6.6.2021 | 21:56
Kolefnislosun tvöfaldaðist en skiptir samt engu!
Nú þegar flæði gosefna í Geldingadölum hefur tvöfaldast, þá skipta þau 20.000 tonn af koltvísýringi (CO2) á dag engu, af því að sú losun er frá eldgosi, sem skráist ekki í reiknimódel umhverfis- ráðuneytisins. Ásamt um 20.000 daglegum tonnum í útöndun frá Kötlu eru þau samtals um 40.000 tonn á dag, utan bókhalds. Þau jafnast því á fimm dögum við árslosun íslenskra fólksbíla, eða semsagt 73 sinnum meiri CO2 losun en fólksbílarnir.
Frambjóðendum til Alþingis sem blöskrar þversagnirnar er hent út í ystu myrkur. Því liggur fyrir að landinn verður skattlagður til fjandans út af engu næsta áratuginn, kolefnistímabilið, einn undarlegasta blekkingartíma sögunnar. Sundurgrafnar götur Reykjavíkur fyrir 4% elítuna í Borgarlínunni og gjaldþrot borgarinnar marka líka sporin í söguna.
Gasmengun aukist síðustu tvo daga | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Umhverfismál | Breytt s.d. kl. 22:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
4.6.2021 | 12:45
Kjósum andstæðinga Borgarlínu
Öllu máli skiptir að stuðningsfólk Borgarlínu verði ekki kosið til áhrifa í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins til Alþingis núna, því að annars verða hörmungaráformin geirnegld næstu áratugina. Ríkið ræður miklu um þessa skuldasúpu og umferðarteppu. Mikil vonbrigði voru að sjá að frambjóðendur staðfestu stuðning sinn við Borgarlína, sem yfir helmingur Reykvíkinga segist aldrei eða nær aldrei (1x/mán.) ætla að nota.
Ef þið kusuð samt sem áður þessa frambjóðendur, reynið að koma vitinu fyrir þau með að hætta við ósköpin á meðan einhver von er til þess.
40% leist vel á Borgarlínuna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
2.5.2021 | 00:54
75-80% ferðalanga sjá fram á breytingar
Þær konur og þeir karlar sem ferðast um á bílum í höfuðborginni og fara þannig 75-80% árlegra heildarferða innan hennar geta vænst breytinga eftir að Alexandra Briem tekur nú við sem formaður skipulags- og samgönguráðs. Gefum henni orðið:
Yfir áratugi hafa frekir bíleigendur og framleiðendur unnið að því á vesturlöndum að skipulag og uppbygging sé á þann veg að í raun sé enginn annar raunhæfur ferðamáti en sá sem þeir kjósa. Og óvíða hefur þeim gengið betur en á Íslandi. Freku karlarnir á Íslandi hafa séð rautt yfir árangri Sigurborgar og ég hef séð ógnandi tilburði gagnvart henni bæði í eigin persónu sem og í skrifum sem er satt að segja ótrúlegt að þeir hafi komist upp með.
Breyttar götur
Breytingarnar sem bílferðalangarnir sjá verða kannski ekki í þeirra átt, heldur mun Alexandra sannarlega taka við Píratakefli forvera síns og fara öllu lengra með það í að gera þeim lífið leitt. Konur á nýorkubílum mega vara sig, því að verið er að refsa "frekum körlum" fyrir að hafa verið á bensín- og dieselbílum, á þann hátt að þrengja göturnar fyrir helstu kaupendum rafmagnsbíla, kvenna.
Bílafjandskap og Borgarlínu
Fjáraustur borgarstjórnar- meirihlutans til 4% ferðafólksins, strætó- elítunnar stefnir nú í óendanleikann eftir áratugs tilraun með milljarð króna á ári. Nýi formaður ráðsins getur vart búist við vægð, þar sem hún mun þurfa að verja Borgarlínuna, þá óverjandi sóunaraðgerð, sem stefnir borginni fram af björgum á mettíma.
Embættið er ekkert grín
Alexandra Briem mun fá að heyra það, bæði sem varðhundur Dags B. Eggertssonar og sem Píratinn í valdamiklu embætti í samgöngum Reykvíkinga á þeim tíma í sögu borgarinnar þar sem samgöngunum verður rústað.
Sigurborg hættir í borgarstjórn vegna veikinda | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Samgöngur | Breytt s.d. kl. 00:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
16.4.2021 | 15:35
Eldgos á svörtu
Kolefnisbókhald er byggt á falsi, en við erum skattlögð fram og til baka byggt á þeirri lygi. Eldgosið nýja er gott dæmi, mun ekki finnast í rassvasabókhaldinu og var ekki í neinum áætlunum, enda ekki til í 870 ár þar til nú. Losun koltvísýrings (CO2) þaðan er um 10.000 tonn á dag (10 milljón kíló), auk annarra mun öflugri gastegunda. Eldfjallið losar því jafnt á einni viku og allir fólksbílar Íslands á einu ári! Um fimmtíu sinnum meira en fólksbílarnir á hverju ári.
Losunartrúarmenn neita algerlega að taka eldgosin inn í bókhaldið fína, jafnvel þótt þeir telji að eldgosin verði algengari með léttari jöklum osfrv. Þannig sýndu rannsóknir við Kötlu árin 2016 - 2017 að tífalda ætti fyrra mat á kolefnislosun eldstöðva á Íslandi, enda losar Katla allt að 24.000 tonn á dag alla daga án þess að gjósa, þar sem gasið kreistist úr kvikunni er ofar kemur.
Þannig að ef við leggjum Kötlu og Geldingadali saman, þá er losun þeirra 34.000 tonn hvern einasta dag, eða amk. 12 milljónir tonna. Síðan þegar Katla gýs fara allar tölur út úr korti og bókhaldið á haugana.
Skattar, álög, glötuð samkeppnisfærni og sá aðþrengdi lífsstíll sem þessi kolefnislosunartrú manna veldur á Íslandi verða að hætta. Tugþúsundir manna horfa á eldgosin og verða vitni af losuninni, en halda áfram að kjósa flokka sem njóta þess að banna, deila og drottna.
Borgarbúar fylgist með gasmengun á sunnudag | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
14.4.2021 | 11:04
Notum Janssen strax á miðaldra karla
Við ættum að nota Janssen bóluefnið strax á miðaldra karla. Ekkert neikvætt hefur komið upp og aðeins þarf að bólusetja einu sinni. Þar með erum við tuðararnir orðnir frjálsir menn og getum látið okkur hverfa af sósíalista- landinu um tíma, á meðan samninga- Svandís finnur upp fleiri leiðir til þess að hefta eðlilegt frelsi landans.
Yngri konur í USA hafa líkurnar ein á móti milljón til þess að fá blóðtappa vegna Janssen bólusetningar. Öllu meiri líkur hafa þær á vandræðum með að fá Covid-19, með ofþyngd og undirliggjandi sykursýki, háþrýsting, hjartveiki osfrv. En lagaumhverfið fyrir framleiðandann er erfitt þar í landi og engin áhætta tekin, þó að sannað sé að það bjargi mannslífum.
Allavega er ég til í að samþykkja að fá strax bólusetningu með Janssen og eiga þá sumarið sem frjáls maður og tef ekki bólusetningarprógramm góðu ungu kvennanna.
Bíða með bóluefnið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
24.3.2021 | 23:12
Dauðans alvara
Hvað þarf eiginlega til að stjórnvöld fríi sig frá ESB í mikilvægustu málum Íslands? Er ekki nóg að vera með ónýt Schengen- landamæri, eyðilögð viðskipti við Rússland, rándýra hælisleitendur (með Covid- áhættu), Icesave- kúgun, valdaafsal orkupakka, sjálfsamþykkt tilskipanaflóð ásamt kolefnis- losunarkvóta með ofurskattlagningu og reglugerðafári? Nei, greinilega ekki, því að Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra (sem er erlend samningatækni í blóð borin) kýs enn að fylgja ESB í einu og öllu, en þar með koma í veg fyrir að við einangraða fámennisþjóðin getum samið um þá skammta sem þarf til þess að bólusetja okkur öll á nokkrum dögum.
Vill ekki þegar hann fær
Evrópusambandið samdi um kaup á Astra-Zeneka/Oxford bóluefninu en samþykkti það ekki til notkunar, heldur níddi af því skóna í tvígang svo að hundruð milljóna Evrópufólks vilja ekki heyra á það minnst og milljónir skammta liggja hjá þeim undir skemmdum, enda ekki samþykkt af ESB fyrr en nú, þegar tugmilljónir Breta hafa fengið bólusetningu, sem reynsla milljóna manna sýnir hafa gefið 100% öryggi gagnvart tengdu andláti eða alvarlegum veikindum vegna Covid- veirunnar.
Fær ekki þegar hann vill
Á meðan Ísland bíður eftir Godot í bandi ESB var svo algerlega fyrirsjáanlegt að árangurinn með lokun þjóðfélagsins ynni gegn okkur, því að nýja regla ESB er að útflutningur frá ESB verður að taka mið af stöðu Covid- sýkinga í landinu sem bóluefni fara til. ESB- löndin eru í neyðarstöðu en við ekki. Kannski væla ráðherrar undanþágu út úr skriffinnum dauðans í Brussel, en ekki þykir það líklegt, enda reglugerðin sjóðheit.
Allir halda stöðu sinni
Alls staðar nema hér og í Brussel myndu hausar fjúka vegna svona vanhæfni. Í stað þess að vera bólusett og til í slaginn við fjórðu bylgjuna með nýjum afbrigðum veirunnar skellum við nú í lás aftur og fáum samt bylgjuna á okkur af fullum krafti.
Setjum landamærin við Ísland í stað Norður- Afríku og endursemjum við framleiðendur bóluefna vegna brostinna forsenda frá hendi Evrópusambandsins, sem riðar loks til falls.
Gengur í berhögg við EES-samninginn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
15.2.2021 | 06:41
Blásið í Borgarlínulúðrana
Enn ein staðfestingin á fylgni forystu Sjálfstæðisflokksins við Borgarlínu barst með Morgunblaðinu í morgun, þar sem Hildur Björnsdóttir borgarfulltrúi ítrekar afgerandi stuðning við hana og að þörf sé á fjölbreyttum samgöngukostum, þar sem ungt fólk líti á bifreiðina sem aðeins einn kost af mörgum í samgöngumálum. Þar virðist þó gleymast, að ¾ ferða í Reykjavík eru farnar á bílum, sem stendur ekki til að breytast.
Einstrengingsleg nálgun
Augljóst er að konur í yngri kantinum innan flokksins eru búnar að sammælast um það, að leiðin til aukinna áhrifa um málefni Reykjavíkur náist með því að staðfesta áfram skipulagsslysið Borgarlínu og að vinna með Samfylkingunni að uppbyggingu rándýra strætókerfisins, í stað nýrri tæknilausna sem nýta götur og vegi. Hildur segir m.a.: Við náum takmörkuðum árangri með einstrengingslegri nálgun á menn og málefni . Við þurfum að vera það mikilvæga sameiningarafl sem leiðir saman ólík sjónarmið. Þessi lina afstaða gagnvart vinstri flokkunum vegna Aðalskipulags Reykjavíkur hefur verið dragbítur á gengi flokksins í fjöldamörg ár og skapað það eymdarástand sem nú ríkir.
Kosin gegn Borgarlínu
Fjöldi kjósenda sem kusu flokkinn síðast í borginni, gerði það í þeirri trú að Sjálfstæðisflokkurinn stæði gegn Borgarlínu, afstaða sem oddviti hans ítrekaði á fundum og í fjölmiðlum. Heilu hverfin hefðu tæpast kosið flokkinn ef fylgnin við ofurstrætókerfið hefði legið skýr fyrir. Stuðningur hverfa og alls landsins utan mið- og Vesturbæjar Reykjavíkur við bílinn og uppbyggingu vegakerfis er afgerandi, sem kemur skýrt fram í könnunum.
Kjósið til breytinga
Íbúar Reykjavíkur sem blöskrar hvernig keyra á fjárhag borgarinnar í þrot með óendanlegri sóun í afdankaða hugmyndafræði fortíðarinnar ættu að krefjast þess af fólkinu sem það kýs til almannaþjónustu að það breyti áætlunum um Borgarlínu í ódýrari, nýmóðins kerfi sem taki mið af breyttum tímum og aðstæðum.
Hvatar til að draga úr umferð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
13.2.2021 | 10:32
Nauðung, ekki valkostur
Veruleg vonbrigði urðu við lestur greinar Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur dómsmálaráðherra, Fröken Reykjavík í Morgunblaðinu í dag, þegar kom að samgöngumálum í borginni. Annað í greininni var úr þeirri ágætu frelsisátt sem vonast var eftir, en forðast var að minnast á Borgarlínu eins og hún væri Valdemort í Harry Potter.
Bjóða beri upp á valfrelsi, óháð því hvort íbúar velji að ferðast með bíl, strætó eða á hjóli. Það gerist ekki með þvinguðum samgöngumáta, heldur vönduðu skipulagi þar sem ýtt er undir valfrelsi borgarbúa. Fólk komist á milli staða á þann máta sem hentar þeim best. Það felur vissulega í sér uppbyggingu á innviðum, svo sem almenningssamgöngum, hjólreiðastígum og vegum. Þá er ekki hægt að undanskilja einn samgöngumáta á kostnað annars.
Rými er takmörkuð gæði
Þarna liggur hundurinn grafinn. Þorri borgarbúa (75%) kýs að ferðast með bílum, 4% með ofurniðurgreiddum Strætó, en reiðhjóli eftir árstíðum. Metsala er í nýorkubílum, sem eykur hlutfall þeirra. Samt verða þeir ferðalangar þvingaðir í æ þrengri rásir veganna, því að stefnan er að þröngva Strætó upp á fólk með illu, með ofboðslegum kostnaði og umferðarstíflum. Valkostur fjöldans er hunsaður, en hugmyndafræði 4% elítunnar dásömuð.
Ekkert val
Hvernig fær fólk með frelsisást sig til þess að samþykkja þessa afarsamninga Borgarlínunnar? Ekkert gengur upp, kostnaður, reynslan, markmið, hvaðeina. Valkostur nýorkubílanna gleymist algerlega. Vetnisvæðing Íslands verður sannarlega ekki að veruleika á þennan hátt.
Herkostnaðurinn við það að stjórna með sósíalistum er alltof hár, fyrst þetta er niðurstaðan úr samstarfinu. Áslaug Arna, komdu okkur út úr Borgarlínufárinu með góðu eða illu. Annars verður Fröken Reykjavík gjaldþrota og fer á sósíalinn.
Uppbygging á grænni borg fyrir 300 milljarða | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
9.2.2021 | 08:56
Bremsulaus Borgarlínustrætó
Því miður brást Sjálfstæðis- flokkurinn algerlega og stimplaði Borgarlínu fram og til baka, í ríkinu, borginni og nærliggjandi sveitarfélögum, þrátt fyrir fagrar fullyrðingar um annað á liðnum árum. Fyrir vikið er stærsta fyrirstaðan farin og nú fara krónu- milljarðarnir að streyma í átt til fáu prósentanna sem aldrei fyrr, eftir tíu ára æfingatímabil í Strætó- sóuninni.
Ætt áfram
Ekki dugði Hrunið og heimsfaraldur til þess að opna augu fólks fyrir því, að Strætó sé úrelt fyrirbæri, hvað þá að samgöngufé eigi ekki að ausa í nokkrar manneskjur, heldur að dreifast til fjöldans sem skóp það, almennings á fjölskyldubílum. Þetta eru óheyrilegar upphæðir á hvern þann sem álpast upp í tap- kassabílana stóru. Nær væri að afhenda fólki á biðstöðvum ávísanir, sem duga í ferðir með nýorku- leigubílum, samt yrðu tugir milljarða króna eftir til skiptanna og göturnar frjálsar áfram. Þetta er eins og ríki og borg leggðust á eitt, eftir að allir voru komnir með internetið, að borga þeim fúlgur fjár sem vildu hætta því og nota telefax og halda því kerfi við með ærnum tilkostnaði.
Fé til fárra
Ef allt það fé, sem fer í Strætó, framkvæmdir vegna hans og taprekstur þess kerfis næstu 20 ár yrði tekið saman, fengjust milljarðatugir sem fleygt gætu nýjum kerfum í samgöngum langt fram, þótt talið yrði með að allir fjögur- prósent farþegarnir fengju jafnmargar fríar ferðir og þeir hefðu farið með Strætó/Borgarlínu.
Annars er þessi bremsulausi strætó kominn á fullt og ekkert í augsýn sem megnar að stöðva hann.
3.2.2021 | 05:10
Aðgerðir strax, neyðin kallar
Ísland má ekki við því lengur á þessari ögurstundu að vera taglhnýtingur Evrópusambandsins í samningum um bóluefni vegna kófsins. Svandísi Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra hefur verið leyft að láta okkur dingla í ESB með smánarkvóta bóluefnis seint og illa í mesta klúðri þeirra allra tíma, með þeim afleiðingum að samningar við Pfizer um ókeypis bóluefni fyrir meginþorra okkar á 2-3 vikum renni okkur úr höndum. Hafi einhvern tíma verið ástæða til þess að virkja neyðarrétt í samningum Íslendinga, þá er það núna gagnvart ESB, þegar líf eða heilsa sannarlega hundraða manna eru lögð að veði.
Andstæðir hagsmunir
Hagsmunir ríkja ESB og Íslands fara engan veginn saman í þessum samningum. Stórkostleg neyð sumra þeirra, eins og Portúgal núna, kallar á allt það bóluefni sem fáanlegt er í gegn um ríkjasambandið. Neyðarréttur þeirra væri að benda á smitleysi Íslendinga til þess að fresta enn frekar afhendingum hingað. Alveg öruggt er að við komumst ekki framarlega í þeirri eilífðarröð sem ESB skóp með skipulegu vanhæfi sínu. Sambandið samþykkir ekki bóluefni frá framleiðanda mánuðum saman og segir það ekki almennilega rannsakað fyrir eldra fólk, á meðan ESB heimtar að framleiðandinn standi við afhendingar í samræmi við samninginn sem var gerður í upphafi!
Stígum niður fæti
Sannað þykir að jafnvel dómur Hæstaréttar fær ekki Svandísi Svavarsdóttur til þess að framkvæma rétt sem ráðherra, þegar hún neitaði að staðfesta þær samþykktu virkjanir sem hefðu fært Suðurnesjum orku til athafna forðum. Nú verða samstarfsflokkar VG, Sjálfstæðis- og Framsóknarflokkur að sýna þann dug að heimta gerð Kárasamningsins við Pfizer, þótt það þýði að ömurlegu bóluefnasamningarnir við ESB fari upp í loft fyrir vikið. Nýjar og verri útgáfur kórónuveirunnar mega ekki ná fótfestu hér. Ekkert sleifarlag, lífið liggur við.
Ekkert hæft í þrálátum orðrómi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
17.1.2021 | 22:02
Ekkert hæli í bili
Hér er grein mín sem birtist í Morgunblaðinu þann 15/1/2021 (ekki skrumskæld af netinu):
Halda mætti að sú ótrúlega ánauð sem Covid-kreppan hefur lagt á þjóðina hafi kennt henni að hætta hverju því strax sem eykur þessa píningu. Nei, öðru nær, blásið er í lúðrana og fjöldanum hleypt í þverrandi sjóðina sem landinn hafði stoltur safnað í áratugum saman.
Veirutímar
Á þetta allt bætist síðan áhættan og álagið sem færist hingað á Covid-tímum við það að taka við fólkinu hingað, á meðan margar aðrar vestrænar þjóðir takmarka þetta af hörku svo að flæðið nær stöðvast hjá þeim. Sóttvarnahúsum okkar fjölgar enda er drjúgur hluti vistmanna úr hópi hælisleitenda. Málið er svo viðkvæmt í pólitíkinni að fáir falast eftir tölum um hlutfall hælisleitenda í sóttkví, hvað þá smituðum eða smitendum samkvæmt sóttrakningu, þótt komið hafi smitsprengjur í þeim hópum. England setti harðar reglur um komur fólks frá löndum í suðurhluta Afríku til þess að reyna að takmarka smit nýja Covid-afbrigðisins í landinu.
Sé einhver að tengja þetta við kynþátt, trúarbrögð eða annað slíkt, þá er það til þess að afvegaleiða umræðuna. Hér er um fjármál og heilbrigðismál að ræða. Hættum að taka við hælisleitendum þar til það er öruggt og við höfum efni á því. Enn er langt í að hvort tveggja verði uppfyllt.
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 22:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
14.12.2020 | 09:42
Valdið úr sveit í 101 Reykjavík
Nú fyrir jól laumar vinstri umhverfis- öfgafólk inn frumvarpi um hálendisþjóðgarð, þar sem fólkið úti um landið missir tökin á stjórn svæða sinna og völdin verða færð í báknið í miðborginni, með tryggðu inngripi hagsmunasamtaka kreddufólksins.
Tímasetningin er ekki tilviljun, því að yfirleitt svífur flest í gegn án teljandi umræðu í jólastreði og tímahraki. En þessi hörmung má ekki verða að lögum. Uppbygging fjölbreyttrar atvinnustarfsemi, ferðalaga og náttúruverndar hefur átt sér stað í fjölda áratuga á miðhálendinu, auk þess sem fallorkan er að mestu bundin þar. Ráði miðbæjargengið verður flest það bannað sem hefur átt sér stað, nema það fáeina sem Æðstaráðinu er samþykkjanlegt. Þar að auki fá fulltrúar þeirra, þjóðgarðsverðir, völd til þess að stöðva flest það sem eðlilegt þykir í dag enda eru jeppar, húsbílar, fjórhjól, vélsleðar og þyrlur eitur í þeirra beinum.
Engin ólög, takk
Það er nær ómögulegt að vinda ofan af slæmum lögum, hversu íþyngjandi sem þau eru. Því verður að hafna þessu frumvarpi um hálendisþjóðgarð, sem þarf amk. verulega umfjöllun og umsögn, áður en þetta sleppur í gegn. Sjálfstæðisflokkurinn setur verulega niður að láta þetta gerast á sinni vakt, frá flokki sem er aðeins með þriðjung af fylgi hans. Dýr þykir mér samstarfs- samningurinn ef þessu átti að hleypa í gegn frá upphafi, í ofanálág við alla skammtheimtuna og höftin sem Vinstri græn stendur fyrir, vegna andrúmsloftsins eða athafna drífandi Íslendinga, til fjörs og framfara.
Hálendisþjóðgarður umdeildur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
8.12.2020 | 08:12
Hægrið er hljótt, vinstrið er dreift
Pattstaða stjórnmálanna veldur því, að borgar- og ríkisvæðing er á fullu, þar sem forsætisráðherra vinstri flokks með 7,5% fylgi leiðir það haftaplan. Einkageirinn er á hverfanda hveli, á meðan hlutfall ríkis og borgar gegn honum rýkur upp í rammsósíalískum vexti. Hver ætti svo sem að geta stöðvað það, miðað við hug kjósenda núna? Þrír hægri flokkar með 41,7% fylgi saman, en 6 vinstri flokkar með 55,9% fylgi. Sama afarstaðan og í síðustu kosningum.
Ekki tekið á málum
Fyrir vikið er ekki hreyft við RÚV, Schengen, tugmilljarða álögum vegna loftslagsfárs, EES- innleiðingum, hælisleitenda- kostnaði, reglugerðafargani, Borgarlínu, ofvexti opinbera geirans ofl. ofl.
En innleiða skal hörmung eins og Íslandsþjóðgarð í höftum eða að fjarlægja Reykjavíkurflugvöll og enn gælt við að rústa stjórnarskránni, í stað þess að þróa hana áfram eða að láta hana í friði.
Hvernig var hægt að glutra svona miklu niður á svona skömmum tíma?
Sjálfstæðisflokkurinn bætir við sig | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
4.12.2020 | 08:04
Lokið Covid inni!
Undarleg skilaboð og afsakanir koma nú frá Veitum sem endranær. Árviss frostakafli er á leiðinni og okkur íbúum Reykjavíkur er sagt að loka gluggunum, einmitt núna þegar baráttan við Covid-19 stendur sem hæst og ein helsta vörnin er að opna gluggana. Ein stærsta smitdreifingin var t.d. á Landspítala Landakoti, þar sem er lítil loftræsting og gluggarnir verða að vera opnir.
Veitingastaðir í Bandaríkjunum mega víða starfa núna ef gluggarnir eru galopnir. Veiran er fislétt og dreifist best í lokuðu rými þar sem allir í rýminu fá að prófa útöndun allra hinna, því lengur sem hver og einn er þar inni og gluggarnir eru lokaðir. Súrefnisríkt og jónað loft að utan er bráðnauðsynlegt hverjum og einum sem er innilokaður í dag.
Kvartað í kuldakasti
Nú kemur kuldakast og hvað gerir ofurhagnaðar- ránsbatteríið Veitur (dótturfélag OR) í því fyrir okkur? Hvetur íbúana til að loka gluggum og skrúfa niður í snjóbræðslukerfum, einmitt þegar þeirra er þörf í frostinu. Niðurstaðan er því verri heilsa og meiri dreifing veirunnar, þegar þetta var allt að koma hjá okkur. Sprungnum heitavatnsleiðslum mun örugglega fjölga þegar fólki er sagt að skrúfa niður í frostinu, þegar það ætti helst að auka hitann. Föllum og fótbrotum hlýtur að fjölga.
Peningar í hítina
En í hvað fór tugmilljarða króna hagnaður Orkuveitu Reykjavíkur á hverju ári? Afsakanir fyrir tíðum bilunum í útvegun heits vatns eru orðnar skrautlegar, fjöldi túrista hingað og fiðrildi í Kína. Milljörðum króna er mokað út úr fyrirtækjunum inn í óendanlega skuldahít Reykjavíkurborgar, í stað þess að þjónusta íbúana almennilega og veita öryggi án afsakana, sérstaklega þegar á reynir eins og þessa dagana. En þetta er víst stíllinn hjá borginni, að segja okkur að fara út að sópa, slá gras og tína rusl, þegar við greiðum þeim fyrir að taka af okkur bílastæðin, göturnar og friðinn.
Fyrirtæki borgarinnar verða að standa sig og nota hagnað í eigin fjárfestingar eða til þess að lækka álögur á viðskiptavini sína, íbúa Reykjavíkur.
Segir heitavatnsskortinn tengdan faraldrinum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
27.11.2020 | 12:07
Bretar ná stjórn eigin fiskveiða
Íslendingar hljóta að skilja mikilvægi þess fyrir eyland að ráða yfir fiskveiðum í lögsögu sinni. Bretar endurheimta nú það arðrænda hafsvæði umhverfis lönd þeirra sem fiskveiðistefna ESB hefur skilið eftir í rúst. Evrópusambandið vill ekki sleppa takinu fyrir nokkurn mun og nú telst gífurleg fjarlægð enn á milli sjónarmiða þeirra og Breta í þessu máli, þegar rúmur mánuður er í það að nýja fiskveiðilöggjöf Breta taki gildi. Ekki breyta Bretar glænýju lögunum úr þessu.
Eigin stjórn mála
Þá er aðallega tvennt annað smáræði útistandandi við brottför Breta úr ESB, samkeppnis- "jöfnun" sem ESB vill stunda áfram, og það hver haldi um refsivöndinn ef útgöngusamningur á milli Breta og ESB telst rofinn. En Bretar vilja geta ákveðið sjálfir hvaða reglur gilda hjá sínum 66,6 milljón þegnum, einnig um útflutning á vörum og þjónustu eins og fullvalda ríki gera, skattprósentu og hvaðeina. Verði dómsmál úr því, þá ráði þeirra dómstólar.
Enn finnast einhverjir
Íslendingar skilja þessa afstöðu vel. Hví er það þá enn, að einhverjir hér telja það betra að ESB semji lögin okkar, ákveði landamæri okkar og dæmi í málum okkar en að við fáum að vera almennilega fullvalda ríki? Ég næ því ekki.
Bretar endurheimta vald yfir veiðum í lögsögu sinni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 13:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
25.11.2020 | 22:28
Stöðvum sóun í ofurhruninu
Efnahagslífið er á hnjánum, en stjórnarandstaðan og meirihluti borgarstjórnar lætur eins og auka- milljarða króna sé jafnauðvelt að snara fram og 14 ma. fyrir listafólk um daginn, þegar fingri var smellt og málið var leyst.
Borgin á ekkert á ríkið
Borgin á ekkert að krefja ríkið um neitt, þegar hún sjálf verður rammskuldbundin vegna óþarfa Borgarlínu, sem kemur á versta tíma til þess að mylja undir 4% ferðalanga í Reykjavík. Fyrst og fremst eiga ríki og borg að draga þá línu inn, þó ekki væri nema stærsta hruns Íslands eða bara vegna almennrar skynsemi og þess að fara vel með fé sem yrði tekið að láni fyrir komandi kynslóð.
Sparnaðarleiðir
Ríkið á að fara að dæmi Breta og takmarka þróunarsóun sína verulega, þ.e. þróunaraðstoð úti í spilltum heimi, amk. 4 milljarðar króna en líkast til verulega meira. Síðan myndi almennilegar takmarkanir á umsóknum hælisleitenda spara fjölda milljarða króna fyrir ríkið, en ekki síst borgina og sveitarfélögin. Flottræfilshátturinn og stoltið er alveg að fara með okkur: viðurkennum að þetta fé er ekki til og ætti ekki að vera tekið að láni.
Heilagar kýr
Nú verður að taka á heilögu kúnum: Borgarlínu, Góða Samverjanum (gjafa- ídealistanum), RÚV, Góða hælisveitandanum, Shengen- sinnanum, EES- reglukónginum (ESB- sinnanum), ríkis- atvinnuveitandanum og öllum öðrum ónauðsynlegum þáttum, sem gera ekki annað en að tæma kistuna til langframa og halda okkur í spennitreyju gjafasósíalismans úr sparibauk barnanna.
Annarri umræðu fjárlaga seinkað | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Nýjustu færslur
- Landsvirkjun fyrir pólitíkusa
- Eitt Ísland á ári
- Síðasti séns Svandísar búinn
- Evrópusósíalisminn tekur flugið
- Þarfleysuþrennan
- Lærið um aðhald hjá Þjóðverjum
- RÚV og hryðjuverkin
- Borgarstjóri Krísuvíkur á fullu
- Gervigreind með CO2 á hreinu
- Eini möguleikinn til breytinga
- XD= 80% gegn Borgarlínu
- Göturnar leiða til bílastæða
- Framlengja misheppnað 10 ára tilraunaverkefni?
- Búa til nýja náttúru í Skerjafirði
- Landlægt Omicron skapar ofur- ónæmi
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Tenglar
Reykjavík
- Aðalskipulag Reykjavíkurborgar Aðalskipulag Rvk. Tenglar
- Skipulag í heild og Hlíðarnar Skipulag í heild og Hlíðarnar
- Vesturbær: Myndir úr hverfaskipulags-tillögum Vesturbær: Myndir úr hverfaskipulags-tillögum
- Skerjafjörður: Myndir úr hverfaskipulags-tillögum Skerjafjörður: Myndir úr hverfaskipulags-tillögum
- Umferðarflæði Reykjavík Umferðarflæði Reykjavík
- Hverfaskipulag í Reykjavík: tillögur birtar Hverfaskipulag í Reykjavík: tillögur birtar
- Könnun á húsnæðis- og búsetuóskum borgarbúa 2013 Könnun á húsnæðis- og búsetuóskum borgarbúa 2013
- Dagur & Co. stefndu í óefni með hverfaskipulag Dagur & Co. stefndu í óefni með hverfaskipulag
- Vatnssöfnun í skipulagi borgarinnar Vatnssöfnun í skipulagi borgarinnar
- Veitum Degi aðhald Veitum Degi aðhald
- Jóhönnu- heilkennið í Reykjavík Jóhönnu- heilkennið í Reykjavík
- Aðalskipulag miðar við flugvöllinn burt Aðalskipulag miðar við flugvöllinn burt
- Myndir úr nýju skipulagstillögunum Myndir úr nýju skipulagstillögunum
- Stefnir í glórulaust eignarnám Stefnir í glórulaust eignarnám
- Vinstri græn gegn einkabílnum Vinstri græn gegn einkabílnum
- Þvingun Þvingun
- Félagslegar íbúðir á dýrustu stöðum? Félagslegar íbúðir á dýrustu stöðum?
- Nýi Skerjafjörður á forsendum íbúanna Nýi Skerjafjörður á forsendum íbúanna
- Metnaðarfull stefna gegn borgurunum Metnaðarfull stefna gegn borgurunum
- Vísvitandi bílastæðaskortur Vísvitandi bílastæðaskortur
- Spjaldtölvur í grunnskólana Spjaldtölvur í grunnskólana
- Flugið verði fyrir almenning aftur Flugið verði fyrir almenning aftur
- Þögli meirihlutinn útskúfast Þögli meirihlutinn útskúfast
Tenglar
Áhugaverðir tenglar
- Sævörur ehf Útflutningur á rækju
- Fjallaferðir ÍP Myndasyrpur
- Bloomberg viðskipti Viðskiptavefur Bloombergs
- Glitnir: gengi gjaldmiðla Glitnir banki: Gengi gjaldmiðla 15 mín töf
- Boston University Boston University USA
- MR Menntaskólinn í Reykjavík
- Vald.org Jóh. Björn Raunveruleikinn í USA og víðar
- Financial Times ft.com viðskiptafréttir
- BBC News BBC fréttavefur
- AFP fréttir AFP fréttaþjónustan
- Reuters fréttir Reuters fréttaþjónustan
- Sky News Sky fréttaþjónustan
- Ritlist Önnu Heiðu Anna Heiða Pálsdóttir systir ÍP
- Sissú myndlist Sissú systir, myndlistarmaður og arkítekt
Banka/krónu blogg
Blogg mín um krónu og bankamál
- Fall Íslands, upphafsgrein Varnaðarorð um hagkerfið
- Hver borgar vextina? Hvaða aðilar eru að borga háu vextina?
- 30.000 krónur á mínútu allt árið Valréttarsamningar bankastjóra
- 2006 gaf þeim 3 milljarða Valréttarsamningar bankastjóra Kaupþings
- Háa vexti og framkvæmdaleysi Seðlabankinn lækkar ekki stýrivexti
- Augljóst hvert Moodys stefnir Mat Moody's á íslenskum bönkum
- Enn of örlátt, segja Bretar Íslenskir bankar of áhættuglaðir
- 628 milljarðar. Bilun. Íslenska krónan og vaxtamunarviðskiptin
- Vextir lækka ekki Seðlabankinn heldur stýrivöxtum háum
- Stöðugt ástand? Íslenskir bankar vanmeta ástandið
- Nóg komið af Jenum? Kaupþing ofl taka stór Jenalán
- Allir bankar ánægðir Háir stýrivextir og vaxtamunaverslun kæta
- Bankadómínókubbar Keðjuverkun hafin, fall í kerfinu
- Áhættuflótti heimsmarkaðar hefst fyrir alvöru Vaxtamunarverslun fellur og Jenið rís
- 6% fall krónu er góð byrjun Fall krónunnar hefst
- 10% gengisfall veldur verðbólgu Gengisfellingin nær 10%
- Eru veð bankanna traust? Veð ýmissa bréfa til umhugsunar
- Staðfest hvað stýrir krónunni Gjaldeyrisspekúlantar ráða gengi krónu
- Efnahagsmál af viti Umræður um efnahagsmál á malefnin.com
- Upphaf afleiðinga Afleiðingar hávaxtastefnu hefjast
- Greinasafn um banka og krónu Samantekt greina um banka og krónu
- Meira af Matadorpeningum! Seðlabankar dæla inn lausafé
- Áhættuflóttinn heldur áfram, en þó! Áættuflótti fyrst, en snerist við
- Federal Reserve sneri öllu við BNA seðlabanki lækkar vexti
- Davíð bregst bogalistin Seðlabanki með háa vexti, á móti Evru
- Jenið sækir aðeins á USD fellur, Jen rís, hlutabréf lækka
- Jenið og Ísland eru nátengd Tengsl Jens og Íslands skýrð
- Kaupþings- Klemman Vítahringur Vaxtamunarferlisins
- Japan 0, Ísland 1 Japan heldur stýrivöxtum
- Krónur, skuldir og verðlaus bréf Stýrivextir hækka, USA fer niður
- Sígandi markaður? Markaðurinn niður (en hikstandi)
- Veð íslenskra banka? Hve traust er staða bankanna?
- Bankar í afneitun Bankar telja sig stikkfrí
- Allt að 40% af fyrra markaðsvirði Exista og Kaupþing falla mikið
- Ekki batnar það Verðfall bréfa heldur áfram
- Billjón á 3 mánuðum? Frá 15 10 2007 fall um 1 billjón
- 200 milljónir á mínútu Fyrstu 5 daga 2008 fall 200M á mín
- Jen styrkist, íslenskir bankar veikjast Vaxtamunarverslun minnkar
- Fallið er ekki kauptækifæri Fall markaðar Íslands og heimsins
- Kaupþing 55%, Exista 32,8%, SPRON 32,5% Verðfall hlutabréfa frá tindi 2007
- Skítt með alla skynsemi ÍP keypti hlutabréf í Straumi
- Svindl og hrun haldast í hendur Svindl í SocGen og fall markaða
- Kaup-Thing lagið Lagið Wild Thing stílfært við Kaupþing
- Þreyjum Þorrann og Góuna! Fall markaða framlengist um nokkurn tíma
- Stóriðjan kemur til bjargar Útflutningsiðnaður skiptir máli
- Hvílíkir markaðir! Fall markaða er aðeins byrjunin
- Laun þín 2008: mínus 15-17% Gengisfelling IKR er nær samsvarandi launalækkun
- Mínus 500 milljarðar á einni klst.? Gengisfellingin 17/03/2008 byrjaði með 9% falli Jensins
- Allt löngu fyrirséð Fyrirsjáanlegar afleiðingar stefnu Seðlabanka
- Krónubréfum skilað Krónubréfum skilað
- Milljarðatuga munur Milljarðatuga munur
- Hraðbraut til heljar Hraðbraut til heljar
- Framlengt vegna fjölda áskorana Framlengt hjá Seðlabanka
- Bankar úr landi? Ríkið má ekki ábyrgjast skuldir bankanna
- Ársreikningar: veldu aðferð og þeir segja það sem þú vilt Aðferðir í ársreikningum skipta tugmilljarða máli
- Um hvað ætti ég að blogga ef allt þetta gerðist?: Draumar um banka og umhverfismál
- Bankar í verulegum vandræðum? Grein Ragnars Önundarsonar um bankana
- Fallin spýtan Yfirlit yfir þróun efnahagslífsins
- Skuldir Íslendinga snarhækka Jen hækkar skuldir landans
- Þúsundir milljarða í nettóskuldir? Þúsundir milljarða í nettóskuldir?
- Íslenskir bankar? Íslenskir bankar?
- Krónan veikust 25-26. dag síðasta ársfjórðungsmánaðar Krónan veikust 25-26. dag síðasta ársfjórðungsmánaðar
- Glitnir nú, en fasteignir ofl. síðar Glitnir nú, en fasteignir ofl. síðar
- Stýrivextir stefna í lækkun Stýrivextir stefna í lækkun
- Örþrifaráð og Matadorkrónur Örþrifaráð og Matadorkrónur
- Vaxtamunarverslunin drapst Vaxtamunarverslunin drapst
- Gjaldeyrisskortur og handstýrt gengi? Gjaldeyrisskortur og handstýrt gengi?
- Fljótt, fljótt, gjaldeyrir á 20% afslætti! Fljótt, fljótt, gjaldeyrir á 20% afslætti!
- Ástæður Rússalánsins Ástæður Rússalánsins
- Við neitum að borga Við neitum að borga
- Nokkrar jákvæðar hliðar mótlætisins Nokkrar jákvæðar hliðar mótlætisins
- Er gagnsæi Samfylkingar yfirleitt til? Er gagnsæi Samfylkingar yfirleitt til?
- Samúræjabréf falla. IMF leiðin er ófær Samúræjabréf falla. IMF leiðin er ófær
- Vegurinn til Vítis Vegurinn til Vítis
- Ríkið fer beint í snöruna Ríkið fer beint í snöruna
- Noregur og Ísland, hvort fyrir annað Noregur og Ísland, hvort fyrir annað
- Skuldir Íslands snarhækka Skuldir Íslands snarhækka
- Skyldulesning: Börgólfur Guðmundsson Skyldulesning: Börgólfur Guðmundsson
- 29,2% verðbólguhraði 29,2% verðbólguhraði
- Lánin borg hringavitleysuna Lánin borg hringavitleysuna
- Einn banki á dag gerður upp Einn banki á dag gerður upp
- Lánin yfir í fallandi krónur Lánin yfir í fallandi krónur
- Þjóðverjar spöruðu, Íslendingar eyddu Þjóðverjar spöruðu, Íslendingar eyddu
- Reglur IMF: réttur hinna sterku Reglur IMF: réttur hinna sterku
- Heildarlántaka 1000 milljarðar króna? Heildarlántaka 1000 milljarðar króna?
- Allt er bannað nema það sé leyft sérstaklega Allt er bannað nema það sé leyft sérstaklega
- Evran upp um 50% á 3 mánuðum Evran upp um 50% á 3 mánuðum
- Öryggi fjárins finnst ekki hér á landi Öryggi fjárins finnst ekki hér á landi
- Fasteignir, kvóti ofl. afhent? Klúður 101 Fasteignir, kvóti ofl. afhent? Klúður 101
- Neyðarlögin framkalla ójafnræði Neyðarlögin framkalla ójafnræði
- Vonlítið að reka fyrirtækin í þessu Vonlítið að reka fyrirtækin í þessu
- WSJ myndband um fall Íslands WSJ myndband um fall Íslands
- Yfirtaka bankanna dregur Ísland niður í svaðið Yfirtaka bankanna dregur Ísland niður í svaðið
- ESB aðild og IMF lán, samt kreppa og óeirðir! ESB aðild og IMF lán, samt kreppa og óeirðir!
- Veikustu hagkerfin verða útundan hjá ESB Veikustu hagkerfin verða útundan hjá ESB
- Falsað gengi til framtíðar? Falsað gengi til framtíðar?
- Björgvin skóp Bretavandræðin Björgvin skóp Bretavandræðin
- Lífeyrissjóðir í hreinu fjárhættuspili Lífeyrissjóðir í hreinu fjárhættuspili
- Enginn þorir að neita Icesave og IMF Enginn þorir að neita Icesave og IMF
- Írland er í ESB með Evru, samt mótmæla 100.000 Írland er í ESB með Evru, samt mótmæla 100.000
- Engin viðskipti, enginn með bein í nefinu Engin viðskipti, enginn með bein í nefinu
- Kreppan kosin burt? Kreppan kosin burt?
- Þjóð í dái Þjóð í dái
- Vondu karlarnir: sjómenn eða ríkið? Vondu karlarnir: sjómenn eða ríkið?
- Sverfur að skattaskjólum? Sverfur að skattaskjólum?
- EKKI skila 2006 styrkjum! EKKI skila 2006 styrkjum!
- Leiðin til þess að lifa þetta af Leiðin til þess að lifa þetta af
- Fjórðungshækkun punds gegn krónu á 38 dögum Fjórðungshækkun punds gegn krónu á 38 dögum
- Sjálfstæðismanneskja Sjálfstæðismanneskja
- ESB- sigur? Tæpast ESB- sigur? Tæpast
- Stýrivextir aukast í 13- földun ECB Stýrivextir aukast í 13- földun ECB
- Vinstri stjórn er eins varanleg og ... Vinstri stjórn er eins varanleg og ...
- Lífeyrissjóðir eru gjarnan rán um hábjartan dag Lífeyrissjóðir eru gjarnan rán um hábjartan dag
- Ríkið ákveði framboð og eftirspurn! Ríkið ákveði framboð og eftirspurn!
- Þjóðaratkvæðagreiðslu um afarsamningana! Þjóðaratkvæðagreiðslu um afarsamningana!
- Hverjir þingmanna gerast landráðamenn í dag? Hverjir þingmanna gerast landráðamenn í dag?
- Örlaganornirnar þrjár: tími Skuldar er kominn! Örlaganornirnar þrjár: tími Skuldar er kominn!
- 35 milljarða hækkun á 2 bankadögum! 35 milljarða hækkun á 2 bankadögum!
- Samfylkingarþingmenn sýni loks ábyrgð Samfylkingarþingmenn sýni loks ábyrgð
- Bara ef þeir hefðu nú farið! Bara ef þeir hefðu nú farið!
- Klýfur varaformaður flokkinn með Icesave og ESB? Klýfur varaformaður flokkinn með Icesave og ESB?
- Með byssuna í hnakkann og bundið fyrir augun Með byssuna í hnakkann og bundið fyrir augun
- Milliríkjadeilan varð að bresku einkaréttarmáli Milliríkjadeilan varð að bresku einkaréttarmáli
- Þýðing Magnúsar Thoroddsen hrl. Þýðing Magnúsar Thoroddsen hrl.
- Ólæs forsætisráðherra Samfylkingar? Ólæs forsætisráðherra Samfylkingar?
- Gjaldeyrishöft: svindlarar í hverju horni? Gjaldeyrishöft: svindlarar í hverju horni?
- Hæstaréttardómari staðfestir afsal Hæstaréttardómari staðfestir afsal
- Staðreyndir um Icesave standa Staðreyndir um Icesave standa
- Frumvarp um Weimar- Ísland Frumvarp um Weimar- Ísland
- Allt sem þú þarft að lesa er komið fram Allt sem þú þarft að lesa er komið fram
- Davíð um ESB- Svía Davíð um ESB- Svía
- Lýðræði í stað sendinefndar með opið tékkahefti Lýðræði í stað sendinefndar með opið tékkahefti
- Ágæti Vinstri- græn kjósandi! Ágæti Vinstri- græn kjósandi!
- Skræfurnar sitja hjá Skræfurnar sitja hjá
- Slepptu biti þínu, Steingrímur J. ! Slepptu biti þínu, Steingrímur J. !
- Ykkur tókst þetta, ESB- konunum! Ykkur tókst þetta, ESB- konunum!
- Lausn vandræðanna er fundin! Lausn vandræðanna er fundin!
- Bakland stjórnarinnar farið og tálsýnin er úti Bakland stjórnarinnar farið og tálsýnin er úti
- Bretar örvæntu 6. okt. 2008 Bretar örvæntu 6. okt. 2008
- Áfram heldur idealisminn ótrauður Áfram heldur idealisminn ótrauður
- Hvenær biðst Jóhanna Sig. afsökunar á þessu? Hvenær biðst Jóhanna Sig. afsökunar á þessu?
- Dýrustu feðgin Íslandssögunnar Dýrustu feðgin Íslandssögunnar Svavar og Svandís
Heimurinn / umhverfið
Umhverfið, mannfjöldi, hernaður ofl.
- Orka Íslands Mikilvægi orkuauðlinda Íslands
- Svifryki spúlað burt Spúla þarf svifryki af götunum
- Hrikalegt á að horfa Darfúr í Súdan frá Google Earth
- Koltvísýringslosun er ekki kosningamál CO2 magn er ekki kosningamál núna
- Hernaður kostar sitt Kostnaður hernaðar, aðallega BNA
- Svona er heimurinn (like it or not) Mannfjöldaaukning ræður orkuframleiðslu
- Þversögn vaxtarins Mannfjölgun og vöxtur þróunarríkja
- CO2 kvótamarkaður er martröð í mótun Upphaf CO2 kvótamarkaðar heims
- Grænland er of heitt! ESB á að kæla Grænland!
- Kókaínfundir og Ingibjörg Sólrún Afríkuríkin heilla ISG
- Heilaþvotturinn mikli, al-gor Heill dagur af heilaþvætti Al Gores
- Heimsvelgjan nær ekki suður úr Kólnun suðurfrá, ekki hitnun
- Út úr afríku! Vandamál Afríku eru hennar eigin smíði
- Grikkland brennur Eldar flæða um Grikkland
- CO2 kvótinn er verri en hinn kvótinn Ásjóna kolefniskvótans kemur í ljós
- Hálf- fréttir eru slappar Listi yfir 10 menguðustu borgir jarðar
- Tíu Ís-lönd hurfu sl. ár Norðurpóllin er að hverfa
- Varanlegt Mynd ÍP af pýramída, hugleiðingar
- Stærstu kvótaþegar jarðar Skipting CO2 kvóta á Íslandi og víðar
- Skömmtunarárin og haftapólitíkin endurvakin Íslensk CO2 úthlutun lítl. Ráðherraskömmtun.
- Minni kjarnorka þýðir meira af kolum og olíu Kjarnorkuveri í N- Nóreu lokað
- Vaclav Klaus: Hvort er í hættu, frelsið eða loftslagið? Vaclav Klaus, forseti Tékklands
- Sannfærð(ur)? Taktu prófið Tíu spurningar um loftslagsmál
- Löngu- Skerjafjörður Löngusker í Skerjafirði, mynd og hugleiðing
- Þróunaraðstoð fer til stríðsrekstrar Þróunaraðstoð til Afríku verður ekki skilvirk
- Al Gore og Dalai Lama? Listi yfir ýmsa friðarverðlaunahafa Nóbels
- Besta auglýsing í heimi Al Gore tekst vel upp með kvótabraskið
- 100 til 150 ár, segir SÞ- nefndin IPCC segir CO2 jafnast eftir 100-150 ár
- Klórblöndum ekki tæra vatnið okkar Ekki Evrópureglur um neysluvatn
- Þórunn mun klúðra samningsstöðu Íslands Umhverfisráðherra vill lítinn CO2 kvóta
- Góði Geir Vísa til Geirs um loftslagsmálin
- Rangt hjá Ingibjörgu Sólrúnu ISG segir enga samninga í gangi
- Hagavatnssvæðið í myndum Hagavatn virkjað? Myndir.
- Þróunarlaus aðstoð Þróunaraðstoð til óþurftar
- Bláfjöllin vakna Snjórinn kemur í Bláfjöllin
- BNA Íslandi til bjargar BNA neitar að samþykkja á Balí
- Látum okkur ekki blæða út á Balí Semjum ekki af okkur á Balí- ráðstefnunni
- Annars hugar á Balí Anna og Hugi frá Íslandi á Balí
- Ánægjulegt árangursleysi á Balí Óræð niðurstaða á Balí
- Lokasetning á Balí Lofstlagsráðstefnu á Balí lokið
- Á nöglum í rokinu Naglar borga sig í roki á svelli
- Áramótabrennum frestað? Líklegt að fresta þurfi áramótabrennum
- Átök orðin að stríði Sri Lanka eftirlitssveitir burt
- Nótum þess Vatnið á Íslandi, heitt og kalt er frábært
- Hungraður heimur, óvart Framleiðsla lífefnaeldsneytis veldur hungri
- Fórnarkostnaður stjórnarinnar Þórunn umhverfisráðherra er Wildcard
- ESB viðurkennir mistök í umhverfisstefnu ESB breytir um stefnu vegna etanóls
- Grænland kólnar! Kaldur vetur á Grænlandi
- Bláfjöll: Ráðningar gleymdust! Rekstur Bláfjalla í molum
- Ófriðareftirlit og spillingarstyrkir ISG og friðareftirlit
- Bláfjöll: Nú kastar tólfunum! Ástandið í Bláfjöllum versnar
- Bláfjallaklúðrið nær hámarki 10.000 manns í Bláfjöllum en lélegt
- Líf í frostinu Líf í frostinu
- Stóriðjan kemur til bjargar Stóriðjan kemur til bjargar
- Endurnýting hvala Endurnýting hvala
- Veturinn er bestur Veturinn er bestur
- Skattlagning í nafni kvenna Skattlagning í nafni kvenna
- Þórunn á bremsunni Þórunn á bremsunni. Umhverfisráðherra heftir för
- Gorhugsun um Hinn máttuga mann Gorhugsun um Hinn máttuga mann. Lýsingar Gores
- Veitum framúrskarandi forystu Íslendingar veita framúrskarandi forystu skv. Gore
- Gore er ræðusnillingur Gore er ræðusnillingur en fer með rangan málstað
- Lögregla gegn umhverfissinnum Lögreglan í Brussel tekur á umhverfissinnum
- Dýr er hver Bitru- túristinn Dýr er hver Bitru- túristinn fyrst að hætt er við Bitruvirkjun
- Hver tekur af skarið? Hver tekur af skarið í borginni? Erfitt í flokknum
- Virkjum og eflum alla dáð Virkjum og eflum alla dáð. Bitruvirkjun ofl til bjargar
- Skjálftakort og töflur Skjálftakort og töflur v Suðurlandsskjálftans maí 2008
- Vopnum safnað Vopnum safnað. ISG og Rice ræða málin
- Frægasti Íslendingurinn níðir Ísland Frægasti Íslendingurinn níðir Ísland. Björk ófrægir landann
- Buddan talar Þórunn umhverfisráðherra semur af sér
- Hekla er flott Ferðalýsing á Heklu með myndum
- Afleitar afleiddar afleiðingar afglapa Afleiðingar aðgerða í loftslagsmálum
- 5000 kr. á mann, bara fyrir Laugaveg 4 og 6 Borgin greiddi ofurverð fyrir skúrarusl
- Vedurpár- vídeó Veðurþáttaspá vedur.is útskýrð
- Engir samningar um loftslagsmál Fylkingar G8 og G5 eiga sér misjöfn takmörk
- ISG í herráð heimsins Utanríkisráðherra vill komast í Öryggisráð SÞ
- Yfir Skeiðarárjökul Ferðalýsing frá Grænalóni yfir Skeiðarárjökul
- Hækkum orkuverð Selja orkuna dýrt og gæta skattanna
- Þróunaraðstoð á tilvistarkreppufundi Þróunaraðstoð heimsins er í krísu
- Sóunarsamvinnu að ljúka? Sóunarsamvinnu að ljúka?
- Loftslags- réttlæti strax! Loftslags- réttlæti strax!
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (29.3.): 4
- Sl. sólarhring: 7
- Sl. viku: 35
- Frá upphafi: 867861
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 33
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
2024
2023
2022
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
Bloggvinir
- prakkarinn
- stefanbjarnason
- hannesgi
- businessreport
- askja
- martagudjonsdottir
- agbjarn
- geiragustsson
- gustaf
- vey
- frjalshyggjufelagid
- tilveran-i-esb
- gammon
- sigsig
- omarragnarsson
- raksig
- halldorjonsson
- vinaminni
- samstada-thjodar
- draumur
- magnusjonasson
- frisk
- jonaa
- apalsson
- skodunmin
- arnim
- gullvagninn
- altice
- fannarh
- gun
- oliatlason
- bjarnihardar
- nilli
- davido
- svanurmd
- steinisv
- johanneliasson
- hagbardur
- arh
- zumann
- doggpals
- jonvalurjensson
- dofri
- katrinsnaeholm
- seinars
- kari-hardarson
- fredrik
- valli57
- tibsen
- kisabella
- tbs
- astroblog
- maeglika
- himmalingur
- skulablogg
- arnih
- ingagm
- ahi
- mullis
- krissi46
- vefritid
- gauisig
- bryndisisfold
- brandarar
- nerdumdigitalis
- svartagall
- siggith
- klarak
- jennystefania
- lax
- unnurgkr
- vilhjalmurarnason
- gattin
- kruttina
- rynir
- heidistrand
- thorhallurheimisson
- duddi9
- kristjan9
- haddi9001
- bofs
- thjodarheidur
- theodorn
- lucas
- benediktae
- iceland
- fun
- diva73
- zeriaph
- tharfagreinir
- bjarnimax
- fullvalda
- sigurjons
- sissupals
- davpal
- friggi
- ketilas08
- valdimarjohannesson
- gerdurpalma112
- andres08
- krist
- fjarki
- tik
- palmig
- rustikus
- vestskafttenor
- gummibraga
- svansson
- geirfz
- fhg
- stjornlagathing
- loftslag
- jonmagnusson
Af mbl.is
Fólk
- Ítarlegri og krítískari skoðun
- DiCaprio sagður hafa beðið kærustunnar
- Foreldrar Katrínar eru kletturinn í lífi hennar
- Harry nefndur á nafn í kæru gegn Diddy
- Svipt allri von og tímaskynjun
- Það versta sem ég hef upplifað
- Iggy Azalea hefur sagt skilið við tónlistina
- Kidman kvaddi rauða hárið
- Hnoðri verði árviss viðburður á Húsavík
- Laufey og Daði Freyr á Lollapalooza