17.7.2009 | 15:55
Ykkur tókst þetta, ESB- konunum!
Niðurstöður ESB- aðildarkosninganna láta sjálfstæðisfólk horfast í augu við þá staðreynd að 70-80% þeirra er á móti drottnandi skrifræðishætti ESB og vill ekki afsala sjálfstæði Íslands til ESB. Landsfundurinn sýndi þetta. Stóru mistökin þar voru að reyna að friðþægja ESB sinna í stað þess að hvetja þau til þess að kjósa ESB- flokkinn, Samfylkinguna og láta fundi sjálfstæðisfólks í friði.
Kosnar til þess að framfylgja stefnu flokksins
Maður er annað hvort með eða á móti ESB- aðild. Það er flestum vel kunnugt hvernig það batterí starfar og virkar (ekki). Þorgerður Katrín og Ragnheiður Ríkharðsdóttir opinbera sig loks almennilega sem ESB sinna, en Þorgerður Katrín getur þó aldrei stigið alveg í ESB fótinn af ótta við reiði fjöldans í Sjálfstæðisflokknum. Altént er það ljóst að hefði hún þorað því í formannskjörinu eða í kosningunum, þá hefði henni verið hafnað. Nú segir hún að skoðun sín hafi alltaf legið fyrir. Það er ekki rétt, hún var eins og véfréttin í Delfí á þessum örlagatímum og toppaði tvískinnunginn alveg núna í ESB kosningunni, að sitja hjá! Hver kýs þingmann eða varaformann til þess að hún sitji hjá við atkvæðagreiðslur og láti hina ráða, af því að hún á svo marga vini á báðum stöðum? En nú er það orðið of seint, af því að þær Evrópuástar- systur fóru með veggjum og töluðu í tvær áttir allt fram að ESB- kosningu.
Hver er sannfæringin?
Nú gætu Kvislingarnir sagt að þessi undanskot frá and- ESB stefnunni hafi ekki skipt máli vegna þess að enn vantaði eitt eða tvö atkvæði, en það væri heldur ekki rétt, því að þeirra vægi í ESB- þreifingunum hafði óneitanlega áhrif á önnur vafaatkvæði. Nú skýlir sér hver sem betur getur á bak við sannfæringu sína, en hvar var sú sannfæring í síðustu kosningum þegar frambjóðendur gátu átt von á útstrikunum sem endurspegluðu vægi kjósenda hvers flokks? Þær sáu réttilega að skýrt já við ESB hefði strikað þær út, enda er skýr fylgni við ESB aðeins hjá um 20% kjósenda flokksins.
Að svo komnu máli fer því best á því að hver mæti örlögum sínum í takt við skoðanir hans eða hennar. Pétur Blöndal alþingismaður benti Ragnheiði Ríkharðsdóttur kollega hans á rökréttustu leiðina fyrir hana (og þá líkast til varaformanninn?) að stofna eigin flokk utan um þessar sér- skoðanir, sem dagar síðan uppi. Fjöldinn í Sjálfstæðisflokknum tæki því fagnandi að fá skýrar línur dregnar í komandi bardaga, svo að vitað sé við hvern er barist, ESB- kerfissinnana í Samfylkingunni í stað nöðru við brjóst sér.
Myndband af landsfundi Sjálfstæðisflokksins:
http://wms0a.straumar.is/xd/ThorgerdurKatrinvaraform.wmv
![]() |
Búið að sækja um ESB-aðild |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt 24.7.2009 kl. 09:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
14.7.2009 | 15:41
Slepptu biti þínu, Steingrímur J. !
Steingrímur J. vill að við berjumst við að borga, þegar erlendar skuldir Íslendinga eru 13- 15.000 milljarðar króna! Hann lét skrifa upp á erlendan Icesave- samning án þess að lögfræðingar Seðlabankans kæmu nálægt honum, eins og það kæmi þeim ekkert við! Ekki var farið fram á álit þeirra. Núna þegar þeir munu birta álit sitt, þá telur formaður utanríkismálanefndar að þetta sé pólitík og að þeir vinni bara fyrir Davíð.
Þessu sjónarspili þarf að ljúka sem fyrst og alls ekki með samningi um Icesave, sem er einungis birtingarmynd hluta bankagjaldþrotanna og afskiptum ríkisins af eignum þrotabúa þeirra. Það er nokkuð ljóst að allar eignir þrotabúanna og 11 þúsund milljarða króna skuldir bankanna og tengdra fyrirtækja verða að sameinast og verða gerðar upp saman, þar sem kröfuhafar sameinast um uppgjörin.
En til þess að það gerist verður ríkið að hætta kennitöluflakki sínu, leggja árar í bát og viðurkenna að neyðarlögin voru mistök. Á móti þyrftu kröfuhafar að lofa að fara ekki í mál, sem myndu taka næstu 5-10 ár ella og draga úr okkur allar tennur, enda er réttur alvöru veðkröfuhafa líkast til þeirra megin, ólíkt Icesave málinu.
Þyngsta þrautin verður að fá vinstri stjórn til þess að hætta ríkisafskiptum sínum af hverri athöfn mannsins. Ríkisstjórnin vill svo gjarnan eiga við eignir bankanna og ráða örlögum fyrirtækjanna að þetta verður erfiðasta verkefnið, að fá steinbítinn til þess að sleppa biti sínu, sem hann gerir aldrei. Því verður að skera hann lausan.
![]() |
Stefna í að vera yfir 200% |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
13.7.2009 | 10:08
Skræfurnar sitja hjá
Skræfurnar munu eflaust sitja hjá við atkvæðagreiðslur um þjóðaratkvæði vegna aðildarviðræðna við ESB. Þær geta aldrei stigið almennilega í annan fótinn og fara því hvergi. Loksins þegar þær koma út úr ESB- skápnum, þá er það orðið of seint, samningaviðræður án almennilegs umboðs hafnar við ESB sem skila engu.
Skræfur þessar tefja almennilegt flokksstarf hjá Sjálfstæðisflokki og Vinstri Grænum, þar sem 80% hrein andstaða er við ESB- aðild í báðum flokkum. Framsókn þarf líka að eiga við þetta, en þar er líklega ESB prósentan hærri.
Heimtið að þingmenn ykkar taki afstöðu, hver fyrir sig, með eða á móti. Skræfurnar sitja hjá og láta aðra um að standa í eldlínunni.
![]() |
Vonast til að ESB-mál verði leitt til lykta á Alþingi í vikunni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
10.7.2009 | 15:28
Ágæti Vinstri- græn kjósandi!
Kaust þú ESB í vor? Kaust þú Icesave ofurskuldbindingu kynslóðanna? Kaust þú að verða að gera þetta og hitt ógeðfellt vegna pólitískra hrossakaupa? Kaust þú bara Steingrím J. en ekki Guðfríði Lilju, Atla, Ögmund frænda minn og öll hin?
Ég spyr af því að ég hlýt að hafa misskilið eitthvað herfilega, þar sem ég hef fylgst mjög vel með fréttum og bloggum sl. tvö og hálft ár.
![]() |
Enginn barinn til ásta á ESB |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
10.7.2009 | 10:41
Lýðræði í stað sendinefndar með opið tékkahefti
Við höfum nú öll fengið að sjá hvernig fulltrúar þjóðarinnar hafa farið með samningsmarkmiðin í Icesave. Ef þeir fá álíka opið samningsumboð til ESB- samningsumleitana án þess að þjóðin fái að segja álit sitt á því, þá er sami gapuxahátturinn endurtekinn, samningsdrög dregin upp sem eru langt frá vilja fólksins og okkur síðan sagt að niðurstaðan sé eina lausnin, búið að mála okkur gersamlega út í horn.
Margumrætt álit ESB þjóða á Íslandi fer síðan veg allrar veraldar þegar þjóðaratkvæðagreiðslan eðlilega kolfellir samkomulag sendinefndarinnar. Í stað þessara forkastanlegu vinnubragða er eðlilegt að við segjum álit okkar á þessu máli beint í þjóðaratkvæðagreiðslu, ekki háð öllum öðrum málum sem tengjast mismikið flokkapólitík í hverjum stjórnmálaflokki, enda ekki eining innan neins þeirra um ESB- málin nema innan Samfylkingar. Sjálfsagt er andstaðan við lýðræðislegan framgang þessara ESB- mála þessvegna mest hjá þeim flokki, en þjóðin öll á ekki að þurfa að líða fyrir það frekar en síðasta ævintýri utanríkisráðherra þeirra, kosningaslaginn um sæti í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna.
Þjóðaratkvæðagreiðsla um aðildarviðræður að ESB er eina raunhæfa lausnin á því hvort rétt sé að halda í þá ögurátt eða að halda sig heima og leysa sín mál í ró og spekt. Ekkert okkar vill sjá Icesave2 í öðru veldi gegn ESB. Tími hinna opnu tékkahefta ríkisins á að vera liðinn.
![]() |
Rætt um ESB á Alþingi í dag |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
5.7.2009 | 15:43
Davíð um ESB- Svía
Davíð Oddsson mælir manna heilastur í merku viðtali Agnesar Bragadóttur blaðakonu við hann sem birtist í Mbl. á bls. 12-14 í dag. Meðal margra gullkorna er þetta um Svía vegna Icesave og ESB:
Svíar hafa gengið fram í þessum málum með algjörlega forkastanlegum hætti. Þeir hafa algjörlega tekið afstöðu með Evrópusambandsþjóðunum, Bretum, Hollendingum og Þjóðverjum, gegn Íslendingum og hagsmunum þeirra. Norðmenn og Danir hafa óviljugir gengið með. Ef almenningur í Noregi og Danmörku vissi að það er verið að misnota svokallaða vináttu okkar með þeim hætti að skuldbinda okkur til þess að taka á okkur skuldabyrðar sem við getum alls ekki risið undir, gegn því að fá lán frá þessum löndum, þá yrði mjög mikil reiði almennings í þessum löndum í garð eigin stjórnvalda og að sama skapi samúð með okkur. Nú er reyndar komið fram í fréttum, að Norðmenn segja að þeir sem haldi því fram að lánveitingar Norðmanna til Íslendinga séu tengdar lausn á Icesave-deilunni, fari með ósannindi. Svo eru einhverjir kjánar hér að segja að við eigum endilega að reyna að komast inn í Evrópusambandið á meðan Svíar eru þar í forsvari. Svíar hafa reynst okkur fjandsamlegastir af öllum í þessu Icesave-máli, þannig að með miklum ólíkindum er og ég held að við ættum að sækja sem minnst til þeirra.
Eftir Icesave- þvingun vinstri stjórnarinnar næstu daga kemur síðan næsta þvingunarbylgja á þingi, umræður um ESB- viðræður. Eltingarleikurinn við Svía er hlálegur, sbr. að ofan, en einnig af því að klíkukerfi ESB opinberast þar. Hverju máli á að skipta hvort Suður- Evrópsk þjóð er í forsvari eða norræn? Gætir ekki þessa sama fræga jafnræðis alltaf hjá ESB? Allir eiga vera svo óskaplega jafnir, en þegar norrænir bandamenn okkar eru í forsvari, þá á Íslandi að ganga betur. Gengur okkur þá ekki verr eftir þann stutta tíma?
![]() |
Ekki setja þjóðina á hausinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
4.7.2009 | 00:31
Allt sem þú þarft að lesa er komið fram
Afsal réttar Íslands í Icesave er nægt lestrarefni fyrir flesta. En þessar tvær greinar hér vekja mann enn frekar til umhugsunar. Önnur er um það hvernig Bretar geta takmarkalaust nýtt sér ýmiss úrræði að eigin geðþótta og án þess að gefa upp ástæðu (feitletranir ÍP):
15.2 Úrræði
Hver þau réttindi eða heimild, sem lánveitanda er heimilt að nýta sér samkvæmt samningi þessum eða ákvörðun sem lánveitanda er heimilt að taka (þ.m.t., án takmarkana, aðgerð, málefni eða atriði sem lánveitandi samþykkir, tilgreinir, ákvarðar, ákveður eða tilkynnir Tryggingarsjóði innstæðueigenda og/eða íslenska ríkinu), má lánveitandi nýta sér eða grípa til, algjörlega og án nokkurra takmarkana, að eigin geðþótta á hverjum tíma og er ekki skuldbundinn til að gefa ástæður fyrir því.
Hin er þessi fræga endurskoðunar klausa sem á að koma okkur svo vel ef IMF líst ekki á skuldaþol okkar miðað við nóv. 2008, en IMF hefur einmitt sagt núna að aðstæður séu mun verri en þeir höfðu upplýsingar um á þeim tíma:
16. BREYTTAR AÐSTÆÐUR
16.1 Þegar breytingar verða á aðstæðum
Þessi grein (16. gr.) á við sýni nýjasta IV. greinar úttekt Alþjóðagjaldeyrissjóðsins á stöðu Íslands að skuldaþoli þess hafi hrakað til muna miðað við slíkt mat Alþjóðagjaldeyrissjóðsins frá 19. nóvember 2008.
16.2 Fundur til að fjalla um breyttar aðstæður
Lánveitandi fellst á að, ef aðstæður samkvæmt þessari grein (16. gr.) koma upp og íslenska ríkið óskar eftir því, verði efnt til fundar og staðan rædd og íhugað hvort, og þá hvernig, breyta skuli samningi þessum til að hann endurspegli þá breytingu.
Hvílíkur munur að hafa þessa grein inni! Steingrímur J. og Jóhanna hafa margítrekað mikilvægi þessarar einstöku greinar, sem enginn hefur fengið nema Ísland. Enda dytti engum öðrum í hug að setja svona tilgangslausa grein inn, án allrar skuldbindingar lánveitanda, nema til þess að nota til fegrunar í pólítískum tilgangi hvors aðila fyrir sig.
Á sjötta bankadegi eftir greiðslufall Íslands í samningnum, þá mega Bretar gjaldfella alla skuldina með vöxtum, amk. 700 milljarða króna. Hvernig samningsaðstöðu heldur fólk þá að Ísland sé komið í á þeim tíma? Alls enga, einungis þá að benda á eignir.
Nauðungarkostur skv. Íslenskri orðabók er:Harður kostur sem einhverjum er þröngvað til að sæta. Steingrímur J. hefur nú staðfest (ólíkt fyrri yfirlýsingum) að ESB, Skandinavía og IMF hafi myndað blokk og þröngvað Íslenskum ráðamönnum til þess að samþykkja það sem í þessu plaggi felst. Það er ekki samningur, heldur kúgun. Af hverju ætti Alþingiað staðfesta yfirlýstan kúgunar- samning? Samningur er: samkomulag, sátt, sáttmáli. Icesave- plaggið sem liggur fyrir Alþingi er ekkert slíkt.
Hver sá þingmaður sem situr hjá (lesist: samþykkir) eða staðfestir Icesave- samkomulagið gerir það þvert gegn vilja þjóðarinnar, þar sem 60-70% andstaða er við þá staðfestingu í Gallup- könnun. En þingmaðurinn telur sig kannski vita betur en þjóðin eins og Ingibjörg Sólrún (úps., ég nefndi bannorðið) af því að hann hefur lesið yfir meira af leyniskjölum í sérherbergi. En hann ætti frekar að lesa skýru greinarnar sem þegar hafa komið fram um afsal réttar okkar og það hvernig tekið verður á óumflýjanlegu greiðslufalli íslenska ríkisins.
Samt mun hann staðfesta samninginn, enda skipta óþægilegar staðreyndir engu máli lengur.
![]() |
Ekki öll gögn komin fram |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (24)
29.6.2009 | 12:31
Frumvarp um Weimar- Ísland
Nú verður frumvarp um stærstu skuldbindingu Íslandssögunnar lagt fram á Alþingi, án þess að aukinn meirihlutastuðningur sé fyrir því á þingi, jafnvel ekki einfaldur meirihluti sem styður það. Bráðaþörf er á því að breyta lögum landsins um meðferð slíkra mála þannig að það sé til samræmis við mikilvægi eða skuldbindingu, sbr. lög um hlutafélög, þar sem krafist er amk. 2/3 hluta atkvæða til slíkra ákvarðana, sem hafa afgerandi áhrif á starfsemina um ókomna tíð.
Raunar ætti að krefjast þjóðaratkvæðagreiðslu um Icesave samninginn, enda eiga þeir fulltrúar sem sum okkar kusu á þing ekki að geta fengið til umráða undirritaðan óútfylltan tékka, stílaðan á þrældóm okkar langt fram í tímann vegna ævintýra gjaldþrota einkafyrirtækja. Þetta finnst flestum gefa auga leið, en lúðraþytur fylkinganna bylur svo í eyrum, að almenningur játar sig sigraðan og segir við alþingismennina: skrifið undir, allt fyrir friðinn, kannski verða þjóðirnar mildari við okkur fyrir vikið.
Hvar í stjórnmálaflokki sem þú stendur, ekki gefast svona upp! Við hin þörfnumst þín í kjörkuðum hópi einstaklinga sem kallast Íslendingar og vilja búa á fjarlægu, gróðurlitlu skeri í norðurhöfum. Nóg er okkar eigin skuldaánauð, þótt við tökum ekki á okkur sjálfviljug skuldir ráðvilltra milljarðamæringa sem flugu sitt Íkarusaflug upp í sólina.
Látum Íkarus falla án okkar hjálpar. Höfnum Icesave- samningunum.
Um Ikarus af Wikipediu: http://en.wikipedia.org/wiki/Icarus
Before they took off from the island, Daedalus warned his son not to fly too close to the sun, nor too close to the sea. Overcome by the giddiness that flying lent him, Icarus soared through the sky curiously, but in the process he came too close to the sun, which melted the wax. Icarus kept flapping his wings but soon realized that he had no feathers left and that he was only flapping his bare arms. And so, Icarus fell into the sea
![]() |
Icesave-ábyrgð úr ríkisstjórn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
24.6.2009 | 01:10
Staðreyndir um Icesave standa
Áköf leit mín að lögfræði í plaggi Jakobs R. Möller skilaði litlu. En álit um það hvað væri algengt eða fátítt í samningum er víða að finna, einnig skoðanir á hinum ýmsu málum, en bein rök gegn neikvæðri túlkun lærðra lögspekinga eru afar rýr. Eftir stendur óhaggað:
- Um verulegt afsal réttar til málskota er að ræða. Þjóðaréttur fellur niður að mestu leyti.
- Eftir greiðslufall (5 daga) þyrfti ríkið að benda á eignir hérlendis og erlendis fyrir jafnvel hundruðum milljarða króna.
- Ekkert þak er á skuldarupphæðinni.
- Engin takmörkun er á því hlutfalli þjóðarframleiðslu Íslands sem greiða þarf árlega.
- Skuldina má gjaldfella alla við minnsta greiðsludrátt ( jafnvel annarra skulda).
- Nær 100% öruggt er að ríkið greiði 300 milljarða í vexti, án bóta.
- Endurskoðunarákvæðin hafa EKKERT skuldbindingargildi fyrir Breta/Hollendinga.
- Ef dómstólar dæma Neyðarlögin ógild, þá er Icesave- skuldin ofboðsleg (800 ma+).
- Ef dómstólar dæma öðrum veðhöfum Landsbankans í hag, þá er öll Landsbanka- skuldin ofboðsleg (1000 ma+).
Ofangreindar fullyrðingar hafa ekki verið hraktar lögfræðilega. Þvert á móti, staðfestar. Hvaða staðreyndir nægja eiginlega til þess að meirihluti þingmanna sannfærist?
![]() |
Hagstæð ákvæði Icesave |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 01:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
22.6.2009 | 08:32
Hæstaréttardómari staðfestir afsal
Jón Steinar Gunnlaugsson hæstaréttardómari birti hnitmiðaða grein í Mbl. í dag (bls.15) þar sem hann lýsir þeirri skoðun sinni að afsal felist í Icesave samningunum. Aðalefnið er þó það að íslenska þjóðin eigi að fá úrlausn hlutlausra dómstóla um það hvort hún skuldar Icesave- féð:
Icesave-samningarnir snúast í raun og veru um hvort við Íslendingar eigum að njóta þessa helga réttar í viðskiptum okkar við fyrrnefndar þjóðir. Það er nefnilega verið að semja við þær um afsal hans (feitletrun ÍP). Þær vilja fá fram viðurkenningu okkar um að við skuldum þetta án þess að leyfa okkur að njóta þess grunnréttar sem þær segjast sjálfar virða, bæði gagnvart sínum eigin borgurum og einnig í deilum milli þjóða, að allir skuli hafa aðgang að dómstólum til að láta dæma um réttindi sín og skyldur.
Magnús Thoroddsen, fyrrverandi forseti Hæstaréttar hefur einnig lagt áherslu á ofangreint. Hann telur EFTA- dómstólinn réttan aðila til þess að dæma í málinu. En staðfesting Alþingis á Icesave- samningnum afsalar okkur þeim málskotsrétti. Bretar og Hollendingar hafa fullyrt að samningunum verði ekki breytt. Því er augljóst að Íslendingar eiga ekki annarra úrkosta völ en að hafna samningunum.
![]() |
Icesave gæti fellt stjórnina |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (27)
20.6.2009 | 15:07
Gjaldeyrishöft: „svindlarar“ í hverju horni?
Gjaldeyrishaftalögin eru svo hamlandi á eðlileg viðskipti (t.d. vegna tíma og kostnaðar) að stærstu útflutningsfyrirtækin teljast brotleg þótt þau séu t.d. einungis að borga efniskostnað beint erlendis eða af erlendum lánum sínum þar. Hvorugt kemur krónunni nokkuð við, en haftalögin banna þetta. Fyrirtæki ættu ekki að teljast svindla þótt þau verji sig gífurlegri gengisáhættu með því að safna í gjaldeyrissjóð, hvar sem hann er í löglegu umhverfi en ekki í skattaparadísum.
Það er grundvallarfrelsi á alþjóðlegum viðskiptum að mega ákveða hvar peningar eru geymdir, í innlendum eða erlendum banka, sérstaklega á þessum válegu tímum þegar bankar út um allt eru í raun gjaldþrota og vel það eins og okkar þrír eru. Nýju kennitölurnar hér blekkja engan hugsandi mann; á bönkunum hvíla ábyrgðir upp á þúsundir milljarða króna. Útflytjandi sem fær andvirði afurða sinna greitt í erlendum gjaldeyri ætti ekki að þurfa að sæta því að ríkið taki andvirðið inn í sinn platbanka og inn á platgjaldeyrisreikninga, sem ekki er hægt að fá gjaldeyri út úr aftur að vild, enda ákveður svo ríkið platgengi í krónum á gjaldeyrinn, þegar andvirði hans er leyst út.
Ríkið, með öllum sínum undirfyrirtækjum, endar fljótt með það að verða eini aðilinn sem má eiga eðlileg viðskipti án afskipta. Aðrir verða að sækja um leyfi fyrir hverri aðgerð, annars eru þeir útmálaðir svindlarar af Bankasýslu Ríkisins, Gjaldeyrishaftaeftirliti Ríkisins, Fjölmiðlaeftirliti ríkisins eða hvaða nýrri stofnun sem vinstri stjórninni dettur í hug að koma á legg. Þar með mótast álit þorra manna á alvöru útrásarfólki sínu.
![]() |
Fara framhjá gjaldeyrishöftum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
18.6.2009 | 17:43
Ólæs forsætisráðherra Samfylkingar?
Annað hvort er forsætisráðherra Samfylkingar ólæs eða að hún hefur ekki lesið yfir Icesave- samninginn með lögfróðu fólki, samninginn sem hún lét skrifa undir.
Sinnaskipti hennar héðan af skipta engu: hún hefði átt að vita betur en að veðsetja ríkiseignirnar.
Síðan hefur margnefnd 15. grein samningsins (til varnar Íslandi) ekkert skuldbindingargildi, heldur aðeins að hefja viðræður, ef, þá hvort og hvernig!!!
![]() |
Hræðsluáróður, segir Jóhanna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
18.6.2009 | 12:56
Þýðing Magnúsar Thoroddsen hrl.
Hér er þýðing Magnúsar Thoroddsen hrl., fyrrverandi forseta Hæstaréttar á grein 16.3 Icesave samningsins við Hollendinga (sem er nauðalíkur breska samningnum):
Afsal á griðhelgi fullveldis
Bæði Tryggingasjóðurinn og Ísland samþykkja algerlega hvers konar málsókn gegn sér í sambandi við hvaða deiluefni, sem upp kunna að koma og hvers konar annað réttarúrræði gegn sér, þar á meðal aðför eða fjárnám, í hvaða eignum eða réttindum ( án tillits til hvaða nota þau eru ætluð) samkvæmt hvers konar úrskurði eða dómi.
Ef Tryggingasjóðurinn eða Ísland, eða hvers konar eigur eða réttindi þeirra, eiga rétt á griðhelgi í einhverri lögsögu frá málshöfðun eða birtingu annarra skjala í tengslum við hvaða deilu sem er, eða eiga rétt á hvers konar annarri griðhelgi frá lögsögu, lögsókn, dómi, fjárnámi, kyrrsetningu ( þótt það sé áður en dómur gengur til þess að tryggja aðför eða annað réttarúrræði) eða annars konar lögsókn, þá er hér með óafturkallanlega fallið frá griðhelgi á eins algeran hátt og lög viðkomandi lögsögu leyfa.
Bæði Tryggingasjóðurinn og Ísland lýsa því einnig óafturkallanlega yfir, að þau samþykki, að gera ekki kröfu um griðhelgi sjálfum sér til handa eða vegna eigna eða réttinda hvors um sig.
Hversu takmarkaða ábyrgð telur þú ábyrgð Íslands nú vera? !
Fyrri greinar ÍP:
Milliríkjadeilan varð að bresku einkaréttarmáli
Með byssuna í hnakkann og bundið fyrir augun
Klýfur varaformaður flokkinn með Icesave og ESB?
![]() |
Icesave-samningar birtir í dag |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
18.6.2009 | 01:43
Milliríkjadeilan varð að bresku einkaréttarmáli
Ríkissjónvarpið birti grein úr Icesave- samningnum á 17. júní. Ef Alþingi staðfestir hann, þá afsalar íslenska ríkið sér rétti til varna í þjóðarétti, en getur einungis varist í breskum einkamálarétti. Allar eigur og réttindi ríkisins yrðu þar settar að veði án takmarkana, verði greiðslubrestur, þar sem samningurinn yrði allur gjaldkræfur. Þar mætti m.a. ganga að eftirfarandi eignum:
- · Landsvirkjun
- · Gullbirgðir Íslands, (sem geymdar eru í Seðlabanka Englands).
- · Auðlindaréttindi í hafinu, fiskurinn í sjónum
- · Varðskipin (sem mætti kyrrsetja)
- · Byggingar, þjóðvegir osfrv.
Enginn íslenskur þingmaður, sama hvaða stjórnmálaflokki hann tilheyrir, getur staðfest þennan nauðungarsamning án þess að fremja landráð, þar sem um öryggi landsins er að tefla.
Við eigum annarra úrkosta völ: að gera hvað sem er annað en að staðfesta samninginn.
![]() |
Harðasta milliríkjadeilan |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 01:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
16.6.2009 | 15:29
Með byssuna í hnakkann og bundið fyrir augun
Steingrímur J. staðfestir að Icesave- gjörðin er á milli einkaaðila, banka og tryggingarsjóðsins og þess vegna fáist hann ekki birtur. Þetta er ekki þjóðasamningur. Lymska Breta í því að draga okkur út úr þjóðarétti yfir í breskan einkamálarétt kemur í veg fyrir það að Alþingi taki einu vitrænu ákvörðunina og hafni samningnum.
Samningur þessi er ein allsherjar lögfræði- gryfja fyrir Íslendinga, það staðfesti einn lögfróðasti maður Íslands í gær við mig, eftir að hafa skoðað ósköpin. Óháð pólítík, þá skrifar engin heilvita maður undir slíkt afsal almennra grunnréttinda manna, hvað þá fyrir hönd heillar þjóðar, án þess að hver grein samningsins sé opinberuð. Semsagt, skrifað undir með bundið fyrir augun og með kalt byssuhlaupið við hnakkann. Nei takk!
Vinsamlegast kíkið á færslu mína frá því í nótt og athugasemdir við hana, þar sem málið er betur reifað:
Klýfur varaformaður flokkinn með Icesave og ESB?
http://astromix.blog.is/blog/astromix/entry/897430/
![]() |
Enn leynd yfir Icesave-samningi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 17.6.2009 kl. 03:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
16.6.2009 | 02:52
Klýfur varaformaður flokkinn með Icesave og ESB?
Á ég að trúa því að vinkona mín, Þorgerður Katrín, ætli að bregðast þjóðinni í Icesave- málinu? Einmitt þegar sjálfstæðisþingmenn ná líklegast að fella afarsamninginn ef þeir standa saman, með aðstoð réttsýnna þingmanna úr öðrum flokkum? Ég las annars staðar í dag að hún gefi það í skyn, að hún verði að styðja samninginn. Ef þingmenn úr Sjálfstæðisflokki staðfesta Icesave- samninginn, þá eru þeir sjálfkrafa að lýsa því yfir að nauðung sú, sem ESB með IMF beitir Íslendinga sé í lagi, allt fyrir heildarhagsmunina, sem felast í ESB aðild.
Sverfur til stáls í Icesave
Nú sverfur til stáls í þessu Icesave/ESB máli innan Sjálfstæðisflokksins, sem ég tel að sé í grundvallaratriðum svo, að um 30% flokksins vill Evrópusambandið, en drjúgur meirihluti vill það ekki, heldur sjálfstæði. Loftið átti að hafa hreinsast á landsfundi og í kosningunum en gerði það ekki. Um óásættanlegan ágreining er að ræða, sem kemur berlega í ljós í Icesave málinu ef þeir sjálfstæðisþingmenn finnast sem styðja þessa sjálfsaftöku þjóðarinnar. Ef einn bregst, þá hefur flokkurinn brugðist okkur öllum. Samfylkingarþingmenn standa sem einn í vitleysunni, djúpt í kviksyndinu og vilja draga ljósbleikblátt sjálfstæðisfólk út í svaðið eins og í ríkisstjórninni forðum.
Einhliða nauðasamningur staðfestur af Samfylkingu
Fólk djúpt innan kerfisins sem þekkir til Icesave- bardagans, staðfestir að þetta er einhliða nauðasamningur. Nú þegar greinar hans birtast lögspekingum kemur í ljós að allt morar í gryfjum gegn Íslandi. Gryfjurnar eru faldar í óvenju- erfiðu ensku lagamáli. Helst þar má nefna afsal Íslands á þjóðréttarlegri stöðu sinni, þar sem Bretum tókst að færa málið úr þjóðarétti, samningum á milli þjóða, yfir í breskan einkarétt. Lögsagan yrði í raun bresk, í stað þess að vera þjóðréttarleg. Þetta er gert með því að draga íslenska ríkið inn í einkaréttarsamninga á milli banka og tryggingarsjóðsins, sem er einkaaðili. Fyrir vikið missir íslenska ríkið flestan þann rétt og þá stöðu sem fyrir hendi er í dag í þessu máli. Nær ómögulegt yrði að koma viðhlítandi vörnum við frá okkar hendi. Mál þessi fengjust ekki rædd t.d. hjá Sameinuðu þjóðunum, þar sem um einkarétt yrði að ræða. Mál með rakinn rétt Íslands yrðu að engu með afsalinu stóra.
Réttur Breta verður ofaná
Vegna ofangreinds þá fá Bretar í raun ýmsar eignir íslenska ríkisins að veði, ef greiðslubrestur verður. Hugsanlega yrði hægt að ganga að t.d. eignum fjármálaráðuneytisins! Breska ríkið setti raðir lögfróðs fólks, sérfræðinga í það að semja hverja grein samningsins. Hér er mjög undirmannað og eðlilegir umsagnaraðilar fá hvorki samninginn né þá ráðrúm til þess að skoða hann. Brotið er á grundvallarrétti manna með þessari samningagerð. Maður ber ekki ábyrgð á gjörðum annarra nema að maður hafi skrifað undir slíka ábyrgð.
Samningurinn ber augljóslega merki þess að vera einhliða gjörningur breska ríkisins, nauðungarsamningur sem íslenska samninganefndin telur sig hafa orðið að verða við vegna stjórnmálalegs þrýstings, í stað jafnhliða samnings á milli þjóða. Þrýstingurinn að ljúka málinu er svo mikill að augljóslega varð djöfullinn eftir í smáatriðunum.
Þingmenn með réttlætiskennd
Sem betur fer finnst núna góður fjöldi þingmanna sem ber skynbragð á sanngirni og hafnar Icesave-samningnum. Þar má enginn sjálfstæðisþingmanna bregðast. Helsta hættan er hjá ESB- sinnum, sem ættu að stofna eigin flokk eða að ganga í Samfylkinguna og falla með henni, en ekki að misnota Sjálfstæðisflokkinn í þessa herferð þeirra til Brussel- veldisins með fjárhagslegum Icesave skuldbindingum á hvert mannsbarn, eins og í forrétt fyrir aðalréttinn, aðild að ESB.
Verður Ólafur Ragnar Grímsson síðasta vonin?
Þar kemur kannski að því að okkur verði bjargað af Forseta Íslands. Þeim hinum sama og Icesave- samningamaður Íslands, Svavar Gestsson á að hafa sagt um forðum um nokkuð á þessa leið: Fyrr frysi Faxaflói yfir en að ég kjósi þennan mann!. Þeir áttust augljóslega við í pólítíkinni í þá daga. En nú er kannski von til þess að Ólafur Ragnar Grímsson fái allsherjar syndaaflausn með því að neita að staðfesta breska Icesave- ofbeldisbragðið. Það yrði óvæntur sigur sanngirninnar.
![]() |
Sjálfstæðismenn ráða úrslitum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Nýjustu færslur
- Þorgerður Katrín: ekki gera neitt
- Brynjar náði í hægrimenn en ekki í sig!
- ESB- flokkar æða upp!
- Erfiðið út í buskann
- Landsvirkjun fyrir pólitíkusa
- Eitt Ísland á ári
- Síðasti séns Svandísar búinn
- Evrópusósíalisminn tekur flugið
- Þarfleysuþrennan
- Lærið um aðhald hjá Þjóðverjum
- RÚV og hryðjuverkin
- Borgarstjóri Krísuvíkur á fullu
- Gervigreind með CO2 á hreinu
- Eini möguleikinn til breytinga
- XD= 80% gegn Borgarlínu
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Tenglar
Reykjavík
- Aðalskipulag Reykjavíkurborgar Aðalskipulag Rvk. Tenglar
- Skipulag í heild og Hlíðarnar Skipulag í heild og Hlíðarnar
- Vesturbær: Myndir úr hverfaskipulags-tillögum Vesturbær: Myndir úr hverfaskipulags-tillögum
- Skerjafjörður: Myndir úr hverfaskipulags-tillögum Skerjafjörður: Myndir úr hverfaskipulags-tillögum
- Umferðarflæði Reykjavík Umferðarflæði Reykjavík
- Hverfaskipulag í Reykjavík: tillögur birtar Hverfaskipulag í Reykjavík: tillögur birtar
- Könnun á húsnæðis- og búsetuóskum borgarbúa 2013 Könnun á húsnæðis- og búsetuóskum borgarbúa 2013
- Dagur & Co. stefndu í óefni með hverfaskipulag Dagur & Co. stefndu í óefni með hverfaskipulag
- Vatnssöfnun í skipulagi borgarinnar Vatnssöfnun í skipulagi borgarinnar
- Veitum Degi aðhald Veitum Degi aðhald
- Jóhönnu- heilkennið í Reykjavík Jóhönnu- heilkennið í Reykjavík
- Aðalskipulag miðar við flugvöllinn burt Aðalskipulag miðar við flugvöllinn burt
- Myndir úr nýju skipulagstillögunum Myndir úr nýju skipulagstillögunum
- Stefnir í glórulaust eignarnám Stefnir í glórulaust eignarnám
- Vinstri græn gegn einkabílnum Vinstri græn gegn einkabílnum
- Þvingun Þvingun
- Félagslegar íbúðir á dýrustu stöðum? Félagslegar íbúðir á dýrustu stöðum?
- Nýi Skerjafjörður á forsendum íbúanna Nýi Skerjafjörður á forsendum íbúanna
- Metnaðarfull stefna gegn borgurunum Metnaðarfull stefna gegn borgurunum
- Vísvitandi bílastæðaskortur Vísvitandi bílastæðaskortur
- Spjaldtölvur í grunnskólana Spjaldtölvur í grunnskólana
- Flugið verði fyrir almenning aftur Flugið verði fyrir almenning aftur
- Þögli meirihlutinn útskúfast Þögli meirihlutinn útskúfast
Tenglar
Áhugaverðir tenglar
- Sævörur ehf Útflutningur á rækju
- Fjallaferðir ÍP Myndasyrpur
- Bloomberg viðskipti Viðskiptavefur Bloombergs
- Glitnir: gengi gjaldmiðla Glitnir banki: Gengi gjaldmiðla 15 mín töf
- Boston University Boston University USA
- MR Menntaskólinn í Reykjavík
- Vald.org Jóh. Björn Raunveruleikinn í USA og víðar
- Financial Times ft.com viðskiptafréttir
- BBC News BBC fréttavefur
- AFP fréttir AFP fréttaþjónustan
- Reuters fréttir Reuters fréttaþjónustan
- Sky News Sky fréttaþjónustan
- Ritlist Önnu Heiðu Anna Heiða Pálsdóttir systir ÍP
- Sissú myndlist Sissú systir, myndlistarmaður og arkítekt
Banka/krónu blogg
Blogg mín um krónu og bankamál
- Fall Íslands, upphafsgrein Varnaðarorð um hagkerfið
- Hver borgar vextina? Hvaða aðilar eru að borga háu vextina?
- 30.000 krónur á mínútu allt árið Valréttarsamningar bankastjóra
- 2006 gaf þeim 3 milljarða Valréttarsamningar bankastjóra Kaupþings
- Háa vexti og framkvæmdaleysi Seðlabankinn lækkar ekki stýrivexti
- Augljóst hvert Moodys stefnir Mat Moody's á íslenskum bönkum
- Enn of örlátt, segja Bretar Íslenskir bankar of áhættuglaðir
- 628 milljarðar. Bilun. Íslenska krónan og vaxtamunarviðskiptin
- Vextir lækka ekki Seðlabankinn heldur stýrivöxtum háum
- Stöðugt ástand? Íslenskir bankar vanmeta ástandið
- Nóg komið af Jenum? Kaupþing ofl taka stór Jenalán
- Allir bankar ánægðir Háir stýrivextir og vaxtamunaverslun kæta
- Bankadómínókubbar Keðjuverkun hafin, fall í kerfinu
- Áhættuflótti heimsmarkaðar hefst fyrir alvöru Vaxtamunarverslun fellur og Jenið rís
- 6% fall krónu er góð byrjun Fall krónunnar hefst
- 10% gengisfall veldur verðbólgu Gengisfellingin nær 10%
- Eru veð bankanna traust? Veð ýmissa bréfa til umhugsunar
- Staðfest hvað stýrir krónunni Gjaldeyrisspekúlantar ráða gengi krónu
- Efnahagsmál af viti Umræður um efnahagsmál á malefnin.com
- Upphaf afleiðinga Afleiðingar hávaxtastefnu hefjast
- Greinasafn um banka og krónu Samantekt greina um banka og krónu
- Meira af Matadorpeningum! Seðlabankar dæla inn lausafé
- Áhættuflóttinn heldur áfram, en þó! Áættuflótti fyrst, en snerist við
- Federal Reserve sneri öllu við BNA seðlabanki lækkar vexti
- Davíð bregst bogalistin Seðlabanki með háa vexti, á móti Evru
- Jenið sækir aðeins á USD fellur, Jen rís, hlutabréf lækka
- Jenið og Ísland eru nátengd Tengsl Jens og Íslands skýrð
- Kaupþings- Klemman Vítahringur Vaxtamunarferlisins
- Japan 0, Ísland 1 Japan heldur stýrivöxtum
- Krónur, skuldir og verðlaus bréf Stýrivextir hækka, USA fer niður
- Sígandi markaður? Markaðurinn niður (en hikstandi)
- Veð íslenskra banka? Hve traust er staða bankanna?
- Bankar í afneitun Bankar telja sig stikkfrí
- Allt að 40% af fyrra markaðsvirði Exista og Kaupþing falla mikið
- Ekki batnar það Verðfall bréfa heldur áfram
- Billjón á 3 mánuðum? Frá 15 10 2007 fall um 1 billjón
- 200 milljónir á mínútu Fyrstu 5 daga 2008 fall 200M á mín
- Jen styrkist, íslenskir bankar veikjast Vaxtamunarverslun minnkar
- Fallið er ekki kauptækifæri Fall markaðar Íslands og heimsins
- Kaupþing 55%, Exista 32,8%, SPRON 32,5% Verðfall hlutabréfa frá tindi 2007
- Skítt með alla skynsemi ÍP keypti hlutabréf í Straumi
- Svindl og hrun haldast í hendur Svindl í SocGen og fall markaða
- Kaup-Thing lagið Lagið Wild Thing stílfært við Kaupþing
- Þreyjum Þorrann og Góuna! Fall markaða framlengist um nokkurn tíma
- Stóriðjan kemur til bjargar Útflutningsiðnaður skiptir máli
- Hvílíkir markaðir! Fall markaða er aðeins byrjunin
- Laun þín 2008: mínus 15-17% Gengisfelling IKR er nær samsvarandi launalækkun
- Mínus 500 milljarðar á einni klst.? Gengisfellingin 17/03/2008 byrjaði með 9% falli Jensins
- Allt löngu fyrirséð Fyrirsjáanlegar afleiðingar stefnu Seðlabanka
- Krónubréfum skilað Krónubréfum skilað
- Milljarðatuga munur Milljarðatuga munur
- Hraðbraut til heljar Hraðbraut til heljar
- Framlengt vegna fjölda áskorana Framlengt hjá Seðlabanka
- Bankar úr landi? Ríkið má ekki ábyrgjast skuldir bankanna
- Ársreikningar: veldu aðferð og þeir segja það sem þú vilt Aðferðir í ársreikningum skipta tugmilljarða máli
- Um hvað ætti ég að blogga ef allt þetta gerðist?: Draumar um banka og umhverfismál
- Bankar í verulegum vandræðum? Grein Ragnars Önundarsonar um bankana
- Fallin spýtan Yfirlit yfir þróun efnahagslífsins
- Skuldir Íslendinga snarhækka Jen hækkar skuldir landans
- Þúsundir milljarða í nettóskuldir? Þúsundir milljarða í nettóskuldir?
- Íslenskir bankar? Íslenskir bankar?
- Krónan veikust 25-26. dag síðasta ársfjórðungsmánaðar Krónan veikust 25-26. dag síðasta ársfjórðungsmánaðar
- Glitnir nú, en fasteignir ofl. síðar Glitnir nú, en fasteignir ofl. síðar
- Stýrivextir stefna í lækkun Stýrivextir stefna í lækkun
- Örþrifaráð og Matadorkrónur Örþrifaráð og Matadorkrónur
- Vaxtamunarverslunin drapst Vaxtamunarverslunin drapst
- Gjaldeyrisskortur og handstýrt gengi? Gjaldeyrisskortur og handstýrt gengi?
- Fljótt, fljótt, gjaldeyrir á 20% afslætti! Fljótt, fljótt, gjaldeyrir á 20% afslætti!
- Ástæður Rússalánsins Ástæður Rússalánsins
- Við neitum að borga Við neitum að borga
- Nokkrar jákvæðar hliðar mótlætisins Nokkrar jákvæðar hliðar mótlætisins
- Er gagnsæi Samfylkingar yfirleitt til? Er gagnsæi Samfylkingar yfirleitt til?
- Samúræjabréf falla. IMF leiðin er ófær Samúræjabréf falla. IMF leiðin er ófær
- Vegurinn til Vítis Vegurinn til Vítis
- Ríkið fer beint í snöruna Ríkið fer beint í snöruna
- Noregur og Ísland, hvort fyrir annað Noregur og Ísland, hvort fyrir annað
- Skuldir Íslands snarhækka Skuldir Íslands snarhækka
- Skyldulesning: Börgólfur Guðmundsson Skyldulesning: Börgólfur Guðmundsson
- 29,2% verðbólguhraði 29,2% verðbólguhraði
- Lánin borg hringavitleysuna Lánin borg hringavitleysuna
- Einn banki á dag gerður upp Einn banki á dag gerður upp
- Lánin yfir í fallandi krónur Lánin yfir í fallandi krónur
- Þjóðverjar spöruðu, Íslendingar eyddu Þjóðverjar spöruðu, Íslendingar eyddu
- Reglur IMF: réttur hinna sterku Reglur IMF: réttur hinna sterku
- Heildarlántaka 1000 milljarðar króna? Heildarlántaka 1000 milljarðar króna?
- Allt er bannað nema það sé leyft sérstaklega Allt er bannað nema það sé leyft sérstaklega
- Evran upp um 50% á 3 mánuðum Evran upp um 50% á 3 mánuðum
- Öryggi fjárins finnst ekki hér á landi Öryggi fjárins finnst ekki hér á landi
- Fasteignir, kvóti ofl. afhent? Klúður 101 Fasteignir, kvóti ofl. afhent? Klúður 101
- Neyðarlögin framkalla ójafnræði Neyðarlögin framkalla ójafnræði
- Vonlítið að reka fyrirtækin í þessu Vonlítið að reka fyrirtækin í þessu
- WSJ myndband um fall Íslands WSJ myndband um fall Íslands
- Yfirtaka bankanna dregur Ísland niður í svaðið Yfirtaka bankanna dregur Ísland niður í svaðið
- ESB aðild og IMF lán, samt kreppa og óeirðir! ESB aðild og IMF lán, samt kreppa og óeirðir!
- Veikustu hagkerfin verða útundan hjá ESB Veikustu hagkerfin verða útundan hjá ESB
- Falsað gengi til framtíðar? Falsað gengi til framtíðar?
- Björgvin skóp Bretavandræðin Björgvin skóp Bretavandræðin
- Lífeyrissjóðir í hreinu fjárhættuspili Lífeyrissjóðir í hreinu fjárhættuspili
- Enginn þorir að neita Icesave og IMF Enginn þorir að neita Icesave og IMF
- Írland er í ESB með Evru, samt mótmæla 100.000 Írland er í ESB með Evru, samt mótmæla 100.000
- Engin viðskipti, enginn með bein í nefinu Engin viðskipti, enginn með bein í nefinu
- Kreppan kosin burt? Kreppan kosin burt?
- Þjóð í dái Þjóð í dái
- Vondu karlarnir: sjómenn eða ríkið? Vondu karlarnir: sjómenn eða ríkið?
- Sverfur að skattaskjólum? Sverfur að skattaskjólum?
- EKKI skila 2006 styrkjum! EKKI skila 2006 styrkjum!
- Leiðin til þess að lifa þetta af Leiðin til þess að lifa þetta af
- Fjórðungshækkun punds gegn krónu á 38 dögum Fjórðungshækkun punds gegn krónu á 38 dögum
- Sjálfstæðismanneskja Sjálfstæðismanneskja
- ESB- sigur? Tæpast ESB- sigur? Tæpast
- Stýrivextir aukast í 13- földun ECB Stýrivextir aukast í 13- földun ECB
- Vinstri stjórn er eins varanleg og ... Vinstri stjórn er eins varanleg og ...
- Lífeyrissjóðir eru gjarnan rán um hábjartan dag Lífeyrissjóðir eru gjarnan rán um hábjartan dag
- Ríkið ákveði framboð og eftirspurn! Ríkið ákveði framboð og eftirspurn!
- Þjóðaratkvæðagreiðslu um afarsamningana! Þjóðaratkvæðagreiðslu um afarsamningana!
- Hverjir þingmanna gerast landráðamenn í dag? Hverjir þingmanna gerast landráðamenn í dag?
- Örlaganornirnar þrjár: tími Skuldar er kominn! Örlaganornirnar þrjár: tími Skuldar er kominn!
- 35 milljarða hækkun á 2 bankadögum! 35 milljarða hækkun á 2 bankadögum!
- Samfylkingarþingmenn sýni loks ábyrgð Samfylkingarþingmenn sýni loks ábyrgð
- Bara ef þeir hefðu nú farið! Bara ef þeir hefðu nú farið!
- Klýfur varaformaður flokkinn með Icesave og ESB? Klýfur varaformaður flokkinn með Icesave og ESB?
- Með byssuna í hnakkann og bundið fyrir augun Með byssuna í hnakkann og bundið fyrir augun
- Milliríkjadeilan varð að bresku einkaréttarmáli Milliríkjadeilan varð að bresku einkaréttarmáli
- Þýðing Magnúsar Thoroddsen hrl. Þýðing Magnúsar Thoroddsen hrl.
- Ólæs forsætisráðherra Samfylkingar? Ólæs forsætisráðherra Samfylkingar?
- Gjaldeyrishöft: svindlarar í hverju horni? Gjaldeyrishöft: svindlarar í hverju horni?
- Hæstaréttardómari staðfestir afsal Hæstaréttardómari staðfestir afsal
- Staðreyndir um Icesave standa Staðreyndir um Icesave standa
- Frumvarp um Weimar- Ísland Frumvarp um Weimar- Ísland
- Allt sem þú þarft að lesa er komið fram Allt sem þú þarft að lesa er komið fram
- Davíð um ESB- Svía Davíð um ESB- Svía
- Lýðræði í stað sendinefndar með opið tékkahefti Lýðræði í stað sendinefndar með opið tékkahefti
- Ágæti Vinstri- græn kjósandi! Ágæti Vinstri- græn kjósandi!
- Skræfurnar sitja hjá Skræfurnar sitja hjá
- Slepptu biti þínu, Steingrímur J. ! Slepptu biti þínu, Steingrímur J. !
- Ykkur tókst þetta, ESB- konunum! Ykkur tókst þetta, ESB- konunum!
- Lausn vandræðanna er fundin! Lausn vandræðanna er fundin!
- Bakland stjórnarinnar farið og tálsýnin er úti Bakland stjórnarinnar farið og tálsýnin er úti
- Bretar örvæntu 6. okt. 2008 Bretar örvæntu 6. okt. 2008
- Áfram heldur idealisminn ótrauður Áfram heldur idealisminn ótrauður
- Hvenær biðst Jóhanna Sig. afsökunar á þessu? Hvenær biðst Jóhanna Sig. afsökunar á þessu?
- Dýrustu feðgin Íslandssögunnar Dýrustu feðgin Íslandssögunnar Svavar og Svandís
Heimurinn / umhverfið
Umhverfið, mannfjöldi, hernaður ofl.
- Orka Íslands Mikilvægi orkuauðlinda Íslands
- Svifryki spúlað burt Spúla þarf svifryki af götunum
- Hrikalegt á að horfa Darfúr í Súdan frá Google Earth
- Koltvísýringslosun er ekki kosningamál CO2 magn er ekki kosningamál núna
- Hernaður kostar sitt Kostnaður hernaðar, aðallega BNA
- Svona er heimurinn (like it or not) Mannfjöldaaukning ræður orkuframleiðslu
- Þversögn vaxtarins Mannfjölgun og vöxtur þróunarríkja
- CO2 kvótamarkaður er martröð í mótun Upphaf CO2 kvótamarkaðar heims
- Grænland er of heitt! ESB á að kæla Grænland!
- Kókaínfundir og Ingibjörg Sólrún Afríkuríkin heilla ISG
- Heilaþvotturinn mikli, al-gor Heill dagur af heilaþvætti Al Gores
- Heimsvelgjan nær ekki suður úr Kólnun suðurfrá, ekki hitnun
- Út úr afríku! Vandamál Afríku eru hennar eigin smíði
- Grikkland brennur Eldar flæða um Grikkland
- CO2 kvótinn er verri en hinn kvótinn Ásjóna kolefniskvótans kemur í ljós
- Hálf- fréttir eru slappar Listi yfir 10 menguðustu borgir jarðar
- Tíu Ís-lönd hurfu sl. ár Norðurpóllin er að hverfa
- Varanlegt Mynd ÍP af pýramída, hugleiðingar
- Stærstu kvótaþegar jarðar Skipting CO2 kvóta á Íslandi og víðar
- Skömmtunarárin og haftapólitíkin endurvakin Íslensk CO2 úthlutun lítl. Ráðherraskömmtun.
- Minni kjarnorka þýðir meira af kolum og olíu Kjarnorkuveri í N- Nóreu lokað
- Vaclav Klaus: Hvort er í hættu, frelsið eða loftslagið? Vaclav Klaus, forseti Tékklands
- Sannfærð(ur)? Taktu prófið Tíu spurningar um loftslagsmál
- Löngu- Skerjafjörður Löngusker í Skerjafirði, mynd og hugleiðing
- Þróunaraðstoð fer til stríðsrekstrar Þróunaraðstoð til Afríku verður ekki skilvirk
- Al Gore og Dalai Lama? Listi yfir ýmsa friðarverðlaunahafa Nóbels
- Besta auglýsing í heimi Al Gore tekst vel upp með kvótabraskið
- 100 til 150 ár, segir SÞ- nefndin IPCC segir CO2 jafnast eftir 100-150 ár
- Klórblöndum ekki tæra vatnið okkar Ekki Evrópureglur um neysluvatn
- Þórunn mun klúðra samningsstöðu Íslands Umhverfisráðherra vill lítinn CO2 kvóta
- Góði Geir Vísa til Geirs um loftslagsmálin
- Rangt hjá Ingibjörgu Sólrúnu ISG segir enga samninga í gangi
- Hagavatnssvæðið í myndum Hagavatn virkjað? Myndir.
- Þróunarlaus aðstoð Þróunaraðstoð til óþurftar
- Bláfjöllin vakna Snjórinn kemur í Bláfjöllin
- BNA Íslandi til bjargar BNA neitar að samþykkja á Balí
- Látum okkur ekki blæða út á Balí Semjum ekki af okkur á Balí- ráðstefnunni
- Annars hugar á Balí Anna og Hugi frá Íslandi á Balí
- Ánægjulegt árangursleysi á Balí Óræð niðurstaða á Balí
- Lokasetning á Balí Lofstlagsráðstefnu á Balí lokið
- Á nöglum í rokinu Naglar borga sig í roki á svelli
- Áramótabrennum frestað? Líklegt að fresta þurfi áramótabrennum
- Átök orðin að stríði Sri Lanka eftirlitssveitir burt
- Nótum þess Vatnið á Íslandi, heitt og kalt er frábært
- Hungraður heimur, óvart Framleiðsla lífefnaeldsneytis veldur hungri
- Fórnarkostnaður stjórnarinnar Þórunn umhverfisráðherra er Wildcard
- ESB viðurkennir mistök í umhverfisstefnu ESB breytir um stefnu vegna etanóls
- Grænland kólnar! Kaldur vetur á Grænlandi
- Bláfjöll: Ráðningar gleymdust! Rekstur Bláfjalla í molum
- Ófriðareftirlit og spillingarstyrkir ISG og friðareftirlit
- Bláfjöll: Nú kastar tólfunum! Ástandið í Bláfjöllum versnar
- Bláfjallaklúðrið nær hámarki 10.000 manns í Bláfjöllum en lélegt
- Líf í frostinu Líf í frostinu
- Stóriðjan kemur til bjargar Stóriðjan kemur til bjargar
- Endurnýting hvala Endurnýting hvala
- Veturinn er bestur Veturinn er bestur
- Skattlagning í nafni kvenna Skattlagning í nafni kvenna
- Þórunn á bremsunni Þórunn á bremsunni. Umhverfisráðherra heftir för
- Gorhugsun um Hinn máttuga mann Gorhugsun um Hinn máttuga mann. Lýsingar Gores
- Veitum framúrskarandi forystu Íslendingar veita framúrskarandi forystu skv. Gore
- Gore er ræðusnillingur Gore er ræðusnillingur en fer með rangan málstað
- Lögregla gegn umhverfissinnum Lögreglan í Brussel tekur á umhverfissinnum
- Dýr er hver Bitru- túristinn Dýr er hver Bitru- túristinn fyrst að hætt er við Bitruvirkjun
- Hver tekur af skarið? Hver tekur af skarið í borginni? Erfitt í flokknum
- Virkjum og eflum alla dáð Virkjum og eflum alla dáð. Bitruvirkjun ofl til bjargar
- Skjálftakort og töflur Skjálftakort og töflur v Suðurlandsskjálftans maí 2008
- Vopnum safnað Vopnum safnað. ISG og Rice ræða málin
- Frægasti Íslendingurinn níðir Ísland Frægasti Íslendingurinn níðir Ísland. Björk ófrægir landann
- Buddan talar Þórunn umhverfisráðherra semur af sér
- Hekla er flott Ferðalýsing á Heklu með myndum
- Afleitar afleiddar afleiðingar afglapa Afleiðingar aðgerða í loftslagsmálum
- 5000 kr. á mann, bara fyrir Laugaveg 4 og 6 Borgin greiddi ofurverð fyrir skúrarusl
- Vedurpár- vídeó Veðurþáttaspá vedur.is útskýrð
- Engir samningar um loftslagsmál Fylkingar G8 og G5 eiga sér misjöfn takmörk
- ISG í herráð heimsins Utanríkisráðherra vill komast í Öryggisráð SÞ
- Yfir Skeiðarárjökul Ferðalýsing frá Grænalóni yfir Skeiðarárjökul
- Hækkum orkuverð Selja orkuna dýrt og gæta skattanna
- Þróunaraðstoð á tilvistarkreppufundi Þróunaraðstoð heimsins er í krísu
- Sóunarsamvinnu að ljúka? Sóunarsamvinnu að ljúka?
- Loftslags- réttlæti strax! Loftslags- réttlæti strax!
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (27.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 14
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 11
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
2025
2024
2023
2022
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
stefanbjarnason
-
hannesgi
-
businessreport
-
askja
-
martagudjonsdottir
-
agbjarn
-
geiragustsson
-
gustaf
-
vey
-
frjalshyggjufelagid
-
tilveran-i-esb
-
gammon
-
sigsig
-
omarragnarsson
-
raksig
-
halldorjonsson
-
vinaminni
-
samstada-thjodar
-
draumur
-
magnusjonasson
-
frisk
-
jonaa
-
apalsson
-
skodunmin
-
arnim
-
gullvagninn
-
altice
-
fannarh
-
gun
-
oliatlason
-
bjarnihardar
-
nilli
-
davido
-
svanurmd
-
steinisv
-
johanneliasson
-
hagbardur
-
arh
-
zumann
-
doggpals
-
jonvalurjensson
-
dofri
-
katrinsnaeholm
-
seinars
-
kari-hardarson
-
fredrik
-
valli57
-
tibsen
-
kisabella
-
tbs
-
astroblog
-
maeglika
-
himmalingur
-
skulablogg
-
arnih
-
ingagm
-
ahi
-
mullis
-
krissi46
-
vefritid
-
gauisig
-
bryndisisfold
-
brandarar
-
nerdumdigitalis
-
svartagall
-
siggith
-
klarak
-
jennystefania
-
lax
-
unnurgkr
-
vilhjalmurarnason
-
gattin
-
kruttina
-
rynir
-
heidistrand
-
thorhallurheimisson
-
duddi9
-
kristjan9
-
haddi9001
-
bofs
-
thjodarheidur
-
theodorn
-
lucas
-
benediktae
-
iceland
-
fun
-
diva73
-
zeriaph
-
tharfagreinir
-
bjarnimax
-
fullvalda
-
sigurjons
-
sissupals
-
davpal
-
friggi
-
ketilas08
-
valdimarjohannesson
-
gerdurpalma112
-
andres08
-
krist
-
fjarki
-
tik
-
palmig
-
rustikus
-
vestskafttenor
-
gummibraga
-
svansson
-
geirfz
-
fhg
-
stjornlagathing
-
loftslag
-
jonmagnusson