Þriðjudag 23/7 kl. 15:00

2013 07 23 kl15 hitaspa

Örlítil von um hita annars staðar en aðeins fyrir norðan og austan er nk. þriðjudag kl. 15:00. Að vísu er skýjahula sunnanlands! Sjáið kortin hér til hliðar frá vedur.is.

En hálendið er flott þá. 

 


mbl.is Hiti fór í 26,4 stig í Ásbyrgi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lítill tími eftir til breytinga

BlaRos HD wallpaper

Viðtalið við Þorbjörgu Helgu bendir á þá staðreynd að sumir núverandi borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins tala ekki fyrir flokkinn sem heild og raunar þvert á stefnu flokksins í mörgum málum. Verulega þarf að skerpa áherslurnar ef takast á að fella núverandi skrípa- borgarstjórn í næstu kosningum. Þorbjörg Helga vill verða borgarstjóri, en ekki er hægt að kjósa hana, Gísla Martein eða Áslaugu Friðriksdóttur, sem öll vilja flugvöllinn burt í trássi við afgerandi samþykkt landsfundar Sjálfstæðisflokksins.

Andstætt Landsfundi

Borgarfulltrúar flokksins, Júlíus Vífill Ingvarsson og Kjartan Magnússon tala vel fyrir Sjálfstæðisflokkinn eins og hann er, á meðan helst Gísli Marteinn Baldursson berst gegn flugvellinum, bílanotkun og bílastæðum, ásamt því að styðja hverja Samfylkingar-Bestaflokks- tillöguna á fætur annarri, allt í anda 101- Skandinavíu- draumsins þeirra.

Hver til bjargar? 

Blue splash

Vonandi hreinsast loftið almennilega vel fyrir prófkjör, þannig að hver frambjóðandi standi fyrir sínu og víkist ekki fimlega undan því að svara í Gnarr- stíl um hvert alvörumálið á fætur öðru. Engin leið er til þess að núverandi klofinn borgarstjórnarflokkur Sjálfstæðisflokksins nái einhverju kjörgengi þar af viti á næsta ári að óbreyttu. Ætli verði kallað á slökkviliðið góða, Framsóknarflokkinn, til bjargar eins og tókst svo vel í landsmálunum? Eitthvað verður að gera.


mbl.is Viðtalið við Þorbjörgu dapurlegt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú kætist kolefnisfólkið

Iceland Tindfjoll IP PNG

Kaldara veðurfar hlýtur að teljast áfangasigur fyrir kolefnisfólkið, sem berst gegn heitari heimi með skattlagningu á samgöngur Íslendinga og höftum á fjölmörgum framfarasviðum. Ætli verði ekki skálað í flötu (kolsýrulausu) kampavíni á gröf íslenska sóldýrkandans? Með mótvægisaðgerðum í kolefnislosun tekst kannski að forða Íslandi frá því að hlýna jafn mikið og á landnámstímanum, sem gerði landnámið fært?

Maður getur rétt ímyndað sér partíin sem þau halda (með stafla af reiðhjólum fyrir utan) ef við fáum síðan hafísvetur eins og árið 1968. 


mbl.is Mánaðarrigning á tveimur vikum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ESB til varnar Íslandi?

Makrill

ESB kemur náttúrulega til varnar smáþjóðinni Íslandi gagnvart Írlandi vegna makrílsins og leiðrétta þennan misskilning Íra, sem krefjast refsiaðgerða gegn Íslandi! ESB hefur jú allar tölur um breytt hátterni makrílsins hjá sér og getur varla látið Íra halda að Ísland megi bara veiða 3% kvótans, þegar við tökum 17% núna og ættum að taka 27% miðað við þroska makrílsins innan íslenskrar landhelgi.  

ESB- sinnar láta gjarnan eins og að samningsvilja Íslendinga skorti eða gera lítið úr þessu mikilvæga milljarða- og auðlindastýringarmáli Íslands. En smám saman skilur fólk að hér er um grundvallarmál að ræða, hver á kvótann og hvert hann fer. Einhver þarf að skýra mál Íslands í fjölmiðlum ytra. Ætli forsetinn sé til í aðra rispu?


mbl.is Vill að ESB „sýni tennurnar“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

XD er 78% hærri en XB

Ríkisstjórnin mælist vinsælli en áður og Sjálfstæðisflokkurinn lang- sterkastur, með 78% meira fylgi en Framsóknarflokkurinn. Skýr andstaða við ESB fór vel með Sjálfstæðisflokkinn, einnig önnur stefnumál hans. Því þarf enginn að velkjast í vafa um það að hann sé á réttri braut, enda líkar fólki það hvernig Bjarni og Sigmundur Davíð vinna sem teymi. Allt tal um að víkja frá yfirlýstri stefnu flokksins er hjal eitt. 


mbl.is Sjálfstæðisflokkur með 29,7% fylgi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bílfjendur með borg í herkví

Reykjavik engir bilar

Bílfjendum Besta flokksins og Gísla Marteins hefur gengið vel nýlega að halda venjulegum Íslendingum frá miðborginni sinni og að gera stúdentum eða öðrum bíleigendum ómögulegt að lifa þrautalitlu lífi, allt með rammsósíalískum kennisetningum um það hvernig þau vilja að við hin högum lífi okkar. Þess í stað ættu þau að muna til hvers einhver okkar kusu þau í bríarí, til þess að vera almenningi til aðstoðar með það sem best fer að sé á einni sameiginlegri hendi, sem er raunar ansi fátt.

Enginn í bæinn 

Lokun helstu viðskiptagatna miðborgar og almenn andstaða við aðkomu bíla lætur íslenskan almenning gefast upp á því að reyna að njóta staðarins og rennir því beint í mollin. Síðan er hitt fólkið spurt, sem líkar þessi stefna og er á staðnum, hvort þeim líki þessi stefna! Maður getur nú ímyndað sér svörin. Á að spyrja fólk á útihátíð hvort þeim líki útihátíðir?

Hverjir mæta? 

Miðbærinn er fullur af söddum farþegum lystiskipa í gluggainnkaupum í þrjá mánuði á ári, á meðan meðalmanninum er haldið frá því að skreppa niður í bæ, bara að gamni. Hann þarf að hafa einbeittan vilja til þess og nóg af tíma, sem fæstir hafa.

Stæðin burt 

Bílfjendastefnan heggur þó dýpst hjá stúdentum núna, þegar mörg hundruð einföld malar- bílastæði eru tekin í burtu í þarfleysi og stefnan er að rukka fjárvana fólk fyrir það að búa þar sem íbúðir eru ódýrastar, lengst í burtu.

Skipulagsleysi 

Aðalskipulag Reykjavíkurborgar liggur fyrir til samþykktar, en er yfirfullt að hörmungum eins og flugvallarleysi og bílaleysi, að fólk verður að berjast gegn því strax. Látum drauminn um skilvirkt, öruggt og þægilegt líf rætast, í stað þessarar skandinavísku- tilraunar martraðar.

Fjögur ár af tilraunastarfsemi á landsvísu var alltof langur tími. Stöðvum þessa „skemmtilegu“ vitleysu strax.


mbl.is Gengið um regnvotar sumargötur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Óskýrir kostir í þjóðaratkvæði

Ja eda nei

Ef veiðigjaldafrumvarpið færi í þjóðaratkvæði yrðu kostirnir ansi óskýrir: annars vegar yrðu nær engin veiðigjöld kvótaárið 2013-2014 en hins vegar allt of há. Ómögulegt er að setja það í þjóðaratkvæði, þar sem niðurstaðan segði ekki neitt, vilji kjósandans kemur ekki endilega fram. Flestir vilja hófleg veiðigjöld, en Samfylkingin með dýra snilldarráðgjafann Árna Pál Árnason vill reyna að troða ósanngirni sinni áfram upp á fjöldann sem hafnaði henni og lausnum hennar.

Með því að stilla fólki upp við vegg núna, já eða nei við ofurálögum eða skattleysi, þá tækist vinstri leifunum að klúðra eðlilegri stjórnsýslu enn eina ferðina. Forsetinn þarf enn einu sinni að taka á vitleysu þeirra og snúa hana niður. Facebook- mennskan má ekki ráða lögum og lofum. 


mbl.is „Frjálst val“ forsetans
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Refir og mávar ráða ríkjum

Rebbi

Sunnudagsbíltúr um Suðurnes var skemmtilegur í rigningunni í fyrradag. Ég tók myndir af forvitnum ref nálægt Höfnum og tók eftir mávageri á tjörnum skagans en fáum ungum. Erfitt er að horfa upp á nær óheftan uppgang refs og máva á kostnað fjölbreytilegs lífríkis. Krían varði sig þó vel, þétt saman í hópum. 

Í Fljótavík á Hornströndum horfði ég eitt sinn á ref athafna sig í u.þ.bþ tíu mínútur, þar sem hann kembdi stærðar- svæði skipulega í leit að eggjum og ungum.

Við byggðina í Reykjarfirði nyrðri á Hornströndum var refurinn ágjarn, en fuglategundir komust upp í skjóli kríunnar og bóndinn vaktaði svæðið með riffli.

Í Skerjafirði horfi ég daglega á máva vakta unga æðarfuglsins, þar sem ekkert má útaf bregða. Þó er það barnaleikur á við mávagerið á tjörninni, sem óhindrað plagar alla aðra íbúa hennar í boði Jóns Gnarr.

Viðhöldum fjölbreytileika fuglalífsins á Íslandi og höldum ref og mávum á skefjum. 

Smellið þrisvar á mynd fyrir fulla upplausn. 

Refur fox Hafnir IP2013

Undið ofan af fyrri verkum

Hrefna Minke

Nú færir ráðherra mörk hrefnuveiða í Faxaflóa til fyrra horfs. En rækjuveiðibann Steingríms J. ætti líka að draga til baka ef vel á að vera. Það skiptir heilu byggðirnar máli og er byggt á afar hæpnum forsendum. Vonandi ber ráðherra gæfu til þess að leyfa rækjuveiðina strax, á meðan hægt er.

Hvar er hún? 

Aftur að hrefnunni á Faxaflóa, þá er erfitt fyrir okkur leikmenn að sjá hvað rétt er.  Hvalaskoðunar- bátarnir ættu ekki að þurfa að sigla alltof langt og hrefnuveiðimönnum er ekki vorkunn að sigla lengra þótt það þýði vaktafyrirkomulag og kostnað, en hrefnan verður þá náttúrulega að vera þar ytra, sem ekki er alveg ljóst. Varla þýðir að veiða hana þar sem hún er tæpast.

Komin í þorskinn? 

Svo er hitt, ef hrefnan er þegar búin að breyta mataræði sínu mikið yfir í þorsk og ýsu, er þá ekki varhugavert að friða hana á svæðum innan Faxaflóa? Einhverjir verða að halda henni í skefjum á svæðinu. Þá er þetta magnspurning.

Bönn Steingríms J. 

En allsherjarbönn Steingríms J., hvort sem það er í rækju eða hrefnu, eru til óþurftar og virðast gerð til þess að fóstra ákveðna hugmyndafræði en ekki að bregðast rétt við aðstæðum.


mbl.is Bannsvæði hvalveiða breytt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Slegið á frest

Njoli Turid123

Sláttumaðurinn mikli, Jón Gnarr, stýrir þeim málum af sömu festu og fyrr, en nú er það rigning sem er nýja auma afsökunin fyrir illgresisborg Besta flokksins. Að vísu hélt ég að það rigndi jafn mikið á suma bletti og aðra, því að borgararnir slá bletti sína, en ekki borgin. Ég slæ raunar fyrir borgina meðfram sjávarstígnum heima síðustu árin, þar sem borgin hleypir því öllu upp í fífla og njóla og sést ekki í maí og júní þegar mest sprettur af stað. 

 er svo komið að illgresisplöntur jafnháar litlum börnum blómstra jafnvel á umferðareyjum við gangbrautarljós eins og á Suðurgötu við Hjarðarhaga, þar sem skert útsýni er orðið hættulegt. Sláttuorfin virka fullvel í rakanum, en borgin vill ekki beita unga fólkinu lengur í þessi störf á fullu.

Eflaust er verið að samræma atvinnuleysistölur ungs fólks við Evrópusambandið. Við verðum víst að aðlagast þeirra tölum og koma unga fólkinu upp fyrir 50% í atvinnuleysi!


mbl.is „Eins og ekkert hafi verið slegið“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hverjir eiga að bjarga hverjum?

Hagstofan Skuldir aldur

Við lestur Hagtíðinda Hagstofunnar vakna ýmsar spurningar um grundvallaratriði sósíalismans. Á aldrað eignafólk að greiða háskuldugum barnafjölskyldum á helsta tekjualdri milljarða? Ef ekki, hver á þá að greiða þeim? Ekki eru það eigna- og tekjulitlir einstaklingar. 

Fé frá öldruðum? 

Ef svarið er það að peningarnir til skuldajöfnunar komi frá niðurfærslum bankaskulda hrunsins, þá er féð líklega tekið helst frá lífeyrissjóðum (fyrir utan aðaleigendurna, vogunarsjóðina). Aftur er þá vegið að öldruðum. Það er sama fólkið og horfði upp á sparifé sitt verða að engu í 80's óðaverðbólgunni. 

Eignatilfærslur til skuldara 

Hagstofan eiginfe aldur

Eignatilfærslur ríkisins frá einum hópi til annars verða aldrei sanngjarnar. Annars er ekki hægt að fara eftir meginreglum efnahagslífsins, að sparnaður og varfærni séu til góðs, heldur eigi bara að taka sénsinn, hreinsa út úr eldhúsinu í fyrstu íbúðinni og flytja bara inn þegar allt er klárt fyrir Hús og híbýli. Þessar eignatilfærslur verða einungis til þess að auka misklíð á milli hópa í samfélaginu í anda Jóhönnu og Steingríms J., sem einhverjir muna kannski enn eftir.

Léttum þeim róðurinn 

Höldum friðinn, lækkum skatta og álögur og gerum þessum helstu skuldahópum, barnafjölskyldum, lífið léttara á sem flestan hátt, en ekki með því að taka fé frá þeim sem náðu að safna einhverju út lífið, þrátt fyrir verðbólgusprengjur og mistækar vinstri stjórnir í gegn um tíðina.

Hagstofan eignir aldur

 

Smellið þrisvar á línurit fyrir fulla stærð.

 

 

 


mbl.is 10% fjölskyldna eiga 41% af skuldunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ESB reiknar fólk í vinnu

ESB USA Japan atvleysiSamkvæmt reiknimeisturum ESB væsir víst ekki um 26 milljón atvinnulausa ESB búa ef fríverslunar- samningurinn við Bandaríkin gengur eftir. Þá fengju Íslendingar þar heil 1000 störf ef þeir væru í ESB. En spurningar vakna: Hvar voru þessir reiknisnillingar áður en tölurnar urðu svona háar? Af hverju reiknuðu þeir ekki störf fyrir 55% ungmenna á Spáni? Eða 58% í Grikklandi?

USA með atvinnu 

Línuritin hér sýna það hvernig atvinnuleysi í Bandaríkjunum hefur snarlækkað á meðan ESB og sérstaklega Evrulönd hækka hratt í atvinnuleysisstigi. Samkeppnisfærni í USA hefur samt aukist til muna og framleiðni þar með. Ef spámenn ESB telja að fríverslunarsamningarnir skapi mikla vinnu við framleiðlu vara til USA  og ræni aðallega störfum frá Japönum, þá líta þeir vísvitandi  í burtu þegar grundvallaratriði viðskipta spila inn, t.d. samkeppni annarra eins og Japana og Kínverja. Bandaríkjamenn hafa líka sömu væntingar um að dæla vörum til Evrópu. Línuritin sýna glöggt hvert stefnir í atvinnumálum Evrópu og þar getur hugsanlegur USA samningur ekki kúvent álfunni til betri vegar.

Verndað ESB á hausnum 

ESB atvleysi ungmenna 2013 04

Svo má ekki gleyma tekjuhliðinni, en Evrópa er á hausnum og myndi missa tímabundið af tollum og gjöldum, en fá samkeppni inn á ýmsum vernduðum sviðum sem gætu lækkað sumar tegundir verulega. En svona fríverslunarsamningar eru hið besta mál, bara ekki endilega fyrir kerfiskarla í Brussel með reiknivélina sína.

Eigum við ekki að reikna út hve mikið atvinnuleysi við höfum losnað við vegna þess að við höfum verið utan ESB svo lengi?

ESB atvinnuleysi 2013 04

 


mbl.is Kann að kosta Ísland þúsund störf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

17. júní endurheimtur

Jon Sigurdsson 17 juni

Loksins er fagnandi frelsinu á 17. júní. Síðustu árin var jafnan vegið að sjálfstæðinu á þessum tíma. Sá miltisbrandur getur alltaf tekið sig upp aftur og því er gott að vera minntur á sjálfstæði Íslands á 17. júní, en ekki það hvernig grafa skal undan því á æðstu stöðum. Verst var að fyrri stjórnvöld hentu inn lagabreytingu um stjórnarskrána á sínum síðustu dögum, sem þarf þá að fara í vinnu við að ógilda.

Loksins er hægt að syngja Hæ, hó, jibbíjei og jibbíjei, það er kominn sautjándi júní.

Samfylkingu og Besta flokknum finnst ekki ástæða til að fólk dansi fram á nótt, þannig að hátíðahöldum er látið linna um kvöldmatinn, þegar þau ættu yfirleitt að vera að hefjast hjá unga fólkinu, framtíð Íslands, sem lætur sér annt um sjálfstæði þjóðarinnar. Tímasetningin er líklega eftir ESB-staðli !


mbl.is Evrópusambandið þarf að sanna sig
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Svandís er orsök vandans

Hydro Turbine

Svandís Svavarsdóttir, síðasti umhverfisráðherrann, olli m.a. vanda með varmaorkuna, þar sem hún samþykkt ekki vatnsaflsvirkjanir í Neðri- Þjórsá sem fyrir lágu og þá færðist álagið meir á gufuaflsvirkjanir. Orkumagn þeirra er óvissarra en vatnsorkunnar. Gufuaflið sleppir einmitt líka þeirri vatnsgufu sem hópur Svandísar hræðist mest, með koltvísýringi, þótt seint geti sá hluti kallast mengun.

Nýtum vatnsaflið 

Skilvirkni vatnsaflsvirkjana er alþekkt, en ekki fyrir Svandísi & Co., sem sjá ekki alvarlegar afleiðingar haftastefnu sinnar fyrr en allt er orðið of seint. Þeim Steingrími tókst að fæla Google og Microsoft frá landinu og sérstaklega ætlunarverk sitt, að Helguvíkur- framkvæmdirnar fengju að bíða árum saman, þar sem átti að framleiða ál fyrir vondu karlana. Vonandi tekst að koma Neðri- Þjórsá í rétta áætlun aftur fljótlega. Gufuaflsvirkjanir munu sveiflast til, líka eftir jarðhræringum ýmiss konar, holur opnast og lokast. En Þjórsá flæðir sem aldrei fyrr, m.a. vegna blessaðs hitnandi veðurfarsins.

Nýtum tímann 

Nýtum það vatnsafl til stórvirkja í friði og spekt eins og samþykktar áætlanir höfðu gert ráð fyrir áður en þær lentu í læstu skúffunni hennar Svandísar. Nýtum jarðhitann í nágrenni Reykjavíkur helst fyrir borgina, svo að áfram verði ljúft að búa þar, þrátt fyrir borgar-óstjórann. En aðallega, nýtum tímann meðan vinstri haftaöflin eru fjarri stjórnataumunum, þannig að undið verði ofan af þeim vandræðum sem þau skópu.


mbl.is Allt gert í sátt við náttúru
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Brandari framtíðar

ESB sammala
Enn finnast Evru- hrunsinnar eins og Guðmundur Steingrímsson, sem tala  fyrir þann hluta þjóðarinnar sem les bara Fréttablaðið og hlustar á RÚV:  „...margir teldu að þjóðin myndi njóta góðs af því að taka upp Evru sem gjaldmiðil, þ.e. að taka upp stöðugri gjaldmiðil.“!
 
Heldur einhver virkilega að þjóðin gæti tekið upp Evru: gengið í ESB, uppfyllt Maastricht, verði samþykkt sem Evruland með bankasamruna, fjárhagslegan samruna og jafnvel pólitískan, tekið á sig skuldir hruninna Suður-Evrópuríkja og yfirleitt afhent yfirstjórn fjármála til Brussel? Eða þá að Evran sé stöðugur gjaldmiðill? Af hverju er þá reynt að bjarga henni? Frá hverju, sjálfri sér?
 
Óraunsæi virtist vera á útleið, en augsýnilega eru einhverjir enn í sínum helli eins og Japani í lok seinni heimstyrjaldar, tilbúinn með byssuna og niðursuðudósirnar sínar, verjandi málstaðinn þar til enda, þótt friður sé löngu kominn á.

mbl.is Tillaga um þjóðaratkvæði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ljóð: Kvikmynd

Kinaraudur kjollÞetta örljóð varð til áðan (sjá ramma) um konu í Kínarauðum kjól.

Ljod IP Kvikmynd

 


mbl.is Ekkert nema aðhaldsföt á rauða dreglinum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Ívar Pálsson
Ívar Pálsson

Viðskiptafræðingur með útflutningsfyrirtæki, en grúskar í flestu.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband