26. dag síðasta ársfjórðungsmánaðar Krónan veikust 25-26. dag síðasta ársfjórðungsmánaðar
- Glitnir nú, en fasteignir ofl. síðar Glitnir nú, en fasteignir ofl. síðar
- Stýrivextir stefna í lækkun Stýrivextir stefna í lækkun
- Örþrifaráð og Matadorkrónur Örþrifaráð og Matadorkrónur
- Vaxtamunarverslunin drapst Vaxtamunarverslunin drapst
- Gjaldeyrisskortur og handstýrt gengi? Gjaldeyrisskortur og handstýrt gengi?
- Fljótt, fljótt, gjaldeyrir á 20% afslætti! Fljótt, fljótt, gjaldeyrir á 20% afslætti!
- Ástæður Rússalánsins Ástæður Rússalánsins
- Við neitum að borga Við neitum að borga
- Nokkrar jákvæðar hliðar mótlætisins Nokkrar jákvæðar hliðar mótlætisins
- Er gagnsæi Samfylkingar yfirleitt til? Er gagnsæi Samfylkingar yfirleitt til?
- Samúræjabréf falla. IMF leiðin er ófær Samúræjabréf falla. IMF leiðin er ófær
- Vegurinn til Vítis Vegurinn til Vítis
- Ríkið fer beint í snöruna Ríkið fer beint í snöruna
- Noregur og Ísland, hvort fyrir annað Noregur og Ísland, hvort fyrir annað
- Skuldir Íslands snarhækka Skuldir Íslands snarhækka
- Skyldulesning: Börgólfur Guðmundsson Skyldulesning: Börgólfur Guðmundsson
- 29,2% verðbólguhraði 29,2% verðbólguhraði
- Lánin borg hringavitleysuna Lánin borg hringavitleysuna
- Einn banki á dag gerður upp Einn banki á dag gerður upp
- Lánin yfir í fallandi krónur Lánin yfir í fallandi krónur
- Þjóðverjar spöruðu, Íslendingar eyddu Þjóðverjar spöruðu, Íslendingar eyddu
- Reglur IMF: réttur hinna sterku Reglur IMF: réttur hinna sterku
- Heildarlántaka 1000 milljarðar króna? Heildarlántaka 1000 milljarðar króna?
- Allt er bannað nema það sé leyft sérstaklega Allt er bannað nema það sé leyft sérstaklega
- Evran upp um 50% á 3 mánuðum Evran upp um 50% á 3 mánuðum
- Öryggi fjárins finnst ekki hér á landi Öryggi fjárins finnst ekki hér á landi
- Fasteignir, kvóti ofl. afhent? Klúður 101 Fasteignir, kvóti ofl. afhent? Klúður 101
- Neyðarlögin framkalla ójafnræði Neyðarlögin framkalla ójafnræði
- Vonlítið að reka fyrirtækin í þessu Vonlítið að reka fyrirtækin í þessu
- WSJ myndband um fall Íslands WSJ myndband um fall Íslands
- Yfirtaka bankanna dregur Ísland niður í svaðið Yfirtaka bankanna dregur Ísland niður í svaðið
- ESB aðild og IMF lán, samt kreppa og óeirðir! ESB aðild og IMF lán, samt kreppa og óeirðir!
- Veikustu hagkerfin verða útundan hjá ESB Veikustu hagkerfin verða útundan hjá ESB
- Falsað gengi til framtíðar? Falsað gengi til framtíðar?
- Björgvin skóp Bretavandræðin Björgvin skóp Bretavandræðin
- Lífeyrissjóðir í hreinu fjárhættuspili Lífeyrissjóðir í hreinu fjárhættuspili
- Enginn þorir að neita Icesave og IMF Enginn þorir að neita Icesave og IMF
- Írland er í ESB með Evru, samt mótmæla 100.000 Írland er í ESB með Evru, samt mótmæla 100.000
- Engin viðskipti, enginn með bein í nefinu Engin viðskipti, enginn með bein í nefinu
- Kreppan kosin burt? Kreppan kosin burt?
- Þjóð í dái Þjóð í dái
- Vondu karlarnir: sjómenn eða ríkið? Vondu karlarnir: sjómenn eða ríkið?
- Sverfur að skattaskjólum? Sverfur að skattaskjólum?
- EKKI skila 2006 styrkjum! EKKI skila 2006 styrkjum!
- Leiðin til þess að lifa þetta af Leiðin til þess að lifa þetta af
- Fjórðungshækkun punds gegn krónu á 38 dögum Fjórðungshækkun punds gegn krónu á 38 dögum
- Sjálfstæðismanneskja Sjálfstæðismanneskja
- ESB- sigur? Tæpast ESB- sigur? Tæpast
- Stýrivextir aukast í 13- földun ECB Stýrivextir aukast í 13- földun ECB
- Vinstri stjórn er eins varanleg og ... Vinstri stjórn er eins varanleg og ...
- Lífeyrissjóðir eru gjarnan rán um hábjartan dag Lífeyrissjóðir eru gjarnan rán um hábjartan dag
- Ríkið ákveði framboð og eftirspurn! Ríkið ákveði framboð og eftirspurn!
- Þjóðaratkvæðagreiðslu um afarsamningana! Þjóðaratkvæðagreiðslu um afarsamningana!
- Hverjir þingmanna gerast landráðamenn í dag? Hverjir þingmanna gerast landráðamenn í dag?
- Örlaganornirnar þrjár: tími Skuldar er kominn! Örlaganornirnar þrjár: tími Skuldar er kominn!
- 35 milljarða hækkun á 2 bankadögum! 35 milljarða hækkun á 2 bankadögum!
- Samfylkingarþingmenn sýni loks ábyrgð Samfylkingarþingmenn sýni loks ábyrgð
- Bara ef þeir hefðu nú farið! Bara ef þeir hefðu nú farið!
- Klýfur varaformaður flokkinn með Icesave og ESB? Klýfur varaformaður flokkinn með Icesave og ESB?
- Með byssuna í hnakkann og bundið fyrir augun Með byssuna í hnakkann og bundið fyrir augun
- Milliríkjadeilan varð að bresku einkaréttarmáli Milliríkjadeilan varð að bresku einkaréttarmáli
- Þýðing Magnúsar Thoroddsen hrl. Þýðing Magnúsar Thoroddsen hrl.
- Ólæs forsætisráðherra Samfylkingar? Ólæs forsætisráðherra Samfylkingar?
- Gjaldeyrishöft: svindlarar í hverju horni? Gjaldeyrishöft: svindlarar í hverju horni?
- Hæstaréttardómari staðfestir afsal Hæstaréttardómari staðfestir afsal
- Staðreyndir um Icesave standa Staðreyndir um Icesave standa
- Frumvarp um Weimar- Ísland Frumvarp um Weimar- Ísland
- Allt sem þú þarft að lesa er komið fram Allt sem þú þarft að lesa er komið fram
- Davíð um ESB- Svía Davíð um ESB- Svía
- Lýðræði í stað sendinefndar með opið tékkahefti Lýðræði í stað sendinefndar með opið tékkahefti
- Ágæti Vinstri- græn kjósandi! Ágæti Vinstri- græn kjósandi!
- Skræfurnar sitja hjá Skræfurnar sitja hjá
- Slepptu biti þínu, Steingrímur J. ! Slepptu biti þínu, Steingrímur J. !
- Ykkur tókst þetta, ESB- konunum! Ykkur tókst þetta, ESB- konunum!
- Lausn vandræðanna er fundin! Lausn vandræðanna er fundin!
- Bakland stjórnarinnar farið og tálsýnin er úti Bakland stjórnarinnar farið og tálsýnin er úti
- Bretar örvæntu 6. okt. 2008 Bretar örvæntu 6. okt. 2008
- Áfram heldur idealisminn ótrauður Áfram heldur idealisminn ótrauður
- Hvenær biðst Jóhanna Sig. afsökunar á þessu? Hvenær biðst Jóhanna Sig. afsökunar á þessu?
- Dýrustu feðgin Íslandssögunnar Dýrustu feðgin Íslandssögunnar Svavar og Svandís
Heimurinn / umhverfið
Umhverfið, mannfjöldi, hernaður ofl.
- Orka Íslands Mikilvægi orkuauðlinda Íslands
- Svifryki spúlað burt Spúla þarf svifryki af götunum
- Hrikalegt á að horfa Darfúr í Súdan frá Google Earth
- Koltvísýringslosun er ekki kosningamál CO2 magn er ekki kosningamál núna
- Hernaður kostar sitt Kostnaður hernaðar, aðallega BNA
- Svona er heimurinn (like it or not) Mannfjöldaaukning ræður orkuframleiðslu
- Þversögn vaxtarins Mannfjölgun og vöxtur þróunarríkja
- CO2 kvótamarkaður er martröð í mótun Upphaf CO2 kvótamarkaðar heims
- Grænland er of heitt! ESB á að kæla Grænland!
- Kókaínfundir og Ingibjörg Sólrún Afríkuríkin heilla ISG
- Heilaþvotturinn mikli, al-gor Heill dagur af heilaþvætti Al Gores
- Heimsvelgjan nær ekki suður úr Kólnun suðurfrá, ekki hitnun
- Út úr afríku! Vandamál Afríku eru hennar eigin smíði
- Grikkland brennur Eldar flæða um Grikkland
- CO2 kvótinn er verri en hinn kvótinn Ásjóna kolefniskvótans kemur í ljós
- Hálf- fréttir eru slappar Listi yfir 10 menguðustu borgir jarðar
- Tíu Ís-lönd hurfu sl. ár Norðurpóllin er að hverfa
- Varanlegt Mynd ÍP af pýramída, hugleiðingar
- Stærstu kvótaþegar jarðar Skipting CO2 kvóta á Íslandi og víðar
- Skömmtunarárin og haftapólitíkin endurvakin Íslensk CO2 úthlutun lítl. Ráðherraskömmtun.
- Minni kjarnorka þýðir meira af kolum og olíu Kjarnorkuveri í N- Nóreu lokað
- Vaclav Klaus: Hvort er í hættu, frelsið eða loftslagið? Vaclav Klaus, forseti Tékklands
- Sannfærð(ur)? Taktu prófið Tíu spurningar um loftslagsmál
- Löngu- Skerjafjörður Löngusker í Skerjafirði, mynd og hugleiðing
- Þróunaraðstoð fer til stríðsrekstrar Þróunaraðstoð til Afríku verður ekki skilvirk
- Al Gore og Dalai Lama? Listi yfir ýmsa friðarverðlaunahafa Nóbels
- Besta auglýsing í heimi Al Gore tekst vel upp með kvótabraskið
- 100 til 150 ár, segir SÞ- nefndin IPCC segir CO2 jafnast eftir 100-150 ár
- Klórblöndum ekki tæra vatnið okkar Ekki Evrópureglur um neysluvatn
- Þórunn mun klúðra samningsstöðu Íslands Umhverfisráðherra vill lítinn CO2 kvóta
- Góði Geir Vísa til Geirs um loftslagsmálin
- Rangt hjá Ingibjörgu Sólrúnu ISG segir enga samninga í gangi
- Hagavatnssvæðið í myndum Hagavatn virkjað? Myndir.
- Þróunarlaus aðstoð Þróunaraðstoð til óþurftar
- Bláfjöllin vakna Snjórinn kemur í Bláfjöllin
- BNA Íslandi til bjargar BNA neitar að samþykkja á Balí
- Látum okkur ekki blæða út á Balí Semjum ekki af okkur á Balí- ráðstefnunni
- Annars hugar á Balí Anna og Hugi frá Íslandi á Balí
- Ánægjulegt árangursleysi á Balí Óræð niðurstaða á Balí
- Lokasetning á Balí Lofstlagsráðstefnu á Balí lokið
- Á nöglum í rokinu Naglar borga sig í roki á svelli
- Áramótabrennum frestað? Líklegt að fresta þurfi áramótabrennum
- Átök orðin að stríði Sri Lanka eftirlitssveitir burt
- Nótum þess Vatnið á Íslandi, heitt og kalt er frábært
- Hungraður heimur, óvart Framleiðsla lífefnaeldsneytis veldur hungri
- Fórnarkostnaður stjórnarinnar Þórunn umhverfisráðherra er Wildcard
- ESB viðurkennir mistök í umhverfisstefnu ESB breytir um stefnu vegna etanóls
- Grænland kólnar! Kaldur vetur á Grænlandi
- Bláfjöll: Ráðningar gleymdust! Rekstur Bláfjalla í molum
- Ófriðareftirlit og spillingarstyrkir ISG og friðareftirlit
- Bláfjöll: Nú kastar tólfunum! Ástandið í Bláfjöllum versnar
- Bláfjallaklúðrið nær hámarki 10.000 manns í Bláfjöllum en lélegt
- Líf í frostinu Líf í frostinu
- Stóriðjan kemur til bjargar Stóriðjan kemur til bjargar
- Endurnýting hvala Endurnýting hvala
- Veturinn er bestur Veturinn er bestur
- Skattlagning í nafni kvenna Skattlagning í nafni kvenna
- Þórunn á bremsunni Þórunn á bremsunni. Umhverfisráðherra heftir för
- Gorhugsun um Hinn máttuga mann Gorhugsun um Hinn máttuga mann. Lýsingar Gores
- Veitum framúrskarandi forystu Íslendingar veita framúrskarandi forystu skv. Gore
- Gore er ræðusnillingur Gore er ræðusnillingur en fer með rangan málstað
- Lögregla gegn umhverfissinnum Lögreglan í Brussel tekur á umhverfissinnum
- Dýr er hver Bitru- túristinn Dýr er hver Bitru- túristinn fyrst að hætt er við Bitruvirkjun
- Hver tekur af skarið? Hver tekur af skarið í borginni? Erfitt í flokknum
- Virkjum og eflum alla dáð Virkjum og eflum alla dáð. Bitruvirkjun ofl til bjargar
- Skjálftakort og töflur Skjálftakort og töflur v Suðurlandsskjálftans maí 2008
- Vopnum safnað Vopnum safnað. ISG og Rice ræða málin
- Frægasti Íslendingurinn níðir Ísland Frægasti Íslendingurinn níðir Ísland. Björk ófrægir landann
- Buddan talar Þórunn umhverfisráðherra semur af sér
- Hekla er flott Ferðalýsing á Heklu með myndum
- Afleitar afleiddar afleiðingar afglapa Afleiðingar aðgerða í loftslagsmálum
- 5000 kr. á mann, bara fyrir Laugaveg 4 og 6 Borgin greiddi ofurverð fyrir skúrarusl
- Vedurpár- vídeó Veðurþáttaspá vedur.is útskýrð
- Engir samningar um loftslagsmál Fylkingar G8 og G5 eiga sér misjöfn takmörk
- ISG í herráð heimsins Utanríkisráðherra vill komast í Öryggisráð SÞ
- Yfir Skeiðarárjökul Ferðalýsing frá Grænalóni yfir Skeiðarárjökul
- Hækkum orkuverð Selja orkuna dýrt og gæta skattanna
- Þróunaraðstoð á tilvistarkreppufundi Þróunaraðstoð heimsins er í krísu
- Sóunarsamvinnu að ljúka? Sóunarsamvinnu að ljúka?
- Loftslags- réttlæti strax! Loftslags- réttlæti strax!
Nýjustu athugasemdir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 19
- Sl. sólarhring: 83
- Sl. viku: 586
- Frá upphafi: 869578
Annað
- Innlit í dag: 17
- Innlit sl. viku: 489
- Gestir í dag: 15
- IP-tölur í dag: 15
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
2024
2023
2022
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
Bloggvinir
- prakkarinn
- stefanbjarnason
- hannesgi
- businessreport
- askja
- martagudjonsdottir
- agbjarn
- geiragustsson
- gustaf
- vey
- frjalshyggjufelagid
- tilveran-i-esb
- gammon
- sigsig
- omarragnarsson
- raksig
- halldorjonsson
- vinaminni
- samstada-thjodar
- draumur
- magnusjonasson
- frisk
- jonaa
- apalsson
- skodunmin
- arnim
- gullvagninn
- altice
- fannarh
- gun
- oliatlason
- bjarnihardar
- nilli
- davido
- svanurmd
- steinisv
- johanneliasson
- hagbardur
- arh
- zumann
- doggpals
- jonvalurjensson
- dofri
- katrinsnaeholm
- seinars
- kari-hardarson
- fredrik
- valli57
- tibsen
- kisabella
- tbs
- astroblog
- maeglika
- himmalingur
- skulablogg
- arnih
- ingagm
- ahi
- mullis
- krissi46
- vefritid
- gauisig
- bryndisisfold
- brandarar
- nerdumdigitalis
- svartagall
- siggith
- klarak
- jennystefania
- lax
- unnurgkr
- vilhjalmurarnason
- gattin
- kruttina
- rynir
- heidistrand
- thorhallurheimisson
- duddi9
- kristjan9
- haddi9001
- bofs
- thjodarheidur
- theodorn
- lucas
- benediktae
- iceland
- fun
- diva73
- zeriaph
- tharfagreinir
- bjarnimax
- fullvalda
- sigurjons
- sissupals
- davpal
- friggi
- ketilas08
- valdimarjohannesson
- gerdurpalma112
- andres08
- krist
- fjarki
- tik
- palmig
- rustikus
- vestskafttenor
- gummibraga
- svansson
- geirfz
- fhg
- stjornlagathing
- loftslag
- jonmagnusson
Af mbl.is
Erlent
- Fimm flugfélög sektuð fyrir óboðlega framkomu
- Útnefnir vogunarsjóðsstjóra í fjármálaráðuneytið
- Munu hefja fjöldaframleiðslu á eldflaugunum
- Tillaga Trumps um frið í Úkraínu ekki algalin
- McGregor sekur: Borgar um 36 milljónir í skaðabætur
- Trump mun ekki sæta refsingu
- Ákærður fyrir morð á 13 ára stúlku
- Svíar virða ögranir Rússa að vettugi
- Efast ekki um að Bandaríkin átti sig á skilaboðum
- 281 hjálparstarfsmaður drepinn á árinu
Athugasemdir
Ég hef nú séð þó nokkra reiðhjólamenn í umferðinni í desember. Enga hef ég séð sitja fasta og spóla í snjó, en ófáa bíla, sem og yfirgefna bíla úti í vegkanti.
Sýnir ekki frekar þessi veðrátta hvað bíladellan er vitlaus,sem stjórnmálafólk hefur troðið uppá okkur í 70 ár?
Skeggi Skaftason, 28.12.2011 kl. 12:16
Ég hjóla ef stígurinn minn er ruddur. Þú keyrir ef þinn stígur er ruddur.
Ég er á bílnum í dag af því hjólastígurinn var ekki ruddur en bílastígurinn var það. Hvað sannar það?
Kári Harðarson, 28.12.2011 kl. 12:22
Þannig er það Kári.
Helga Kristjánsdóttir, 28.12.2011 kl. 13:13
Íslendingar hafa á seinustu 100 árum breyst í óttalegar kuldaskræfur og aumingja. Þar til fyrir fyrir nokkrum árum héldu margir því fram að hér væri ómögulegt að hjóla, of kalt, of mikil rigning, of mikill snjór o.fl. o.fl. Fjölmargir reiðhjólamenn sanna að þetta á ekki við rök að styðjast.
Kári getur eflaust frætt þig Ívar um nagladekk á reiðhjól, ljósabúnað, endurskinsvesti og annan búnað sem gott er að hafa fyrir vetrarhjólreiðar.
Skeggi Skaftason, 28.12.2011 kl. 13:32
"Reiðhjólalið"?
Ertu ekki bara að meina að þig langar ekki til að hjóla? Væri ekki einfaldara og kurteisra að segja það bara?
Þú gætir ekki hæglega keyrt ef ekkert væri rutt. Sömuleiðis gengur illa að keyra í snjó á sumardekkjum. Það gildir nákvæmlega það sama um hjól og bíla í þeim efnum.
Ég hjóla allan ársins hring og hef verið að hjóla undanfarna daga. Það er ekki flóknara mál en svo að klæða sig eftir veðri og auðvitað að hafa hjólið rétt útbúið og vel viðhaldið, alveg eins og bílaeigendur gera með sín farartæki.
Óskar Guðlaugsson, 28.12.2011 kl. 18:51
Eg er sammála greinarhöfundi að það er hvorki aðstæður eða vegir fyrst og fremst fyrir hjólreðamenn- og þar fyrir utan veðurfar.
hjólin eru góð yfir sumarmánuði og fyrir þá sem eru kraftakallar og ekki með börn í farteskinu !
Mer finnst miðað við ökulag okkar íslendinga og gatnagerð ekki neitt svigrúm fyrir hjólafólk.
Erla Magna Alexandersdóttir, 28.12.2011 kl. 23:34
Þetta reddast alls saman þegar búið verður að byggja nýtt "hátæknisjúkrahús" við Hringbrautina. Eftir það eiga allir að vera á hjólum eða ferðast með strætó.
Hversu vitlausir eru stjórnmálamenn eiginlega. Svar: Óendanlega vitlausir.
Dexter Morgan, 29.12.2011 kl. 00:01
Skeggi skaptason; átt þú börn? sem þú keyrir eða hjólar með á leikskóla á hverjum morgni og þarft að vera kominn í vinnu á tilsettum tíma?
Adeline, 29.12.2011 kl. 00:57
Þeirri skoðun að við ættum að vera á reiðhólum í stað bílanna okkar er þröngvað upp á okkur öll. Fólk má ferðast um á reiðhjólum fyrir mér, eða stundað bananarækt í Hveragerði, en hvorttveggja kemur réttinum til bílaeignar ekkert við. Bíllinn er skilvirk leið til þess að koma okkur flestum á milli A,B,C & D á sem öruggastan og fljótastan hátt. Sérstök skattlagning á stærri fjórhjóladrifsbíla er árás á tilverurétt stærri fjölskyldna og stríðir gegn skynsamri hugsun um lífhsætti á jaðarbyggðum heimskautanna.
Ívar Pálsson, 29.12.2011 kl. 01:32
Ívar, þarna liggur misskilningurinn: "Hjólaliðið" vill ekki að allir séu á hjóli. Hjólaliðið veit að það eru bara ca 20-25% borgarbúa sem geta notað reiðhjól allt árið.
Minn persónulegi slagur var við þá sem sögðu: "Við skulum ekkert gera fyrir hjólafólk af því reiðhjól eru bara leikföng. Það þarf ekki að leggja stíga eða ryðja þá, fólk hættir þessu bara á haustin".
Vertu á bíl, og far í friði!
Kári Harðarson, 29.12.2011 kl. 09:37
Það mætti líka hafa í huga að gatnakerfið er einsog æðakerfi líkamans því um það streymir ekki bara fólk á leið frá A til B í einkabílum heldur líka vörur frá birgjum/framleiðendum til neytenda og nauðsynleg bráðaþjónusta svo sem sjúkra- og slökkviliðsbílar, almenningsfarartæki, gangandi og hjólandi fólk osfrv.
Fyrir allt þetta er greitt af einkabílnum með ofurtollum, aðflutningsgjöldum og virðisaukaskatti bæði af farartækjunum og eldsneytinu...
Nú þegar ætlunin er að skattleggja alla útúr bílunum sínum og uppí strætó, á reiðhjólið eða 2 jafnfljóta...hver á þá að greiða fyrir æðakerfið ?...við þurfum nefnilega eftir sem áður á því að halda !!!
Magnús Birgisson, 29.12.2011 kl. 12:48
Hér fyrir nokkrum árum var í alvöru talað um að leggja þriggja hæða slaufu á gatnamótum Miklubrautar og Kringumýrarbrautar, til að greiða fyrir aukinni bílaumferð. Til allrar hamingju hefur það ekki orðið að veruleika.
Vonandi fjölgar þeim sem leggja bílum, eða láta nægja einn bíl á heimili í stað tveggja eða þriggja, því þannig drögum við úr sífelldri þörf á MEIRI og MEIRI útþenslu gatnakerfisins, með breiðari götum, fleiri slaufum, fleiri bílastæðum o.s.fr. Samt virðast göturnar aldrei vera nógu greiðar, og fólk kvartar undan biðröðum og flöskuhálsum á annatímum.
Man ekki töluna en minnir að malbikaðar götur taki upp einhverja tugi prósenta að ÖLLU landrými á höfuðborgarsvæðinu.
Hjólafólkið er guðs blessun fyrir bílafólkið, því það losar um pláss á götunum.
Skeggi Skaftason, 29.12.2011 kl. 13:52
Það er ekkert mál að nota reiðhjól á Íslandi á meðan stígar eru ruddir til jafns og götur. Það eru ekki nema nokkrir dagar kannski á ári sem erfitt er að nota hjólið vegna of mikils snjós. Veður á ekki að skipta máli ef þú bara klæðir þig rétt og passar upp á að öryggistæki á hjólinu sé í lagi. Auðvitað fjölgar reiðhjólaslysum eftir því sem fleiri nota hjól, með sömu rökum mætti fækka bílslysum með því að hætta að noa bíla.
Kristján Bjarni Guðmundsson, 29.12.2011 kl. 14:09
Það gildir það sama fyrir bíla, hjól og gangandi. Ef það snjóar þarf að ryðja til að leiðir verði færar.
Einum færri á bíl þýðir einum færra sem þarf að hjálp á illa búnum bíl útúr skafli og einum færri í umferðarteppunni. Aðstæður fólks eru mismunandi. Sumum hentar stundum að fara gangandi, hjólandi eða í strætó og óskiljanlegt hversvegna fáeinir af þeim sem nota bíla líta það hornauga. Það er ekki verið að banna neinum að keyra.
Varðandi gatnakerfið og bílastæðin sem þekja yfir 50% af flatarmáli höfuðborgarsvæðisins má benda á að það eru einungis stofnbrautir Vegagerðarinnar sem eru greiddar af ríkinu og þar með af sköttum á bíla og eldsneyti. Allar aðrar götur og bílastæði eru greidd af sveitarfélögunum. Í upphafi í gegnum gatnagerðargjöld af nýjum fasteignumog síðan af útsvari.
Árni Davíðsson, 29.12.2011 kl. 15:44
@Ívar : Geturðu frætt okkur um hvaða skattar þú hefur í huga og hversu mikið þau munu auka rekstrarútgjöldum tengd "venjulegri" jeppa ?
Skattahækkanir á bílum koma að öllu jöfnu til vegna þess að vitund yfirvalda um kostnaði sé að aukast. Það fylgir notkun bíla ansi mikið að "földum" kostnaði fyrir samfélaginu í heild. Dæmi : útgjöld sveitarfélaga sem Árni nefnir, útgjöld vegna heilsubrests / lýðheilsu (árekstrar, keyrt útaf, keyrt á gangandi og hjólandi, hreyfingarleysi vegna þess að bílaumferðin gerir aðrar samgöngur torveldara, mengun ), gjaldfelling á fasteignum, land of ódýru verði "selt" undir samgöngumannvirki. Enn mætti halda áfram.
Morten Lange, 29.12.2011 kl. 17:59
Það er ekkert mál að nota reiðhjól hér allan ársins hring og það meira að segja þó menn séu með börn á leiksóla og í grunnskóla. Ég fer með tveggja ára barn á leiksóla og geri það einfaldlega þannig að ég set það á böglaberann á hjólinu og teymi síðan hjólið út í leiskólann. Þegar ég er búinn að fara með barnið inn á leikskólan hjóla ég í vinnuna.
Ég er einnig með tvö börn í grunnskóla í öðrum og þriðja bekk og þau koma sér einfaldlega þangað sjálf enda ekki nema 850 metrar. Það er vel innan göngufæris fyrir börn sem náð hafa sex ára aldri. Hvað öryggi varðar þá er fátt sem ógnar öryggi barna í grunnskólum meira en einmitt sú aukna umferð í kringum skólana sem skapast af því hversu mikið það hefur aukist að börn séu keyrð í skólann.
Hvað ruðning stíga varðar þá læt ég ekki bjóða mér nema að takmörkuðu leyti göngustíga sem eru verr ruddir en göturnar í kring. Ég fer þá einfaldlega út á göturnar og hjóla eftir þeim í og úr vinnu. Það er reyndar þannig að sumir ökumenn halda að þeir eigi eitthvað meiri rétt á götunum en ég og eru að flauta á mig eða öskra á mig að fara upp á gangstétt. Þeir geta bara átt sig og lesið umferðareglurnar betur.
Ég er reyndar ekki í bænum í dag helfur í fríi úti á landi og hjólaði því ekki í og úr vinnu á höfuðborgarsvæðinu í dag. Ég hef hins vegar oft farið í vinnuna á reiðhjóli í veðri og færð eins og er í dag og það hefur tekið mig skemmri tíma en það hefur tekið nágranna mína að moka bílana sína út af bílaplaninu en þá eiga þeir eftir að koma sér í vinnuna og jafnvel eftir að moka sig út á stofnbraut. Ég heldi hins vegare einfaldlega á hjólinu mínu út á næstu stofnbraut og hjóla síðan eftir þeim stofnbrautum sem búið er að ryðja í vinnuna. Ekkert mál.
Sigurður M Grétarsson, 29.12.2011 kl. 18:26
Mig langar að benda á að það er rangt að alvarlegum hjólaslysym hafi fjölgað. Hið rétta er að smáslysum hefur fjölgað verulega. Einnig er það rangt að jeppar auki umferðaröryggi, þeir eru venjulega annar aðilinn í verstu dauðaslysunum, þó oftast drepist fleiri í smábílunum. Ennfremur verður ekkiannað séð en að ein helsta ástæða fyrir slíkri fárfestingu sé hve auðvelt er að leggja jeppum á gangstéttum. Einn stærsti útgjaldaliður heilbrigðiskerfisins er afleiðing bílismans. Hefur einhver heyrt hjólreiðafólk kvarta sérstaklega yfir því? Heilsutjónið af völdum naglanna, Hver kvartar? Einkabílisminn er bæði dýr og heimskulegur.
Var einhver að tala um börn og leikskóla? Dóttir mín á þrítugsaldri var spurð hvort hún væri alin upp í Danmörku fyrst ég hjólaði með hana á leikskólann uppúr 1990. Þegar snjóaði tókum við strætó. Íslendingar eru núna með feitasta fólki á Jörðinni, sumir keyrandi um á Havaískirtum á blússheitum jeppum og að rifna úr hneikslun á fólki sem nennir að hreyfa sig.
Flosi Guðmundsson, 29.12.2011 kl. 21:51
Það er lítið mál að hjóla og ganga ef stígar til þess eru í lagi en það er náttúrlega eins og alltaf aukaverkefni. Fyrst þarf að moka snjónum af götunum upp á gangstéttirnar. Það er ekkert nýtt en hefur heldur versnað eftir því sem fleiri hálfvitar hafa gleypt við þessum frægu hnatthlýnunarævintýrum og raðað sér á skattgreiðendur í því skyni. Það þarf alvarlega að hreinsa út úr þeim atvinnuleysisgeymslum sem skila bara meiri kostnaði og lélegri þjónustu.
Baldur Fjölnisson, 30.12.2011 kl. 02:36
Hér við Barðavoginn er reiðhjólastígur sem var ruddur sraks í gærmorgun. Snjónum var rutt inná einbreiða götuna sem ekki var rudd. Var úti mestan part morguns við að moka og hjálpa fólki að komast leiðar sinnar á of litlum bílum.
Enginn hjólreiðamaður notaði stíginn allan þann tíma sem ég var úti en þrír hundaeigendur fóru hann á sex jafnfljótum.
K.H.S., 30.12.2011 kl. 09:30
Sæll Kári.
Það virðist nokkuð almennur misskilningur hvað eru hjólastígar og hvað ekki. Einu raunverulegu hjólastígarnir á landinu er: 1) Hjólastígur sem liggur á köflum frá Ægisíðu inn eftir Fossvoginum og Fossvogsdalnum. Hann er enn sem komið er í bútum og sameinast göngustígnum þar á milli. Hann hefur verið ruddur í vetur. 2) Um 100 m stubbur á Laugaveginum sem er í einstefnu með umferðinni í vesturátt frá Snorrabraut að Baronstíg. 3) Einstefnu bútur á Suðurgötu við Hólavallakirkjugarð í norðurátt að Kirkjugarðsstíg. Oftast eða alltaf óruddur. 4) Hjólastígur eða hjólarein sitthvorum megin götunnar í Lönguhlíð frá Miklubraut að Hamrahlíð. Hann er alltaf óruddur, sennilega útilokar hönnun stígsins þar snjóruðning.
Þetta er allt og sumt. Aðrir stígar eru göngustígar sem hjóla má á lögum samkvæmt. Stígurinn meðfram Barðavogi er því í raun göngustígur.
Árni Davíðsson, 30.12.2011 kl. 10:15
Ég held að ég sé ein besta sönnun þess að það er vel hægt að hjóla hérlendis allt árið um kring og að sem flestir geti hjólað.
Ég byrjaði að hjóla að staðaldri fyrir 3ur árum, miðalda, gigtveik, allt of þung kelling. Ég hjóla flesta daga ársins og býst fastlega við að ég hjóli meira í km talið en ég keyri. Ég á líka bíl. Hann er fastur í skafli á bílastæðinu um þessar mundir.
Heilsan er mun betri í dag, þó að ég þurfi enn að létta mig aðeins meira til að geta talist við mína bestu heilsu miðað við aldur. Það stefni ég á að gera á árinu 2012.
Þig Ívar, hvet ég til að taka á móti ört fjölgandi hjólreiðafólki með opnum huga. Þó að þú viljir ekki nýta þér þennan lang hagkvæmasta samgöngumáta sem til er, þá græðir þú á að aðrir hjóli. Minni mengun fyrir þig og þína, fleiri bílastæði, færri ökutæki í umferðinni og þess vegna minni biðraðir á þinni leið.
Hjóla-Hrönn, 30.12.2011 kl. 16:05
Samkvæmt mörgum hér að ofan er ég allt í einu orðinn einhver andstæðingur hjólreiðafólks. Öðru nær. Þótt ég hlaupi um 1000 km á ári og vilji stígana rudda eins og hjólreiðamenn vilja, þá skil ég forgangsröðina þegar rutt er, fyrst aðalgötur (og þar með allt upp á gagnstétt þegar snjódýpt er 33cm) og síðan hliðargötur. Það sem ég reyndi að leggja áherslu á er að þótt maður aðhyllist ákveðinn lífsstíl (ss. hjólreiðar), þá þarf maður ekki að reyna að takmarka löngun annarra til alvöru samgangna með því að ýta undir ótæpilega skattlagningu ríkisins á þeim samgöngumáta.
En vilji fólk síðan djúpsálgreina mann út af einfaldri bloggfærslu, þá það. Ekki er heildsölum í Garðabæ leiðum að líkjast.
Ívar Pálsson, 30.12.2011 kl. 17:36
Hvað varðar skattlagningu á notkun bíla sem brenna jarðefnaeldsneyti þá er það einföld staðreynd að andrúmsloft jarðar er sameiginleg auðlind allra jarðarbúa og því hafa menn ekki ótakmarkaðan rétt til að menga andrúmsloftið. Nú þegar sú staða er uppi að mengun andrúmsloftsins er orðin meiri en hægt er að búa við með tilliti til sjálbærrar þróunar þá þarf að takmark mengun þess með einhverjum hætti. Besta leiðin til þess er að skattleggja slíka mengun. Í því ljósi þarf að skoða skattlagningu á bíla sem menga mikið.
Hvað varðar forgangsröðunina í snjómokstri þá þarf hún að vera í samræmi við áherslur í samgöngumálum. Þungur bíll sem brennir jarðefnaeldsneyti skapar hávaða og mengun bæði það sem kemur út úr pústurröri hans og einnig svifryksmengun. Þetta skapar vandamál í þéttbýli. Einnig skapar bíll slysahættu í þéttbýli langt umfram aðra samgöngumáta. Það er því síður en svo að það geti talist sjálfsagður réttur manna að nota slíka bíla ótakmarkað í þéttbýli. Það er því ekkert við það að athuga að yfirvöld reyni að takmarka slíkan akstur í þéttbýli og leggi áhersur á aðra samgöngumáta með heildarhagsmuni allra íbúa að leiðarljósi.
Með þetta í huga hafa sveitafélög á höfuðborgarsvæðinu lagt áherslu á að auka hlut almenningssamgangna og hjólreiða í samgöngum á sínu svæði. Þetta hafa þau gert í orði en því miður ekki eins á borði. Forgangsröðunin í snjómokstri ber þess merki.
Vilji menn auka hlut hjólreiða í samgöngum þá gerist það ekki með því að láta samgönguleiðir hjólreiðamanna vera hornrekur í snjómokstri. Því þurfa samgöngumannvirki fyrir hjólreiðamenn að vera með að minnsta kosti sama forgang og götur og helst þurfa þær að vara framar í forgangsröðuninni. Í Óðinsvéum í Danmörku tókst borgaryfirvöldum á skömmum tíma að auka hlut hjólreiða úr 20% í 30% af heildarumferðinni. Vissulega gerðist það að stórum hluta vegna byggingar nýrra mannvirkja fyrir hjólreiðamenn en í því efni hafði það líka talsverð áhrif að halda hjólreiðum sem heilsárssamgöngumáta hjá sem flestum að hjólatígarinr eru fyrstir í forgangsröðinni varðandi snjómokstur. Þeir eru það breiðir að það er hægt að nota sömu tæki og notuð eru til að ryðja vegina og eru þau einfaldlega send fyrst í að ryðja hjólastígana og síðan eru vegirnir ruddur þegar hjólastígarnir eru búnir
Því er það svo að ef sveitastjórnir á höfuðborgarsvæðinu vilja auka hlut hjólreiða í umferðinni þá þurfa þau að taka á sér tak varðandi snjóruðning á þeim samgöngumannvirkjum sem hjólreiðamenn nota og hafa forgangin á þeim í það minnsta jafnan og á þeim samgöngumannvirkjum sem ökumenn bíla nota. Og að sjálfsögðu á aldrei að ryðja snjó af götum upp á gangstéttir eða hjólastíga.
Sigurður M Grétarsson, 31.12.2011 kl. 08:44
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.