Kýpur: Enginn samþykkti ESB- planið

Kypur motmaeli AP

Enginn þingmaður á kýpverska þinginu kaus með skattinum á bankainnistæður sem ESB/AGS höfðu sett sem skilyrði fyrir neyðarláni sínu. Hlustað var á fólkið, sem getur ekki skrifað sjálfviljugt upp á ánauð um alla tíð til þess að ESB „bjargi“ þeim, eða raunar bönkum þeirra frá glötun. Bankakerfi Kýpur er 7-föld þjóðarframleiðsla þeirra, en á Íslandi var það 12- föld þjóðarframleiðslan í október 2008. Þessi ofur- Icesave nauðasamningur Kýpverja hefði riðið þeim að fullu: ósjálfbær með öllu.

Skatturinn rauf traustið 

Ráðist er þarna með skattlagningu að grundvelli bankakerfisins, sjálfum sparnaðinum, sem fólki er tjáð alla daga að sé verndaður. Traustið á kerfið hverfur. Bankar verða ekki opnaðir á Kýpur á morgun, enda yrðu þeir tæmdir. 

Þörf á íslenskri lausn 

Nú þarf Kýpur á neyðarlögum að halda að hætti Íslendinga, en á óhægt um það vegna ESB/AGS/ECB Troikunnar sem heldur fram sínum lausnum, til varnar sínum gjaldmiðli, Evrunni, ekki einni milljón Kýpverja. ESB hefur agnúast út í þessa bankareikninga- eyju upp á síðkastið, sérstaklega þar sem skattaklær ESB ná illa til þeirra, en fé hefur líka flúið Grikkland til Kýpur. 

Rússarnir koma 

Rússar eru líklegir til að beita sér enn meir á Kýpur. Hún stefnir raunar í að verða „Kúba Miðjarðarhafsins“, ef Kýpur gefst upp á ESB (og gagnkvæmt). Þá tryggja áhrifamiklir Rússar sínar eignir þar og ríkið fær flotastöð með lykiláhrif við Miðausturlönd og við Norðurströnd Afríku, en ófriðurinn þróast hratt áfram, sérstaklega í Sýrlandi. ESB og NATO óttast slíka þróun og því er ESB líklegt til þess að ná einhverri miðjumoðslausn í gegn á Kýpur. En bankana þar verður að taka í slitameðferð og passa upp á innistæður, það liggur hreinlega fyrir.

ESB hefur nú sýnt, með Grikkland og Kýpur, að almenningur getur treyst því að það komi til varnar gjaldmiðlinum og bönkunum, ekki fólkinu í nauðum þess. 


Össur, kveiktu á erlendum fréttum!

Ossur med fidluna

Smáríkið Kýpur er þrefalt fjölmennara en Ísland, er í ESB og með Evru og er í rúst. Össur Skarphéðinsson, sem enn er utanríkisráðherra telur ennþá óumflýjanlegt að Ísland gangi í ESB og taki upp Evru!

Kveiktu á erlendum fréttum, Össur, ekki RÚV eða Stöð 2, heldur alvöru fréttum. Nú logar allt stafnanna á milli syðra á meðan þú spilar á fiðlu. Innistæðu- eigendur bíða spenntir eftir að komast í að gera áhlaup á bankana á Kýpur um leið og þeir opna, jafnvel þótt skattur hafi þegar verið lagður á inneignirnar, líka þær smæstu. 

ESB mun ekki koma Kýpur til bjargar. Ríkið vantar 19 milljarða Evra en fær kannski 10 milljarða, ef Kýpur samþykkir ofurskilmála með samdrætti til framtíðar að hætti Icesave.  Vextir á Kýpur rjúka upp en skipta nærri því ekki máli frekar en á Grikklandi þegar álíka kom upp þar.

En ofur- Evran hans Össurar mun að hans viti bjarga öllu hjá okkur: lækka vexti (!) og við færumst í faðm öruggs gjaldmiðils (!). 

Man enginn eftir því að Össur sagðist sjálfur ekki hafa hundsvit á fjármálum? 


mbl.is Óhjákvæmilegt að ganga í ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sóunar- spillingarstyrkir með vöxtum

AfrikuHermadur

„...aðdáunarvert sé að Ísland hafi skuldbundið sig til að auka framlög til þróunarsamvinnu þrátt fyrir erfiðar efnahagslegar aðstæður“!!! Er aðdáunarvert að vinstri stjórnin noti síðasta daginn til þess að skuldbinda ofurskuldsetta þjóð til þess að greiða milljarða króna af gjaldeyri sem tekin var að láni, til notkunar í gegn um risabatterí í spilltustu ríkjum veraldar?  

Undarleg þögn ríkir jafnan um þessi mál, þar sem fjöldi beinagrinda eru í skápnum. Skilvirkni þessa gjafafjár er með afbrigðum léleg, eins og hver maður sér, sem hefur unnið í þessum málum eða bara kynnt sér þau eitthvað. Því dýpra sem kafað er, því meiri ófögnuður kemur upp.


mbl.is Ísland aðili að þróunarsamvinnunefnd OECD
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Launaelítan með ESB- aðild

ESB Capacent jan 2013 skipt

Nokkur kaldhæðni felst í því að Samfylking (almennings!) tali helst fyrir ESB- aðild, þar sem hálauna- elítan er hörðust með aðild, sérstaklega í gegn um samtök eins og SI og Viðskiptaráð. Almennt eru 70% á móti ESB-aðild en 30% með henni, af þeim sem afstöðu tóku.

Tilgangsleysið í því að klára samningana sést t.d. með því að fylgismenn þess eru gallharðir í því að kjósa ESB- aðild, raunar 99% þeirra, skv. Capacent Gallup (sjá mynd). Allt tal þeirra um val og að kíkja í pakkann er blekking, þar sem þessi 30% Íslendinga, sem fylgjandi eru ESB- aðild, vilja nota þessa Krísuvíkurleið til þess að lauma aðild upp á Ísland. Á meðan er ljóst að andstæðingar aðildar vilja slíta ESB- „viðræðum“.

ESB Capacent jan 2013 70 30

Ef Samfylkingu, Bjartri framtíð og öðru ESB- fólki text að halda ESB- aðildarferlinu áfram, þá er alvarlegur lýðræðishalli í gangi. Ef hálauna- elíta á miðjum aldri í Reykjavík er skilin frá, þá er vilji almennings hvellskýr: Við viljum að ESB- aðlögun verði slitið strax!

Hér er skoðanakönnun Samtaka Iðnaðarins.

Smellið þrisvar á mynd til þess að fá fulla upplausn. 


mbl.is ESB eitt brýnasta kosningamálið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Spáin 2012: 94% yfirskot

Gott Ar 2012Hagvaxtarspáin reyndist vera 94% hærri en útkoman varð í raun árið 2012. Því má m.a. þakka Svandísi Svavarsdóttur & Co. sem tókst að stöðva stærstu virkjanamálin ásamt vinstri stjórninni í heild sinni. Blekkingarteymið Samfylking/VinstriGræn fær líka sínar þakkir fyrir allt þetta gas sem lyftir auglýsinga- loftskipinu æ hærra án tilgangs eða innihalds.

Áætlanir stjórnarinnar voru byggðar á draumsýn, þar sem reiknað var með besta hagvexti á Vesturlöndum á meðan atvinnulífinu og fjölskyldunum var beinlínis meinað að dafna. Ofurskattlagningin miðar líka við þessar fáránlegu áætlanir og niðurstaðan verður kyrrstaða eða hnignun. Vinstri Græn hafa líka jafnan spurt, til hvers þurfum við hagvöxt? Þá er ekki nema von að útkoman sé þessi eymd sem hún er. 


mbl.is Værukærð yfir fréttum af hagvexti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ESB- aðlögun verði hætt

23-2-2013 xd ESB nei

Ef Sjálfstæðisflokkur kemst til valda mun ESB- aðlögun verða hætt. Landsfundur staðfesti loksins í dag ályktun um að ESB- „viðræðum“ skuli hætt. Væntanlegir kjósendur vita nú hvaða flokkur lýkur þessu aðlögunar-helsi sem vinstri stjórnin setti þjóðina í. Þá frelsast ráðuneytin, stjórnin og atvinnulífið til góðra verka þegar ný stjórn tekur við.

Á myndinni hér til hliðar (Stöð2) leggur Davíð Oddson baráttunni lið eins og endranær.  Höfundur er þar fyrir framan, til hægri á myndinni, spenntur að sjá hver niðurstaðan verði. Góður dagur.


mbl.is Aðildarviðræðunum skuli hætt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rökleysa

WeThePeople

Bjarni Benediktsson bendir réttilega á þá firru sem valdaframsal til alþjóðastofnana getur orðið. Hvernig fæst fólk til þess að breyta stjórnarskrá í átt til framsals réttinda fólksins og hvað þá til erlendra stofnana, eins vitlaust og það kerfi er? Ótal aðstæður geta komið upp, t.d. stríð og kúgun einráðra valdasjúklinga í stofnunum eða hjá þjóðahópum, þar sem við fáum ekkert við ráðið. Fyrir utan það að hafa aldrei neitt atkvæðamagn sem máli getur skipt, alltaf innan skekkjumarka.

Sanngjarnt lýðræði hefur regluna í heiðri, „einn maður, eitt atkvæði“. Þá er hvert okkar gegn 400 milljónum Evrópskra atkvæða. En það væri ef lýðræði ríkti í ESB: raunin er sú að framsalið er til tveggja persóna þegar á reynir, Kanslara Þýskalands og forseta Frakklands, sem öllu ráða í alþjóðastofnunninni ESB.

Leyfi í stjórnarskrá til framsals valdsins er þvílík rökleysa að þingmenn sem bera slíkt upp ber að víta.


mbl.is „Fullkomin eftirgjöf gagnvart ESB“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aðfararstjórninni slitið?


Ut straxAðfarar- stjórn Jóhönnu og Steingríms J. ætti að fá náðarhöggið strax svo að lágmarka megi tjónið sem aðför hennar að lýðveldinu sjálfu, stjórnskipuninni og fólkinu í landinu hefur valdið. Icesave er frá, en hún hættir ekki fyrr en stjórnarskráin er skemmd, fullveldið hálf-framselt til ESB, stjórnkerfið lamað, sjávarútvegur í rúst, skattaáþján alger og óvissan ræður ríkjum.

 

Engin ástæða er til þess að bíða kosninganna. Þessa (ó)stjórn verður að bera út eins og starfsfólkið hjá Lehman Brothers: staðið er yfir þeim á meðan þau raða persónulegum munum sínum í einn kassa og koma sér út. Ella verður tíminn sem eftir er að kosningum notaður til frekari óþurftar íslenskri þjóð. Nóg er að gert!


mbl.is Vantraust í farvatninu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fylgi við ESB- aðildarferlið fellur um 26%

EU no Swisswacky

Fréttablaðið og Stöð 2 könnuðu fylgi við ESB- aðildarferlið: 26% færri styðja það núna frá fyrri könnun. En 51,6% vilja gera hlé á viðræðunum eða slíta þeim strax. Fylgi ferlisins á Alþingi er ekki beysnara. Því er ljóst að bakland íslenskra „samningamanna“, sem var aldrei nóg, er alls ekki fyrir hendi núna, enda er þorri þjóðarinnar búinn að fá nóg af þessari tilraun.

Níðþung kerfi 

En hvar í þessu ógnarferli ákvað þjóðin að rétt væri að aðlagast smásmyglislegasta og þunglamalegasta búrókratakerfi allra tíma? Ekki var það með EES- samningnum, því að hann var einmitt samningur á milli þjóða um frelsi til athafna þeirra í milli. Nei, það var ekki fyrr en vinstri stjórnin tók við sem öllu ruslinu var hleypt í gegn, sama hvaða nafni það nefnist. Áður var farið yfir hverja grein og neitað að samþykkja það sem ekki passaði okkur hér. Nú er látið eins og bálkar ESB hljóti að vera það besta sem komið hefur fyrir okkur frá því að niðursneitt brauð var fundið upp.

Hvernig urðu ósköpin til?

Lög og reglur ESB urðu til sem sáttargerðir vegna ótal áhrifaþátta, heimsstyrjalda og mismunandi fyrirgangs. Íslendingar eru vanir því að taka beint á hlutunum, hafa lagagreinar stuttar og markvissar að hætti Hávamála og að hafa frelsi til athafna, en ekki þurfi jafnan að kalla á þrjár manneskjur til þess að komast í gegn um reglugerðartorfið vegna aðgerðarinnar.

Hætta strax 

Því fyrr sem þessu aðildarferli er hætt, því meira tjóni á kerfinu hér verður afstýrt. Drífum í þessu, krefjumst þess að umsóknin verði dregin til baka strax, ekki bara eftir kosningar.


mbl.is 48,5% vilja ljúka viðræðum við ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jöklarnir minnka, sama hvað

Hvannadalshnukur IP

Jöklaráðstefnan í HÍ var verulega áhugaverð og opin almenningi eins og mér. Þar kom m.a. fram að sama hvað fólk telur sig geta gert, þá minnka jöklar hratt áfram. Munurinn á óbreyttum aðgerðum manna og mestu hörku gegn losun gróðurhúsalofttegunda af mannavöldum er tiltölulega lítill.

Vel gert á Íslandi 

Það minnir mig á kynningu Umhverfisráðuneytis, þar sem sjá mátti að sá munur hjá Íslendingum er hverfandi eða raun enginn (innan mæliskekkju) á heimsvísu, sem sést af því að nær öll rafmagnsframleiðsla okkar fer fram með endurnýjanlegri orku. Þar staðfestist að tækifæri til þess að hægja hitun loftslags (ef það er hægt) er t.d. ekki að finna í álframleiðslu hér, end fer hún hvað best á Jörðu fram á Íslandi.

Náttúran ræður 

Engu munar hvort örfáir Íslendingar keyra á sparneytnari bílum eður ei. Raunar breytist loftslag á jörðu ekkert þó að Íslendingar hverfi allir sem einn til feðra sinna (jú, álframleiðslan fer þá fram annars staðar með brennslu kolvetna). Tölurnar á Íslandi sem öllu máli skipta vegna loftslags eru þær, sem sýna hve mikið, hverju og hve lengi eldgosin okkar spúa sínu út í loftið hverju sinni. Þar geta t.d. klukkutímar skipt verulegu máli, þar sem heildarsparnaður okkar í losun gróðurhúsalofttegunda í 10 ár glatast, eins og t.d. í Grímsvatnagosinu 2011, sem enginn tók eftir, en losaði jafnmikið á einum degi og heilt lengra gos.

Aðlögun er allt 

Jöklar koma og fara. Ísland kólnar og hitnar. En aðlögun er aðalatriði, sem mistókst hjá Íslendingum á Grænlandi þegar kólnaði forðum, en tókst hér eins og Jarred Diamond náttúrufræðingur lýsir svo vel í bókinni „Civilisation“. En nú þarf að aðlaga sig að hitanum, sem er öllu auðveldara, t.d. að virkja hratt- bráðnandi jöklana sem best áður en þeir hverfa.

Álögurnar út í ystu myrkur 

Skattpínandi úrtölufólk í vinstri stjórn á Íslandi getur ekki aðlagað okkur að neinu nema ESB, sem það gerir á fullu. Við fáum núna tækifæri til þess að koma því frá og aflétta í einni svipan öllum álögum sem komið hefur verið á vegna kolefnislosunar okkar, hvort sem það er á bíla, flugvélar, túrisma eða hvað annað.

Krefjumst þess að álögunum verði aflétt, svo að við fáum notið þess að gera hlutina rétt.

 


mbl.is Jöklar hverfa á 200 árum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Björt framtíð í Evrulandi með VG umhverfismál!

Talsmaður Bjartrar framtíðar telur flokkinn deila ESB- málum með Samfylkingu og umhverfismálum með Vinstri grænum. Annaðhvort hafa væntanlegir kjósendur Bjartrar framtíðar þá ekki kynnt sér stefnumál flokksins eða þá að þeir trúi virkilega á fortíðarhyggju- haftastefnu VG í umhverfismálum og að Evrópusambandsaðild sé einstaklega heillandi, sérstaklega í Evrulandi! Trúlegt að slíkur jaðar- sértrúarhópur á Íslandi geti unnið með hinum almenna Sjálfstæðis- Íslendingi, sem lítur á hvorttveggja sem veginn til glötunar eins og ljóst hefur verið sl. 4 ár.

Flokkurinn sem Sjálfstæðisflokkurinn vinnur með í næstu ríkisstjórn, ef meirihluti næst ekki, verður ekki flokkur sem heldur sig fast við aðild að Evrópusambandinu, né sá sem tefur vísvitandi eðlilega framþróun Íslands í orkumálum. Svokölluð „Björt framtíð“ fer því aftast í röðina.


mbl.is „Meira að marka núna en áður?“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kína-Ísland fríverslun eða ESB-umsókn

Kina Island fanar

Fríverslunarsamningar Íslands og Kína voru langt komnir þegar ESB- umsóknin frysti ferlið. En nú sér Kína vilja þjóðarinnar gegn ESB- umsókn og setur kraft í málið aftur, þannig að von sé til þess að Ísland verði fyrsta Evrópuríkið með fríverslunarsamning við Kína. Þó er ljóst að af þessu verður ekki fyrr en hætt er við ESB- umsóknina, enda gerir Kína ekki samninga í kross. 

Fjöldi gagnkvæmra tækifæra felast í slíkum fríverslunarsamningi Íslands við Kína. Nú þegar er loftferðasamningur og tvísköttunarsamningur í  gildi á milli landanna. Við eigum að taka þessum vilja Kína vel svo að nýtist báðum þjóðum.

Ólíkt inngöngu í ESB þá er þetta frí- verslunarsamningur. Hann felur t.d. ekki í sér frjálsa för fólks eða inngrip Íslands í innanríkismál Kína. Fólki sem ræðir um slíka samninga hættir oft til þess að vilja blanda þannig óskyldum málum inn í svona samningaferli, sem er ófært, því að annars myndu engar þjóðir standa í svona samningagerð.

En til þess að samningarnir gangi upp, er frumskilyrði að ESB- umsóknin verði dregin til baka nú þegar. 


mbl.is 20 manna sendinefnd frá Kína
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bláfjöllin orðin fín

Ljúft var að renna sér aftur í Bláfjöllum í gær sunnudag eins og sést á vídeó- tenglum hér. Með árskort í vasanum fullir bjartsýni svifum við Ríkarður Pálsson, Moggafrægi áttræði frændi minn, áfram í yndisfæri.

Nú vantar ekkert nema fólkið. Mætum og njótum þessara einstöku gæða. Pétur skíðakennari og Rikki hvetja ykkur áfram í vídeóinu.

Ath: Vídeóin eru í góðri upplausn, þungar skrár. Ekki opna í síma!: 

 https://picasaweb.google.com/107972936124078389294/RikkiPalsBlafjoll2012Video?authuser=0&authkey=Gv1sRgCMSyvOSe__KSJw&feat=directlink

 

 


mbl.is Jákvæðari gagnvart „snjóbyssu“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Örsögur ofl.

Fleira er á bloggi mínu en tuðið mitt frá 2007-2012 um banka, ESB, Icesave og óstjórn. Hér er listi yfir nokkrar örsögur mínar, en ég heiti því oft að skapa fleiri. Sá tími minn mun koma!

4.10.2008 | 14:31

Örsaga: Barnæskan og Remingtoninn

Sumarið með Remingtoninn hefur verið með afbrigðum gott fyrir mig, 12 ára gamlan og til í allt. Þessi hálfsjálfvirki 22ja calibera, 18 skota riffill komst í mínar hendur eftir langan feril. Pabbi skaut rjúpur og hvaðeina með rifflinum síðan hann var...

Lesa meira

Bækur | Breytt 5.10.2008 kl. 00:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)

14.9.2008 | 15:13

Örsaga: Vagninn bíður ekki

Um nóg var að hugsa áður en haldið skyldi í heimsókn yfir í Austurbæinn. Eitt og annað þurfti að finna til fyrir ferðina með strætisvagninum. Þegar hún tyllti sér til þess að setja á sig stígvélin, varð Friðnýju hugsað til liðins tíma. Henni fannst þetta...

Lesa meira

Bækur | Breytt s.d. kl. 16:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)

20.10.2007 | 16:15

Byrjað í nunnuskóla

Nunnan brosti til mín í öllu sínu veldi í svörtum búningnum með hvítum vængjum út frá höfðinu. „Viltu fá brjóstsykur?“ spurði hún mig og rétti fram heilan bakka af sælgæti. Boðið upp á nammi fyrsta daginn í skólanum! Landakotsskóli var...

Lesa meira

30.9.2007 | 19:03

Hundarnir á Hæðum

Snati gamli var traustur hundur eins og þeir gerast bestir. Hann fylgdi jafnan Ragnari bónda, húsbónda sínum án þess að vera fyrir honum eða öðrum. Stundum sat Snati hjá mér og ég klappaði honum og ræddi við þennan lífsreynda vin minn. Hann var eldri en...

Lesa meira

5.9.2007 | 17:26

Sögur úr sveitinni: Kötturinn og nautið

Tveir kettir voru á Tindum. Annar var rólegur og gælinn en hinn, þessi bröndótti, var að mínu skapi. Hann fældist mannfólkið og var mér þannig uppspretta fjölda ævintýra þegar ég reyndi að ná honum, þó með þeim afleiðingum að hendurnar mínar voru...

Lesa meira

2.9.2007 | 21:56

Sögur úr sveitinni: Á leið í sveitina

Sex ára strákur kvaddi bljúgur móður sína á Bifreiðastöð Íslands á leið í sveitina í fyrsta skipti. Fatainnkaupum lauk daginn áður. Ómissandi svartir gúmmískór, gráir ullarleistar, hnausþykk dökkgræn regnkápa með hettu og regnbuxur í stíl, beislitar...

Lesa meira

Sögur úr sveitinni: Skaftafellsboli

Ellefu ára stráki fannst spennandi þegar kýrin var leidd undir nautið. Bolinn sem hafði húkt einn og kyrr í myrkri torfkofans í gamla Selbænum svo mánuðum skipti, var leiddur út í köðlum og beint upp á beljuna. Tækist þetta? Færi skotið út í loftið?...

 
 
Hér er síðan listi yfir eitt og annað, en tenglarnir virka víst ekki, þannig að finna verður þetta í tímaröðinni ef einhver hefur áhuga á þessum bloggum (yngsta efst): 
 
 

http://astromix.blog.is/img/admin/plus.gif Einkamyndir úr Maraþoni 2012 

http://astromix.blog.is/img/admin/plus.gif Myndir af strandi og björgun 

http://astromix.blog.is/img/admin/plus.gif Maraþonblíða 

http://astromix.blog.is/img/admin/plus.gif Bláfjöllin flott 

http://astromix.blog.is/img/admin/plus.gif Uppsöfnuð vandræði borgarstjórans 

http://astromix.blog.is/img/admin/plus.gif Gnarr, Gnarr, nú gnísta tennur 

http://astromix.blog.is/img/admin/plus.gif Reiðhjólaliðið þegir þunnu hljóði 

http://astromix.blog.is/img/admin/plus.gif Rússneskar biðraðir Bláfjalla 

http://astromix.blog.is/img/admin/plus.gif Bylur á Ipad2 

http://astromix.blog.is/img/admin/plus.gif Dúnmjúkt færi dögum saman 

http://astromix.blog.is/img/admin/plus.gif Haustmaraþon FM: nokkrar myndir 

http://astromix.blog.is/img/admin/plus.gif Haustmaraþon FM: nokkrar myndir 

http://astromix.blog.is/img/admin/plus.gif Reykjavíkurmaraþon 2011: myndir 

http://astromix.blog.is/img/admin/plus.gif Besti flokkur máva, njóla og fífla

 http://astromix.blog.is/img/admin/plus.gif Katla: Upplýsingastreymi ábótavant? 

http://astromix.blog.is/img/admin/plus.gif Sissú 

http://astromix.blog.is/img/admin/plus.gif Myndir frá Maraþoni í slyddunni 

http://astromix.blog.is/img/admin/plus.gif PÍG eru fallin 

http://astromix.blog.is/img/admin/plus.gif Fall Evrópu 

http://astromix.blog.is/img/admin/plus.gif Safnmyndir 

http://astromix.blog.is/img/admin/plus.gif Aska og ryk af heiðunum 

http://astromix.blog.is/img/admin/plus.gif Hérinn í snjónum 

http://astromix.blog.is/img/admin/plus.gif Askan af stað? 

http://astromix.blog.is/img/admin/plus.gif Bjóðum upp á brottflutning 

http://astromix.blog.is/img/admin/plus.gif Öskurok aðfararnótt mánudags 

http://astromix.blog.is/img/admin/plus.gif Út á sjó en ekki án vandræða 

http://astromix.blog.is/img/admin/plus.gif Eyjafjallajökull 2007 

http://astromix.blog.is/img/admin/plus.gif Hálf milljón tonn á sólarhring! 

http://astromix.blog.is/img/admin/plus.gif Sólarlag við Bessastaði 

http://astromix.blog.is/img/admin/plus.gif Bylur fyrir vestan á aðfangadag? 

http://astromix.blog.is/img/admin/plus.gif Loftslags- réttlæti strax! 

http://astromix.blog.is/img/admin/plus.gif Fyrir framan okkur! 

http://astromix.blog.is/img/admin/plus.gif Loftslagsafleiður: nýjasta nýtt! 

http://astromix.blog.is/img/admin/plus.gif Einhvers staðar yfir regnboganum 

http://astromix.blog.is/img/admin/plus.gif Nýtum okkur vindaspána 

http://astromix.blog.is/img/admin/plus.gif Hlaupin hressa upp á andann 

http://astromix.blog.is/img/admin/plus.gif Bráðgóð grein um hjartans mál 

http://astromix.blog.is/img/admin/plus.gif Varlega með höfuðið 

http://astromix.blog.is/img/admin/plus.gif Fiskur er heilafæði fyrir unga manninn 

http://astromix.blog.is/img/admin/plus.gif Hvalir éta okkur út á gaddinn 

http://astromix.blog.is/img/admin/plus.gif Ora er íslenskt! 

http://astromix.blog.is/img/admin/plus.gif Lífeyrissjóðir í hreinu fjárhættuspili 

http://astromix.blog.is/img/admin/plus.gif Fjallaskíðin ekki til frægðar 

http://astromix.blog.is/img/admin/plus.gif Fær sonur þinn stolið snjóbretti núna? 

http://astromix.blog.is/img/admin/plus.gif Hlaupið úr spiki 

http://astromix.blog.is/img/admin/plus.gif Hryðjuverk á Indlandi 

http://astromix.blog.is/img/admin/plus.gif Skyldulesning: Björgólfur Guðmundsson 

http://astromix.blog.is/img/admin/plus.gif Nytsamlegar ábendingar 

http://astromix.blog.is/img/admin/plus.gif Örþrifaráð og Matadorkrónur 

http://astromix.blog.is/img/admin/plus.gif Flensufólkið burt frá flugvélum! 

http://astromix.blog.is/img/admin/plus.gif Mögnuð nótt 

http://astromix.blog.is/img/admin/plus.gif Óþægilegur sannleikur 

http://astromix.blog.is/img/admin/plus.gif Turnar tveir í tunglskini 

http://astromix.blog.is/img/admin/plus.gif Sumarið 2008 

http://astromix.blog.is/img/admin/plus.gif Fjögur þetta og fjögur hitt 

http://astromix.blog.is/img/admin/plus.gif Fréttablaðið: ekki hluti frjáls markaðar 

http://astromix.blog.is/img/admin/plus.gif Sólsetur, söfnun og bruni 

http://astromix.blog.is/img/admin/plus.gif Myndir frá maraþondegi 

http://astromix.blog.is/img/admin/plus.gif Einstaklingur eða hópmanneskja? 

http://astromix.blog.is/img/admin/plus.gif K2 drápsfjallið 

http://astromix.blog.is/img/admin/plus.gif Yfir Skeiðarárjökul 

http://astromix.blog.is/img/admin/plus.gif 5000 kr. á mann, bara fyrir Laugaveg 4-6 

http://astromix.blog.is/img/admin/plus.gif Mótorhjól, ungar og blíðan 

http://astromix.blog.is/img/admin/plus.gif Veðurspár- vídeó 

http://astromix.blog.is/img/admin/plus.gif Hekla er flott 

http://astromix.blog.is/img/admin/plus.gif Hagaskóli 50 ára: hátíð og myndir 

http://astromix.blog.is/img/admin/plus.gif Frægasti Íslendingurinn níðir Ísland 

http://astromix.blog.is/img/admin/plus.gif Skjálftakort og töflur 

http://astromix.blog.is/img/admin/plus.gif Virkjum og eflum alla dáð 

http://astromix.blog.is/img/admin/plus.gif Hver tekur af skarið? 

http://astromix.blog.is/img/admin/plus.gif Frí á miðvikudaginn? 

http://astromix.blog.is/img/admin/plus.gif Sjóðandi sunnudagur 

http://astromix.blog.is/img/admin/plus.gif Þakkir til samstúdenta 

http://astromix.blog.is/img/admin/plus.gif Stúdentafagnaður 

http://astromix.blog.is/img/admin/plus.gif Lögregla gegn umhverfissinnum 

http://astromix.blog.is/img/admin/plus.gif Gore er ræðusnillingur 

http://astromix.blog.is/img/admin/plus.gif Gorhugsun um Hinn máttuga mann 

http://astromix.blog.is/img/admin/plus.gif Veturinn er bestur 

http://astromix.blog.is/img/admin/plus.gif Endurnýting hvala 

http://astromix.blog.is/img/admin/plus.gif Fæst er fimmtugum fært, eða hvað? 

http://astromix.blog.is/img/admin/plus.gif Tenglar um ManUnited slysið 

http://astromix.blog.is/img/admin/plus.gif Manchester United slysið 50 ára 

http://astromix.blog.is/img/admin/plus.gif Líf í frostinu 

http://astromix.blog.is/img/admin/plus.gif Þorskaheftar konur 

http://astromix.blog.is/img/admin/plus.gif Skítt með alla skynsemi 

http://astromix.blog.is/img/admin/plus.gif Bláfjallaklúðrið nær hámarki 

http://astromix.blog.is/img/admin/plus.gif Bláfjöll: Nú kastar tólfunum! 

http://astromix.blog.is/img/admin/plus.gif Bláfjöll: Ráðningar gleymdust 

http://astromix.blog.is/img/admin/plus.gif Grænland kólnar! 

http://astromix.blog.is/img/admin/plus.gif Sprengiógn í skólum án réttar fórnarlambanna 

http://astromix.blog.is/img/admin/plus.gif Áramótabrennum frestað? 

http://astromix.blog.is/img/admin/plus.gif Á nöglum í rokinu 

http://astromix.blog.is/img/admin/plus.gif Góði Gyllti áttavitinn 

http://astromix.blog.is/img/admin/plus.gif Smá- jólabylur 

http://astromix.blog.is/img/admin/plus.gif Mars hverfur sjónum 

http://astromix.blog.is/img/admin/plus.gif Jólatungl í Reykjavík 

http://astromix.blog.is/img/admin/plus.gif Bláfjöllin vakna 

http://astromix.blog.is/img/admin/plus.gif Fullt tungl, en fólkið? 

http://astromix.blog.is/img/admin/plus.gif Hagavatnssvæðið í myndum 

http://astromix.blog.is/img/admin/plus.gif Dagur á Íslandi 

http://astromix.blog.is/img/admin/plus.gif Alvörutungl 

http://astromix.blog.is/img/admin/plus.gif Skarfar á Lönguskerjum 

http://astromix.blog.is/img/admin/plus.gif Klórblöndum ekki tæra vatnið okkar 

http://astromix.blog.is/img/admin/plus.gif Besta auglýsing í heimi 

http://astromix.blog.is/img/admin/plus.gif Löngu- Skerjafjörður 

http://astromix.blog.is/img/admin/plus.gif Margræð ís- mynd 

http://astromix.blog.is/img/admin/plus.gif Haustið blómstrar 

http://astromix.blog.is/img/admin/plus.gif Áfengisneysla bætir minni, skv. rannsókn 

http://astromix.blog.is/img/admin/plus.gif Nú skil ég Þórberg! 

http://astromix.blog.is/img/admin/plus.gif Mynd: Varanlegt 

http://astromix.blog.is/img/admin/plus.gif Mynd: Kona í Víetnam með strák 

http://astromix.blog.is/img/admin/plus.gif Mynd: Kona með ungbarn í Kaíró 

http://astromix.blog.is/img/admin/plus.gif Mynd: Sólarlag á Hawaii til samanburðar 

http://astromix.blog.is/img/admin/plus.gif Mynd: Sólstafir að hausti 

http://astromix.blog.is/img/admin/plus.gif Myndir úr fjallaferðum 

http://astromix.blog.is/img/admin/plus.gif Dulúð á Reykjanesi 

http://astromix.blog.is/img/admin/plus.gif Fullt tungl í Fiskamerki 

http://astromix.blog.is/img/admin/plus.gif Nakin á klaka 

http://astromix.blog.is/img/admin/plus.gif Innanlandsflug, ekki millilandaflug 

http://astromix.blog.is/img/admin/plus.gif Hvalkjöts- sushi er best 

http://astromix.blog.is/img/admin/plus.gif Hvalkjöts- sushi er best 

http://astromix.blog.is/img/admin/plus.gif Verðlauna- Lýsi 

http://astromix.blog.is/img/admin/plus.gif Íbúarnir aldrei spurðir 

http://astromix.blog.is/img/admin/plus.gif Viðjar vanans 

http://astromix.blog.is/img/admin/plus.gif Allt byrjar sem hugmynd 

http://astromix.blog.is/img/admin/plus.gif Öskraði af kvölum 

http://astromix.blog.is/img/admin/plus.gif Gúgglaðu sjálfan þig! 

http://astromix.blog.is/img/admin/plus.gif Heilsa og fiskur eða pítsurusl 

http://astromix.blog.is/img/admin/plus.gif 20 þúsund rammar á sekúndu 

http://astromix.blog.is/img/admin/plus.gif 2 á móti 98 

http://astromix.blog.is/img/admin/plus.gif Framvindukort bloggsíðu (föst síða) 

http://astromix.blog.is/img/admin/plus.gif Lífsorka fæðunnar 

http://astromix.blog.is/img/admin/plus.gif Svifryki spúlað burt 

http://astromix.blog.is/img/admin/plus.gif Ég er ekki í tísku 

http://astromix.blog.is/img/admin/plus.gif Óvænt og öðruvísi? 

http://astromix.blog.is/img/admin/plus.gif Fyrsta bloggfærsla 



 

Sjö mögur ár framundan

7 magrar kyr

ESB- fjárlögin fyrir næstu sjö árin eru svo út úr kú að það minnir á 7 mögru kýrnar sem framundan voru forðum, eftir þær 7 feitu. Engar líkur eru á viðunandi sátt um þessa þúsund milljarða Evra. Ísland passar ekki beint þar inn, sem krafist er hörku- niðurskurðar en hver þjóð er upp á móti annarri í bræðralaginu í Hálsaskógi og ekkert verður skorið niður: 1 „trilljón“ skal það vera.

Bretar veita eðlilega hörðustu móspyrnuna, enda hafa þeir skorið niður hjá sjálfum sér og eru ekki hluti af Evrulöndunum þar sem undir brennur. Þjóðverjar vernda sparnaðinn sinn, Frakkar reyna að breiða yfir ábyrgð sína á skuldum Grikkja og Spánverja, sem eru á barmi glötunar. 

Hvert eiga svo peningar ESB að fara skv. fjárlögunum? Nú stefnir í sameiginlega yfirstjórn, sem Össur virðist blessa. Fénu verður t.d. glundrað í landbúnaðarstyrki til Frakklands, Rúmeníu og Búlgaríu. Trúlegt að alger sátt ríki um það að Suður- Evrópulönd með allt sitt atvinnuleysi og sinn niðurskurð borgi styrki til Austur- Evrópu eða hvers annars í mismiklum mæli eftir því hvar pólitíkin á göngunum lendir hverju sinni, því að ekki skipta kosningar máli í Evrópusambandinu.

Trúi því hver sem vill að 17 Evrulönd og hin 10 ESB-löndin nái samkomulagi um trilljón Evra eyðslu í sjö ár!  


mbl.is Leiðtogar ESB frestuðu fundi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Danir forðast fullveldisafsalið

Mario BrosMario Draghi, forseti Evrópska seðlabankans, skefur ekkert af nauðsyn fullveldisafsals:„..til þess að hægt verði að enduvekja traust á Evrusvæðið þá þurfa ríkin að færa hluta fullveldis síns á Evrópustigið“ (“in order to restore confidence in the euro area, countries need to transfer part of their sovereignty to the European level.”). Eftir heimsóknina í þýska Ríkisþingið þá eru þeir ráðamenn sammála um aðgerðir. Embættið Fjárlagastóri ESB verður stofnað og þá getur Evrópski seðlabankinn farið að kaupa skuldabréf skuldugra Evrópuríkja ótæpt.

Danskur almenningur lætur ekki plata sig og 2/3 hlutar aðspurðra standa gegn upptöku Evru. Skrýtið að þau vilji ekki að Þýskaland hlutist til um fjárlagagerð í Danmörku!

Hér er mynd af ánægðum Draghi, sannkallað Mario Bros! 

  

 


mbl.is Danir vilja ekki taka upp evruna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Ívar Pálsson
Ívar Pálsson

Viðskiptafræðingur með útflutningsfyrirtæki, en grúskar í flestu.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband