Göturnar leiða til bílastæða

Rafmagnsbilar i hledsluÉg fæ ekki skilið hvernig Hildur Björnsdóttir, frambjóðandi í oddvitasæti Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórnar- kosningunum framundan, fékk sig til þess að styðja tillögu meirihlutans í borginni nýverið um 3000 bílastæða fækkun í miðborginni. Þetta gerðist í blóra við vilja flokksins og er skýr stuðningur við óheillastefnuna við lýði í borginni, að úthýsa bílum, sama þótt þeir séu rafmagnsbílar eður ei. Sú gerð er raunar plássfrekari en aðrir, þannig að auka ætti við pláss undir bílastæði ef eitthvað er, ekki að taka þau burt.

Gegn skipulagi Dags

En hver er sinnar gæfu smiður. Það og fagurlega orðaður stuðningur við Borgarlínu og 15 mínútna bílastæðalaus hverfi er klárlega ekki sú stefna sem oddviti Sjálfstæðisflokksins þarf að fylgja til þess að við eigum möguleika að brjóta áralanga villistefnu Dags & Co. í skipulagsmálum á bak aftur. Ég gleðst yfir því að mótframbjóðandinn um oddvitasætið, Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir er með þetta á hreinu í Viðskiptablaðinu: 

"Það þarf að nálgast samgöngumálin kreddulaust og innleiða snjöll umferðaljós sem munu bæta umferðarflæði allra óháð samgöngumáta og láta af fækkun bílastæða."

Það vill nefnilega svo til að göturnar leiða að bílastæðum, sem verða að vera fyrir hendi svo að umferðin stíflist ekki. Núverandi meirihluti vill ekki að umferðin sé til, en tími er til kominn að 80% ferðalanganna láti í sér heyra. Tækifærið er núna.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Innan Sjálfstæðisflokksins hefur verið virk andstaða við stefnu flokksins allt kjørtimabilid. Þar hefur Hildur Bjørnsdóttir farið fremst. Væri fróðlegt að vita hverjir komu henni á lista Eyþórs. 

Ragnhildur Kolka, 13.3.2022 kl. 11:42

2 Smámynd: Þorsteinn Briem

Mikið rýkur nú moldin í logninu hefði hún amma mín á Baldursgötunni sagt. cool

Þar sem nú er Hafnartorg var bílastæði og heljarinnar rampur úr timbri, þannig að hægt var að aka upp á Tollhúsið.

En nú er bílakjallari fyrir um eitt þúsund og tvöhundruð bifreiðar undir Hafnartorgi og neðanjarðar við tónlistar- og ráðstefnuhúsið Hörpu.

Og þar sem nú er íbúðarhúsnæði, hótel og nýtt húsnæði fyrir Landsbankann og fleira var stór vöruskemma og geymslusvæði sem Hafskip hafði til umráða fyrir margt löngu. cool

Þorsteinn Briem, 13.3.2022 kl. 11:54

3 Smámynd: Þorsteinn Briem

29.6.2015:

"Lengsta mögulega vegalengd sem fólk þarf að ganga frá bíl sínum til að komast í alla verslun og þjónustu á Laugaveginum í miðbæ Reykjavíkur er 350 metrar þegar lagt er í bílastæðahúsi, sem jafngildir um þriggja mínútna gangi miðað við meðalgönguhraða. cool

Þetta kemur fram í úttekt sem Andri Gunnar Lyngberg arkitekt hjá Trípólí arkitektum og Björn Teitsson upplýsingafulltrúi unnu."

Þorsteinn Briem, 13.3.2022 kl. 12:04

4 Smámynd: Gunnar Heiðarsson

Sjálfstæðisflokkur ætlar að tryggja Degi áframhaldandi völd. Og nú er formaður Framsóknar farinn að mæta á kosningafundi Dags.

Í hvaða veröld erum við landsmenn?

Gunnar Heiðarsson, 14.3.2022 kl. 08:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ívar Pálsson
Ívar Pálsson

Viðskiptafræðingur með útflutningsfyrirtæki, en grúskar í flestu.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband