26.4.2014 | 08:40
Myndir úr nýju skipulagstillögunum

Hér í myndaalbúmi eru uppdrættir úr samþykktum tillögum skipulags borgarinnar vegna Vesturbæjar Reykjavíkur. Þar sést vel hvernig þétting byggðar þrengir að lífi fólks í þessu fullbyggða hverfi.
Ég mun bæta í þetta fljótlega, en nota nú tímann til síðustu skíðaferðar þessa árs í Bláfjöllum. Það er einmitt íþróttin sem núverandi borgarstjóri taldi að leggja ætti af!
Smellið oftar á hverja mynd til stækkunar.
![]() |
Við erum agndofa yfir þessu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
24.4.2014 | 09:11
Stefnir í glórulaust eignarnám

Ráðandi öfl í borginni láta núna glitta verulega í sósíalista- tennurnar með samþykktum sínum á glórulausum tillögum í skipulagsmálum, eins og að taka nær allar bílageymslur við fjölbýlishúsin á Hjarðarhaga eignarnámi og setja hús þar niður. Það er þéttingin komin, að rjúfa friðinn í grónum hverfum með jarðýtum á bílskúra fólks, byggja þar blokkir og búa til rifrildi óendanleikans.
Út á götu
Hvar á fólkið í gömlu og nýju blokkunum að leggja sínum 0,4 bíl? Alltaf í næstu götu? Hver bætir íbúðareigandanum virðislækkun eignarinnar á sanngjarnan hátt? Verið er að gerbreyta lífsháttum fólks þvert gegn vilja þess. Ef almennileg íbúakosning yrði í hverfishlutanum, þá yrðu þessar tillögur felldar samstundis. En ef eignarnámið er gert í almannaþágu, þá verða hagsmunir almennings að vera afgerandi, ekki bara vegna villtra hugdetta ídealista sem vilja þröngva lífsháttum sínum upp á saklausa samborgara sína.
Hversu mikið þolir fólk?
Hvað þarf til að fólki blöskri almennt hvernig ráðist er á náungann, eignarrétt hans og réttinn til friðar frá yfirvöldum? Við skulum vona að þessi þögli meirihluti sem hefur látið flest af þessu yfir sig ganga sjái núna að þetta gangi ekki lengur: það verður að kjósa ábyrgt fólk í borgarstjórn, sem tekur fullt tillit til hagsmuna og lífs allra borgaranna. Þessi borgarstjórnarblanda er eitraður kokkteill.

![]() |
Umdeildar hverfisskipulagshugmyndir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
23.4.2014 | 18:30
Vinstri græn gegn einkabílnum

Yfirlýstum bílfjendum fjölgar fyrir kosningarnar, en Vinstri græn vilja gera allt fyrir börn nema að setja þau í barnabílstól og ferja þau af öryggi í skóla eða annað sem þarf. Ástæðan er víst kolefnislosun, en þá gleymist ein vísinda- staðreyndin frá nýjustu skýrslu loftslagsnefndar Sameinuðu þjóðanna, að engu breytir í áratugi hvað gert er núna vegna tímatafar í gegn um djúphöfin og færibands hafsraumanna. Raunar eru það hundruð ára ef við ætlum að kæla heiminn. Auk þess myndi hitastig í heiminum ekki breytast við það að allir Íslendingar legðu einkabílnum sínum, það liggur fyrir.
Vinstri græn vilja því pína okkur sem flest til þess að láta sem við búum í Hollandi og förum allt á hjóli eða í strætó, höfum ótakmarkaðan tíma í samgöngur í stað þess að nýta hann t.d. með börnunum við skapandi athafnir.
Tugþúsundir borgarbúa sem ekki eru í 101 vita því hvernig næstu ár verða ef VG er kosið í borgarstjórn.
![]() |
Vinstri græn munu hugsa um börnin |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Sveitarstjórnarkosningar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.4.2014 | 12:35
Evru- atvinnuleysislönd unga fólksins
Atvinnuleysi ungs fólks (15-24) var 10,7% á Íslandi í desember 2013. Það og hagvöxtur er í hróplegri andstöðu við ástandið í Suður- Evrulöndum sbr. línuritin hér, sem sýnir glöggt að við höfum ekkert að gera í Evru- hópinn með allt hans atvinnuleysi og stöðnun. Óskiljanlegt er hví hámenntað fólk í þessum fræðum í hópi Evrusinna heldur áfram með áráttu sína, því að svo lítur út að þau hafi annaðhvort ekki lesið almennar skýrslur (ath. þungt skjal) eða stungið þeim undir stól, þegar þau unnu velborgaða álitsgerð sína fyrir stóru ESB- höllu samtökin.
Vandræði suðursins til norðurs

Vitað er að atvinnuleysi ungs fólks rýkur upp í kreppum á þeim stöðum sem gegnið er fast, eins og í Evrunni. Áhyggjum veldur að um 64% hlutar þessa atvinnuleysis verður varanlegt í kerfinu, sem þýðir að drjúgur hluti heillar kynslóðar fær líklega aldrei vinnu allt sitt líf og verða varanlegir bótaþegar hins fækkandi vinnandi fólks. Suður- og Norður- Evrópa eru eins og svart og hvítt í flestum málum (sjá línurit) og þar eru Spánn, Ítalía, Frakkland stór, að ógleymdum jaðrinum, Grikklandi og Portúgal. Þessi uppsafnaði mismunur hvers árs gerir vandamál Evrunnar óviðráðanleg og vonlaust að halda uppi sameiginlegri peningastefnu með mörg misjöfn hagkerfi án sameiginlegrar yfirstjórnar til lengdar.
Engar áhyggjur af atvinnuleysi Evrulanda?
En unga menntaða fólkið hér hefur síst áhyggjur af þessu atvinnuleysi Evrulanda, ef marka má undirtektir þeirra við það að ganga í ESB og taka upp Evru, þó að það lendi óumflýjanlega í atvinnuleysissúpu Evrulanda. Fái ekki atvinnu í stöðnuðu hagkerfi og hundruð manna keppa um sama starfið á meðan 19 milljónir manna eru atvinnulausar.
Vextir út um allt

Svo er talað um lægri vexti í Evrulöndum. Vaxtastigið er út um allt, enda sprakk kerfið í hruninu (sjá línurit til hægri). Hvar Ísland lendir í því fer eftir ótal þáttum, en ekki erum við Þýskaland. Skuldatryggingarálag hvers ríkis segir líka oft til um raunstöðu þess hagkerfis. Það sveiflast verulega innan Evrulanda.
Meiri vandræði
Við tökum á stóru óvissuþáttunum okkar þessi árin, á meðan Evrulönd ýta sínum vandræðum áfram með ótæpilegri peningaprentun. Við inngöngu í ESB og upptöku Evru tækjum við upp uppsöfnuð vandræði Evrulanda eftir hrun (já, takið eftir, það var alþjóðlegt) og fengjum ægistjórn Evrópskra banka yfir okkur, sem sýndi enga vægð í Grikklandi og Portúgal, enda er hagur bankanna settur í forgang í ESB. En öruggt yrði hærra atvinnuleysisstig hér í Evrulandi.
![]() |
Atvinnuleysi óvíða minna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt 11.4.2014 kl. 11:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.4.2014 | 09:52
Þvingun

Borgarstjórnarmeirihlutinn, sem sum ykkar kusu til þess að sjá um sameiginlega þætti borgarlífsins, beitir valdi sínu til þess að þvinga okkur til lífsmynsturs að þeirra hætti, flestum til ama. Flest okkar kjósa að lífið sé sem ljúfast frá morgni til kvölds, en okkur er gert erfiðara fyrir með það af því að borgarpólítíkusar misskilja alfarið hlutverk sitt sem þjónar almennings og halda að þeim beri að móta líf okkar að þeirra ídealísku fyrirmynd. Skýrast kemur þessi árátta fram í umferðarmálum í nýju aðalskipulagi Reykjavíkur. Þar segir m.a.:
Yfirdrifið framboð af fríum og ódýrum bílastæðum dregur úr vilja fólks til þess að nýta sér almenningssamgöngur, jafnvel þótt þær séu góðar. Draga þarf úr viðmiðum um fjölda bílastæða og fækka þeim verulega, sérstaklega á nýbyggingarreitum og setja kvaðir á fyrirtæki og stofnanir um að taka upp bílastæðagjöld.
Flestir fá að bíða
Fjögur prósent borgarbúa nota strætó til og frá vinnu. Nýja skipulagið gerir ráð fyrir þreföldun á því næstu 16 árin, þá líklega í 12%! Það þýðir að venjuleg 24 ára manneskja núna þarf að þola þvingunaraðgerðir borgaryfirvalda (ef skipulagið gegnur eftir) gegn henni í einkabílnum til fertugs, þar sem hafðir eru af henni margir mánuðir í vinnu eða frá fjölskyldu, með auknu stressi, sitjandi í bíl að vilja ferðast eins og flestir aðrir.
Tilgangslaust
Megintilgangurinn og lokatakmarkið með þessari þvingun er afar óljóst. Ekki er farið eftir aðlögunarstefnunni, að fólk bregðist við þeim aðstæðum sem eru á þeim stöðum sem þeir búa, heldur er módel úr suðrænum milljónaborgum staðfært upp á okkur fámennið á skerinu. Svo vilja þau flugvöllinn burt af því að hundruð þúsunda farþega þá leiðina er gert lífið of auðvelt. En jú, tilgangurinn er svo að setja niður félagsíbúðir á dýru lóðina.
Hver borgar? Þú, sem átt að vera mætt í vinnuna en ert föst af því að Dagur B. hafði metnað til þess að hægja á umferðinni.
![]() |
Vistvænar samgöngur í stað einkabíls |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Samgöngur | Breytt 24.4.2014 kl. 14:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (28)
7.4.2014 | 13:19
XD nr.1 með 40% meira en sá næsti

Flokkasúpa Íslands nálgast nú fullkomna óreiðu að hætti Pírata með fimm flokka í 11-17% fylgi. Þó stendur Sjálfstæðisflokkur upp úr með nær 24% fylgi, sem er 40% meira en sá næststærsti.
ESB- flokkar
Hreinir ESB- flokkar, Björt Framtíð og Samfylking eru með 32,2% fylgi samanlagt, á meðan langflestir kjósendur til Alþingis kjósa ekki ESB-aðild. Þessi þversögn er eflaust við lýði vegna flokkadrátta í Reykjavík, þar sem erfiðara er að fá skýrar línur í pólitíkina.
Slíta strax
Ríkisstjórnin verður að ganga fram af ákveðni vegna ESB- málsins, að slíta viðræðum strax og hætta þar með að leyfa stjórnarandstöðunni að naga af fylgi þeirra með þvælugangi. Þá skýrast andstæðurnar og ESB- flokkarnir ná ekki eins að halda grautnum vellandi endalaust.
Nýjan flokk, takk!
Kjósendur Sjálfstæðisflokksins eru jafnan tilbúnir að styðja formann sinn þegar ákveðið er gengið til verks í samræmi við samþykktir landsfundar flokksins. Eltingarleikurinn við ESB- kratafylgið á óreiðu- miðjunni borgar sig ekki, það hefur margsýnt sig síðustu árin. Vonandi bætist nýji ESB- flokkurinn í miðjusúpuna, það styrkir Sjálfstæðisflokkinn og Framsóknarflokkinn strax.
![]() |
Dregur úr stuðningi við Sjálfstæðisflokk |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
6.4.2014 | 11:51
Þögli meirihlutinn útskúfast

Segja má fámennum ESB-aðdáendahópnum til hróss, að samskipta- og miðlunar- hæfileikar eru þar nýttir af afli, hvort sem það er í fjölmennum samtökum með skammstafanir eða á Facebook, í fjölmiðlum, bloggum og með hópmætingum á fundi. Nú eða þá með fimm manna skrifstofu með hundraða milljóna króna stuðning. En yfirgnæfandi fjölmennur meirihlutinn líður fyrir þessa færni, þar sem skoðanir þeirra komast ekki tilhlýðilega á framfæri í hlutfalli við fljótið á móti, sem ber þá okkur öll að fossinum neðar.
Allt vitlaust
Þetta heilkenni hefur einkennt síðust árin, sérstaklega þar sem helstu fjölmiðlar eru handgengir þessum sérhagsmunahópi. Þegar stjórnvöld ætla síðan að framkvæma það sem þessi þögli meirihluti kaus þau til að gera, þá verður allt vitlaust í gargandi ESB- bjarginu, jafnvel svo að stjórninni fatast flugið.
Talsmenn flokksins?
Áhrifa ESB- hópsins gætir víða á þennan hátt. Nú síðast hjá Sjálfstæðisflokknum, á aðalfundi um daginn í Málfundafélaginu Óðni í Valhöll, sem er opinn vettvangur umræðu í flokknum um þjóðmálin. Augsýnilega tókst hópnum að smala á fundinn til þess að ná 74 manns á móti 65, þannig að skipt var um formann og lista fólks með honum. Nú má þá búast við því að umræðan snúist þessum ESB- armi í vil, þar sem svo virðist vera sem Sjálfstæðisflokkurinn tali, en það á þá ekki frekar við en að Ólafur Arnarson, Þorsteinn Pálsson, Benedikt Jóhannesson, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir eða Gísli Marteinn Baldursson hafi verið nýlega eða séu sérstakir talsmenn Sjálfstæðisflokksins.
Borgin líka
Því miður eru borgarmálin líka með þessum annmörkum, en þar ætti kannski ekki að tala um ESB- hópinn beinlínis, heldur fylgispektar- hópinn, sem hallast að flestu því sem upp vellur hjá ríkjandi SamBesta BF- meirihluta, sérstaklega með skipulagsmálin. Þögla meirihluta almennings finnst að standa ætti vörð um trausta þætti borgarlífsins, hvort sem það sé flugvöllurinn eða sjálfsákvörðunarréttur um það hvernig maður ver tíma sínum, til einskis í bið og stressi eða í friði með fjölskylduna um borgina.
Lögum lýðræðishallann
Löngu tímabært er að þessi lýðræðishalli verði lagfærður. Fólk mætir ekki á fundi núorðið, enda er þeim gert það illfært nema að verja hálfum degi til þess. Ísland er eitt tölvu- nettengdasta land heims. Dreifa ber lykilorðum til fólks svo að skoðanakannanir, kosningar eða álit hvers og eins komist á framfæri. Þar er átt við ríki og borg, stjórnmálafélög eða hvers kyns samtök. Vonandi verður framkvæmdin þó ekki eins og með gerfilýðræði borgarinnar í smáframkvæmdum, eins og leiðari Mbl. og fleiri hafa nefnt.
Ábyrgð hinna yngri
En líklegast heldur þögli meirihlutinn áfram að vera þögull, svo sem eldri kynslóðin. Því er óskandi að hinir yngri kannist við ábyrgð sína, hugsi líka um hina eldri og flýti ekki för okkar allra að feigðarósi, heldur hjálpast að með okkur öllum að ná almennilegu landi, Íslandi.
![]() |
Afstaðan til ESB alltaf verið skýr |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 7.4.2014 kl. 11:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.4.2014 | 12:26
Félagslegar íbúðir á dýrustu stöðum?

Verð íbúða er hvað hæst nálægt miðbænum, en núverandi borgarstjórnarmeirihluti vill að borgin borgi félagslegar íbúðir á þessum dýrustu svæðum, í stað þess að hámarka sameiginlegan arð okkar af svæðinu og nýta lausar íbúðir á öðrum svæðum með aðstoð til þeirra sem eru hjálpar þurfi.
Hvaða vit er í því að byggja félagslegar íbúðir á dýrustu stöðum? Það eykur álag á skattgreiðendur í borginni og minnkar líkur á því að þiggjendur félagslegrar þjónustu fái fullnægjandi aðstoð.
Kjósum ekki þessi nýju skipulagsslys yfir okkur. Munum þetta í lok næsta mánaðar.
![]() |
Slegist um góðar íbúðir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
2.4.2014 | 17:19
Er ríkisstjórnin ekki í lagi?

Þegar núverandi ríkisstjórn var kosin í fyrra hét hún því að skipta út að hluta Græningjum, sem stýra fjöreggi Íslands, Landsvirkjun. Sú varð raunin að hluta, en hverjar voru svo kallaðar til nema öfgasinnar umhverfis- afturhalds- stefnu, þær Þórunn Sveinbjarnardóttir og já, Álfheiður Ingadóttir! Allt sem þær mætu konur hafa látið frá sér fara virðist hafa verið stungið undir stól og nú mega þær stöllur setjast í stjórn áhrifamesta fyrirtækis á Íslandi og segja NEI! NEI! NEI! NEI! osfrv.
Hvað ætli þær segi um t.d. skilmálana á stærstu lánum sem tekin eru á Íslandi? Ég sé þær fyrir mér koma með innblásnar athugasemdir um þá. Eða um rekstraráætlanir, ársreikninga og stórframkvæmdir? Hvar eru allir verkfræðingarnir? Ekki til í flokkum þessarra pólitískt ráðnu kvenna á kvótunum sínum?
Þar fóru vaxtartækifærin. Nema Jónas Þór, Helgi Jóh og Jón Björn nái að ráða einhverju. Eins gott að þeir standi þá saman.
![]() |
Jónas Þór nýr stjórnarformaður |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
2.4.2014 | 08:23
Sushi er fyrirtaksmatur

Hætt er við því að hræðsluáróður eyðileggi þá ánægjulegu þróun sem hefur átt sér stað með sushi á Íslandi. Langmest af þeim fiski sem notaður er hefur verið fryst áður en sushi- ið er framleitt og söluaðilar ættu að kynna sína meðferð fisks fyrir neytendum. Sushi- verksmiðjan sem ég tengdist forðum naut velgengni m.a. vegna ofurfrystingar á fiskinum, t.d. í Þýskalandi í upphlaupi fjölmiðla þar vegna álíka umfjöllunar og hér á sér stað.
Áður fryst
Meðhöndlunin á laxi er hvort eð er auðveldari eftir frystingu en ella. Túnfiskur, heitsjávarrækja, krabbalíki ofl. hefur allt verið fryst áður en það fer í sushi hér á landi. Spyrjið uppáhalds- sushi- framleiðandann ykkar hvort allur fiskur hafi verið frystur, áður en þið farið að færa ykkur yfir í örugga vöru eins og kjúkling eða eitthvað annað. Sushi er kraftmesta fæði sem til er. Styðjum íslenska sushi- gerð!
![]() |
Hringormur veldur bráðaofnæmi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
1.4.2014 | 22:20
Borgaryfirvöld pína fólk viljandi

Því fólki í 17.000 bílum á dag sem þarf eða vill fara um Borgartúnið er meinað að gera svo á skilvirkan hátt, heldur verður það að eyða vinnu- eða frítíma sínum til einskis hangs og ráps um hverfið, allt vegna viljandi stefnu borgarstjórnar- flokkanna um að neyða fólk út úr bílum sínum í algeru tilgangsleysi. Stefnan er bókstaflega að fækka bílum, þvert á vilja hvers og eins, í nafni kolefnislosunar sem skiptir engu eða vegna mengunar sem sáralítil er orðin.
Stefna gegn persónunni
Þessi and- persónulega stefna í anda Orwells stendur beint gegn fjölskyldunni, friði og heilsu fólks með stressi. Svo verðum við að borga fyrir vitleysuna að auki. Vinsamlegast fylgið ekki þessar stefnu sem kjósendur í komandi kosningum.
![]() |
Dropa úr hafinu breytt í hjólastíga |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Samgöngur | Breytt s.d. kl. 22:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
1.4.2014 | 17:05
ESB- framboði árnað heilla

Mikið væri gott fyrir landann ef nýja ESB- framboðið yrði að veruleika. Loksins talar sá hópur þá tæpitungulaust og fær kosningu út á sína stefnu og sitt fólk, ekki út á aðra níu tíundu Sjálfstæðisflokksins eins og hingað til, en níðir samt af honum skóna.
Nýi krataflokkurinn
En erfitt er að sjá hví nýi flokkurinn yrði kallaður hægri flokkur, því að stórflokkurinn sem þau vilja láta okkur kjósa er ESB: sósíal- demókratar með Vinstri- grænan trefil, en átókratískur í háttum. Frelsi einstaklingsins er víðs fjarri ESB- hugsjóninni, þar sem fjarlægðin á milli valdhafa og kjósenda er lík og til tunglsins.
Mikið með sér
Nýi krataflokkurinn hefur margt með sér: ríkisfjölmiðlana, Stöð 2 / Fréttablaðið og útvarpsstöðvar, svo að eitthvað sé nefnt. Nú vaknar Össur upp af værum blundi og Árni Páll verður að koma út úr lampanum, því að sótt verður á Samfylkinguna af nýja miðjuflokknum. Varla er rúm fyrir tvo ESB-flokka, því að nógu fáir velja vísvitandi inngöngu í ESB þegar ljóst er hvað þeir kjósa um. Svo hefur flokkurinn stjórnir helstu samtaka með sér, SA, SI, Viðskiptaráðs, ASÍ, en að vísu ekki endilega meðlimi samtakanna. Samtök elska ESB, sem fóstrar þau. Einstaklingurinn má víst eiga sig.
Vinsamlegast drífið í þessu, Þorsteinn, Benedikt, Þorgerður Katrín & Co! Hreinsum loftið.
![]() |
Framboð nyti mögulega 38% stuðnings |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
31.3.2014 | 09:41
Engin ástæða til aðgerða

Vel færi á því að fólk kynnti sér loftslagspakkann (skýrslu SÞ) eins og ESB- pakkann. Niðurstöður skýrsluhöfunda eru m.a. að loftslagsbreytingar muni halda áfram öldum saman, jafnvel þótt hætt yrði alfarið að losa koltvísýring. Óafturkallanlegar uppsafnaðar gerðir manna hafi lagt lóð sín á vogarskálarnar til þess að þannig fari að líkindum.
Enga skatta
Við Íslendingar getum óhikað hætt skattlagningu og öðrum aðgerðum vegna heimshitunar, því að það mun ekki hafa áhrif í áratugi, árhundruð eða yfirleitt, það liggur fyrir. Þetta liggur fyrir:
Aðgerðir Íslendinga í loftslagsmálum munu engu breyta næstu áratugi eða árhundruð.
Aðgerðir Íslendinga í loftslagsmálum eru á svo litlum skala að þótt við hættum allri starfsemi, þá er allt vel innan skekkjumarka í kolefnislosun.
Hitun er ójöfn yfir heiminn og hefur jákvæð áhrif í loftslagsmálum á norðlægari breiddargráðum. Sjá kort hér til hliðar yfir ágiskaðar breytingar í uppskeru árið 2050.
Skýrsla SÞ segir hvergi að aðgerðir manna muni ná að snúa þróun við næstu áratugina.
Athyglisvert er að ekki er lengur tekið tillit til losunar eldgosa, eins hrikaleg og þau eru, þar sem þau koma inn mjög óreglulega!
Hvenær ætlar fólk að kíkja í lofstlagspakkann, en fara ekki bara eftir fyrirsögnum?
---
http://www.climatechange2013.org/images/report/WG1AR5_SPM_FINAL.pdf
Setningar úr skýrslunni 2013:
Cumulative emissions of CO2 largely determine global mean surface warming by the late 21st century and beyond (see Figure SPM.10). Most aspects of climate change will persist for many centuries even if emissions of CO2 are stopped.
A large fraction of anthropogenic climate change resulting from CO2 emissions is irreversible on a multi-century to millennial time scale, except in the case of a large net removal of CO2 from the atmosphere over a sustained period.
Surface temperatures will remain approximately constant at elevated levels for many centuries after a complete cessation of net anthropogenic CO2 emissions. Due to the long time scales of heat transfer from the ocean surface to depth, ocean warming will continue for centuries.
Volcanic forcing is not included as its episodic nature makes is difficult to compare to other forcing mechanisms.
![]() |
Hrikaleg áhrif hlýnunar jarðar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Umhverfismál | Breytt s.d. kl. 09:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
27.3.2014 | 09:22
Að horfa á pakkann
Undarlegt er það, að Kíkja- í- pakkann fólkið skuli láta sér nægja að horfa á pakkann þar sem Dagur B. Eggertsson er. Stefnumálin sem hann stendur fyrir og staðreyndirnar um stjórnarferil hans (með Jón Gnarr sem brúðu) gætu varla stutt þetta mikla fylgi ef grannt yrði skoðað. Öllu er nú snúið á haus hjá mjúkmæltum frambjóðandanum: óstjórn og bruðl heitir nú festa og stöðugleiki. Jú, stöðugt er tapið.
Innihaldið?
Ídealisminn um samgöngur á reiðhjólum í stað bifreiða er annað sem hljómar vel hjá Degi en er afleitt í raun og lýsir vel þeirri staðreynd að 90% fimm efstu sæta meirihlutaflokkanna í borginni býr í 101 Reykjavík. Konurnar í öllum hinum hverfum borgarinnar hafa varla verið spurðar á leið sinni í vinnuna í stíflaða umferðarflæðinu þegar þær voru spurðar um vænlegasta borgarstjóraefnið.
Raun
Við skulum vona það að fólk kynni sér almennilega hvernig borginni hafi verið stýrt fyrir næstu kosningar og sú framtíðarsýn er sem flokkur Dags boðar, t.d. með öllu sínu flugvallarleysi, skuldaaukningunum, skipulagsslysum og umferðartöfum. Þá er kannski loksins kíkt í pakkann.
![]() |
Mestur stuðningur við Dag |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
24.3.2014 | 08:41
ESB tryggir tyrkneskt limbó Íslands
ESB rígheldur í ólánsumsókn Íslands og fjármagnar áróðursskrifstofu áfram, þrátt fyrir skýra andstöðu íslenskrar ríkisstjórnar og þjóðar. Það minnir á umsókn Tyrkja um aðgang að ESB frá 1987 og 1999, sem er nú haldið í dái þar til nokkur smáatriði verða útkljáð, ss. hvernig tryggja ber jöfn réttindi þeirra 76 milljóna múslima við aðra þegna, séstaklega kvenþjóðina. Bríet Bjarnhéðinsdóttir sneri sér í gröfinni ef hún sæi hvert niðjarnir stefna til fortíðar í þeim málum þar sem hún barðist fyrir bjartari framtíð.
Megingildin ósamrýmanleg
Þótt megingildi umsóknar- og meðlima- þjóðanna séu ósamrýmanleg á flestan hátt, sem kom skýrt í ljós þegar á þeim var tekið, þá er umsóknum haldið vellandi og potast áfram í pólítíkinni, á meðan langflestum er ljóst að um gerólík samfélög er að ræða til sameiginlegrar stjórnar. Viðskipti og samskipti á milli sjálfstæðra þjóða ber að stunda á fullu, en sameining Evrulanda sem nú stefnir í er rammur sósíalismi, ekki bara sú ídealíska sósíal- demókrasía sem þetta byrjaði allt á.
Raunar eru Evrulöndin þegar undir stjórn fámennisklíku. Hentugt tæki hennar til viðhalds áhrifa er að halda jaðarlöndum í umsóknarferli, svo að hægt sé að beita sér gegn þeim þegar þurfa þykir.
![]() |
Sendiráð ESB mun starfa áfram á Íslandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 10:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
13.3.2014 | 08:57
Hættir samt ekki við kapalinn

Þrátt fyrir slakasta vatnsár í sögu Landsvirkjunar, með skertu orkuöryggi, þá heldur forstjórinn sig við þá rökvillu að rafstrengur til Evrópu yrði hjálplegur Íslandi. Að orkan frá Evrópu myndi forða okkur frekar frá því að lenda í vandræðum. Þetta álit kostar okkur miklar fjárhæðir, tíma og vinnu, sem betur væri nýtt í uppbyggilega starfsemi fyrir land og þjóð.
Slíta strax
Líkt og ESB- umsóknin, þá eru þessar rafstrengs- þreifingar alger firra. Þeim þarf að ljúka strax og láta ekki nýja óskabarn þjóðarinnar, Landsvirkjun, vaða í villu og svíma eins og Orkuveitan gerði með rækjueldi, Línu.net og hvaðeina, þar til skuldirnar hrönnuðust upp á stöndugt fyrirtækið í öruggum bisniss.
ESB krefst, semur ekki
Það gefur auga leið að ekki borgar sig að rembast við tengingu út úr þessu lokaða rafkerfi okkar. Við það bætist yfirgnæfandi ESB- pólitíkin, sem djöflast myndi á okkur ef ESB yrði í erfiðri stöðu vegna t.d. gasleysis þegar Rússar láta sverfa til stáls, en Þjóðverjar loka kjarnorkuverum. Við sáum núna hvernig ESB hegðaði sér í makrílkvótanum, gerði nætursamninga við aðra en skildu okkur eftir með smánarhluta. ESB myndi toga í alla strengi ef orku vantaði hjá þeim, sama hvernig ástandið væri á Íslandi á þeim tíma.
Slítum raforkustrengs- athugunum og ESB-umsókninni. Það þarf ekki þjóðaratkvæði um það, bara heilbrigða skynsemi.
![]() |
Versnandi vatnsbúskapur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Nýjustu færslur
- Þorgerður Katrín: ekki gera neitt
- Brynjar náði í hægrimenn en ekki í sig!
- ESB- flokkar æða upp!
- Erfiðið út í buskann
- Landsvirkjun fyrir pólitíkusa
- Eitt Ísland á ári
- Síðasti séns Svandísar búinn
- Evrópusósíalisminn tekur flugið
- Þarfleysuþrennan
- Lærið um aðhald hjá Þjóðverjum
- RÚV og hryðjuverkin
- Borgarstjóri Krísuvíkur á fullu
- Gervigreind með CO2 á hreinu
- Eini möguleikinn til breytinga
- XD= 80% gegn Borgarlínu
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Tenglar
Reykjavík
- Aðalskipulag Reykjavíkurborgar Aðalskipulag Rvk. Tenglar
- Skipulag í heild og Hlíðarnar Skipulag í heild og Hlíðarnar
- Vesturbær: Myndir úr hverfaskipulags-tillögum Vesturbær: Myndir úr hverfaskipulags-tillögum
- Skerjafjörður: Myndir úr hverfaskipulags-tillögum Skerjafjörður: Myndir úr hverfaskipulags-tillögum
- Umferðarflæði Reykjavík Umferðarflæði Reykjavík
- Hverfaskipulag í Reykjavík: tillögur birtar Hverfaskipulag í Reykjavík: tillögur birtar
- Könnun á húsnæðis- og búsetuóskum borgarbúa 2013 Könnun á húsnæðis- og búsetuóskum borgarbúa 2013
- Dagur & Co. stefndu í óefni með hverfaskipulag Dagur & Co. stefndu í óefni með hverfaskipulag
- Vatnssöfnun í skipulagi borgarinnar Vatnssöfnun í skipulagi borgarinnar
- Veitum Degi aðhald Veitum Degi aðhald
- Jóhönnu- heilkennið í Reykjavík Jóhönnu- heilkennið í Reykjavík
- Aðalskipulag miðar við flugvöllinn burt Aðalskipulag miðar við flugvöllinn burt
- Myndir úr nýju skipulagstillögunum Myndir úr nýju skipulagstillögunum
- Stefnir í glórulaust eignarnám Stefnir í glórulaust eignarnám
- Vinstri græn gegn einkabílnum Vinstri græn gegn einkabílnum
- Þvingun Þvingun
- Félagslegar íbúðir á dýrustu stöðum? Félagslegar íbúðir á dýrustu stöðum?
- Nýi Skerjafjörður á forsendum íbúanna Nýi Skerjafjörður á forsendum íbúanna
- Metnaðarfull stefna gegn borgurunum Metnaðarfull stefna gegn borgurunum
- Vísvitandi bílastæðaskortur Vísvitandi bílastæðaskortur
- Spjaldtölvur í grunnskólana Spjaldtölvur í grunnskólana
- Flugið verði fyrir almenning aftur Flugið verði fyrir almenning aftur
- Þögli meirihlutinn útskúfast Þögli meirihlutinn útskúfast
Tenglar
Áhugaverðir tenglar
- Sævörur ehf Útflutningur á rækju
- Fjallaferðir ÍP Myndasyrpur
- Bloomberg viðskipti Viðskiptavefur Bloombergs
- Glitnir: gengi gjaldmiðla Glitnir banki: Gengi gjaldmiðla 15 mín töf
- Boston University Boston University USA
- MR Menntaskólinn í Reykjavík
- Vald.org Jóh. Björn Raunveruleikinn í USA og víðar
- Financial Times ft.com viðskiptafréttir
- BBC News BBC fréttavefur
- AFP fréttir AFP fréttaþjónustan
- Reuters fréttir Reuters fréttaþjónustan
- Sky News Sky fréttaþjónustan
- Ritlist Önnu Heiðu Anna Heiða Pálsdóttir systir ÍP
- Sissú myndlist Sissú systir, myndlistarmaður og arkítekt
Banka/krónu blogg
Blogg mín um krónu og bankamál
- Fall Íslands, upphafsgrein Varnaðarorð um hagkerfið
- Hver borgar vextina? Hvaða aðilar eru að borga háu vextina?
- 30.000 krónur á mínútu allt árið Valréttarsamningar bankastjóra
- 2006 gaf þeim 3 milljarða Valréttarsamningar bankastjóra Kaupþings
- Háa vexti og framkvæmdaleysi Seðlabankinn lækkar ekki stýrivexti
- Augljóst hvert Moodys stefnir Mat Moody's á íslenskum bönkum
- Enn of örlátt, segja Bretar Íslenskir bankar of áhættuglaðir
- 628 milljarðar. Bilun. Íslenska krónan og vaxtamunarviðskiptin
- Vextir lækka ekki Seðlabankinn heldur stýrivöxtum háum
- Stöðugt ástand? Íslenskir bankar vanmeta ástandið
- Nóg komið af Jenum? Kaupþing ofl taka stór Jenalán
- Allir bankar ánægðir Háir stýrivextir og vaxtamunaverslun kæta
- Bankadómínókubbar Keðjuverkun hafin, fall í kerfinu
- Áhættuflótti heimsmarkaðar hefst fyrir alvöru Vaxtamunarverslun fellur og Jenið rís
- 6% fall krónu er góð byrjun Fall krónunnar hefst
- 10% gengisfall veldur verðbólgu Gengisfellingin nær 10%
- Eru veð bankanna traust? Veð ýmissa bréfa til umhugsunar
- Staðfest hvað stýrir krónunni Gjaldeyrisspekúlantar ráða gengi krónu
- Efnahagsmál af viti Umræður um efnahagsmál á malefnin.com
- Upphaf afleiðinga Afleiðingar hávaxtastefnu hefjast
- Greinasafn um banka og krónu Samantekt greina um banka og krónu
- Meira af Matadorpeningum! Seðlabankar dæla inn lausafé
- Áhættuflóttinn heldur áfram, en þó! Áættuflótti fyrst, en snerist við
- Federal Reserve sneri öllu við BNA seðlabanki lækkar vexti
- Davíð bregst bogalistin Seðlabanki með háa vexti, á móti Evru
- Jenið sækir aðeins á USD fellur, Jen rís, hlutabréf lækka
- Jenið og Ísland eru nátengd Tengsl Jens og Íslands skýrð
- Kaupþings- Klemman Vítahringur Vaxtamunarferlisins
- Japan 0, Ísland 1 Japan heldur stýrivöxtum
- Krónur, skuldir og verðlaus bréf Stýrivextir hækka, USA fer niður
- Sígandi markaður? Markaðurinn niður (en hikstandi)
- Veð íslenskra banka? Hve traust er staða bankanna?
- Bankar í afneitun Bankar telja sig stikkfrí
- Allt að 40% af fyrra markaðsvirði Exista og Kaupþing falla mikið
- Ekki batnar það Verðfall bréfa heldur áfram
- Billjón á 3 mánuðum? Frá 15 10 2007 fall um 1 billjón
- 200 milljónir á mínútu Fyrstu 5 daga 2008 fall 200M á mín
- Jen styrkist, íslenskir bankar veikjast Vaxtamunarverslun minnkar
- Fallið er ekki kauptækifæri Fall markaðar Íslands og heimsins
- Kaupþing 55%, Exista 32,8%, SPRON 32,5% Verðfall hlutabréfa frá tindi 2007
- Skítt með alla skynsemi ÍP keypti hlutabréf í Straumi
- Svindl og hrun haldast í hendur Svindl í SocGen og fall markaða
- Kaup-Thing lagið Lagið Wild Thing stílfært við Kaupþing
- Þreyjum Þorrann og Góuna! Fall markaða framlengist um nokkurn tíma
- Stóriðjan kemur til bjargar Útflutningsiðnaður skiptir máli
- Hvílíkir markaðir! Fall markaða er aðeins byrjunin
- Laun þín 2008: mínus 15-17% Gengisfelling IKR er nær samsvarandi launalækkun
- Mínus 500 milljarðar á einni klst.? Gengisfellingin 17/03/2008 byrjaði með 9% falli Jensins
- Allt löngu fyrirséð Fyrirsjáanlegar afleiðingar stefnu Seðlabanka
- Krónubréfum skilað Krónubréfum skilað
- Milljarðatuga munur Milljarðatuga munur
- Hraðbraut til heljar Hraðbraut til heljar
- Framlengt vegna fjölda áskorana Framlengt hjá Seðlabanka
- Bankar úr landi? Ríkið má ekki ábyrgjast skuldir bankanna
- Ársreikningar: veldu aðferð og þeir segja það sem þú vilt Aðferðir í ársreikningum skipta tugmilljarða máli
- Um hvað ætti ég að blogga ef allt þetta gerðist?: Draumar um banka og umhverfismál
- Bankar í verulegum vandræðum? Grein Ragnars Önundarsonar um bankana
- Fallin spýtan Yfirlit yfir þróun efnahagslífsins
- Skuldir Íslendinga snarhækka Jen hækkar skuldir landans
- Þúsundir milljarða í nettóskuldir? Þúsundir milljarða í nettóskuldir?
- Íslenskir bankar? Íslenskir bankar?
- Krónan veikust 25-26. dag síðasta ársfjórðungsmánaðar Krónan veikust 25-26. dag síðasta ársfjórðungsmánaðar
- Glitnir nú, en fasteignir ofl. síðar Glitnir nú, en fasteignir ofl. síðar
- Stýrivextir stefna í lækkun Stýrivextir stefna í lækkun
- Örþrifaráð og Matadorkrónur Örþrifaráð og Matadorkrónur
- Vaxtamunarverslunin drapst Vaxtamunarverslunin drapst
- Gjaldeyrisskortur og handstýrt gengi? Gjaldeyrisskortur og handstýrt gengi?
- Fljótt, fljótt, gjaldeyrir á 20% afslætti! Fljótt, fljótt, gjaldeyrir á 20% afslætti!
- Ástæður Rússalánsins Ástæður Rússalánsins
- Við neitum að borga Við neitum að borga
- Nokkrar jákvæðar hliðar mótlætisins Nokkrar jákvæðar hliðar mótlætisins
- Er gagnsæi Samfylkingar yfirleitt til? Er gagnsæi Samfylkingar yfirleitt til?
- Samúræjabréf falla. IMF leiðin er ófær Samúræjabréf falla. IMF leiðin er ófær
- Vegurinn til Vítis Vegurinn til Vítis
- Ríkið fer beint í snöruna Ríkið fer beint í snöruna
- Noregur og Ísland, hvort fyrir annað Noregur og Ísland, hvort fyrir annað
- Skuldir Íslands snarhækka Skuldir Íslands snarhækka
- Skyldulesning: Börgólfur Guðmundsson Skyldulesning: Börgólfur Guðmundsson
- 29,2% verðbólguhraði 29,2% verðbólguhraði
- Lánin borg hringavitleysuna Lánin borg hringavitleysuna
- Einn banki á dag gerður upp Einn banki á dag gerður upp
- Lánin yfir í fallandi krónur Lánin yfir í fallandi krónur
- Þjóðverjar spöruðu, Íslendingar eyddu Þjóðverjar spöruðu, Íslendingar eyddu
- Reglur IMF: réttur hinna sterku Reglur IMF: réttur hinna sterku
- Heildarlántaka 1000 milljarðar króna? Heildarlántaka 1000 milljarðar króna?
- Allt er bannað nema það sé leyft sérstaklega Allt er bannað nema það sé leyft sérstaklega
- Evran upp um 50% á 3 mánuðum Evran upp um 50% á 3 mánuðum
- Öryggi fjárins finnst ekki hér á landi Öryggi fjárins finnst ekki hér á landi
- Fasteignir, kvóti ofl. afhent? Klúður 101 Fasteignir, kvóti ofl. afhent? Klúður 101
- Neyðarlögin framkalla ójafnræði Neyðarlögin framkalla ójafnræði
- Vonlítið að reka fyrirtækin í þessu Vonlítið að reka fyrirtækin í þessu
- WSJ myndband um fall Íslands WSJ myndband um fall Íslands
- Yfirtaka bankanna dregur Ísland niður í svaðið Yfirtaka bankanna dregur Ísland niður í svaðið
- ESB aðild og IMF lán, samt kreppa og óeirðir! ESB aðild og IMF lán, samt kreppa og óeirðir!
- Veikustu hagkerfin verða útundan hjá ESB Veikustu hagkerfin verða útundan hjá ESB
- Falsað gengi til framtíðar? Falsað gengi til framtíðar?
- Björgvin skóp Bretavandræðin Björgvin skóp Bretavandræðin
- Lífeyrissjóðir í hreinu fjárhættuspili Lífeyrissjóðir í hreinu fjárhættuspili
- Enginn þorir að neita Icesave og IMF Enginn þorir að neita Icesave og IMF
- Írland er í ESB með Evru, samt mótmæla 100.000 Írland er í ESB með Evru, samt mótmæla 100.000
- Engin viðskipti, enginn með bein í nefinu Engin viðskipti, enginn með bein í nefinu
- Kreppan kosin burt? Kreppan kosin burt?
- Þjóð í dái Þjóð í dái
- Vondu karlarnir: sjómenn eða ríkið? Vondu karlarnir: sjómenn eða ríkið?
- Sverfur að skattaskjólum? Sverfur að skattaskjólum?
- EKKI skila 2006 styrkjum! EKKI skila 2006 styrkjum!
- Leiðin til þess að lifa þetta af Leiðin til þess að lifa þetta af
- Fjórðungshækkun punds gegn krónu á 38 dögum Fjórðungshækkun punds gegn krónu á 38 dögum
- Sjálfstæðismanneskja Sjálfstæðismanneskja
- ESB- sigur? Tæpast ESB- sigur? Tæpast
- Stýrivextir aukast í 13- földun ECB Stýrivextir aukast í 13- földun ECB
- Vinstri stjórn er eins varanleg og ... Vinstri stjórn er eins varanleg og ...
- Lífeyrissjóðir eru gjarnan rán um hábjartan dag Lífeyrissjóðir eru gjarnan rán um hábjartan dag
- Ríkið ákveði framboð og eftirspurn! Ríkið ákveði framboð og eftirspurn!
- Þjóðaratkvæðagreiðslu um afarsamningana! Þjóðaratkvæðagreiðslu um afarsamningana!
- Hverjir þingmanna gerast landráðamenn í dag? Hverjir þingmanna gerast landráðamenn í dag?
- Örlaganornirnar þrjár: tími Skuldar er kominn! Örlaganornirnar þrjár: tími Skuldar er kominn!
- 35 milljarða hækkun á 2 bankadögum! 35 milljarða hækkun á 2 bankadögum!
- Samfylkingarþingmenn sýni loks ábyrgð Samfylkingarþingmenn sýni loks ábyrgð
- Bara ef þeir hefðu nú farið! Bara ef þeir hefðu nú farið!
- Klýfur varaformaður flokkinn með Icesave og ESB? Klýfur varaformaður flokkinn með Icesave og ESB?
- Með byssuna í hnakkann og bundið fyrir augun Með byssuna í hnakkann og bundið fyrir augun
- Milliríkjadeilan varð að bresku einkaréttarmáli Milliríkjadeilan varð að bresku einkaréttarmáli
- Þýðing Magnúsar Thoroddsen hrl. Þýðing Magnúsar Thoroddsen hrl.
- Ólæs forsætisráðherra Samfylkingar? Ólæs forsætisráðherra Samfylkingar?
- Gjaldeyrishöft: svindlarar í hverju horni? Gjaldeyrishöft: svindlarar í hverju horni?
- Hæstaréttardómari staðfestir afsal Hæstaréttardómari staðfestir afsal
- Staðreyndir um Icesave standa Staðreyndir um Icesave standa
- Frumvarp um Weimar- Ísland Frumvarp um Weimar- Ísland
- Allt sem þú þarft að lesa er komið fram Allt sem þú þarft að lesa er komið fram
- Davíð um ESB- Svía Davíð um ESB- Svía
- Lýðræði í stað sendinefndar með opið tékkahefti Lýðræði í stað sendinefndar með opið tékkahefti
- Ágæti Vinstri- græn kjósandi! Ágæti Vinstri- græn kjósandi!
- Skræfurnar sitja hjá Skræfurnar sitja hjá
- Slepptu biti þínu, Steingrímur J. ! Slepptu biti þínu, Steingrímur J. !
- Ykkur tókst þetta, ESB- konunum! Ykkur tókst þetta, ESB- konunum!
- Lausn vandræðanna er fundin! Lausn vandræðanna er fundin!
- Bakland stjórnarinnar farið og tálsýnin er úti Bakland stjórnarinnar farið og tálsýnin er úti
- Bretar örvæntu 6. okt. 2008 Bretar örvæntu 6. okt. 2008
- Áfram heldur idealisminn ótrauður Áfram heldur idealisminn ótrauður
- Hvenær biðst Jóhanna Sig. afsökunar á þessu? Hvenær biðst Jóhanna Sig. afsökunar á þessu?
- Dýrustu feðgin Íslandssögunnar Dýrustu feðgin Íslandssögunnar Svavar og Svandís
Heimurinn / umhverfið
Umhverfið, mannfjöldi, hernaður ofl.
- Orka Íslands Mikilvægi orkuauðlinda Íslands
- Svifryki spúlað burt Spúla þarf svifryki af götunum
- Hrikalegt á að horfa Darfúr í Súdan frá Google Earth
- Koltvísýringslosun er ekki kosningamál CO2 magn er ekki kosningamál núna
- Hernaður kostar sitt Kostnaður hernaðar, aðallega BNA
- Svona er heimurinn (like it or not) Mannfjöldaaukning ræður orkuframleiðslu
- Þversögn vaxtarins Mannfjölgun og vöxtur þróunarríkja
- CO2 kvótamarkaður er martröð í mótun Upphaf CO2 kvótamarkaðar heims
- Grænland er of heitt! ESB á að kæla Grænland!
- Kókaínfundir og Ingibjörg Sólrún Afríkuríkin heilla ISG
- Heilaþvotturinn mikli, al-gor Heill dagur af heilaþvætti Al Gores
- Heimsvelgjan nær ekki suður úr Kólnun suðurfrá, ekki hitnun
- Út úr afríku! Vandamál Afríku eru hennar eigin smíði
- Grikkland brennur Eldar flæða um Grikkland
- CO2 kvótinn er verri en hinn kvótinn Ásjóna kolefniskvótans kemur í ljós
- Hálf- fréttir eru slappar Listi yfir 10 menguðustu borgir jarðar
- Tíu Ís-lönd hurfu sl. ár Norðurpóllin er að hverfa
- Varanlegt Mynd ÍP af pýramída, hugleiðingar
- Stærstu kvótaþegar jarðar Skipting CO2 kvóta á Íslandi og víðar
- Skömmtunarárin og haftapólitíkin endurvakin Íslensk CO2 úthlutun lítl. Ráðherraskömmtun.
- Minni kjarnorka þýðir meira af kolum og olíu Kjarnorkuveri í N- Nóreu lokað
- Vaclav Klaus: Hvort er í hættu, frelsið eða loftslagið? Vaclav Klaus, forseti Tékklands
- Sannfærð(ur)? Taktu prófið Tíu spurningar um loftslagsmál
- Löngu- Skerjafjörður Löngusker í Skerjafirði, mynd og hugleiðing
- Þróunaraðstoð fer til stríðsrekstrar Þróunaraðstoð til Afríku verður ekki skilvirk
- Al Gore og Dalai Lama? Listi yfir ýmsa friðarverðlaunahafa Nóbels
- Besta auglýsing í heimi Al Gore tekst vel upp með kvótabraskið
- 100 til 150 ár, segir SÞ- nefndin IPCC segir CO2 jafnast eftir 100-150 ár
- Klórblöndum ekki tæra vatnið okkar Ekki Evrópureglur um neysluvatn
- Þórunn mun klúðra samningsstöðu Íslands Umhverfisráðherra vill lítinn CO2 kvóta
- Góði Geir Vísa til Geirs um loftslagsmálin
- Rangt hjá Ingibjörgu Sólrúnu ISG segir enga samninga í gangi
- Hagavatnssvæðið í myndum Hagavatn virkjað? Myndir.
- Þróunarlaus aðstoð Þróunaraðstoð til óþurftar
- Bláfjöllin vakna Snjórinn kemur í Bláfjöllin
- BNA Íslandi til bjargar BNA neitar að samþykkja á Balí
- Látum okkur ekki blæða út á Balí Semjum ekki af okkur á Balí- ráðstefnunni
- Annars hugar á Balí Anna og Hugi frá Íslandi á Balí
- Ánægjulegt árangursleysi á Balí Óræð niðurstaða á Balí
- Lokasetning á Balí Lofstlagsráðstefnu á Balí lokið
- Á nöglum í rokinu Naglar borga sig í roki á svelli
- Áramótabrennum frestað? Líklegt að fresta þurfi áramótabrennum
- Átök orðin að stríði Sri Lanka eftirlitssveitir burt
- Nótum þess Vatnið á Íslandi, heitt og kalt er frábært
- Hungraður heimur, óvart Framleiðsla lífefnaeldsneytis veldur hungri
- Fórnarkostnaður stjórnarinnar Þórunn umhverfisráðherra er Wildcard
- ESB viðurkennir mistök í umhverfisstefnu ESB breytir um stefnu vegna etanóls
- Grænland kólnar! Kaldur vetur á Grænlandi
- Bláfjöll: Ráðningar gleymdust! Rekstur Bláfjalla í molum
- Ófriðareftirlit og spillingarstyrkir ISG og friðareftirlit
- Bláfjöll: Nú kastar tólfunum! Ástandið í Bláfjöllum versnar
- Bláfjallaklúðrið nær hámarki 10.000 manns í Bláfjöllum en lélegt
- Líf í frostinu Líf í frostinu
- Stóriðjan kemur til bjargar Stóriðjan kemur til bjargar
- Endurnýting hvala Endurnýting hvala
- Veturinn er bestur Veturinn er bestur
- Skattlagning í nafni kvenna Skattlagning í nafni kvenna
- Þórunn á bremsunni Þórunn á bremsunni. Umhverfisráðherra heftir för
- Gorhugsun um Hinn máttuga mann Gorhugsun um Hinn máttuga mann. Lýsingar Gores
- Veitum framúrskarandi forystu Íslendingar veita framúrskarandi forystu skv. Gore
- Gore er ræðusnillingur Gore er ræðusnillingur en fer með rangan málstað
- Lögregla gegn umhverfissinnum Lögreglan í Brussel tekur á umhverfissinnum
- Dýr er hver Bitru- túristinn Dýr er hver Bitru- túristinn fyrst að hætt er við Bitruvirkjun
- Hver tekur af skarið? Hver tekur af skarið í borginni? Erfitt í flokknum
- Virkjum og eflum alla dáð Virkjum og eflum alla dáð. Bitruvirkjun ofl til bjargar
- Skjálftakort og töflur Skjálftakort og töflur v Suðurlandsskjálftans maí 2008
- Vopnum safnað Vopnum safnað. ISG og Rice ræða málin
- Frægasti Íslendingurinn níðir Ísland Frægasti Íslendingurinn níðir Ísland. Björk ófrægir landann
- Buddan talar Þórunn umhverfisráðherra semur af sér
- Hekla er flott Ferðalýsing á Heklu með myndum
- Afleitar afleiddar afleiðingar afglapa Afleiðingar aðgerða í loftslagsmálum
- 5000 kr. á mann, bara fyrir Laugaveg 4 og 6 Borgin greiddi ofurverð fyrir skúrarusl
- Vedurpár- vídeó Veðurþáttaspá vedur.is útskýrð
- Engir samningar um loftslagsmál Fylkingar G8 og G5 eiga sér misjöfn takmörk
- ISG í herráð heimsins Utanríkisráðherra vill komast í Öryggisráð SÞ
- Yfir Skeiðarárjökul Ferðalýsing frá Grænalóni yfir Skeiðarárjökul
- Hækkum orkuverð Selja orkuna dýrt og gæta skattanna
- Þróunaraðstoð á tilvistarkreppufundi Þróunaraðstoð heimsins er í krísu
- Sóunarsamvinnu að ljúka? Sóunarsamvinnu að ljúka?
- Loftslags- réttlæti strax! Loftslags- réttlæti strax!
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.6.): 0
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 9
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 6
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
2025
2024
2023
2022
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
stefanbjarnason
-
hannesgi
-
businessreport
-
askja
-
martagudjonsdottir
-
agbjarn
-
geiragustsson
-
gustaf
-
vey
-
frjalshyggjufelagid
-
tilveran-i-esb
-
gammon
-
sigsig
-
omarragnarsson
-
raksig
-
halldorjonsson
-
vinaminni
-
samstada-thjodar
-
draumur
-
magnusjonasson
-
frisk
-
jonaa
-
apalsson
-
skodunmin
-
arnim
-
gullvagninn
-
altice
-
fannarh
-
gun
-
oliatlason
-
bjarnihardar
-
nilli
-
davido
-
svanurmd
-
steinisv
-
johanneliasson
-
hagbardur
-
arh
-
zumann
-
doggpals
-
jonvalurjensson
-
dofri
-
katrinsnaeholm
-
seinars
-
kari-hardarson
-
fredrik
-
valli57
-
tibsen
-
kisabella
-
tbs
-
astroblog
-
maeglika
-
himmalingur
-
skulablogg
-
arnih
-
ingagm
-
ahi
-
mullis
-
krissi46
-
vefritid
-
gauisig
-
bryndisisfold
-
brandarar
-
nerdumdigitalis
-
svartagall
-
siggith
-
klarak
-
jennystefania
-
lax
-
unnurgkr
-
vilhjalmurarnason
-
gattin
-
kruttina
-
rynir
-
heidistrand
-
thorhallurheimisson
-
duddi9
-
kristjan9
-
haddi9001
-
bofs
-
thjodarheidur
-
theodorn
-
lucas
-
benediktae
-
iceland
-
fun
-
diva73
-
zeriaph
-
tharfagreinir
-
bjarnimax
-
fullvalda
-
sigurjons
-
sissupals
-
davpal
-
friggi
-
ketilas08
-
valdimarjohannesson
-
gerdurpalma112
-
andres08
-
krist
-
fjarki
-
tik
-
palmig
-
rustikus
-
vestskafttenor
-
gummibraga
-
svansson
-
geirfz
-
fhg
-
stjornlagathing
-
loftslag
-
jonmagnusson