Að horfa á pakkann

PakkinnUndarlegt er það, að „Kíkja- í- pakkann“ fólkið skuli láta sér nægja að horfa á pakkann þar sem Dagur B. Eggertsson er. Stefnumálin sem hann stendur fyrir og staðreyndirnar um stjórnarferil hans (með Jón Gnarr sem brúðu) gætu varla stutt þetta mikla fylgi ef grannt yrði skoðað. Öllu er nú snúið á haus hjá mjúkmæltum frambjóðandanum: óstjórn og bruðl heitir nú festa og stöðugleiki. Jú, stöðugt er tapið.

Innihaldið? 

Ídealisminn um samgöngur á reiðhjólum í stað bifreiða er annað sem hljómar vel hjá Degi en er afleitt í raun og lýsir vel þeirri staðreynd að 90% fimm efstu sæta meirihlutaflokkanna í borginni býr í 101 Reykjavík. Konurnar í öllum hinum hverfum borgarinnar hafa varla verið spurðar á leið sinni í vinnuna í stíflaða umferðarflæðinu þegar þær voru spurðar um vænlegasta borgarstjóraefnið. 

Raun 

Við skulum vona það að fólk kynni sér almennilega hvernig borginni hafi verið stýrt fyrir næstu kosningar og sú framtíðarsýn er sem flokkur Dags boðar, t.d. með öllu sínu flugvallarleysi, skuldaaukningunum, skipulagsslysum og umferðartöfum. Þá er kannski loksins kíkt í pakkann.


mbl.is Mestur stuðningur við Dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Þórhallsson

http://thjodarskutan.blog.is/blog/thjodarskutan/entry/1315058/

Ég styð ekki stjórnmálaöfl sem styðja/lúta islam/Muhammeð.

Er samfylkingin að stuðla að útbreiðslu hryðjuverkasamtaka?

http://www.mbl.is/frettir/innlent/2013/09/19/bygging_mosku_samthykkt/

Jón Þórhallsson, 27.3.2014 kl. 10:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ívar Pálsson
Ívar Pálsson

Viðskiptafræðingur með útflutningsfyrirtæki, en grúskar í flestu.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband