Hverfandi kostnaðarvitund hjá borginni

SanFrancisco-Lombard-gataDagur borgarstjóri fer í heimsreisu við þriðja mann til Seoul í S- Kóreu vegna heims- hlýnunar og umhverfis- mála á meðan klóakið er látið flæða lítthindrað í Skerjaförðinn mánuðum saman. Sóleyju Tómasdóttur, formanni Bílanefndar, finnst bráðnauðsynlegt að fara með 7-8 manns frá Bílastæðasjóði til San Fransisco í Bandaríkjunum, þar sem aðrar nefndir á vegum borgarinnar hafa farið í sambærilegar ferðir. „Við erum hluti af alþjóðasamfélagi“ segir Sóley til réttlætingar.

100% hækkun borgar brúsann

Vinstri meirihlutinn í Reykjavík fækkar bílastæðum og tvöfaldar sektargjöldin, sem eru gjarnan 5000-10.000 krónur. Hver er réttlæting aðgerðanna og hvert fer peningurinn? Hann fer t.d. í þessa 13.500 km. ferð þar sem flugið á mann er um 150.000 kr., gisting í 5 daga um 100.000kr og annar kostnaður amk. 50.000 kr. Því er kostnaður amk. um 2,4 milljónir en líklega vel hærri en það. En stúdentinn úr Grafarvogi sem finnur ekki stæði við Háskóla Íslands þar sem búið er að helminga fjölda þeirra, svo að hann leggur upp á gras getur huggað sig við það að andvirði sektar hans og hundraða annarra aðþrengdra borgarbúa fer í að „hrista hópinn saman“ hjá Bílastæðasjóði í sólinni við Kyrrahafið.

Reykjavik-SanFrancisco-kmAðhaldið horfið?

Hvenær var það sem kostnaðarvitund borgaryfirvalda hreinlega hvarf? Borgararnir sameinast um að ráða fólk til þess að sjá um sameiginlega þætti eins og löggæslu, menntun, orkudreifingu, heilsugæslu og sum menningarmál. En einhvers staðar á leiðinni frátengdust yfirvöld uppruna sínum og þessi stærsti vinnuveitandi landsins er orðinn að svartri holu sem sogar til sín fé en drottnar yfir daglegu lífi fólksins sem borgar launin þeirra. Þessi óheillakúrfa fór í veldisaukningu á Gnarr- tímanum sem fóstraði Dag & Co., en þau fara nú með himinskautum á kostnað okkar hinna, sem vonuðu að kostnaði yrði haldið í lágmarki við það sem nauðsynlegt teldist.

Sprungið kerfi

Flest kerfi þenjast út þar til þau springa með hvelli. Þessi Reykjavíkur- blaðra er orðin ansi þunn og útþanin. Hver á títuprjón?


Einn maður, eitt atkvæði

EvroputhingidÁrni Páll vann formannssætið með einu atkvæði umfram keppinautinn. Það er nokkuð kaldhæðnislegt að eitt atkvæði nái að koma honum áfram, því að Árni er með ESB- arminn, en þar eru um 375 milljón manns sem kjósa fulltrúa til Evrópuþingsins. Þar fyndi íslenska atkvæðið virkilega til sín, þar sem allir eru jafnir í ESB!

Veikt umboð

Svona veikt umboð Samfylkingar til Árna Páls bendir til þess að hann verði að huga að vinstri armi flokksins ef hann á að koma málum sínum í gegn. ESB- miðjusinnar eiga því ekki öruggt skjól í Samfylkingunni. Sannarlega fækkar þeim í Sjálfstæðisflokknum, þar sem um 6 ESB vinstri armurslíkir mættu á síðasta ESB- fund í Valhöll. Framsókn fóstrar þá ekki, þannig að tími er til að Þorsteinn Pálsson hætti að kalla sig Sjálfstæðismann og stofni drauma- ESB-flokkinn, sem yrði einu atkvæði til hægri við miðju.

Eitt atkvæði kemst víst ansi langt í ESB- kratapólitík!

 


mbl.is Sigríður í raun sigurvegarinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjálfstæðið og sólmyrkvarnir

Loksins tók ríkisstjórnin af skarið með ESB- umsóknina eftir nær tveggja ára umhugsun. Ég hafði raunar búist við þessu núna þar sem nokkuð sérstök fylgni kom í ljós á milli sólmyrkva og þess hvernig þjóðin skilgreinir sjálfstæði sitt.

Vér mótmælum allir!

Í lok júlí árið 1851 átti þjóðfundurinn sér stað ásamt sólmyrkva. Jóni Sigurðssyni og félögum tókst þar að forða þjóðinni frá innlimun í danska ríkið. En sumarið 1954 (25/5) var gerður samningur við Bandaríkin um veru varnarliðsins á Íslandi, þar sem BNA hafði áður gert ríkar kröfur en var sett undir verulegar takmarkanir þá. Sá sólmyrkvi varð 30/6 1954.

Í júlí árið 2009 vó Jóhanna Sigurðardóttir og Steingrímur J. að sjálfstæðinu með umsókn um inngöngu í Evrópusambandið. Sólmyrkvinn þá var mest úti í löndum enda virkaði hann ekki sem skyldi. 

Næst verður síðan almyrkvi í Reykjavík eftir 11 ár. Við pössum þá upp á sjálfstæðið þá!


mbl.is Sá mesti í 61 ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjálfstæði og sólmyrkvar

SolmyrkviLoksins tók ríkisstjórnin af skarið með ESB- umsóknina eftir nær tveggja ára umhugsun. Ég hafði raunar búist við þessu núna þar sem nokkuð sérstök fylgni kom í ljós á milli sólmyrkva og þess hvernig þjóðin skilgreinir sjálfstæði sitt.

Vér mótmælum allir!

Í lok júlí árið 1851 átti Þjóðfundurinn sér stað ásamt sólmyrkva. Jón Sigurðssyni og félögum tókst þar að forða þjóðinni frá innlimun í danska ríkið. En sumarið 1954 (25/5) var gerður samningur við Bandaríkin um veru varnarliðsins á Íslandi, þar sem BNA hafði áður gert ríkar kröfur en var sett undir verulegar takmarkanir þá. Sá sólmyrkvi varð 30/6 1954.

Í júlí árið 2009 vó Jóhanna Sigurðardóttir og Steingrímur J. að sjálfstæðinu með umsókn um inngöngu í Evrópusambandið. Sólmyrkvinn þá var mest úti í löndum enda má segja að hann hafi ekki virkað sem skyldi hér! 

Næst verður síðan almyrkvi í Reykjavík eftir 11 ár. Við pössum þá upp á sjálfstæðið þá!Thjodfundurinn1851-BÞ-LI

 

 


mbl.is Ísland ekki lengur umsóknarríki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þá er bara Schengen eftir

Innflytjendur MidjardarhafiBjarni Benediktsson og ríkisstjórnin stóðu sig með prýði núna til varnar sjálfstæðinu gegn aðild að ESB. Annað mál er þó eftir, sem enn á sér áhrifamikla stuðningsaðila, en það er aðild Íslands að Schengen- landamærunum. Vandræðin sem af því hljótast eru veruleg, en vinda stöðugt upp á sig þegar ESB sígur á ógæfuhliðina, Arabíska vorið snýst í harðasta vetur og landflutningar vígamanna inn í Evrópusambandið eru daglegt brauð. 

Fylgismenn Schengen hér á landi segja þetta misskilning að við náum ekki að stjórna landamærum okkar almennilega vegna Schengen, en það er enginn misskilningur að 100.000 manns fóru óskráðir inn í ESB um Miðjarðarhafið í fyrra, aðallega frá stríðshrjáðri Afríku og frá Sýrlandi.

Við sofum ella fljótandi að feigðarósi í þessu, styrkjum frekar heimavarnir, styðjum lögreglu og landhelgisgæslu hér heima, þannig að varðskipin okkar nýtist hér en ekki við stuðning á glæpastarfsemi með innflutning flóttamanna.

En ríkisstjórninni þakka ég vel unnið verk.

 


mbl.is „Ekki kúvending á utanríkisstefnu“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kem af fjöllum, afla upplýsinga

GrunlausBorgarstjóri Samfylkingarinnar sendi mér póst í dag þar sem segir vegna fjármögnunar moskunnar: Af fyrstu viðbrögðum að dæma komu allir af fjöllum en ég hef beðið mannréttinda- skrifstofu borgarinnar og borgarritara að afla upplýsinga um málið. Eftir allt sem á hefur gengið vegna moskunnar, þá hefur semsagt hvorki Dagur eða nokkur í kerfinu sem hann stjórnar, stærsta atvinnurekanda á Íslandi, nokkurn grun um það að eitt alræmdasta karlaveldi jarðar borgi fyrir þessa mosku, sem fær lóð á besta stað gefins frá okkur.

Hver á að fást til þess að trúa því að hann væri svo grunlaus? Það útskýrir þá afstöðu þessa Samfylkingarmanns, sem myndi annars ekki fóstra kvennakúgun höfuðvígis Íslamtrúar nema vegna vanþekkingar og grunleysis.

Níðst er á þeim flokkum og persónum sem benda á þessar augljósu staðreyndir, en Samfylkingin heldur áfram að vera baráttuflokkurinn fyrir innflutningi og dreifingu Islamstrúar á Íslandi, sem grefur undan kvenréttinda- og mannréttindabaráttu síðastliðinna áratuga.


mbl.is Mikilvægt að upplýsa moskumálið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nauðsyn fjármögnuð með því að hætta við óþurftir

Malbik-peningarHeilbrigð skynsemi verður vonandi ofan á í borginni, eins og tillögur Sjálfstæðisflokksins um að fjármagna götuviðgerðir með því að hætta við þrengingu Grensássvegar, þar sem 13000 bílar á dag eiga að fara að standa hálfkyrrir eða þrengja að annarri umferð.

Halda mætti síðan áfram og hætta við  Hofsvallagötu- breytingarnar, sem sannarlega eru að komast á annað stig með einhverjar 300 milljónir í sóun, þar sem lokareikningur þess fer þá eflaust yfir 400 milljónir, með öllu sem áður gekk á og var tekið af að hluta aftur.

Dagur B., Hjálmar & Co verða að fara að standa ábyrgir fyrir afglöpum sínum. Fáum allar reiðhjólatölurnar fram og hvað var gert við bílaumferðina, nú þegar metsala er í bílum og metmánuðir umferðar detta inn.


mbl.is Mikið tjón á gatnakerfinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ófagnaður í Skerjafjörð

Bent i hringÍbúar í Skerjafirði urðu varir við megna ólykt frá umhverfi dælustöðvarinnar síðustu tvær vikur, sem getur þá tengst spilliefnalosuninni í Kópavogi. Umræður um það áttu sér stað á Fésbókinni. En það vekur furðu að fyrri atvik, ss. í Grafarholti, hafi ekki orðið til þess að samræmd umhverfisvöktun eigi sér stöðugt stað hjá Orkuveitunni, með skynjurum og aðvörunum. Klóaki er dælt um alla borg á milli sveitarfélaga í hring og út á Faxaflóa, en virðist geta flætt yfir við dælustöðvar. Menn virðast benda hver á annan í hring og Orkuveitan lætur ekki vita af því þegar óhöpp virðast vera að eiga sér stað.

Umhverfis- og skipulagsráði Reykjavíkur er sýnilega mun meira umhugað um að loka flugvöllum, stífla umferð og láta okkur hjóla en að vakta umhverfið okkar og að lágmarka umhverfisslys.


mbl.is Alvarlegt umhverfisslys
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gaddfreðinn laugardagur?

GaddfredinnLaugardagurNú verður dágott frost á Fróni samkvæmt spánni, t.d. -16°C í Bláfjöllum á laugardags- morgun (sjá kort). Vorveðrið í augnablikinu lætur mann ekki huga að því, en best að maður drífi sig út og hætti að blogga!


50% fleiri andvígir ESB- aðild heldur en fylgjandi

ESB roadSannarlega er afturköllun ESB- umsóknar tímabær, þar sem könnun Capacent Gallups sýnir að 50% fleiri Íslendingar eru andvígir ESB- aðild heldur en fylgjandi. Innan Reykjavíkur eru andstæðingar í naumum meirihluta en utan höfuðborgar- svæðisins eru þeir þrefalt fleiri en fylgjendur.

Þetta stuðningsleysi við ESB- aðild er það afgerandi að jafnvel sí- hikandi alþingismenn (sem vita aldrei í hvorn fótinn þeir eiga að stíga af ótta við starfsmissi) hljóta að taka tillit til þess og afturkalla umsóknina um leið og tillagan um það verður borin upp. 

En miðbæjarkjarni menntamanna mun fabúlera eins og Göbbels á sterum og afvegaleiða umræðuna svo að fjöldinn fái ekki vilja sínum framgengt. „Einn maður- eitt atkvæði“ hentar þeim ekki frekar en ESB- bræðrum þeirra. Verum viðbúin því og styðjum veiklundaða þingmenn til afstöðu með þjóð sinni.

Afturköllum ESB- umsóknina strax!


mbl.is Helmingur andvígur aðild að ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Langflestir bílnotendur búa í úthverfum

AedarnarLatte- gengi borgarstjóra talar jafnan niður til „úthverfanna“ sem vill svo til að eru lang- fjölmennustu svæðin og þar er mesta bílaeignin. Því fjær frá 101 og 107, því almennari er bílanotkun. Um helmingur íbúa Reykjavíkur býr í þessum þremur stærstu hverfum, yfir 80% ferðanna er á bíl og algeng bílaeign er tveir bílar á íbúð/ fjölskyldu. Hver talar máli þessa fólks í borgarstjórn í dag? Allavega ekki Dagur borgarstjóri og Hjálmar formaður Umhverfis- og skipulagsráðs. Þeir láta líka eins og Kópavogur, Hafnarfjörður og Seltjarnarnes séu varla til, í stað þess að hugsa um hag Stór- Reykjavíkursvæðisins í heild sinni í sem flestum málum.

 

Mynda þarf mótvægi við stefnu núverandi borgar- meirihluta, sem stífla vill streymið í æðakerfi borgarinnar.

 


mbl.is Úthverfafólk vantar málsvara
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hótelum fjölgað, bílastæðum fækkað og 100% hækkun!

EngirBilarFyrirsögn mbl.is er fáránlega í mótsögn við efni fréttarinnar, sem er allt að 100% hækkun á verði bílastæða í Reykjavík. Þar bætist við fjölgun hótela og íbúða með alltof fá stæði, ásamt beinni fækkun bílastæða en hraðri fjölgun bíla. Þessi viljandi skipbrots- stefna í umferðarmálum hjá mistækum núverandi borgaryfirvöldum skapar svo fyrirsjáanleg vandræði að furðulegt er að þeir þrír fjórðu hlutar alls almennings, sem ferðast um á bílum, skuli í reynd sættast á það að miðbærinn verði utan seilingar fyrir þau og að hótelgestir á bílaleigubílum verði í stöðugum standandi vandræðum þegar fram líða stundir.

Flestir mega eiga sig

Allt er þetta ákveðið í trássi við vilja fjöldans, enda t.d. aðeins um 4% fólks sem ferðast á reiðhjólum að jafnaði allt árið og 8% með rándýrum niðurgreiddum strætó þegar best lætur. En þetta lætur fólk yfir sig ganga, líklega af því að borgarstjórinn hefur svo mjúkan talanda og viðmót. Maður leggur þó ekki bílnum með því.


mbl.is Ódýrara að leggja í Reykjavík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvaða ESB stendur Evran fyrir?

ESB visionESB- sinnar og Evru- sinnar ættu að vera ólíkir hópar, þar sem Evrusvæðið fjarlægist restina af ESB æ meir. Núna eru líka þjóðir innan Evrusvæðisins í hver sinni gerólíku stöðu. T.d. er

skuldatryggingaálag 

Grikklands 110- falt Þýskalands, á meðan Frakkland er með þrefalt og Ítalía sjöfalt þýska álagið. Evrópusambandið er ekki samheiti á neinu lengur, nema sundurleysis.

Lægri vextir?

Samkvæmt ESB- sinnum ættu vextir Íslendinga að lækka við inngöngu í ESB. Vandséð er hvernig það gæti gerst, þegar hver þjóð innan Evrulandanna fær sína ávöxtunarkröfu á skuldabréfin sín, sem endurspeglar ástand þeirrar þjóðar og tiltrú á kerfi hennar. Evrusinnar kjósa að hundsa þessar upplýsingar, þegar ljóst er að við fengjum ekki þýska vexti eða einusinni franska.

Gjaldmiðlar standa sig

ESB- lönd utan Evrusvæðisins ætla sannarlega ekki að fórna sínum gjaldmiðlum, þótt þau séu í ESB. Sænska krónan og Breska pundið eru komin til að vera, einnig danska krónan sem verður líkast til að slíta ESB- naflastrenginn fljótlega því að fjárfestar veðja á hana endalaust þar til hún losar tenginguna eins og Sviss gerði í janúar.

Afturköllun óumflýjanleg

Aðild Íslands að ESB og upptaka Evru er orðin svo óraunveruleg hugmynd að hörðustu ESB- sinnar verða að hafa sig allan við að líta undan þegar staðreyndirnar blasa við. Því er óskiljanlegt að Sigmundur Davíð Gunnlaugsson sé ekki búinn að taka af Jóhönnu- skarið og afturkalla ESB- umsóknina.

 


mbl.is Færri fyrirtæki vilja taka upp evru
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ótrúleg óheppni vegfarenda

FlugvaengurRugbraudEf myndband af flugslysinu hörmulega í Taívan er skoðað, sést með hve miklum ólíkindum flugvélarvængurinn heggur í topp VW-sendibílsins (rúgbrauðsins) sem þar var á ferð. Ef hverfandi líkur eru til, þá eru það þessar: stór flugvél hrapar þvert á akstursstefnu bifreiðar og eini bíllinn á ferð á þessu bili fær einmitt vænginn í toppinn á sekúndubrotinu sem leiðirnar skarast.

Mér er ókunnugt um örlög farþega í bílnum en við skulum vona að þau hafi sloppið jafn ólíklega og þau lentu í árekstrinum. Uppfært: leigubílstjórinn fékk heilahristing en er í stöðugu ástandi.


mbl.is 22 látnir og 21 saknað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Verndum fjöruna fyrir aðalskipulagi Dags

IMG 1858 fjaranHverfaskipulag Reykjavíkur var látið hverfa þegar það opinberaðist. Deiluskipulagið tók flugbraut burt. En Dagur & Co segjast vinna eftir samþykktu aðalskipulagi, þar sem Reykjavíkurflugvöllur er farinn. Fleira er látið fjúka, þ.á.m bogadregin sérstæð sandfjara með leirum og fuglalífi. Uppfylling á að rústa þessu, þar sem byggðin á að ná langt út fyrir tangana.

Kannski er eina leiðin til þess að fá umræðu um þetta feigðarflan sú, að tengja þetta múslímskum innflytjanda, sem berst fyrir mannréttindum verndara sandstranda, sem hverfa vegna loftslagsbreytinga? Bara hugmynd.Latte kolkrabbi


Rok í Reykjavík

Rok i ReykjavikNú mun víst gusta ærlega aftur um Reykvíkinga og Reykjanesið á sunnudagskvöldið 4. janúar. Síðasta stormi tókst að rífa klæðningu af húsinu mínu. Við ættum að varast þennan, því að hann virðist ansi kraftalegur samkvæmt spánni núna. Sjá mynd Veðurstofu hér.

Uppfært 4/1/2015 kl. 11:10 Sjá mynd hér. Sandgerði og Akranes eftir miðnætti eru kannski ekki réttu staðirnir til þess að heimsækja á þeim tíma!


mbl.is Vetrarfærð er á landinu öllu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Ívar Pálsson
Ívar Pálsson

Viðskiptafræðingur með útflutningsfyrirtæki, en grúskar í flestu.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband