Vandamálaframleiðsla á færibandi

Enginn bill

Nýja línan hjá borgaryfirvöldum er: bílinn burt. Í skipulaginu nú eru íbúðabyggingar sem rúma ekki þann bílafjölda sem þeim fylgir. Þar með skapast vandamál á svæðinu, en þar er núverandi borgarmeirihluti sérfræðingarnir, með aðstoð sumra úr minnihlutanum.

Fyrir utan það að íbúarnir hafa ekki nægilega mörg bílastæði, þá verður þjónusta á jarðhæð sem ekki er hægt að heimsækja, auk þess sem bílastæði þau sem voru fyrir á byggingarstaðnum hverfa. Arkitektar fá þá skipun frá borgarskipulagi að bílastæðum skuli fækkað, án hugsunar um það hvert bílarnir eigi að fara. Götur með bílastæðum eru leystar upp í frumeindir sínar eins og Hofsvallagatan með örfáum stæðum úti á miðri götu á meðal blómakassanna á heimskautsbaugnum.

Bílastæðum stúdenta er fækkað um mörg hundruð, en það dugir ekki til þess að hreyfa við þeim í að andmæla þessarri kúgunarstefnu.

Það hljóta að vera takmörk fyrir því hve mikil vandræði við leyfum þessum mistæku pólitíkusum að skapa langt inn í framtíðina. Andmælum þessari árás á samgönguval okkar hvar sem hún finnst, en aðallega í borgarskipulaginu sem núna liggur fyrir til samþykktar.


mbl.is Hundruð íbúða rísa við gamla Slippinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

þetta er á þeim stað þar sem fólk getur labbað í vinnu

ég starfa í miðbænum og ætla að kaupa mér íbúð á þessum stað og selja bílinn.

Sleggjan og Hvellurinn, 29.8.2013 kl. 08:59

2 Smámynd: Birgir Örn Guðjónsson

En...

Ef ég á ekki heima í 101 ?

Missi ég þá vinnuna ? vinn í 101 núna, bý í Hafnarfirði

Birgir Örn Guðjónsson, 29.8.2013 kl. 09:27

3 Smámynd: Ívar Pálsson

Sleggjan virðist vera fulltrú þeirra fáu fáu sem sækja enga þjónustu út fyrir miðbæinn og vill þá varla að við hin 150.000 manns komum niður í „þeirra“ miðbæ. Þau „ætla“ að selja bílinn, en gaman væri að heyra síðan hvernig þeim líkaði bílleysið, þar sem veturinn er 8 mánuður hér á 64°Norður.

Ívar Pálsson, 29.8.2013 kl. 10:20

4 Smámynd: Ívar Pálsson

Afsakið, það moraði allt í villum, en ekki í efninu sjálfu!

Ívar Pálsson, 29.8.2013 kl. 10:22

5 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Stefnan virðist vera að allir búi þar sem þeir geta gengið eða hjólað til vinnu og hendi bílnum.  Það er svo sem gott og blessað ef hægt er að stýra vinnuaflinu svona.   Ekki nýtt að það sé reynt.

En lífið er ekki bara vinna.  Sama hvert hverfið er. 

Yrði lífið ekki svolítið einhæft ef aldrei væri hægt að skjótast í óvænta kaffiheimsókn til "þeirra gömlu" eða annarra ættingja hér og þar, skreppa í berjamó í Heiðmörk,  Hveragerði á sunnudögum til þess að kaupa ís eða skoða hverina í Krýsuvík?

Kolbrún Hilmars, 29.8.2013 kl. 16:13

6 Smámynd: Ívar Pálsson

Hárrétt hjá þér, Kolbrún.

Ívar Pálsson, 30.8.2013 kl. 23:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ívar Pálsson
Ívar Pálsson

Viðskiptafræðingur með útflutningsfyrirtæki, en grúskar í flestu.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband