Bláfjöll flott

IMG 1048Vetrarfjörið hófst aftur hjá okkur frændum og fleirum í gær með fínu skíðafæri í Bláfjöllum. Hér er víðsýnismynd og myndband frá þessum einstaka viðburði (eða þannig), líka í myndaalbúmi hér til hliðar.

Ómæld eru lífsgæðin sem felast í því að geta skroppið upp í fjall að morgni með árskort í vasanum, svifið seglum þöndum á skíðum, dúllast heim og njóta síðan alls þess sem dagurinn býður upp á í bænum. Alger klassi.


mbl.is Von á hvítum jólum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Samtök heims- sósíalista með útvatnaða yfirlýsingu

HroiHöttur-a-sterumNú er það skýrt: Loftslags- ráðstefna SÞ er orðin að heims- þróunarstofnun sem stefnir á 100 milljarða bandaríkjadala sóun á ári innan 5 ára til fátækari ríkja frá hinum „ríku“ sem eiga að hafa skapað vandann mikla, en þar er Ísland að ófyrirsynju talið eitt af þessum syndugu ríkjum frá iðnbyltingartímanum. Þessir 12.500 Hróar hettir frá 190 ríkjum sem lögðu sig í Lima tala ekki lengur um vísindi, heldur hvernig eigi að fá pening til þróunarríkja (sem mörg hafa að vísu hvað mestan hagvöxt í heiminum), en loftslagstalið er helsta leiðin til þess, núna þegar flest ríki sjá að hefðbundin þróunar- aðstoð er ein mesta spillingar- sóun sem hugsast getur og ætti að heita sóunaraðstoð.

Hjálpum þeim til aðlögunar

Aðalástæðan fyrir því að ekki er lengur mikið rætt um vísindalegar niðurstöður þess hverju loftslags- aðgerðir skila og hve fljótt, eru þær að það tæki amk. áratugi en líklegast árhundruð að virka skv. kenningunum, eins og með hækkandi sjávarmál. Núna á fjárausturinn því ekki aðeins að fara í fundina miklu, heldur til að hjálpa ríkjunum að aðlagast. Umferðin í Reykjavík er því látin stíflast og álögur hér auknar til þess að greiða eyríkjum í Kyrrahafi fyrir það að vera með aðeins nokkurra metra hæð yfir sjávarmál og íbúar þar aðlagist þeirri staðreynd!

Aðgerðir

Fáránleikinn í þessari árlegu villtustu sósíalista- paradís SÞ er orðinn slíkur að fólk hlýtur að spyrja sig til hvers verið sé að elta ólar við þessa endaleysu. Sök sér að trúa á eitthvað, en aðgerðirnar og fjármögnun vegna þessa í álögum á íslenska þjóð er sannarlega út í Hróa hött.

 

 


mbl.is Komist að umdeildu samkomulagi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ef óþolandi, þá ferðu bara eitthvað annað!

TvöbilastaediFormaður Umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur lýsir stefnu ríkjandi afla í borginni vel í frétt MBL í dag: „Eftir því sem göturnar verða breiðari og bílastæðin verða stærri, því meiri verður umferðin. Þannig að ég hef engar áhyggjur af því (að bílastæðahús vanti, innskot ÍP). Ef mönnum finnst þetta orðið óþolandi taka þeir kannski strætó eða labba, eða fara eitthvað annað. Þannig eru nær allar miðborgir. Í allmörgum borgum er tollur þegar ekið er inn í þær“.

Slys

Stórslysið sem stefnt er í með skipulag miðborgarinnar er eins fyrirsjáanlegt og hugsast getur. Ísjakinn blasir við beint framundan á radarnum, en samt skal stefnunni haldið, allt til loka. Tölurnar um margföldun núverandi bílastæða- vandræða eru sláandi, en Dagur og félagar virðast ákveðnir í því að miðborgin verði ekki fyrir alla Reykvíkinga eða landsmenn, sem ferðast um á bílum sínum, heldur aðallega fyrir þau fáu sem þar búa og alls ekki fyrir ferðamenn á bílaleigubílum.

Nú eru það holtin

Nú eru holtin líka tekin fyrir með sömu stefnu allt í kringum Hlemm. Þannig er hvert hverfið að öðru tekið fyrir, þannig að allt logi að lokum í ófriði á milli íbúanna í bardögum um þau fáu stæði sem eftir standa. Svar Dags er að tvöfalda sektir vegna bíla sem lagt er ólöglega, þar sem engin stæði er að fá.

Hlustað á útlendingana?

Þegar þúsundir ferðamanna hafa sett inn umsagnir á TripAdvisor um að ekki sé verandi á bílaleigubíl ef gist er í miðborginni, Holtunum eða nálægt Borgartúni, þá fer Latte- hópur Dags kannski að bregðast við, en það er þegar að verða of seint. Flæði allrar umferðar á að vera aðalatriði, svo að borgarlíkaminn haldist hraustur.

 


mbl.is Verktakar taki þátt í kostnaði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Munu 12.500 manns í Lima bjarga heiminum?

2014 12 08 Climate LimaUm 12.500 manns skráðu sig á ráðstefnu SÞ í Lima í Perú til þess að funda í tvær vikur um loftslagsmál og reyna að knýja fram alþjóðlegan samning um takmarkanir á kolefnislosun, þótt ljóst sé að hann verði ekki gerður. Viðkvæðið er að vanda á þessari árlegu samkundu að tryggja þurfi að næsta ár á glæsilegum stað verði samningurinn gerður sem aldrei verður gerður. Næst verður hún í París.

Tilgangslausir fundir

Framan af snerust þessir fundir um það að tafarlausar aðgerðir þyrfti til þess að hægja á hitun heimsins , ella væri framtíð okkar og barnanna okkar í stórhættu. En eftir því sem upplýsingar frá gagnrýnum vísindamönnum síuðust í gegn, þá varð ljóst að aðgerðir næstu árin myndu skila árangri eftir bjartsýnustu kælimódelum eftir áratugi, en líklegast nokkur hundruð ár. En búið var að ræsa út herina eins og í upphafi fyrri heimstyrjaldar, þannig að þeir urðu ekki stöðvaðir: Við verðum að bregðast við af hörku í nútíð til þess að ís bráðni hægar á 500 árum. ESB leggur sig fram við að markmiðin náist.

Olían fallin í verði

Á meðan berast fréttir af því að olíuverð hafi fallið svo mikið að vinnsla er víða undir kostnaðarverði, sem er langt undir kostnaði við aðra orkunýtingu. En stærstu sendinefndir jarðar þurfa ekki að taka tillit til slíks og koma með sömu yfirlýsingarnar og þær hafa gert í 10-15 ár til fréttaþyrstra blaðamanna, sem nú bíða 1000 talsins, spenntir á fundarstað.

Skattar og höft

Það er deginum ljósara að þessir fundir eru álíka tilgangslausir og skattarnir og höftin sem eru jafnvel í gangi hér á landi vegna kolefnislosunar. Fólk í viðskiptum veit að þetta skiptir ekki máli, en er gert í pólitík til þess að friða þegnana. Svo eru kolefniskvótarnir valdatæki þessarra sömu stjórnmálamanna í Vestur- Evrópu.

Við stjórnum ekki veðrinu. Ef mannfólkið truflaði veðurfar, þá var það annað fólk í fjarlægri fortíð, allt frá iðnbyltingu, en við munum aldrei komast að hinu sanna.


mbl.is Grafa undan loftslagsviðræðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Enn á að rugga bátum sem sigla vel

Timinn sveigdurÉg hélt virkilega að endalok Jóhönnu- stjórnar þýddi það að hætt yrði að hrófla við hverju því sem vel hafði reynst, en það var einn helsti aðall hennar. Því miður virðist hafa myndast hefð sem erfitt er að snúa við, hvort sem það er um að leggja niður flugvelli, leggja á óþarfa skatta eða eins og núna að breyta klukkunni svo að veturinn verði mánuði lengur í vökulífi okkar, en sem kunnugt er þá tekur hann drýgstan tíma ársins á Íslandi.

Hádegi er á góðum stað

Hér er sólin hæst á lofti að meðaltali um kl. 13:15. Sjálfskvalar- stefna þeirra sem vilja færa þetta til um kl.12:15 er óskiljanleg fyrir flest okkar sem vilja vera tímanum lengur í birtunni með börnunum okkar eða við athafnir okkar þegar við komum t.d. úr vinnunni. Gæði einnar klukkustundar snemma að morgni eða í eftirmiðdaginn eru ekki þau sömu, þar sem annars er um að ræða (fyrir flesta) vinnu en hins vegar frítíma. Höldum klukkunni á sínum stað eins og síðustu áratugi.

Ef við ætlum að græða á daginn, þá verður að vera eftir einhver birta til þess að grilla á kvöldin.


mbl.is Svona dimmir með breyttri klukku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ráðskast með okkur

Hjarta-asinnVinnubrögð Dags borgarstjóra og félaga opinberast smám saman eins og núna í dag þegar borgarstjórn samþykkti í raun Hlíðarenda- byggðina, sem gerir út um neyðarbraut Reykjavíkurflugvallar, með fyrirséðum afleiðingum. Samráð við borgarana og landsmenn var nánast ekkert.

Byrðar og félagsleg blöndun

Þar inn á milli reisir Dagur borginni hurðarás um öxl með félagslegum íbúðum, sem eru ekkert nema kostnaður fyrir borgarbúa, en á að „tryggja félagslega blöndun“. Byggt er á dýrum stað fyrir fólk sem ekki greiðir fulla leigu af ýmsum orsökum og skil á þeirri leigu er afar takmörkuð. Fjármögnin treystir líka á ríkið í þessu, sem skrifar ekkert endilega upp á þessa aðferð.

Upp í ermina

Dagur treystir semsagt á að ríki og borg standi undir þessum loforðaflaumi hans um byggingu íbúða, sem eru síðan reistar án teljandi samvinnu við borgarana. Ég hvet alla til þess að fara ofan í saumana á því hvað í þessu felst.


mbl.is Óvissa um fjölgun félagslegra íbúða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Enn einn skatturinn

COlosunarflokkarRaunverulegur kostnaður kolefnisvitleysunnar kemur æ betur í ljós núna, en verst er að Sjálfstæðisflokkurinn í stjórn tekur þátt í þeirri fólsku, með álögum sem enda með að breyta bílaflotanum í druslur og dúkkuvagna, allt með þann vafasama tilgang að hita ekki heiminn um 2°C á næstu áratugum, sem ljóst er að verður hvort eð er ekki breytt.

Kosinn til hvers?

Landsfundur Sjálfstæðisflokksins var skýr um það hvað gera skuli í skattamálum, t.d. að kolefnisskatta beri að afnema. Rökræn skýring á þeirri gjaldtöku er enda ekki til, þar sem sú blóðtaka mun ekki kæla heiminn á hundruðum ára. En Landsfunda- minni fjármálaráðherrans og formannsins er ekki alltaf sem best og þar þurfum við öll að minna hann og stjórnarliða á til hvers þau voru kosin.

Þessi stjórn

Ef Framsóknarflokki og Sjálfstæðisflokki í stjórn tekst ekki að lækka skatta, fækka þeim og draga ESB- umsóknina til baka sem allra fyrst, þá er greiður völlur fyrir skattglaða pólitíkusa vinstra megin við þá til þess að auka álögur í nafni heimshlýnunar, Evrópumiðstýringar eða hvaða firru sem þaðan kann að koma.

Stjórnvöld verða að sýna að nú er stjórn við völd! 


mbl.is „Ýtir undir druslubílavæðingu“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nýr skattur!

Burokratar i hringFlokknum mínum fatast flugið núna. Leggur fram frumvarp um nýjan skatt, náttúrupassa, þegar draga átti úr ríkisumsvifum og skattlagningu! Bætum þessu við matarskatts- klúðrið og þá spyr maður sig hvort hressa þurfi ekki upp á minnið hjá flokksmönnum í ríkisstjórninni um Landsfundar- ályktun og til hvers þau voru kosin. Lækka skatta og draga ESB- umsókn til baka. Það tekur ekki árin. Það á að gerast strax.

Vinstra vesen

Skattlagning eins og náttúrupassinn býður upp á allan vinstri- vesen pakkann eins og hann leggur sig: höft á frelsi fólks, ósanngjarna skattlagningu, mismunun, útþenslu ríkisbattería, eftirlitsplágu, riflildi um skiptingu tekna, óþarfa kostnað og meiri völd til ríkisins. Það gefur auga leið að amk. helmingur upphæðarinnar fer í ofangreint, eflaust meira, enda vindur svona lagað upp á sig með tímanum.

Þurfa tiltal

Ráðamenn í Sjálfstæðisflokknum þurfa augsýnilega tiltal frá flokksmönnum núna. Eins gott að Landsfundur er í nánd. Við skulum rétt vona að svona vitleysur verði leiðréttar fyrir þann tíma og náttúrulega að ESB- umsóknin muni hafa verið dregin til baka.

 

 

 


mbl.is Náttúrupassi samþykktur í ríkisstjórn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Allt er í heiminum hverfult

1990s575Gígjökull og steinbrúin yfir Ófærufoss benda okkur á það, að allt er í raun hverfult, bara á mismunandi löngum tíma, einnig hjá mannfólkinu. Steinbrúin kannski í milljónir ára en Gígjökull í árhundrað, eftir gosum Eyjafjallajökuls. Landið rís og sígur, hafstraumar fara til hægri og vinstri og lífið allt fylgir þeim andardrætti. Litla- hérað í A- Skaftafellsýslu breyttist í Öræfi á örskotsstundu en gróðurinn kemur aftur á hlýskeiðum. 

Fólkið eða almættið?

En nú bregður svo við að fram stígur fólk sem fer mikinn og heldur því fram að hluti þess mannfólks sem jörðina byggir núna geti ekki aðeins breytt veðurfarinu í þá átt sem það kýs, heldur leiðrétt þær skyssur sem aðrar mannskepnur annars staðar í heiminum á öðrum tíma kunna að hafa gert frá iðnbyltingunni til vorra tíma. Áhrif þessara aðgerða taka að vísu fjölda áratuga eða nokkur hundruð ár að virka, en á þeim tíma hefur jörðin tekið margan andardráttinn, sem gjörbyltir öllum plönum þessa ágæta, framsýna fólks.

Ég held að ég njóti frekar bara dagsins.

Sigid i Gigjökul

 


mbl.is Breytingar á ásjónu landsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hinir fáu ákveða fyrir fjöldann

NarrowingÞrengingin á Grensásveg er nýjasta uppátæki Dags & Co., þar sem miðbæjargengið fámenna þröngvar lífssýn sinni upp á fjöldann. Um 7,6% íbúanna búa í miðbæ Reykjavíkur en tæp 50% í Breiðholti, Árbæ, Grafarholti og í Grafarvogi samanlagt (sjá súlurit). Sá helmingur borgarbúa býr víst í „úthverfum“ skv. skilgreiningu latte- liðsins og aðrir sem búa í aðliggjandi sveitarfélögum en t.d. vinna í Reykjavík eru ekki inni í byltingar- myndinni stóru sem Dagur & Co. hampar, með allri sinni reiðhjólapólitík og bílfjendastefnu.

Íbúar og notendur ekki spurðir

Raunverulegir notendur gatnanna eru aldrei spurðir neins og heldur ekki fólkið í hverfunum. Einhver fundur með tugi manns er ekki marktæk leið, heldur verður að nýta nýjustu tækni til þess að ná til hvers og eins innan hverfis og utan. Leyniorð í farsímann/ tölvuna er líklegast besta leiðin til þess að kjósa um þætti sem standa nær fólki og finna þarf leiðir til þess að láta slíkt gerast. Betri Borg hefur aftur á móti ekki komist rétt af stað og er ekki skilvirk leið, enda gjarnan tillöguhrúga um smærri atriði en aðal- ágreiningsefnum er ýtt til hliðar.

Verulega knýjandi ástæður á að þurfa til þess að breyta skipulagi sem vel hefur reynst og hefð hefur skapast um. Dyntir mistækra stjórnmálamanna eiga ekki að rugga þeim báti.


mbl.is Ákvörðun um þrengingu var frestað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Verulega villandi umfjöllun

HvernigFerdastVegagerðin lét kanna ferðalög fólks ÚT FYRIR BÚSETUSVÆÐI ÞEIRRA sem fyrr, en fólk gæti misskilið umfjöllunina og haldið að bíllinn sé á verulegu undanhaldi innan Reykjavíkur, en svo er ekki, enda tók könnunin ekki á því. Hlutfall fólks sem hafði ferðast einhverntíma þarna á milli í sumar á vegum Strætó bs.var 8% heildarinnar. Vegagerðin spyr varla um reiðhjól enda fáir sem ferðast langar leiðir á þeim.

84% með bílum

Samvæmt könnun Reykjavíkurborgar í fyrra voru 84% ferða fólks innan höfuðborgar- svæðisins að jafnaði með bílum (sjá mynd) en 4% á reiðhjóli eða mótorhjóli og 8% með almenningsvögnum. 

Fólk sem ferðast til og frá Reykjavík treystir áfram á flugvöllinn í Vatnsmýri og samnýtir bílferðir betur en áður og er það vel. Gerum þeim enn auðveldara að nýta alla þá aðstöðu sem Reykjavík býður upp á.


mbl.is Fleiri vilja halda í flugvöllinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt
Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

Er nýja hverfið með bílastæðum?

Fróðlegt er að sjá hvar fjöldi bílastæða endaði í Vogabyggð, þegar íbúðafjöldinn margfaldaðist. Verða þau 1100 eða færri, allt að eitt bílastæði á íbúð, eins og 1% Reykvíkinga vilja skv. könnun í fyrra (sjá mynd). Eða verða þau kannski 2200- 3300, 2-3 á íbúð eins og 62% íbúanna vilja? Hjólastefnu Dags & Co. verður eflaust framfylgt svo að naumt verður skammtað undir stjórn Hollendinganna.

Bilastaedi oskirSvo er erfitt að láta vetrarsólina skína inn í svona margar íbúðir á þetta þröngu svæði. Helmingi færri íbúðir færu betur.

 


mbl.is 100 milljarðar í nýtt hverfi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Loforð Dags: ekkert pukur!

Dagur Fjölbreytt uppbyggingDagur B. Eggertsson borgarstjóri kynnti aðgerðir þar sem byggð verða fjölbýlishús víða án samráðs við borgarana. Flugvöllurinn fer burt, enda vinna Dagur & Co eftir Aðalskipulagi og segja það löngu staðfest að þriðja flugbrautin fari núna. Unnið er að stækkun Skerjafjarðar og ekkert pukur með það, segir Dagur nú.

Flugvöllur burt

Nú er því talað skýrt, ekki eins og fyrir nokkrum dögum síðan þegar reynt var að slá ryki í augu fólks varðandi framkvæmdirnar á Hlíðarenda, en forsenda þeirra er að neyðarbraut Reykjavíkur- flugvallar fari. Stefnan er skýr, hún er Aðalskipulagið og þar fer allur Reykjavíkurflugvöllur, en þróunarás í staðinn með brú yfir í Kópavog.

Umferð ekkert mál

Umferðarmál bar lítið á góma, nema hvað útlistað var hve ódýrt væri að eiga og reka reiðhjól. Þúsundum íbúða er bætt við svæðin án tillits til þeirrar umferðar sem fyrir er og búast má við. Það virðist gleymast að sl. september var næst- umferðarmesti mánuður sögunnar á Stór- Reykjavíkursvæðinu. Það er áður en uppbyggingin hefst og bílastæðin hverfa.

Spennandi

 

En aðalatriðið er náttúrulega að núverandi borgarstjórnar- meirihluti nær þarna fram stefnu sinni „að tryggja félagslegan jöfnuð“. Engin atkvæðagreiðsla fer fram á meðal borgaranna og engar spurningar voru leyfðar. Heilu hverfin verða bara að þola það að fá spennandi uppbyggingu samkvæmt Aðalskipulagi og uppljómun Dags Bergþórusonar Eggertssonar. Kynnið ykkur smáatriðin þar.

 

 


mbl.is 500 nýjar íbúðir við Hverfisgötu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Blásið þið vindar!

SO2SveppurGasmengunin frá Holuhrauni angraði vesturhluta landsins, en nú blása austanvindar, sem hreinsa ófögnuðinum af Reykjavík og valda sérstöku skýjafari, eins og sjá má í myndaalbúmi mínu hér til hliðar. Elstu myndirnar voru teknar í fyrradag, vel þungbúnar, en síðan sést hvernig vindurinn ýtir þessu frá.

En vinir mínir á Grundarfirði eru ekki kátir yfir þessu og voru innandyra í gær. 


mbl.is Gasmengun á Vesturlandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tilgangslaus bardagi við borgarana

Dreamstime Angry

Nú koma í ljós afleiðingar aðfararstefnu Dags & Co að bílnotendum, sem eru 84% þeirra sem fara til vinnu sinnar á Reykjavíkursvæðinu. Borgartúns- svæðið vex og margfaldast, en borgaryfirvöld svara þörfinni á bílastæðum með því að fækka þeim og þrengja líka að umferðinni að auki! Í ofanálag greiddum við stórfé fyrir breytingarnar og munum þurfa að gera það aftur til þess að bakfæra þær.

Hvað skiptir máli? 

Hvort skyldi nú skipta meira máli fyrir fjöldann sem stefnir í Borgartúnið á hverjum degi, að komast leiðar sinnar fljótt og örugglega, eða að dást að gangstéttunum, hjólastígunum og trjáhríslunum þegar hann er fastur í umferðarteppu og stressi í leit að bílastæði í bardaga við náungann og íbúa í grennd við svæðið? Lausn yfirvalda er síðan sú að innheimta æ hærri gjöld og leggja á sektir, sem borgar ekki einu sinni kostnaðinn við aðgerðirnar, en leysir nákvæmlega ekki neitt, heldur býr til enn meiri þjáningu fólksins. 

Ef allir sem starfa við Borgartúnið væru spurðir: „Vilt þú að bílastæðafjöldi verði hámarkaður og umferðarflæði aukið á svæðinu?“, þá yrði svarið yfirgnæfandi JÁ! En það hentar ekki stefnu borgaryfirvalda. Látið samt í ykkur heyra og látið Dag B. Eggertsson borgarstjóra vita: Nú er nóg komið, takk!


mbl.is Gjaldmælalaust gjaldsvæði í skoðun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tugir slasaðra í viðbót næstu vinstri árin

Arnarnes-fjöldi-slysa

Staðfestur er árangur mislægra gatnamóta í að fækka slysum. En afarsamningur vinstri meirihluta borgarstjórnar við ríkið um engar slíkar framkvæmdir safnar upp tugum illa slaðaðra og hamlar eðlilegu umferðarflæði, sem er afleiðing stefnu og forgangsröðunar Dags & Co. í þessum efnum. Ef bætt er við tvöföldun höfuðmeiðsla vegna hjólreiðaæðis þá má mynda heila deild á spítalanum (sem ekki er byggður) vegna afturbatastefnunnar.

Hættum við Hofsvallagötu- áframhaldið 

Bætum jafnvel við líklegum slysum sem koma þegar umferð er beint af aðalgötum eins og Hofsvallagötu yfir á barnmargar skólagötur. Allt eru þetta fyrirsjáanlegir þættir sem umferðarfræðingar hafa án efa reynt að útskýra fyrir núverandi ídealistahópi í stjórn borgarinnar, en mætt algeru skilningsleysi. 

Krefjumst þess að öryggi á götum borgarinnar aukist, ekki slakni eins og nú. Byrjum með stokk á gatnamót Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar. Látum Hofsvallagötu í friði og eyðum ekki hundruðum milljóna króna í viðbót í áframhaldandi rugl þar, eins og gæti hugsast hjá þessari mistæku borgarstjórn.

 


mbl.is Mislæg gatnamót fækka slysum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Ívar Pálsson
Ívar Pálsson

Viðskiptafræðingur með útflutningsfyrirtæki, en grúskar í flestu.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband