Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2010
25.4.2010 | 12:09
Endamörk þarfleysunnar
Hvað aðhefst umhverfisráðuneytið þessa dagana, þegar 20-700 fínmuldir smábílar þeytast upp í andrúmsloftið á hverri einustu sekúndu og dreifast sem aska um Ísland og nágrenni? Jú, það vinnur hörðum höndum að því að uppfylla skilyrði Evrópusambandsins um kolefnislosunarbókhald þess fyrir inngöngu Íslands í batteríið.
Friðun og kolefnilosunarbókhald eru aðalatriðin
En kannski var Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra upptekin við það að friða gossvæðið á Fimmvörðuhálsi fyrir ágangi mannskepnanna ógurlegu, sem gerðu för í snjóinn hjá nýja fjallinu? Hún lýsti amk. vilja sínum til þess. Vinnunni miðaði vel áfram þar til Eyjafjallajökull fór að gjósa nokkrum kílómetrum frá og lagði öskuteppi yfir svæðið. Svandís getur þá friðað það þar til vindurinn blæs öskunni á haf út. Þá breiðist friðarboðaskapurinn út um allt, inn í flugvélahreyfla eða t.d. ,til Noregs. Þar fellur hann á blað Vinstri grænu stjórnarinnar, þar sem útlistað er kolefnislosunarbókhald Norðmanna. Bora skal eftir olíu hvar sem hún finnst og selja til annarra sem brenna henni í sínu bókhaldi, á meðan Noregur kaupir kvóta, ræktar tré og styður einræðisherra í Afríku til þess að jafna kolefnislosunarbókhald þeirra líka.
Athafnir náttúrunnar skipta víst ekki máli
En hér á Íslandi skiptir víst ekki máli hve mikið eldfjöllin losa af koltvísýringi eða af öðrum gróðurhúsalofttegundum, af því að mennirnir gera það ekki. Víst var reiknað fyrst, þegar eldgosið á Fimmvörðuhálsi virtist aðeins senda sex tonn af hrauni á sekúndu upp í loftið. Síðan hljóðnaði í kolefnisvísindamönnum þegar ljóst var að magnið var sjöfalt á við það. En við öskugosið hundraðfaldaðist massinn og ekki aðeins það, heldur margfaldaðist gaslosunin þar sem um öskugos varð að ræða. Þá urðu svör kolefnisgengisins á þá leið, að náttúruleg losun komi kolefnislosun manna ekkert við.
Það skiptir semsagt engu máli hvort eldgos vari sekúndunni lengur eða skemur, hvort það losi tíu þúsund, hundrað þúsund eða milljón tonn af koltvísýringi eða öðrum mun virkari gastegundum, heldur er aðalmálið að þú hjólir í vinnuna og sparir þannig á einu ári sekúndubrot af losun eldfjallsins. Þá gleymist að vísu að í stað þess að anda að þér HEBA- filteruðu lofti í bílnum þá andar þú á fullu á hjólinu að þér svifryki eldfjallsins í viðbót við svifryk bílanna sem eftir eru.
Umhverfisráherra hugsi um umhverfi okkar
Nálægð Íslendinga við náttúruna sýnir okkur vel hvílík endaleysa þetta kolefnisbókhald er, hvað þá kvótinn sem því fylgir. Það er skiljanlegt að kaffihúsa- teóristar í vestrænum stórborgum aðhyllist alls kyns kerfi um það hvernig maðurinn geti ráðið veðurfari jarðar eða stjórnað öðru í náttúrunni að sínu skapi , en við hljótum að sjá að þannig aðgerðir geta aldrei verið annað en sandkastalar gegn briminu á ströndinni . Einbeitum okkur þess frekar að því að hugsa um velferð Íslendinga, sérstaklega í brimsköflunum sem nú ganga yfir. Huga ber að heilsunni, ásamt því að beisla endurnýjanlega orku til athafna, fólkinu til heilla, í stað þess að eyða tíma og fé þess í þarfleysu eins og núverandi ríkisstjórn sérhæfir sig í.
![]() |
Eldgosið áfram á sama róli |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 12:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
22.4.2010 | 00:26
Góður fundur
Formaður Sjálfstæðisflokksins, Bjarni Benediktsson, hélt góðan opinn fund í Valhöll hádeginu í gær. Form fundarins var fínt, stutt ræða hans, hann einn uppi á sviði og til svara og nægur tími fyrir spurningar, þannig að þau komust að sem vildu.
Ég tróð mér að að vanda og fékk skýrari svör en fyrr: Flokkurinn er gegn ESB- aðild. Bjarni lýsti því síðan hve undarlegt það er að halda umsóknarferlinu áfram þegar aðeins einn flokkur stendur að því, Samfylkingin (sem er ekki þjóðin, innskot ÍP). Erlendir viðsemjendur furða sig á þessu líka þegar þeir sækja okkur heim.
Tilfinningin eftir fundinn er sú að flokkurinn sé að straumlínulagast á þann hátt að árangur náist til framkvæmda fyrir þjóðina, ef til nauðsynlegra kosninga kæmi. En skýrum línurnar enn betur. Andstaða forystu flokksins við Icesave- samning og ESB- aðildarumsóknina var alls ekki skýr, enda hangir það tvennt á sömu ESB- spýtunni. Nú heyrist mér vera komið ákveðnara hljóð í strokkinn. Þá loksins á þjóðin von um að eitthvað gerist í öllum þeim alvöru málum hér heima við sem taka þarf á. Ég fagna því.
Ég fagna líka þingmönnunum Sigurði Kára Kristjánssyni og Óla Birni Kárasyni. Innkoma þeirra skiptir okkur öll máli.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 00:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
18.4.2010 | 11:33
Öskurok aðfararnótt mánudags
Hér er mynd af vindaspánni mánudag 19/4 kl. 04:00. Ösku- þreifandi bylur undir Eyjafjöllum ef ég skil þetta rétt, en spáin er bara svona:
Mánudagur: Ákveðin norðanátt ber gosmökk til suðurs frá Eyjafjallajökli. Öskufall því líklega einkum suður af gosstöðinni, en einnig má búast við einhverju öskufalli yfir A-Landeyjar og jafnvel í Vestmannaeyjum. Líklega léttskýjað lengst af og gott skyggni.
Mér sýnist að rýma þyrfti svæðið sunnan gosstöðvanna eða að hafa uppi ákveðnari aðgerðir, þar sem sandblásin aska og brennisteinn fer í hvern kima og hvert lóuþrælsungalunga. Fínustu kornin komast allt í rokinu.
En sem betur fer tekur þetta fljótt af. Við sem erum norðanmegin við ósköpin getum enn andað léttar, sbr.dóttir mín á myndinni.
![]() |
Fólk flýr öskufallið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
16.4.2010 | 16:44
Svik
Ef fulltrúar Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks og Vinstri grænna hafa skrifað undir viljayfirlýsingu um forsendur greiðslu höfuðstóls Icesave- skuldarinnar og jafnvel vaxta, þá eru það svik við mikinn þorra kjósenda þessarra flokka og þar með við fólkið í landinu.
Umboðsleysi forsvarsmannanna er algert. Látum þessa ósvinnu ekki yfir okkur ganga, frekar en hina fyrri.
![]() |
Gylfi: Engar nýjar skuldbindingar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
16.4.2010 | 09:38
Út á sjó en ekki án vandræða
Ef kíkt er á vindaspá veðurstofunnar má ætla að askan berist suður um Atlantshafið eftir miðnætti aðfararnótt laugardagsins 17/4/2010 og nái þar með að trufla flug á milli Evrópu og Ameríku verulega.
Trans- Atlantic flights could be affected from Saturday morning 16/4/2010 into Sunday as the northerly winds carry the volcanic ash from Eyjafjallajokull southwards over the North- Atlantic ocean.
![]() |
Flug lamað annan daginn í röð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
14.4.2010 | 21:40
Eyjafjallajökull 2007
Hér eru myndir af ferð á Eyjafjallajökul 2007. Gengið var upp á kant, síðan á fjallaskíðum að Guðnasteini og rennt sér drjúgan hluta til baka. Svona túrar eru bestir.
PS: Björgunarsveitin endurnýjaði VHF sendi . Ætli hann þoli þetta? Hann hlýtur að vera farinn.
PS.PS: Smellið tvisvar á myndir fyrir fulla stærð. Tengillinn Fjallaferðir ÍP er hér til vinstri í miðjunni þar.
http://ivarpals.com/koparmyndir/thumbnails.php?album=9 (Ath 3 síður 123 neðst)
http://stefanbjarnason.blog.is/album/Eyjafjallajokull07/
http://vinaminni.blog.is/album/Eyjafjallajokull2007/
http://ivarpals.com/koparmyndir/index.php
Hér er kort af leiðinni.
Ómar Ragnarsson tók flotta mynd af gosinu núna:
http://omarragnarsson.blog.is/users/3b/omarragnarsson/img/p1011380_981302.jpg
![]() |
Kolsvartur strókur frá gosinu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vísindi og fræði | Breytt 15.4.2010 kl. 09:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
9.4.2010 | 22:16
Agndofa
Agndofa er ég á því
að undrandi sitji ég þver
Ég furða mig forsætisráðherrann
að framkvæma þurfi hjá mér
Hví gerist allt í kring um mig?
Kúgandi mannfuglager
Hvergi er friður í hásæti,
hver setti mig niður hér?
ÍP um Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra 2009-2010
Ljóð | Breytt 21.5.2010 kl. 09:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
9.4.2010 | 15:43
Jóhanna Sigurðardóttir vekur furðu
Síðan Jóhanna varð forsætisráðherra, þá hefur hún margoft furðað sig á því sem gerðist hverju sinni, en ekki fengist til þess að grípa til tafarlausra aðgerða til leiðréttingar. Málefni Haga, Glitnis, Kaupþings osfrv. hafa sinn gang án inngripa hennar, en hún furðar sig jafnan á málinu. Hún áttaði sig ekki einu sinni á eigin Icesave samningi fyrr en búið var að stafa hann mánuðum eftir gjörninginn.
En aðgerðir = eitt stórt núll.
Á meðan afhendir þessi forsætisráðherra ríkisvernduð, rammskuldug stórfyrirtæki í hendur ríkisverndaðra, rammskuldugra aðila sem gulltryggja þetta samkeppnisforskot sitt yfir betur reknum smáfyrirtækjum í einkaeigu.
Helst vekur furðu að þau sitji þarna enn, Steingrímur J. og Jóhanna.
![]() |
Glitnismál vekur furðu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
8.4.2010 | 09:32
Hálf milljón tonn á sólarhring!
Hraunið upp úr Fimmvörðuhálsi er um hálf milljón tonn á sólarhring skv. NASA. Losun Íslendinga á gróðurhúsa- lofttegundum sem vandamál er hláleg í þessu samhengi. Ef þetta litla túristagos endist í mánuð, þá koma upp um 15 milljón tonn af hrauni, sem losar ekki aðeins koltvísýring, heldur einnig margfalt virkari gastegundir. Ef gosið heldur áfram í rúmt ár eins og síðast, þá nálgumst við 200 milljón tonn af hrauni upp á yfirborðið.
En Katla er yfir 90% líkleg til þess að gjósa þessi árin. Hún mun losa margfalt meira af gastegundum en þetta gos. Þegar Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra takmarkar hagsæld Íslendinga með losunarkvóta koltvísýrings, þá munar kvótamismunurinn því sem eldfjallið losar dögum skemur eða lengur. Afleiðingin er sú að við heftum því framleiðslu okkar á meðan öllu máli skiptir hvort eldgosin gangi í daga eða mánuði.
Þessar reiknikúnstir um losun manna á gróðurhúsalofttegundum eru kannski skemmtileg pæling fyrir einhverja, en fyrir okkur raunsætt fólk sem reynum að búa til verðmæti úr náttúruauðlindum með lágmarkstjóni fyrir umheiminn, þá eru þessi atvinnuhöft umhverfisráðherrans buna upp í vindinn, sem kemur beint framan í okkur.
![]() |
Sex tonn af hrauni á sekúndu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 09:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
7.4.2010 | 20:53
Að hrökkva eða stökkva
Grein mín um Sjálfstæðisflokkinn, ESB ofl. á opnu Morgunblaðsins í morgun fylgir hér:
Nú eru vatnaskil hjá Sjálfstæðisflokknum á landsvísu. Meginþorri kjósenda þessa stærsta stjórnmálaflokks á Íslandi er andvígur inngöngu Íslands í Evrópusambandið (ESB ), en forysta flokksins og fólk í lykilstöðum endurspeglar ekki skýrt þá sannfæringu kjósenda sinna. Varaformaðurinn er yfirlýstur ESB- aðildarsinni og því miður hyggst formaðurinn aðspurður ekki draga aðildarumsókn Íslands að ESB strax til baka, komist flokkurinn til valda. Þessi afstaða er einn helsti dragbítur framfara síðustu árin, þar sem undanlátssemin við ESB kemur íslensku þjóðinni í æ dýpri vandræði, því meiri sem eftirgjöfin er. Verið getur að flokksforystan hafi framan af talið ESB- umsóknina í línu við óskir samtaka atvinnulífsins, en það á sannarlega ekki við núna, þar sem atkvæði þar falla gegn umsókninni. Flokkurinn er fólkið og forystunni ber að fylgja hug kjósenda sinna í þessu yfirgnæfandi mikilvæga máli.
Rétt stefna Sjálfstæðisflokksins
Meirihluti íslenskra kjósenda kysi gegn ESB- aðild ef kosið væri í dag. Sjálfstæðisflokkurinn er hæfastur flokkanna til þess að leiða sjálfstæða stefnu í anda ályktunar síðasta landsfundar hans:
Sjálfstæðisflokkurinn telur það meginmarkmið utanríkisstefnu Íslands að standa vörð um fullveldi og sjálfstæði þjóðarinnar jafnframt því sem vinna ber með öðrum þjóðum að því að efla frið, frelsi, lýðræði, mannréttindi og velmegun.
Samfylking ein með ESB- aðild
Kjósendur Samfylkingar vilja ákveðið ESB- aðild og flokkurinn hefur hana á stefnuskrá sinni. Kjósendur Vinstri grænna eru harðir gegn ESB- aðild en forysta þess flokks hunsar í framkvæmd ítrekað vilja síns fólks. Sönnum fylgismönnum stefnu VG er bolað úr ríkisstjórn og frá áhrifum. Framsóknarflokkurinn virtist líklegur til ákveðinnar andstöðu gegn ESB, en nýtur ekki almenns fylgis og hefur linast full mikið í andstöðu sinni, trúlega til þess að reyna að auka fylgið með ESB- höllum kjósendum, en stefnan virkar ekki. Andstaða annarra flokka við ESB-aðild er skýr, en fylgi þeirra mælist lítið.
Kjósendur skýrir en forystan ekki
Yfirleitt má segja að amk. 70% kjósendur annarra flokka en Samfylkingar (þ.e. þeir sem taka afstöðu) standa gegn ESB- aðild samkvæmt skoðanakönnunum. Líklegt er að ESB- fylgjandi kjósendum Samfylkingar fari fækkandi nú þegar ýmiss ESB- sannleikur kemur smám saman í ljós, t.d. afstaða gegn Íslandi í Icesave- málinu og Grikklandi í efnahagsóförum þeirra með Evruna. En þótt afstaða kjósenda allra flokkanna sé skýr, þá er forysta þeirra það ekki að sama skapi. Svo virðist sem nálægðin við alla ESB- forkólfana og óendanleg kerfi þeirra glepji forystufólki okkar svo illilega sýn að þau missa sjónar á aðalatriðinu sem gæta þarf, sjálfstæðis Íslands.
Krefjumst skýrrar andstöðu við ESB- aðild af forystu þess flokks sem við kjósum. Þetta verklag gengur ekki lengur.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Nýjustu færslur
- Brynjar náði í hægrimenn en ekki í sig!
- ESB- flokkar æða upp!
- Erfiðið út í buskann
- Landsvirkjun fyrir pólitíkusa
- Eitt Ísland á ári
- Síðasti séns Svandísar búinn
- Evrópusósíalisminn tekur flugið
- Þarfleysuþrennan
- Lærið um aðhald hjá Þjóðverjum
- RÚV og hryðjuverkin
- Borgarstjóri Krísuvíkur á fullu
- Gervigreind með CO2 á hreinu
- Eini möguleikinn til breytinga
- XD= 80% gegn Borgarlínu
- Göturnar leiða til bílastæða
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Tenglar
Reykjavík
- Aðalskipulag Reykjavíkurborgar Aðalskipulag Rvk. Tenglar
- Skipulag í heild og Hlíðarnar Skipulag í heild og Hlíðarnar
- Vesturbær: Myndir úr hverfaskipulags-tillögum Vesturbær: Myndir úr hverfaskipulags-tillögum
- Skerjafjörður: Myndir úr hverfaskipulags-tillögum Skerjafjörður: Myndir úr hverfaskipulags-tillögum
- Umferðarflæði Reykjavík Umferðarflæði Reykjavík
- Hverfaskipulag í Reykjavík: tillögur birtar Hverfaskipulag í Reykjavík: tillögur birtar
- Könnun á húsnæðis- og búsetuóskum borgarbúa 2013 Könnun á húsnæðis- og búsetuóskum borgarbúa 2013
- Dagur & Co. stefndu í óefni með hverfaskipulag Dagur & Co. stefndu í óefni með hverfaskipulag
- Vatnssöfnun í skipulagi borgarinnar Vatnssöfnun í skipulagi borgarinnar
- Veitum Degi aðhald Veitum Degi aðhald
- Jóhönnu- heilkennið í Reykjavík Jóhönnu- heilkennið í Reykjavík
- Aðalskipulag miðar við flugvöllinn burt Aðalskipulag miðar við flugvöllinn burt
- Myndir úr nýju skipulagstillögunum Myndir úr nýju skipulagstillögunum
- Stefnir í glórulaust eignarnám Stefnir í glórulaust eignarnám
- Vinstri græn gegn einkabílnum Vinstri græn gegn einkabílnum
- Þvingun Þvingun
- Félagslegar íbúðir á dýrustu stöðum? Félagslegar íbúðir á dýrustu stöðum?
- Nýi Skerjafjörður á forsendum íbúanna Nýi Skerjafjörður á forsendum íbúanna
- Metnaðarfull stefna gegn borgurunum Metnaðarfull stefna gegn borgurunum
- Vísvitandi bílastæðaskortur Vísvitandi bílastæðaskortur
- Spjaldtölvur í grunnskólana Spjaldtölvur í grunnskólana
- Flugið verði fyrir almenning aftur Flugið verði fyrir almenning aftur
- Þögli meirihlutinn útskúfast Þögli meirihlutinn útskúfast
Tenglar
Áhugaverðir tenglar
- Sævörur ehf Útflutningur á rækju
- Fjallaferðir ÍP Myndasyrpur
- Bloomberg viðskipti Viðskiptavefur Bloombergs
- Glitnir: gengi gjaldmiðla Glitnir banki: Gengi gjaldmiðla 15 mín töf
- Boston University Boston University USA
- MR Menntaskólinn í Reykjavík
- Vald.org Jóh. Björn Raunveruleikinn í USA og víðar
- Financial Times ft.com viðskiptafréttir
- BBC News BBC fréttavefur
- AFP fréttir AFP fréttaþjónustan
- Reuters fréttir Reuters fréttaþjónustan
- Sky News Sky fréttaþjónustan
- Ritlist Önnu Heiðu Anna Heiða Pálsdóttir systir ÍP
- Sissú myndlist Sissú systir, myndlistarmaður og arkítekt
Banka/krónu blogg
Blogg mín um krónu og bankamál
- Fall Íslands, upphafsgrein Varnaðarorð um hagkerfið
- Hver borgar vextina? Hvaða aðilar eru að borga háu vextina?
- 30.000 krónur á mínútu allt árið Valréttarsamningar bankastjóra
- 2006 gaf þeim 3 milljarða Valréttarsamningar bankastjóra Kaupþings
- Háa vexti og framkvæmdaleysi Seðlabankinn lækkar ekki stýrivexti
- Augljóst hvert Moodys stefnir Mat Moody's á íslenskum bönkum
- Enn of örlátt, segja Bretar Íslenskir bankar of áhættuglaðir
- 628 milljarðar. Bilun. Íslenska krónan og vaxtamunarviðskiptin
- Vextir lækka ekki Seðlabankinn heldur stýrivöxtum háum
- Stöðugt ástand? Íslenskir bankar vanmeta ástandið
- Nóg komið af Jenum? Kaupþing ofl taka stór Jenalán
- Allir bankar ánægðir Háir stýrivextir og vaxtamunaverslun kæta
- Bankadómínókubbar Keðjuverkun hafin, fall í kerfinu
- Áhættuflótti heimsmarkaðar hefst fyrir alvöru Vaxtamunarverslun fellur og Jenið rís
- 6% fall krónu er góð byrjun Fall krónunnar hefst
- 10% gengisfall veldur verðbólgu Gengisfellingin nær 10%
- Eru veð bankanna traust? Veð ýmissa bréfa til umhugsunar
- Staðfest hvað stýrir krónunni Gjaldeyrisspekúlantar ráða gengi krónu
- Efnahagsmál af viti Umræður um efnahagsmál á malefnin.com
- Upphaf afleiðinga Afleiðingar hávaxtastefnu hefjast
- Greinasafn um banka og krónu Samantekt greina um banka og krónu
- Meira af Matadorpeningum! Seðlabankar dæla inn lausafé
- Áhættuflóttinn heldur áfram, en þó! Áættuflótti fyrst, en snerist við
- Federal Reserve sneri öllu við BNA seðlabanki lækkar vexti
- Davíð bregst bogalistin Seðlabanki með háa vexti, á móti Evru
- Jenið sækir aðeins á USD fellur, Jen rís, hlutabréf lækka
- Jenið og Ísland eru nátengd Tengsl Jens og Íslands skýrð
- Kaupþings- Klemman Vítahringur Vaxtamunarferlisins
- Japan 0, Ísland 1 Japan heldur stýrivöxtum
- Krónur, skuldir og verðlaus bréf Stýrivextir hækka, USA fer niður
- Sígandi markaður? Markaðurinn niður (en hikstandi)
- Veð íslenskra banka? Hve traust er staða bankanna?
- Bankar í afneitun Bankar telja sig stikkfrí
- Allt að 40% af fyrra markaðsvirði Exista og Kaupþing falla mikið
- Ekki batnar það Verðfall bréfa heldur áfram
- Billjón á 3 mánuðum? Frá 15 10 2007 fall um 1 billjón
- 200 milljónir á mínútu Fyrstu 5 daga 2008 fall 200M á mín
- Jen styrkist, íslenskir bankar veikjast Vaxtamunarverslun minnkar
- Fallið er ekki kauptækifæri Fall markaðar Íslands og heimsins
- Kaupþing 55%, Exista 32,8%, SPRON 32,5% Verðfall hlutabréfa frá tindi 2007
- Skítt með alla skynsemi ÍP keypti hlutabréf í Straumi
- Svindl og hrun haldast í hendur Svindl í SocGen og fall markaða
- Kaup-Thing lagið Lagið Wild Thing stílfært við Kaupþing
- Þreyjum Þorrann og Góuna! Fall markaða framlengist um nokkurn tíma
- Stóriðjan kemur til bjargar Útflutningsiðnaður skiptir máli
- Hvílíkir markaðir! Fall markaða er aðeins byrjunin
- Laun þín 2008: mínus 15-17% Gengisfelling IKR er nær samsvarandi launalækkun
- Mínus 500 milljarðar á einni klst.? Gengisfellingin 17/03/2008 byrjaði með 9% falli Jensins
- Allt löngu fyrirséð Fyrirsjáanlegar afleiðingar stefnu Seðlabanka
- Krónubréfum skilað Krónubréfum skilað
- Milljarðatuga munur Milljarðatuga munur
- Hraðbraut til heljar Hraðbraut til heljar
- Framlengt vegna fjölda áskorana Framlengt hjá Seðlabanka
- Bankar úr landi? Ríkið má ekki ábyrgjast skuldir bankanna
- Ársreikningar: veldu aðferð og þeir segja það sem þú vilt Aðferðir í ársreikningum skipta tugmilljarða máli
- Um hvað ætti ég að blogga ef allt þetta gerðist?: Draumar um banka og umhverfismál
- Bankar í verulegum vandræðum? Grein Ragnars Önundarsonar um bankana
- Fallin spýtan Yfirlit yfir þróun efnahagslífsins
- Skuldir Íslendinga snarhækka Jen hækkar skuldir landans
- Þúsundir milljarða í nettóskuldir? Þúsundir milljarða í nettóskuldir?
- Íslenskir bankar? Íslenskir bankar?
- Krónan veikust 25-26. dag síðasta ársfjórðungsmánaðar Krónan veikust 25-26. dag síðasta ársfjórðungsmánaðar
- Glitnir nú, en fasteignir ofl. síðar Glitnir nú, en fasteignir ofl. síðar
- Stýrivextir stefna í lækkun Stýrivextir stefna í lækkun
- Örþrifaráð og Matadorkrónur Örþrifaráð og Matadorkrónur
- Vaxtamunarverslunin drapst Vaxtamunarverslunin drapst
- Gjaldeyrisskortur og handstýrt gengi? Gjaldeyrisskortur og handstýrt gengi?
- Fljótt, fljótt, gjaldeyrir á 20% afslætti! Fljótt, fljótt, gjaldeyrir á 20% afslætti!
- Ástæður Rússalánsins Ástæður Rússalánsins
- Við neitum að borga Við neitum að borga
- Nokkrar jákvæðar hliðar mótlætisins Nokkrar jákvæðar hliðar mótlætisins
- Er gagnsæi Samfylkingar yfirleitt til? Er gagnsæi Samfylkingar yfirleitt til?
- Samúræjabréf falla. IMF leiðin er ófær Samúræjabréf falla. IMF leiðin er ófær
- Vegurinn til Vítis Vegurinn til Vítis
- Ríkið fer beint í snöruna Ríkið fer beint í snöruna
- Noregur og Ísland, hvort fyrir annað Noregur og Ísland, hvort fyrir annað
- Skuldir Íslands snarhækka Skuldir Íslands snarhækka
- Skyldulesning: Börgólfur Guðmundsson Skyldulesning: Börgólfur Guðmundsson
- 29,2% verðbólguhraði 29,2% verðbólguhraði
- Lánin borg hringavitleysuna Lánin borg hringavitleysuna
- Einn banki á dag gerður upp Einn banki á dag gerður upp
- Lánin yfir í fallandi krónur Lánin yfir í fallandi krónur
- Þjóðverjar spöruðu, Íslendingar eyddu Þjóðverjar spöruðu, Íslendingar eyddu
- Reglur IMF: réttur hinna sterku Reglur IMF: réttur hinna sterku
- Heildarlántaka 1000 milljarðar króna? Heildarlántaka 1000 milljarðar króna?
- Allt er bannað nema það sé leyft sérstaklega Allt er bannað nema það sé leyft sérstaklega
- Evran upp um 50% á 3 mánuðum Evran upp um 50% á 3 mánuðum
- Öryggi fjárins finnst ekki hér á landi Öryggi fjárins finnst ekki hér á landi
- Fasteignir, kvóti ofl. afhent? Klúður 101 Fasteignir, kvóti ofl. afhent? Klúður 101
- Neyðarlögin framkalla ójafnræði Neyðarlögin framkalla ójafnræði
- Vonlítið að reka fyrirtækin í þessu Vonlítið að reka fyrirtækin í þessu
- WSJ myndband um fall Íslands WSJ myndband um fall Íslands
- Yfirtaka bankanna dregur Ísland niður í svaðið Yfirtaka bankanna dregur Ísland niður í svaðið
- ESB aðild og IMF lán, samt kreppa og óeirðir! ESB aðild og IMF lán, samt kreppa og óeirðir!
- Veikustu hagkerfin verða útundan hjá ESB Veikustu hagkerfin verða útundan hjá ESB
- Falsað gengi til framtíðar? Falsað gengi til framtíðar?
- Björgvin skóp Bretavandræðin Björgvin skóp Bretavandræðin
- Lífeyrissjóðir í hreinu fjárhættuspili Lífeyrissjóðir í hreinu fjárhættuspili
- Enginn þorir að neita Icesave og IMF Enginn þorir að neita Icesave og IMF
- Írland er í ESB með Evru, samt mótmæla 100.000 Írland er í ESB með Evru, samt mótmæla 100.000
- Engin viðskipti, enginn með bein í nefinu Engin viðskipti, enginn með bein í nefinu
- Kreppan kosin burt? Kreppan kosin burt?
- Þjóð í dái Þjóð í dái
- Vondu karlarnir: sjómenn eða ríkið? Vondu karlarnir: sjómenn eða ríkið?
- Sverfur að skattaskjólum? Sverfur að skattaskjólum?
- EKKI skila 2006 styrkjum! EKKI skila 2006 styrkjum!
- Leiðin til þess að lifa þetta af Leiðin til þess að lifa þetta af
- Fjórðungshækkun punds gegn krónu á 38 dögum Fjórðungshækkun punds gegn krónu á 38 dögum
- Sjálfstæðismanneskja Sjálfstæðismanneskja
- ESB- sigur? Tæpast ESB- sigur? Tæpast
- Stýrivextir aukast í 13- földun ECB Stýrivextir aukast í 13- földun ECB
- Vinstri stjórn er eins varanleg og ... Vinstri stjórn er eins varanleg og ...
- Lífeyrissjóðir eru gjarnan rán um hábjartan dag Lífeyrissjóðir eru gjarnan rán um hábjartan dag
- Ríkið ákveði framboð og eftirspurn! Ríkið ákveði framboð og eftirspurn!
- Þjóðaratkvæðagreiðslu um afarsamningana! Þjóðaratkvæðagreiðslu um afarsamningana!
- Hverjir þingmanna gerast landráðamenn í dag? Hverjir þingmanna gerast landráðamenn í dag?
- Örlaganornirnar þrjár: tími Skuldar er kominn! Örlaganornirnar þrjár: tími Skuldar er kominn!
- 35 milljarða hækkun á 2 bankadögum! 35 milljarða hækkun á 2 bankadögum!
- Samfylkingarþingmenn sýni loks ábyrgð Samfylkingarþingmenn sýni loks ábyrgð
- Bara ef þeir hefðu nú farið! Bara ef þeir hefðu nú farið!
- Klýfur varaformaður flokkinn með Icesave og ESB? Klýfur varaformaður flokkinn með Icesave og ESB?
- Með byssuna í hnakkann og bundið fyrir augun Með byssuna í hnakkann og bundið fyrir augun
- Milliríkjadeilan varð að bresku einkaréttarmáli Milliríkjadeilan varð að bresku einkaréttarmáli
- Þýðing Magnúsar Thoroddsen hrl. Þýðing Magnúsar Thoroddsen hrl.
- Ólæs forsætisráðherra Samfylkingar? Ólæs forsætisráðherra Samfylkingar?
- Gjaldeyrishöft: svindlarar í hverju horni? Gjaldeyrishöft: svindlarar í hverju horni?
- Hæstaréttardómari staðfestir afsal Hæstaréttardómari staðfestir afsal
- Staðreyndir um Icesave standa Staðreyndir um Icesave standa
- Frumvarp um Weimar- Ísland Frumvarp um Weimar- Ísland
- Allt sem þú þarft að lesa er komið fram Allt sem þú þarft að lesa er komið fram
- Davíð um ESB- Svía Davíð um ESB- Svía
- Lýðræði í stað sendinefndar með opið tékkahefti Lýðræði í stað sendinefndar með opið tékkahefti
- Ágæti Vinstri- græn kjósandi! Ágæti Vinstri- græn kjósandi!
- Skræfurnar sitja hjá Skræfurnar sitja hjá
- Slepptu biti þínu, Steingrímur J. ! Slepptu biti þínu, Steingrímur J. !
- Ykkur tókst þetta, ESB- konunum! Ykkur tókst þetta, ESB- konunum!
- Lausn vandræðanna er fundin! Lausn vandræðanna er fundin!
- Bakland stjórnarinnar farið og tálsýnin er úti Bakland stjórnarinnar farið og tálsýnin er úti
- Bretar örvæntu 6. okt. 2008 Bretar örvæntu 6. okt. 2008
- Áfram heldur idealisminn ótrauður Áfram heldur idealisminn ótrauður
- Hvenær biðst Jóhanna Sig. afsökunar á þessu? Hvenær biðst Jóhanna Sig. afsökunar á þessu?
- Dýrustu feðgin Íslandssögunnar Dýrustu feðgin Íslandssögunnar Svavar og Svandís
Heimurinn / umhverfið
Umhverfið, mannfjöldi, hernaður ofl.
- Orka Íslands Mikilvægi orkuauðlinda Íslands
- Svifryki spúlað burt Spúla þarf svifryki af götunum
- Hrikalegt á að horfa Darfúr í Súdan frá Google Earth
- Koltvísýringslosun er ekki kosningamál CO2 magn er ekki kosningamál núna
- Hernaður kostar sitt Kostnaður hernaðar, aðallega BNA
- Svona er heimurinn (like it or not) Mannfjöldaaukning ræður orkuframleiðslu
- Þversögn vaxtarins Mannfjölgun og vöxtur þróunarríkja
- CO2 kvótamarkaður er martröð í mótun Upphaf CO2 kvótamarkaðar heims
- Grænland er of heitt! ESB á að kæla Grænland!
- Kókaínfundir og Ingibjörg Sólrún Afríkuríkin heilla ISG
- Heilaþvotturinn mikli, al-gor Heill dagur af heilaþvætti Al Gores
- Heimsvelgjan nær ekki suður úr Kólnun suðurfrá, ekki hitnun
- Út úr afríku! Vandamál Afríku eru hennar eigin smíði
- Grikkland brennur Eldar flæða um Grikkland
- CO2 kvótinn er verri en hinn kvótinn Ásjóna kolefniskvótans kemur í ljós
- Hálf- fréttir eru slappar Listi yfir 10 menguðustu borgir jarðar
- Tíu Ís-lönd hurfu sl. ár Norðurpóllin er að hverfa
- Varanlegt Mynd ÍP af pýramída, hugleiðingar
- Stærstu kvótaþegar jarðar Skipting CO2 kvóta á Íslandi og víðar
- Skömmtunarárin og haftapólitíkin endurvakin Íslensk CO2 úthlutun lítl. Ráðherraskömmtun.
- Minni kjarnorka þýðir meira af kolum og olíu Kjarnorkuveri í N- Nóreu lokað
- Vaclav Klaus: Hvort er í hættu, frelsið eða loftslagið? Vaclav Klaus, forseti Tékklands
- Sannfærð(ur)? Taktu prófið Tíu spurningar um loftslagsmál
- Löngu- Skerjafjörður Löngusker í Skerjafirði, mynd og hugleiðing
- Þróunaraðstoð fer til stríðsrekstrar Þróunaraðstoð til Afríku verður ekki skilvirk
- Al Gore og Dalai Lama? Listi yfir ýmsa friðarverðlaunahafa Nóbels
- Besta auglýsing í heimi Al Gore tekst vel upp með kvótabraskið
- 100 til 150 ár, segir SÞ- nefndin IPCC segir CO2 jafnast eftir 100-150 ár
- Klórblöndum ekki tæra vatnið okkar Ekki Evrópureglur um neysluvatn
- Þórunn mun klúðra samningsstöðu Íslands Umhverfisráðherra vill lítinn CO2 kvóta
- Góði Geir Vísa til Geirs um loftslagsmálin
- Rangt hjá Ingibjörgu Sólrúnu ISG segir enga samninga í gangi
- Hagavatnssvæðið í myndum Hagavatn virkjað? Myndir.
- Þróunarlaus aðstoð Þróunaraðstoð til óþurftar
- Bláfjöllin vakna Snjórinn kemur í Bláfjöllin
- BNA Íslandi til bjargar BNA neitar að samþykkja á Balí
- Látum okkur ekki blæða út á Balí Semjum ekki af okkur á Balí- ráðstefnunni
- Annars hugar á Balí Anna og Hugi frá Íslandi á Balí
- Ánægjulegt árangursleysi á Balí Óræð niðurstaða á Balí
- Lokasetning á Balí Lofstlagsráðstefnu á Balí lokið
- Á nöglum í rokinu Naglar borga sig í roki á svelli
- Áramótabrennum frestað? Líklegt að fresta þurfi áramótabrennum
- Átök orðin að stríði Sri Lanka eftirlitssveitir burt
- Nótum þess Vatnið á Íslandi, heitt og kalt er frábært
- Hungraður heimur, óvart Framleiðsla lífefnaeldsneytis veldur hungri
- Fórnarkostnaður stjórnarinnar Þórunn umhverfisráðherra er Wildcard
- ESB viðurkennir mistök í umhverfisstefnu ESB breytir um stefnu vegna etanóls
- Grænland kólnar! Kaldur vetur á Grænlandi
- Bláfjöll: Ráðningar gleymdust! Rekstur Bláfjalla í molum
- Ófriðareftirlit og spillingarstyrkir ISG og friðareftirlit
- Bláfjöll: Nú kastar tólfunum! Ástandið í Bláfjöllum versnar
- Bláfjallaklúðrið nær hámarki 10.000 manns í Bláfjöllum en lélegt
- Líf í frostinu Líf í frostinu
- Stóriðjan kemur til bjargar Stóriðjan kemur til bjargar
- Endurnýting hvala Endurnýting hvala
- Veturinn er bestur Veturinn er bestur
- Skattlagning í nafni kvenna Skattlagning í nafni kvenna
- Þórunn á bremsunni Þórunn á bremsunni. Umhverfisráðherra heftir för
- Gorhugsun um Hinn máttuga mann Gorhugsun um Hinn máttuga mann. Lýsingar Gores
- Veitum framúrskarandi forystu Íslendingar veita framúrskarandi forystu skv. Gore
- Gore er ræðusnillingur Gore er ræðusnillingur en fer með rangan málstað
- Lögregla gegn umhverfissinnum Lögreglan í Brussel tekur á umhverfissinnum
- Dýr er hver Bitru- túristinn Dýr er hver Bitru- túristinn fyrst að hætt er við Bitruvirkjun
- Hver tekur af skarið? Hver tekur af skarið í borginni? Erfitt í flokknum
- Virkjum og eflum alla dáð Virkjum og eflum alla dáð. Bitruvirkjun ofl til bjargar
- Skjálftakort og töflur Skjálftakort og töflur v Suðurlandsskjálftans maí 2008
- Vopnum safnað Vopnum safnað. ISG og Rice ræða málin
- Frægasti Íslendingurinn níðir Ísland Frægasti Íslendingurinn níðir Ísland. Björk ófrægir landann
- Buddan talar Þórunn umhverfisráðherra semur af sér
- Hekla er flott Ferðalýsing á Heklu með myndum
- Afleitar afleiddar afleiðingar afglapa Afleiðingar aðgerða í loftslagsmálum
- 5000 kr. á mann, bara fyrir Laugaveg 4 og 6 Borgin greiddi ofurverð fyrir skúrarusl
- Vedurpár- vídeó Veðurþáttaspá vedur.is útskýrð
- Engir samningar um loftslagsmál Fylkingar G8 og G5 eiga sér misjöfn takmörk
- ISG í herráð heimsins Utanríkisráðherra vill komast í Öryggisráð SÞ
- Yfir Skeiðarárjökul Ferðalýsing frá Grænalóni yfir Skeiðarárjökul
- Hækkum orkuverð Selja orkuna dýrt og gæta skattanna
- Þróunaraðstoð á tilvistarkreppufundi Þróunaraðstoð heimsins er í krísu
- Sóunarsamvinnu að ljúka? Sóunarsamvinnu að ljúka?
- Loftslags- réttlæti strax! Loftslags- réttlæti strax!
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.2.): 2
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 106
- Frá upphafi: 871688
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 24
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
2024
2023
2022
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
stefanbjarnason
-
hannesgi
-
businessreport
-
askja
-
martagudjonsdottir
-
agbjarn
-
geiragustsson
-
gustaf
-
vey
-
frjalshyggjufelagid
-
tilveran-i-esb
-
gammon
-
sigsig
-
omarragnarsson
-
raksig
-
halldorjonsson
-
vinaminni
-
samstada-thjodar
-
draumur
-
magnusjonasson
-
frisk
-
jonaa
-
apalsson
-
skodunmin
-
arnim
-
gullvagninn
-
altice
-
fannarh
-
gun
-
oliatlason
-
bjarnihardar
-
nilli
-
davido
-
svanurmd
-
steinisv
-
johanneliasson
-
hagbardur
-
arh
-
zumann
-
doggpals
-
jonvalurjensson
-
dofri
-
katrinsnaeholm
-
seinars
-
kari-hardarson
-
fredrik
-
valli57
-
tibsen
-
kisabella
-
tbs
-
astroblog
-
maeglika
-
himmalingur
-
skulablogg
-
arnih
-
ingagm
-
ahi
-
mullis
-
krissi46
-
vefritid
-
gauisig
-
bryndisisfold
-
brandarar
-
nerdumdigitalis
-
svartagall
-
siggith
-
klarak
-
jennystefania
-
lax
-
unnurgkr
-
vilhjalmurarnason
-
gattin
-
kruttina
-
rynir
-
heidistrand
-
thorhallurheimisson
-
duddi9
-
kristjan9
-
haddi9001
-
bofs
-
thjodarheidur
-
theodorn
-
lucas
-
benediktae
-
iceland
-
fun
-
diva73
-
zeriaph
-
tharfagreinir
-
bjarnimax
-
fullvalda
-
sigurjons
-
sissupals
-
davpal
-
friggi
-
ketilas08
-
valdimarjohannesson
-
gerdurpalma112
-
andres08
-
krist
-
fjarki
-
tik
-
palmig
-
rustikus
-
vestskafttenor
-
gummibraga
-
svansson
-
geirfz
-
fhg
-
stjornlagathing
-
loftslag
-
jonmagnusson